Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 51
Norrænir
músikdagar
á Íslandi
5.–14. október
2006
www.nordicmusicdays.is
010100101010
0101010ATGC10101010ATGC
1010ATG
01010A
10ATG
01010101010ATGC1010
01010ATGC10ATGC0
0101010ATGC
010ATGC1010
ATGC01010A
Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja - Samtök sprotafyrirtækja - Samtök upplýsingatæknifyrirtækja
Öflugt menntakerfi á öllum skólastigum er forsenda fyrir vexti
og samkeppnishæfni hátækniiðnaðar á Íslandi. Mikilvægt er
að menntakerfið fullnægi þörfum greinarinnar fyrir
vel menntað og hæft starfsfólk
- Sjá stefnu SI og tillögur á www.si.is
HÚN er ekki féleg forgjöfin sem Pat-
rekur 1,5 hefur til að heilla vænt-
anlega áhorfendur sína, íslenska
framhaldsskólanemendur, sem auk-
inheldur verður seint talinn auðunn-
asti markhópur fyrir leiklist. Hér er
nefnilega á ferðinni eitt af þessum ill-
ræmdu sænsku vandamálaleikritum.
Það verður ekkert framhjá því litið.
Verkið er óumdeilanlega sænskt, og
tekur fyrir eitt samfélagsmein, for-
dóma gagnvart samkynhneigðum, og
reynir að eyða þeim meðal áhorfenda
sinna, eða draga í það minnsta úr. Í
leiðinni fljóta ýmis önnur félagsleg
böl með, meðferð samfélagsins á erf-
iðum unglingum, áfengissýki og fleiri.
Kannski er einn stærsti sigur
verksins þá fólginn í því að eyða for-
dómum gagnvart sænskum vanda-
málaleikritum. Patrekur 1,5 er nefni-
lega harla gott.
Grunnhugmyndin er eitursnjöll.
Tveir hommar í staðfestri samvist
ættleiða barn, en fyrir rangt stað-
setta kommu á eyðublaði er það ekki
1,5 ára gamall saklaus sólargeisli sem
birtist á dyrahellunni heldur 15 ára
gamall vandræðaunglingur með
manndráp á samviskunni og vænan
skammt af hommahatri í kaupbæti.
Verkið sýnir okkur svo hvernig þessir
þrír gaurar kynnast mönnnunum á
bak við merkimiðana sem þeir bera
allir. Fordómar víkja, vinátta kvikn-
ar, eða kannski opnast bara hugur og
hjarta. Þannig byrjar lærdómsferlið.
Þetta er skemmtilegt leikrit, upp-
fullt af fyndni, kraftmikið og hratt.
Eiginleikar sem styrkjast undir
handleiðslu Gunnars Helgasonar,
enda ekki lognmollumaður þar á ferð.
Samt tekst líka að ná samúð, mynda
tengsl við áhorfendur og halda at-
hygli í hljóðlátari köflum sem þarna
eru innan um stuðið. Það er smekk-
lega unnið með tónlist í sýningunni og
fumlaus samskipti við áhorfendur
voru sérlega vel af hendi leyst.
Einn helsti styrkur verksins er
fólgin í persónusköpun samkyn-
hneigða parsins. Hér eru stað-
almyndir og klisjur víðs fjarri, þetta
eru hvorki skrækjandi drottningar né
ofursmekkvísir snyrtipinnar heldur
einfaldlega tveir karlmenn sem svo
vill til að elska hvor annan. Og þeir
eru svo sannarlega gallagripir, annar
er hálfgerður auðnuleysingi og ótta-
leg subba, hinn er nokkuð efnilegur
alkóhólisti. Hvernig félagsmála-
yfirvöldum leikritsins datt í hug að
treysta þessum mönnum fyrir ung-
barni er sennilega erfiðasti hjallinn
sem trúgirni áhorfenda þarf að yf-
irstíga. Jóhannes Haukur Jóhann-
esson blómstrar í þakklátu hlutverki
landeyðunnar Jörundar, með fínar
kómískar tímasetningar og kostulegt
fas. Sambýlismaðurinn Sveinn er
ekki eins skýrt dregin týpa frá höf-
undarins hendi og Rúnar Freyr
Gíslason nær ekki að berja í þá bresti.
Samspil þeirra tveggja er afar vel
unnið. Sigurður Hrannar Hjaltason
er síðan ansi hreint sannfærandi sem
Patrekur, sérstaklega líkamsmálið
sem gaf bæði skýrt til kynna ungling-
inn og ofbeldismanninn.
Þýðing Davíðs Þórs er safarík og
eðlileg, og erfitt að átta sig á því hvort
eini gallinn á málfarinu sem ég kom
eyra á – fullvitsmunalegt tungutak
Patreks á köflum – væri hans verk
eða höfundar.
Umgjörðin raunsæisleg og stýrist
greinilega af farandeðli sýning-
arinnar. Kannski samt brotinu of fá-
tækleg.
Patrekur 1,5 er ágæt skemmtun
um alvöru efni. Ekki innantómur
fíflagangur, ekki hátimbruð predik-
un. Gott leikhús.
Patrekur 1,5 „Grunnhugmyndin er eitursnjöll.“
Sonur prentvillupúkans
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Höfundur: Michael Druker, þýðing:
Davíð Þór Jónsson. Leikstjóri: Gunnar
Helgason. Lýsing: Páll Ragnarsson,
leikmynd og búningar: Stígur
Steinþórsson.
Leikendur: Jóhannes Haukur
Jóhannesson, Rúnar Freyr Gíslason
og Sigurður Hrannar Hjaltason.
Fjölbrautaskóla Suðurlands
10. október 2006.
PATREKUR 1,5
Þorgeir Tryggvason
Fáðu úrslitin
send í símann þinn