Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 52
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju
undir stjórn Harðar Áskelssonar
kom fram á tónleikum á sunnudag-
inn var og rammaði dagskrá sína
inn með hinu innblásna „Requiem“
eftir Jón Leifs, þ.e. flutti það í upp-
hafi tónleikanna og líka í lokin. Það
var einstaklega fallega sungið.
„Sov Sødt“ eftir Peter Bruun,
sem byggist að miklu leyti á sama
texta og tónsmíð Jóns, var sömu-
leiðis sérlega vel heppnað. Það ger-
ist meira í tónlistinni og það sem
átti sér stað samsvaraði sér ágæt-
Ávarp til hins óþekkta
TÓNLIST
Norrænir músíkdagar – Hall-
grímskirkja
Verk eftir Jón Leifs, Kim Hedås, Peter
Bruun, Atla Heimi Sveinsson, Perttu Ha-
apanen og Veli-Matti Puumala. Flytj-
endur: Mótettukór Hallgrímskirkju undir
stjórn Harðar Áskelssonar, Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari, Zbigniew Dubik
fiðluleikari, Jónína Auður Hilmarsdóttir
víóluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari og Kjartan Guðnason slag-
verksleikari. Sunnudagur 8. október.
Kór- og kammertónleikar
Jónas Sen
lega og leiðin að hápunktinum var
ávallt áhugaverð.
Einnig verður að hæla „Næt-
urbón“ eftir Atla Heimi Sveinsson,
en tónsmíðin hófst á tilvitnun í „Re-
quiem“ Jóns sem Einar Jóhann-
esson klarinettuleikari spilaði af
andakt. Textinn er samnefnt ljóð
eftir Stefán Hörð Grímsson og
sjálfsagt er það smekksatriði
hversu vel manni finnst tónskáldið
grípa anda ljóðsins. Í sjálfu sér var
tónlistin byggð upp á sannfærandi
hátt og innhverft niðurlagið, sem
myndaði heillandi mótvægi við til-
finningaþrunginn fyrri partinn,
kom prýðilega út.
„Sand“ eftir Kim Hedås var síður
áhugavert og „Strophes“ eftir
Perttu Haapanen, sem samanstóð
af alls konar blístri og ámóta hljóð-
um, var lítið annað en lélegur
brandari.
„Apostrophe“ eftir Veli-Matti
Puumala, fyrir einleiksfiðlu, fiðlu,
víólu, selló og slagverk, var hins
vegar sérdeilis magnað og að mínu
mati hápunktur tónleikanna. Forn-
eskjulegur fiðluleikur Sigrúnar Eð-
valdsdóttur skapaði ótrúlega
mergjað andrúmsloft og hvass, sí-
endurtekinn trumbusláttur Kjart-
ans Guðnasonar gerði stemninguna
enn myrkari. Form tónlistarinnar
var líka athyglisvert, það skartaði
ekki dæmigerðum hápunkti undir
lokin, heldur dó verkið smám sam-
an út. Apostrophe þýðir m.a. ávarp
til fjarverandi einstaklings og hér
var tónlistinni beint til hins
óþekkta. Lögun verksins gerði að
verkum að það var eins og það
rynni hægt saman við hið ósýni-
lega; óneitanlega var það sér-
kennileg upplifun sem lengi verður
í minnum höfð.
52 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Glæsilegt 276 fm tveggja íbúða hús á þessum gróna stað nið-
ur við Kópavogsdalinn. Aðalíbúðin, sem er 183 fm á tveimur
hæðum auk 26 fm bílskúrs, skiptist m.a. í eldhús með nýleg-
um sprautulökkuðum innréttingum, samliggjandi bjartar og
rúmgóðar stofur með fallegu útsýni yfir Kópavoginn, nýlegan
sólskála með útgangi á suðursvalir með heitum potti, 5 her-
bergi, sjónvarpshol og rúmgott flísalagt bað-
herbergi. Nýtt glerhandrið á milli hæða. Verð
45,0 millj.
Á neðri hæð er sér 67 fm 2ja herb. samþykkt
íbúð sem bæði er innangengt í og með sér-
inngangi. Verð 14,9 millj. Falleg ræktuð
lóð. Eignin getur selst hvort sem er í
heild sinni eða í sitthvoru lagi.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Fífuhvammur - Kópavogi
Tveggja íbúða hús við Kópavogsdalinn
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Glæsileg 90 fm íbúð á efri hæð í fjórbýli auk stæðis í bílageymslu og
sérgeymslu í kj. Íbúðin er nánast algjörlega endurnýjuð m.a. gólfefni,
baðherbergi, innihurðir, fataskápar og raflagnir. Innfelld lýsing í loftum
frá Lúmex. Rúmgóð og björt stofa með útgangi á stórar svalir til suðurs
og austurs og tvö rúmgóð herbergi. Lóð í góðri rækt. Verð 27,9 millj.
Sæviðarsund
Endurnýjuð 3ja herb. íbúð á efri hæð
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÍSLENSKI dansflokkurinn frum-
sýnir í dag tvö frumsamin og
spennandi verk. Annað er eftir
Ólöfu Ingólfsdóttur og ber nafnið
Við erum komin og hitt heitir
Hver um sig og er eftir danshöf-
undana og dansarana Aðalheiði
Halldórsdóttur og Valgerði Rún-
arsdóttur. „Við erum komin er
hópverk fyrir tíu dansara og eina
raddlistakonu,“ segir Ólöf um verk
sitt. „Þetta er verk um líf og dauða
og annað léttvægt úr daglegri til-
veru. Þótt umfjöllunarefnið sé
stórt er farið um það mildum og
léttum höndum.“
Ólöf segist ekki hafa samið spor-
in ofan í dansarana heldur hafi
þeir tekið virkan þátt í að skapa
verkið út frá grunnhugmynd sem
hún kom með. „Hugmyndin að
verkinu varð til í samstarfi dans-
flokksins og norrænna músíkdaga.
Þannig kom sú hugmynd að vera
með íslenskan og norskan tónlist-
armann í þessu.“
Söngkonur á sviðinu
Áskell Másson, tónskáld og slag-
verksleikari, og Maja Ratkje söng-
kona sjá um tónlistina í verkinu.
„Hljóðheimar Áskels og Maju eru
svolítið ólíkir, tónlist þeirra er
kaflaskipt en fléttast svo saman
inn á milli. Maja er á sviðinu með
dönsurunum og notar röddina með
þeim.
Þetta er nokkuð ólíkt því sem ég
hef gert áður tónlistarlega séð,
þannig að vinnan hefur verið
spennandi,“ segir Ólöf en þetta er
þriðja dansverkið sem hún semur
fyrir Íslenska dansflokkinn. „Að
mörgu leyti er Við erum komin
hugmyndafræðilega líkt mínum
fyrri verkum en ekki danslega.
Mér hefur fundist mjög gaman að
vinna þetta með dansflokknum og
þeim frábæru og skapandi lista-
mönnum sem hafa komið við
sögu.“
Aðspurð hvort Við erum komin
og Hver um sig séu lík verk segir
Ólöf þau ekki vera það. „Að mestu
leyti eru þetta mjög ólík verk og
því skemmtilegt að hafa þau sam-
an en þó er í þeim báðum söng-
kona á sviðinu.“
Dans | Íslenski dansflokkurinn frumsýnir Við erum komin og Hver um sig
Tvö ný dansverk á
sviði Borgarleikhússins
Morgunblaðið/Golli
Dans Ólöf segir Við erum komin vera á léttu nótunum.
Spennandi Aðalheiður Halldórsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir sömdu
dansverkið Hver um sig fyrir Íslenska Dansflokkinn.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111