Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 57
dægradvöl
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7 4. Rc3 0–0
5. e4 d6 6. h3 e5 7. d5 a5 8. Bg5 Ra6 9.
Be2 Rc5 10. Rd2 h6 11. Be3 Bd7 12. g4
c6 13. h4 a4 14. g5 hxg5 15. hxg5 Rh7
16. Hg1 Da5 17. Dc2 cxd5 18. Rxd5
Hfe8 19. Dc3 Bc6 20. Bxc5 Dxc5 21.
Rc7 Rf8 22. Bg4 Rh7 23. Bh3 Bf8 24.
Rxe8 Hxe8 25. b4 axb3 26. axb3 b5 27.
Ha6 Bb7 28. Ha5 b4 29. Da1 Dc7 30.
Ha7 Be7 31. Da4 Hb8 32. Rf3 d5 33.
cxd5 Dc3+ 34. Ke2 Dc2+ 35. Rd2 Bxg5
36. Da2 Dc3 37. Hg3 Dc5 38. Hxb7
Hxb7 39. Da8+ Kg7 40. Dxb7 Bxd2
Staðan kom upp á sterku alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir skömmu á eynni
Mön í Írlandshafi. Mikhail Krasenkov
(2.635) hafði hvítt gegn Mark Hebden
(2.532). 41. Hxg6+! og svartur gafst
upp þar sem eftir 41. … Kxg6 42.
Dc6+ Dxc6 43. dxc6 rennur c-peð hvíts
upp í borð.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Samgangsvandi.
Norður
♠ÁK8763
♥65
♦ÁD8
♣Á7
Vestur Austur
♠G54 ♠D1092
♥104 ♥DG832
♦K103 ♦G5
♣KG852 ♣D10
Suður
♠--
♥ÁK97
♦97642
♣9643
Suður spilar 3G og fær út lauffimmu.
Fyrsta verkefni sagnhafa lýtur að
útspilinu – á að drepa eða dúkka? Ef
laufið er 4-3 skiptir ekki máli hvað gert
er, en með því að drepa strax má stífla
litinn þegar austur á feitt tvíspil. Ásinn
fer því upp. Næst er það tígullinn –
hvernig á að vinna úr honum? Sam-
gangurinn er ekki upp á marga fiska
og sagnhafi lendir í vandræðum ef
hann fer heim á hjarta til að svína
tíguldrottningu. Hann þarf báða spa-
ðaslagina, en ekki þýðir að afhausa lit-
inn áður en vörnin fær tígulslaginn
sinn. Þessi vandi er leystur með því að
gefa strax slag á tígul – spila áttunni úr
borði í öðrum slag. Síðan er önnur
hjartainnkoman notuð til að svína í tígli
og taka ÁK í spaða, en hin innkoman til
að nálgast frítíglana.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 kýrin, 4 krús, 7
hreyfingarlaust, 8 úr-
komu, 9 kraftur, 11 vit-
laus, 13 dugleg, 14 mál-
gefið, 15 sáldra, 17
snaga, 20 snák, 22 orsak-
ir, 23 gosefnið, 24 áma,
25 gefur fæði.
Lóðrétt | 1 ávani, 2 mys-
an, 3 brúka, 4 maður, 5
sagt ósatt, 6 sleifin, 10 el-
ur, 12 á litinn, 13 fag, 15
fugl, 16 illkvittin, 18
svarar, 19 flanar, 20
grenja, 21 skaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 boðflenna, 8 kubbs, 9 gerpi, 10 ker, 11 liðna, 13
arinn, 15 hress, 18 efldi, 21 vol, 22 glata, 23 deyða, 24
vitfirrta.
Lóðrétt: 2 ofboð, 3 fiska, 4 eigra, 5 nærri, 6 skál, 7 kinn,
12 nes, 14 ref, 15 hagl, 16 efaði, 17 svarf, 18 eldur, 19
leyft, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
1 Erlend börn eru orðin um 10%allra leikskólabarna í Reykjavík.
Reiknað hefur verið út hversu mörg
tungumál þau tala. Hversu mörg?
2 Í fréttum kom fram að lítil verð-bólga er í Færeyjum. Hversu
mikil er hún?
3 Hvað þjóð er feitust í Evrópu?
4 Hvaða íslenska félagslið tekurnú þátt í Evrópukeppni í hand-
knattleik í fyrsta sinn og mætir þá
svissnesku félagi?
Svör við spurningum gærdagsins:
1.Kaupþing banki stendur fyrir skuldabré-
faútboði í japönskum jenum. Hvað eru slík
bréf kölluð? Samúræjabréf.
2. Morðið á blaðakonunni Önnu Politkov-
saju er mjög í fréttum. Hverjir eru taldir
standa á bak við morðið? Stjórnvöld í Téts-
níu. 3. Yoko Ono er að undirbúa friðarsúlu
úti í Viðey. Hver kostar ljóssúluna og hvað
kostar hún? Orkuveita Reykjavíkur og
kostnaðurinn er 15 milljónir. 4. Ísland og
Svíþjóð léku síðast landsleik í knattspyrnu
í Stokkhólmi 12. okt. 2004 (ekki 2006).
Hver skoraði mark Íslands? Kári Árnason.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
Á SÝNINGU sinni í 101 gallery kýs
Spessi sér sígilt viðfangsefni úr lista-
sögunni. Eldri myndverk sýna helst
verkamenn við landbúnaðarvinnu.
Dæmi um slíkar myndir eru dagatala
myndaraðir frá 15. og 16. öld. Einna
frægust er Les trés riches heures du
Duc de Berry eftir Limbourg bræð-
ur.
Verkamenn við vinnu á ökrum eða í
verksmiðjum á borð við bómull-
arverksmiðjur birtast á málverkum á
næstu öldum en með iðnbyltingunni
tekur myndefnið að sjálfsögðu kipp.
Á sama tíma er ljósmyndin að verða
til og ljósmyndarar mynda hinn nýja
heim af ákafa. Sem dæmi má nefna
áhrifaríkt raunsæi ljósmynda Lewis
Wickes Hine af t.d. verkamönnum við
byggingu skýjakljúfa eða börnum í
verksmiðjuvinnu. Flestir þekkja hin-
ar mýmörgu áróðursmyndir af verka-
mönnum sem upphófu ýmsar öfga-
stefnur 20. aldarinnar, myndefnið er
sígilt og birtist sífellt á nýjan hátt.
Verkamenn Spessa birtast ekki við
erfiðar vinnuaðstæður eins og oftast
er raunin, heldur eru þeir í pásu.
Blöðungur um sýninguna gefur til
kynna að hér er um verkamenn við
Kárahnjúka að ræða en umhverfi
þeirra í pásunni gæti verið hvar sem
er í heiminum, þetta er alþjóðlegt,
staðlað vinnustaðaumhverfi, mötu-
neytismatur og vinnugallar.
Eins og jafnan er raunin um list
Spessa eru ljósmyndirnar auðlesnar.
Þetta er alþýðleg list sem allir skilja
og birtir hér þetta fyrirbæri samtím-
ans, alþjóðlega farandverkamenn.
Ekkert drama er á ferð. Spessi nálg-
ast viðfangsefni sitt af varfærni og úr
svo hlutlausri fjarlægð sem unnt er
þegar undan er skilin sú hlutdrægni
sem felst í vali viðfangsefnis, uppstill-
ingu þess og framsetningu mynda. Sú
tilfinningalega hleðsla sem mynd-
irnar bera er að mestu undir áhorf-
andanum komin. Þó að á yfirborðinu
megi túlka þessar ljósmyndir sem
birtingarmyndir miður æskilegra
þátta í samtímanum, auðgunar-
hyggju og þar fram eftir götunum, er
það áhugavert að það sem þær skilja
eftir í huganum er ekki kaldr-
analegur veruleiki Kárahnjúka eða
tilfinning fyrir erfiðu og hörðu lífi
þessara manna. Upp úr kuldagöll-
unum gægist hinn mannlegi þáttur,
sumir brosa, aðrir eru vandræðalegir
en allar eru ljósmyndirnar heimild
um sammannleg augnablik þar sem
tilvist einstaklingsins er staðfest, við-
urkennd og skráð á spjöld sögunnar.
Markmið Spessa eru að vissu leyti
þau sömu og hjá mörgum þeirra ís-
lensku listamanna sem hafa á svo frá-
bæran máta birt okkur myndir af
hversdagshetjum lands og sjávar frá
upphafi síðustu aldar. Hér er raun-
veruleikinn skoðaður í alþjóðlegra
samhengi og andlitin lengra að komin
en ljósmyndirnar eru kærkomið inn-
legg í sögu myndefnisins.
Í pásu
MYNDLIST
101 gallery
Til 14. október. Opið fim. til lau. frá
kl. 14 – 17. Aðgangur ókeypis.
Verkamenn – Spessi
Spessi á Kárahnjúkum „Upp úr stöðluðum vinnugöllunum gægist hinn
mannlegi þáttur,“ bendir Ragna Sigurðardóttir á. Ragna Sigurðardóttir