Morgunblaðið - 12.10.2006, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 12.10.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 55 menning Nýjasta plata hljómsveitarinnar Evanescence, The Open Door stekkur beint í annað sæt- ið þessa vikuna. Eins og kom fram í grein Arnars Egg- erts Thoroddsen í síðustu viku má segja að sveitin hafi fundið upp hið svokallaða sópranrokk sem er nokkuð furðuleg undirstefna gotarokksins, Sópranrokkið einkennist af dramatísku þunga- rokki sem oft er skreytt með strengjum og kór- um til að magna upp draugalega og gotneska stemningu. Lykillinn er þó falinn í því að hafa söngkonu í forvígi, lokkandi en myrka fegurð- ardís. Sópranrokkið komið til að vera! NÝJASTA plata Beck er loksins komin út. Heitir hún The Inform- ation og upptökum stjórnaði Nigel Go- drich, sem einnig sá um upp- tökustjórn á Beck- plötunum Muta- tions og Sea Change. The Information er sjöunda hljóð- versplata Beck og ekki einungis inniheldur hún 17 lög heldur fylgir með DVD-diskur með mynd- böndum við hvert lag plötunnar. Beck hóf að vinna að plötunni strax eftir að Sea Change kom út árið 2002, en tók svo hliðarspor með upptökuteyminu Dust Brothers sem gat af sér hina frábæru plötu Guero sem kom út í fyrra. Sjöunda hljóðversplatan! SÖNGVARINN og gít- arleikarinn Pétur Ben hefur sýnt það og sann- að með fyrstu plötu sinni, Wine for my Weak- ness að hann er lista- maður sem vert er að fylgjast með. Pétur hefur á undanförnum miss- erum verið atkvæðamik- ið tónskáld bæði í leik- húsi og í kvikmyndum en nú síðast vann hann að tónlistinni fyrir kvik- mynd Ragnars Bragasonar og Vesturports, Börn. Pétur Ben leikur í kvöld á Rokktóbeer- festi Gauksins og Xfm en þá mun hann einnig troða upp á Iceland Airwaves hátíðinni laug- ardaginn 21. október í Listasafni Reykjavíkur. Allir áhugamenn um góða tónlist og stórkost- legan gítarleik eru hvattir til að mæta, þó ekki væri nema á aðra hvora tónleikana. Áhugaverður einyrki á ferð! ÍSLENSKA hljómsveitin Jeff Who? hefur notið mikilla vinsælda að und- anförnu og er lagi hennar „Barfly“ ekki síst að þakka velgengnin. Sveit- in tilkynnti á dögunum að eftir Iceland Airwaves hygðust þeir félagar taka sér frí frá spilamennsku en þá mun Tobbi hljóm- borðsleikari einnig segja skilið við sveitina eftir hátíðina. Plata þeirra Death Before Disco er með söluhærri plötum þeirra ungsveita sem komu fram á síðasta ári og það er víst að margir bíða óþreyjufullir eftir næstu plötu sveitarinnar sem ráðgert er að komi út síðla árs 2007. Jeff Who? spilar á Gauknum föstudaginn 20. október. Hljómsveit á tíma- mótum!                                      !"                             #$  %!% %"%&'(% ) *+) ,"%-.(%/% 0 % )%!  %1 /"(%!  %2 *( !  %-#(%/3," (%.+%4 %0!  (%&!%50 4(%%#$%4 %56*!                            ? ? ? %#  45  @(     - 7 5! 8!8! -49%  : ! ;  %# 09! ! <0  <0  ;!""%=34 #4 &>%-! ?)7%?@ ) %A0 -99 - %&4 8! <0  #$0 %B%5  4 . ! -, 50 /%#4  :: B499 !%=  0 . !C.2 40! : !%.! 4%. ! 1 %B$ 18 4% ! -!8 1 9 ) -4 40 %4%4 %/ %!   5! 8!8! * %/%5! #3!%4*!%44 .4!% 0! 10D %4E ! !6@F4! 4 &4G>% H ! %+ , !3%9!"4!% 84 &** = !%"4%0%E! ! I % !00 %0>%/% 0 F, %0/ -!4%3!%E !  %/ ! % 0 0!  B400%400%400 -8 %34! %C%!! 4 ?  %?$  3!0J %=40 -7 ?!! %2  % %344 !%04! & !8!%9%* !8! .!%4"% "!%%!3 # #%3 #3!% "40 4 BK%4* -)! ) :/ %4 %-  @1/ )  !               ?! 0 !  14@-.? 14@-.? L !  14@-.? 1! 1!   10! !  1! %#$ 1! 1! 1! H ! %$ -+$ =! 10! !  B4 3%#! %#$ 5. M4%. 8 0 84 5. 10! !  L !  L !  1/0%!3" 10! !  H ! %$ 14@-.?    KJALLARASALUR Listaháskóla Íslands var ramminn um „klúbb- tónleika“ Norrænna tónlistardaga í Reykjavík síðla föstudagskvölds. Hvort hugsunin að baki nafngiftar hafi verið í aðlöðunaranda Klúbbs Listahátíðar um árið skal þó ósagt. Þaðan af síður hvort með því væri reynt að sykra að hér færi esóter- ískasta grein framúrstefnu, raf- og tölvutónlist, og ómenguð af samleik við klassísk hljóðfæri eins og gat að heyra á fyrri NT-tónleikum dagsins í Salnum. Konsertverkin þrjú (einu var sleppt vegna forfalla, og millivirkri rokkslitruinnsetningu Büngers, „Let them sing it for you“, var að- eins virk í hléum) voru öll undir for- merkjum lifandi raftónlistar og áttu sammerkt að teygjast fram úr hófi. Áferð og inntaki var m.ö.o. komið til skila á margfalt lengri tíma en nauð- syn krafði. Helgaðist það ekki sízt af því að sjaldan varð vart við skipu- lega framvindu eða efnisúrvinnslu, heldur verkaði flest sem kyrrstæðar lopateygingar að alkunnri mók- hyggjuuppskrift. Einna skást verkaði þó fyrsta verkið, sumpart þökk sé hvað eyru hlustenda voru þá óþreytt. „Elektra“ [14’] hins norska Knuts Vaages fyrir raffiðlu og rafhljóð (upprunnin frá spilaranum í stað- fenginni tölvubjögun höfundar) virt- ist nokkuð heilstætt verk og gætt snerpu. Endurunnu fiðluhljóðin – fæst myndu teljast hefðbundnir „tónar“ – komu lengi á óvart, jafnvel þótt boðskapurinn væri löngu full- ljós áður en stykkið var hálfnað. „Txture opus1“ [10’] eftir Danann Jakob Weigand Goetz reyndist blanda af geymdri og staðleikinni elektróník höfundar í takt við skjá- varpaða kvikgrafík af fyrst skóg- arþykkni, síðan brimróti í m.a. sól- aríseraðri myndbjögun. Hljóðhliðin var í meginatriðum afar hávært og eftir því langdrægt síteygt skruðn- ingaurg. Síðast kom Svíinn Sten Sandell fram með í fyrstu eftirtektarverða tölvubrenglun í rauntíma á eigin söng og munhljóðum er nefndist „Feed<--->Songs“. Eftir ferðina gegnum skilvindur tölvuforritsins voru furðuhljóðin hljóðnumdu orðin næsta ófresk og hefðu passað ágæt- lega við ókræsilegustu hug- óraskepnur Tolkiens. Því miður voru mínúturnar 25 þó orðnar meira en ærinn skammtur áður en lauk, þar eð fyrstu 5 hefðu gert nákvæmlega sama gagn. Skylt er þó að geta að sumir bravóuðu að leikslokum. Ríkarður Ö. Pálsson Ærnir skammtar TÓNLIST Norrænir músíkdagar – Listaháskóli Íslands Flytjendur: Victoria Johnson fiðla, Jakob W Goetz og Sten Sandell. Föstudaginn 6. október kl. 22. Rafverk eftir K. Vaage, J. W. Goetz, S. Sandell og E. Bünger. SKEMMST er að minnast barka- söngvaranna Huun Huur Tu sem komu hingað á þar síðustu Listahá- tíð. Barkasöngur er talsvert dýpri en venjulegir bassasöngvarar ná að syngja. Sumir tíbetskir lamar og bön-pa prestar syngja á þennan hátt í trúarathöfnum sínum, enda telja þeir að dýpstu tónar tónstigans séu næstir Guði. Slík tónlist er venjulega fremur einhæf, enda tilgangur henn- ar ekki að skemmta fólki heldur að ná sambandi við æðri máttarvöld. Hljóðin sem heyrðust á tónleikum með hljóðskúlptúrum eftir Jean- Francois Laporte í Loftkastalanum á laugardagskvöldið voru í svipuðum dúr, þótt ég efist um að tilgangurinn hafi verið einhvers konar seiður. Hljóðin komu m.a. úr einhverskonar kötlum sem stillt var upp í kringum áheyrendur og það gerðist lítið, a.m.k. ekki í fyrsta verkinu, nema að heildarómurinn smám saman breytti um lögun eftir hljóð- styrknum úr hverjum „hátalara“. Vissulega var þetta ekki spennandi áheyrnar, enda man ég ekki eftir tónleikum þar sem jafnmargir hafa gengið út á meðan á þeim stóð. En það verður þó að segjast að flutning- urinn var a.m.k. alltaf vandaður og með sterkri heildarmynd, þótt hann hafi verið langdreginn. Kannski hefðu verkin mátt vera styttri; áhrifin hefðu örugglega orðið meiri þannig. Langdregnir hljóðskúlptúrar TÓNLIST Norrænir músíkdagar – Loftkastalinn Hljóðskúlptúrar eftir Jean-Francois La- porte og flutt af höfundi ásamt Martin Ouellet. Laugardagur 7. október. Raftónleikar Jónas Sen Kvikmyndaleikkonan NicoleKidman er sögð hafa hringt í Katie Holmes, unnustu fyrrum eig- inmanns síns Tom Cruise og hvatt hana til að giftast honum en sögu- sagnir hafa verið á kreiki um að Holmes hafi fengið bakþanka varð- andi fyrirhugað brúðkaup þeirra. „Nicole hefur sagt Katie hversu glöð hún er yfir því að þau skuli ætla að gifta sig, segir ónefndur heimildarmaður breska tímaritsins Gracia. „Hún hefur dregið úr áhyggjum Katie af því hvernig það sé að vera gift Tom og hvatt hana til að láta verða af brúðkaupinu. Ni- cole heldur skoð- unum sínum yfirleitt fyrir sig en í þessu tilfelli gerði hún undantekn- ingu. Kidman og Cruise voru gift í tíu ár og ættleiddu saman tvö börn. Kidman giftist sveitasöngvaranum Keith Urban síðastliðið sumar. Fólk folk@mbl.is Laugavegi 54, sími 552 5201. Fyrir árshátíðina Ný sending af glæsilegum síðkjólum St. 36-48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.