Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 50
Einn af eftirlætissjónvarps-
þáttum Birtu Björnsdóttur er
Arrested Development, sem
hætt er að framleiða. » 53
af listum
|fimmtudagur|12. 10. 2006| mbl.is
Staðurstund
Íslenski dansflokkurinn frum-
sýnir í dag tvö frumsamin verk
eftir þrjár konur í Borgarleik-
húsinu. » 52
dans
Miklar hræringar eru á Tónlist-
anum og plötur skipta um sæti,
ef frá er talið toppsætið sem
Baggalútur einokar. » 55
tónlist
Tvennir tónleikar á Norrænum
tónlistardögum eru hér teknir
til umfjöllunar gagnrýnenda
Morgunblaðsins. » 55
gagnrýni
Saga Ágústs Borgþórs Sverr-
issonar er fulltrúi Íslands í al-
þjóðlegu smásagnasafni sem
kemur út í Manchester. » 54
smásögur
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
L
ALALA er nefndur nýr
geisladiskur söngkon-
unnar Hildar Völu Ein-
arsdóttur sem kemur í
búðir í dag. „Mér fannst
þetta mátulega hlutlaust og kjána-
legt nafn á diskinn, það er alltaf snú-
ið að finna titla á diska en mér fannst
þessi skemmtilegur og passa vel og
svo vísar nafnið á eitt lag á disknum
sem heitir einmitt „Lalala“,“ segir
Hildur Vala hress þegar blaðamaður
náði tali af henni á miklum annatíma
fyrir útkomu disksins. „Sumum
finnst þetta kannski skrítinn tími
fyrir mig að gefa út disk þar sem ég
er á seinnihluta meðgöngu en mér
finnst þetta ekki óhentugri tími en
annar. Ég var búin að hlusta á mikið
af góðu efni sem mér bauðst og lang-
aði bara að gera skemmtilega plötu
með flottum íslenskum lögum.“
Tólf ný lög
Á Lalala er að finna tólf ný lög eft-
ir ýmis íslensk tónskáld og textahöf-
unda. „Þetta eru allt ný lög, það er
svo mikið af fólki út um allt að semja
flott lög og það er heiður fyrir mig að
fá að syngja þau.“ Að mati blaða-
manns er diskurinn einstaklega ís-
lenskur og haustlegur, Hildur Vala
segir að þau hafi ekki stílað inn á það
en hann hafi bara orðið þannig. Disk-
urinn er að mestu tekinn upp í hljóð-
veri í Danmörku. „Við vorum ekki
mjög lengi að vinna diskinn, fórum
út í ágúst með alla hljóðfæraleik-
arana í upptökur og dútluðum svo í
honum hérna heima,“ segir Hildur
Vala og bætir við að hún hafi haft
mjög gaman af því að vinna þennan
disk. Hljóðfæraleikararnir á Lalala
eru þeir sömu og á fyrsta diski Hild-
ar Völu sem kom út í byrjun árs í
fyrra. „Miðað við þennan disk var
fyrsti diskurinn minn frekar auðveld-
ur, hann kom í kjölfarið á Idol-
keppninni og ég bara valdi mér lög til
að syngja. Lalala er allt annað, á hon-
um er ég allt í öllu og vinn lögin frá
grunni.“
Gömul taska í uppáhaldi
Spurð út í uppáhaldslag á disknum
á Hildur Vala erfitt með val. „Mér
finnst fyrsta lagið hans Egils Ólafs-
sonar mjög skemmtilegt og „Gömul
taska“ eftir Sigurð Bjólu og Kristján
Hreinsson líka, það er svo fyndið að
syngja um gamla tösku, annars er ég
mjög ánægð með diskinn í heildina
og hann er allur í uppáhaldi.“ Það eru
ekki hæg heimatökin hjá Hildi að
fylgja geisladisknum eftir því hún á
að eiga sitt fyrsta barn eftir mánuð.
„Ég ætla að fylgja disknum eftir þeg-
ar ég nenni því, líklega í desember.
Ég á ekki jafnauðvelt með að syngja
núna og vanalega, er bara meira í því
að vera ólétt. En ég vildi koma diskn-
um frá mér sem fyrst því ég var svo
fersk svona nýbúin að vera á kafi í
efninu,“ segir Hildur Vala sem aðdá-
endur gætu þó átt von á að sjá á
vappi á reykvískum göngugötum í
tengslum við útgáfuna á Lalala.
Morgunblaðið/Sverrir
Ánægð Hildur Vala Einarsdóttir tók nýjan geisladisk sinn, Lalala, að mestu upp í Danmörku seinasta sumar.
Fyndið að
syngja um
gamla tösku
HEIMILDARMYNDIN Af engum
fjallar um ástand í Mexíkó og öðr-
um Mið-Ameríkulöndum sem hefur
skapast vegna hörmulegs efnahags-
ástands í álfunni og neyðir sífellt
fleira fólk til að ferðast ólöglega til
Bandaríkjanna í leit að atvinnu.
Daglega heyrir maður í fréttum
að rómanskir Ameríkanar séu
orðnir að plágu sem Bandaríkja-
menn hafi ekki undan að halda ut-
an landamæranna en maður fær
sjaldnar að heyra af þeim raunum
sem þetta sama fólk ratar í á leið-
inni yfir Mið-Ameríku og til Banda-
ríkjanna.
Í myndinni er rætt við fjöldann
allan af flóttamönnum og ólögleg-
um innflytjendum sem handteknir
hafa verið í Mexíkó en þar lýkur
ferð þúsunda ólöglegra innflytj-
enda. Hafa þeir flestir hörmulegar
sögur að segja af landamæravörð-
um, lögreglu og glæpagengjum
sem sitja um fátæka farandverka-
menn.
Sögurnar eru margar og hver
annarri hræðilegri en sú aðgát sem
Tin Dirdamal sýnir viðföngum sín-
um færir myndinni enn meiri dýpt.
Hér er á ferðinni heimildarmynd
sem er mjög upplýsandi um
ástandið í Mið-Ameríku og færir
þungamiðju ástandsins frá landa-
mærum Bandaríkjanna til hins
raunverulega vandamáls sem eng-
inn virðist tilbúinn að leysa.
Í leit að rót vandans
KVIKMYNDIR
RIFF 2006: Iðnó
Leikstjórn: Tin Dirdamal. 82 mín.
Mexíkó, 2005.
Af engum (De nadie) – Höskuldur Ólafsson
CHARLES Spencer, leikhúsrýnir
breska dagblaðsins Daily Telegraph,
gefur Hamskiptunum, í leikgerð ís-
lenska leikhópsins Vesturports,
mjög góða dóma í gagnrýni sinni
sem birtist í blaðinu í gær. Segir
Spencer sýninguna eina þá bestu á
þessu ári og lýsir henni sem hrífandi
og ásækinni framsetningu á sígildri
sögu.
Spencer hefur greinilega hrifist
mjög af sýningunni, en hann er
óspar á lýsingarorð í grein sinni.
Gagnrýnandi tók andköf
Segist gagnrýnandinn hafa tekið
andköf yfir sjónrænu leikhúsi hóps-
ins og fimleikum, en að sýningin veki
jafnframt hugsanir og tregafulla til-
finningadýpt.
Leikurum sýningarinnar er hrós-
að fyrir leik sinn og segir Spencer í
gagnrýni sinni Gísla Örn Garð-
arsson, aðalleikara sýningarinnar,
sameina á snilldarlegan hátt trega
og glæsilegan fimleika. Þá fá Nína
Dögg Filippisdóttir, Kelly Hunter
og Ingvar E. Sigurðsson lof fyrir
sinn þátt í sýningunni og segist
Spencer vona að framhald verði á
samstarfi þessa íslenska og breska
hæfileikafólks.
Svipaða lofræðu er að finna á
menningarvefritinu The Stage.
Gagnrýnandinn Nuala Calvi fer
fögrum orðum um túlkun leikhóps-
ins á verkinu en að hans mati er
stjarna sýningarinnar Börkur Jóns-
son leikmyndahönnuður. Segir hann
óreiðukennda sviðsmyndina í full-
komnu samræmi við inntak verksins
og fimleikaburði leikhópsins.
Hamskiptin Gísli Örn Garðarsson í
hlutverki Gregors Samsa.
Hrífandi Hamskipti
Börkur Jónsson stjarna sýningarinnar