Morgunblaðið - 12.10.2006, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 61
ÞÚ ÁTT EFTIR
AÐ JÓÐLA
AF HLÁTRI
/ ÁLFABAKKI
Munið afsláttinn
WORLD TRADE ... kl. 8 - 10:20 B.I. 12
THE ALIBI kl. 8 - 10 B.i.16.
/ AKUREYRI
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
THE WILD m/ ensku tali kl. 4 LEYFÐ
BÖRN kl. 5:50 - 8:30 B.i.12.ára.
THE PROPOSITION kl. 10:40 B.i. 16.ára.
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 3:45 LEYFÐ
WORLD TRADE CENTER kl. 5:50 - 8 - 10:40 B.i. 12.ára.
WORLD TRADE CE... VIP kl. 4 - 8 - 10:40
BEERFEST kl. 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12.ára.
HARSH TIMES kl. 10:40 B.i. 16.ára.
NACHO LIBRE kl. 3:45 - 8 B.i. 7.ára.
STEP UP kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
eeee
HEIÐA MBL
eee
Ó.H.T. RÁS2
FRAMLAG ÍSLENDINGA TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA!
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
kvikmyndir.is
FRÁ HÖFUNDI „TRAINING DAY“ OG
„THE FAST AND THE FURIOUS“
ATH! ENGIR ÞJÓÐVERJAR VORU SKAÐAÐIR EÐA
MEIDDIR Á MEÐAN TÖKUM MYNDARINNAR STÓÐ.
eee
EMPIRE
TRUFLAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS ER KOMIN
eeeee
LIB - topp5.is
eeee
HJ, MBL
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
eee
E.B.G. Topp5.is
E.T. kvikmyndir.is
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
FRAMLEIDD AF TOM HANKS.
„the ant bully“
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ
ANNAÐ TÆKIFÆRI
ÞARFTU AÐ TAKA
FYRSTA SPORIÐ.
SÍÐ
US
TU
SÝ
NI
NG
AR
/ KEFLAVÍK
BEERFEST kl. 8 - 10:15 B.i. 12
AN INCONVENIENT... kl. 8 - 10 Leyfð
Forsýnd í kvöld
Biluð skemmtun !
Brellurnar í þessari mynd voru framkvæmdar af atvinnumönnum, þannig
að hvorki þú né heimsku litlu vinir þínir ættu að reyna að leika þær eftir.Varúð
„Nýtt lágmark“
-WASHINGTON TIMES
vík sem lauk síðastliðna helgi.
Sambíóin hafa nú samið við fram-
leiðslufyrirtæki Sigurjóns Sighvats-
sonar, sem framleiðir myndina, um
að halda áfram sýningum mynd-
arinnar í Háskólabíói.
Eitt eftirminnilegasta atvikið áheimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu fyrr í sumar var án efa þegar
franski knattspyrnumaðurinn Zi-
nedine Zid-
ane skallaði
ítalska koll-
ega sinn,
Marco Mate-
razzi, í
bringuna í leik liða þeirra. Þrátt fyr-
ir athæfið var Zidane kjörinn besti
maður mótsins sem jafnframt var
hans síðasta á ferlinum.
Kvikmyndin Zidane, un portrait
du 21e siécle, sýnir þennan snjalla
knattspyrnumann í nýju ljósi.
Myndin var sýnd á nýafstaðinni Al-
þjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykja-
ÞAU mistök urðu við gerð íslenska
bíólistans fyrr í vikunni að mynd-
irnar sem voru í öðru og þriðja sæti
listans víxluðust.
Hið rétta er að kvikmyndin World
Trade Center var í öðru sæti að-
sóknarlistans en myndin Talladega
Nights í því þriðja.
Það leiðréttist hér með.
LEIÐRÉTT
Röng sæti á bíólista
NÝJA plata Dark Harvest er gít-
arplata, það er það fyrsta sem er al-
veg á hreinu. Gulli Falk hefur lengi
verið að semja og gefa út tónlist,
bæði sólóplötur og með hljómsveit-
inni Exist. Það sem hann gefur út er
alltaf fullt af lífsgleði og krafti og
hann er sá tónlistamaður sem hefur
hvað mesta útgeislun á sviði, af þeim
fjöldamörgu sem maður hefur verið
svo heppinn að fá að njóta á tón-
leikum. Hann er leikinn á hljóðfærið
sitt og naskur á að hitta á flott gít-
arstef sem ganga vel upp.
Nýja platan er með öllu ósungin
og því er það ennþá mikilvægara að
lögin séu það góð og heilsteypt að
þau haldi athyglinni ein og sér. Í
fyrsta skipti sem ég renndi disknum
velti ég því aðeins fyrir mér hvort
það hefði verið betra að hafa einhver
lög með rödd í, en svo féll ég fljót-
lega alfarið frá þeirri hugmynd.
Platan stendur nefnilega algerlega
eins og hún er, og söngur myndi
bara stela athygli frá þeim fók-
uspunktum sem nú þegar eru á
henni. Það er í raun frekar snjallt að
taka út allan söng í tónlist sem þess-
ari, því ef enginn er textinn til að
hlusta eftir ná skilningarvitin að ein-
beita sér enn betur að sjálfri tónlist-
inni.
Með Gulla í Dark Harvest eru
tveir miklir meistarar, bassaleik-
arinn Maddi sem einnig er í For-
garði Helvítis og trommarinn Krist-
ján, sem líka er í Changer. Að
báðum þessum sveitum ólöstuðum
verð ég að segja að það er í Dark
Harvest sem þeir fá að blómstra og
njóta sín til fullnustu. Báðir eru þeir
mjög liprir hljóðfæraleikarar og fá
heilmikið pláss á plötunni til eigin
framkvæmda og flæðis. Það heyrist
strax á fyrstu mínútum plötunnar
hvað allir þrír meðlimir Dark Har-
vest eru að njóta þess vel að spila
þessi lög, og held ég að aldrei hafi
Guðlaugur Falk verið í eins góðum
félagsskap.
Dark Harvest er hugarfóstur
Gulla Falk, enda eru öll lögin eftir
hann. Hann stjórnar líka upptökum
og maður skynjar undir eins að hér
er ekki kastað til hendinni. Það er
auðheyrilega búið að liggja yfir sum-
um útsetningunum, en sérstaklega
eru gítarútsetningar flóknar og
margslungnar. Lögin eru af ýmsum
toga, og heyra má áhrif frá hljóm-
sveitum eins og Van Halen, (t.d. í
laginu „Sunny Valentino“) og Led
Zeppelin (t.d. í lögunum „Sam-
balavista“ og „Madman“ ). Að sjálf-
sögðu eru lögin misgrípandi, en það
er einna helst í þeim lengstu sem
örlar á smá einhæfni og óþarfa end-
urtekningu. Lagið „Fast Train“ er
til að mynda alls ekki slæmt, en það
nálgast sjö mínútur að lengd og
hugsanlega hefði það verið einbeitt-
ara aðeins styttra. Fyrsta lagið,
„Beyond the stars“, er rúmar sjö
mínútur, en þar er hljómurinn gerð-
ur dulúðlegri með hljómborðs-
notkun og því kemur lengdin minna
að sök.
Eitt af mínum uppáhaldslögum á
plötunni er lagið „East meets west“,
og það er jafnframt eina lagið sem
ég hef heyrt áður á plötu, en það
kom út á „Falk“ árið 2000. Gulli
gerði hárrétt í að taka það upp aftur
með Dark Harvest, því ný útgáfa
þessa lags er hreint út sagt stórkost-
leg, og skilur hina fyrri útgáfu eftir
slyppa og snauða.
Þessi plata er einkar vel til þess
fallin að keyra bíl á þjóðvegi, og ég
er ekki frá því að hugurinn hafi tekið
á flug hjá mér þegar norðanrokið
breyttist í heitan Kalíforníuvind, og
mér fannst eins og ég væri leð-
urklædd á leið á tónleika, með perm-
anent í hárinu. Áður en ég vissi af,
var ég farin að keyra allt of hratt.
Vonandi eru hraðasektir ekki aft-
urvirkar, en ef ég fæ sekt skrifast
hún náttúrulega alfarið á Dark Har-
vest. Það efast enginn um að það sé
þungt rokk sem á huga þessara pilta
allra, en þó ekki svo þungt að leik-
gleðin gleymist. Það er hárfín lína
sem skilur á milli þess að leika vel og
leika sér, og ef menn hugsa bara um
að gera eitthvað vel og vanda sig of
mikið, verður stemmningunni ábóta-
vant og tónlistin tapar á því. Hér eru
upptökur, hljómur og spilamennska
vönduð, en það er samt ofsalega
gaman að vera til.
Gítarplata sem
breytir heiminum
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur Dark Harvest, sem ber heit-
ið Dark Harvest. 10 lög, heildartími
47.42 mínútur. Dark Harvest eru: Guð-
laugur Falk, gítar, hljómborð; Kristján B.
Heiðarsson, trommur og Magnús H. Páls-
son, bassi. Lög eru eftir G. Falk, en um
útsetningar sá Dark Harvest. Tekið upp í
I.V. Studio 2005 – 2006, af Óskari Inga
Gíslasyni. Upptökum stjórnaði Guðlaugur
A. Falk. Hljóðblandað af Peter „Ziggy“
Siegfredsen. Uppsetning plötuumslags:
Valli Dordingull, Teikningar á umslagi:
Arnór Hermannsson og Jón Óskar Frið-
riksson. Smekkleysa gefur út 2006.
Dark Harvest – Dark Harvest
Ragnheiður Eiríksdóttir
Söngkonan Madonna er sögð hafaættleitt eins árs gamlan móð-
urlausan dreng frá Afríkuríkinu
Malaví. Liz Rosenberg, fjölmiðla-
fulltrúi söngkonunnar, neitaði fyrir
nokkrum dögum að Madonna og eig-
inmaður hennar breski kvikmynda-
leikstjórinn Guy Ritchie hefðu í
hyggju að ættleiða barn en segist nú
ekki geta tjáð sig um málið að svo
stöddu. Þetta
kemur fram á
fréttavef BBC.
Yohane Banda,
sem kveðst vera
faðir drengsins
sem þau hyggjast
ættleiða, segist
sannfærður um
að hann verði
hamingjusamur í Bandaríkjunum.
„Ég er faðir David, sem hefur verið
ættleiddur. Ég er mjög, mjög ham-
ingjusamur því eins og þið sjáið er
þetta fátækt þorp og ég veit að það
verður hugsað vel um hann í Banda-
ríkjunum.
Madonna og Ritchie hafa verið á
ferð um Malaví til að kynna sér þá
baráttu sem þar fer fram gegn fá-
tækt og þeim vandamálum sem
fylgja mikilli útbreiðslu HIV og al-
næmis.
Áður hefur opinber embætt-
ismaður í landinu haldið því fram að
þau hafi einnig verið að leita að barni
til að ættleiða. Madonna sem er 48
ára gömul á fyrir níu ára dóttur frá
fyrra sambandi og fimm ára son með
Ritchie.
Fólk folk@mbl.is
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Leiðin að takmarkinu er hálf skemmt-
unin, en þeir sem standa í biðröð fyrir
öryggisskoðun á flugvöllum í seinni tíð,
sjá það kannski ekki endilega svona.
Kímni hrútsins á eftir að hjálpa náung-
anum við að umbera óþægindi tilver-
unnar í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Fylgstu náið með heilsufarinu svo þú
sért undir það búin/n að mæta áskor-
unum vikunnar. Grænmeti er ekki það
eina sem styrkir ónæmiskerfið – ham-
ingja og ástríkar tilfinningar gera enn
meira fyrir það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Geta tvíburans til þess að laða fram það
besta í náunganum hjálpar honum til
þess að hafa meiriháttar forskot á sam-
keppnisaðilana. Hann ljómar í við-
tölum, kynningum og á fundum. Farðu
fram á rausnarlega umbun.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vikan framundan verður litrík í lífi
krabbans. Hann verður vitni að áhuga-
verðum og kyndugum uppákomum.
Sumar þeirra kitla hláturtaugarnar, en
bara af því að einhverjir aðrir eiga hlut
að máli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Himintunglin leysa úr læðingi leynda
orkuuppsprettu innra með þér. Örlítil
samkeppni í vinnunni eða einkalífinu er
allt sem þarf til þess að æði renni á ljón-
ið – fyrr en varir verður það á enn meiri
hraða en nokkru sinni fyrr.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fólk umhverfis meyjuna vill vita að hún
sé samvinnuþýð – að hún sé sveigjanleg
og að það sé einhvers metið. Þó að þú
ætlir þér að fara milliveginn áttu samt
eftir að fá þitt fram á endanum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er óstöðvandi. Mars endurnærir
líkama þinn og dælir metnaðarfullum
hugmyndum í hugmyndabankann. Þú
myndir halda áfram sólarhringum sam-
an til þess að ná einu skínandi tak-
marki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er einstaklega skýrmælt-
ur og segir bara það sem hann meinar,
en á einstaklega áhugaverðan máta.
Merkúr heldur áfram að brosa við þér,
nýttu þér það sem þú fékkst í vöggugjöf
með því að eiga samræður sem þú hef-
ur frestað um sinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Eins og eldurinn sem bogmaðurinn
stendur fyrir flöktir orka þín og glóir sí-
breytileg. Margir eiga fullt í fangi með
að fylgja þér eftir, en þeir reyna. Til
allrar hamingju vita hrúturinn og ljónið
við hvað er átt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nýjar upplýsingar fylla steingeitina
hugsanlega efa um eitthvað sem hún
var eitt sinn alveg handviss um. Ekki
leyfa huganum að geta sér til að óþörfu.
Taktu ákvarðanir með hraði, dóm-
greind þín er í lagi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er með bros í hjarta. Allt
það litla sem einhver myndi hugsanlega
láta slá sig út af laginu hefur engin
áhrif á þig. Af hverju ertu svona af-
slappaður? Það veit enginn nema þú.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Sannleikurinn er til í mörgum útgáfum
í dag. Á milli þeirra er hálfgert ginn-
ungagap. Með visku sinni smíðar fisk-
urinn brýr milli hugmynda, fólks og
mismunandi raunveruleika.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Krabbinn hefur orð á sér
fyrir að vera mislyndur.
Kannski er hann bara að
koma skikki á tilfinningar
sínar, en það fáum við öll
tækifæri til þess að gera á næstunni.
Tunglið tekur til hjá sér þegar það ferðast
í gegnum krabbann. Það greiðir úr til-
finningum mánaðarins og kemur hverri
á sinn stað.