Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 64

Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 64
Eftir Rúnar Pálmason og Guðna Einarsson GJALD verður innheimt fyrir nýtingu auðlinda á eignarlöndum ríkisins og á þjóðlendum og hægt að velja á milli umsækjenda um rannsóknar- og nýtingarleyfi með uppboði, verði farið að tillögum nefndar á vegum iðnaðarráð- herra. Nefndinni var falið að móta framtíðarsýn um verndun og nýt- ingu auðlinda í jörðu og vatnsafls. Hún kynnti tillögur sínar á blaða- mannafundi í gær. Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra sagði að með skýrslu nefnd- arinnar væri náð merkilegum áfanga í mikilvægum málaflokki. Í tillögum nefndarinnar væri sann- arlega fólginn farvegur til þjóðar- sáttar. Sagði Jón að stefnt væri að því að frumvarp, sem byggðist á tillögum nefndarinnar, yrði sam- þykkt á yfirstandandi þingi. Karl Axelsson, formaður nefnd- arinnar, sagði að í nefndinni hefði náðst samkomulag um stærstu þættina, ef frá væri talið það álita- efni hvaða auðlindanýtingu ætti að heimila fram til ársins 2010. Þrír nefndarmanna skrifuðu undir skýrsluna með fyrirvara og gerðu grein fyrir afstöðu sinni í sérstakri bókun. Takmörkuð áhrif næstu ár Verkefni nefndarinnar voru að- allega þríþætt: Hvaða framtíðar- stefnu ætti að marka um verndun og nýtingu auðlinda í landinu; að taka afstöðu til þess hvað ætti að heimila þar til sú stefna tekur gildi; og hvaða aðferðum skyldi beita til að velja á milli umsókna um rannsóknir og nýtingu á kost- um sem í boði væru. Talsmenn orkufyrirtækjanna Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suður- nesja telja að tillögur nefndarinn- ar hafi lítil áhrif á starfsemi þeirra í nánustu framtíð. Agnar Olsen, framkvæmdastjóri hjá Lands- virkjun, kvaðst hafa gert þann fyr- irvara að heimila ætti rannsóknir í Gjástykki. Júlíus J. Jónsson, for- stjóri HS sagði að fyrirtækið héldi sínu striki varðandi útvegun orku til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Guðmundur Þóroddsson, for- stjóri OR, sagði fyrirtækið hafa gert fyrirvara vegna endurútgáfu rannsóknaleyfis ofan Grensdals. Nefnd leggur til auð- lindagjald og uppboð Framtíðarsýn um vernd og nýtingu orkuauðlinda kynnt á blaðamannafundi Í HNOTSKURN »Ekki verða veitt ný rann-sóknarleyfi vegna Brenni- steinsfjalla, Skaftárveitu eða Gjástykkis til 2010, sam- kvæmt framtíðarstefnu um auðlindanýtingu. »Lögð er til grundvallar-breyting á afgreiðslu um- sókna um rannsóknar- og nýt- ingarleyfi. Úthlutun leyfa færist frá iðnaðarráðuneyti til Orkustofnunar. »Þrír nefndarmenn af tíuskrifuðu undir með fyr- irvara um hvaða auðlindanýt- ingu ætti að heimila fram til á́rsins 2010.  Gjald fyrir nýtingu | 16 ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 285. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  A 5–13 m/s, úr- komulítið en hvass- ari og rigning sunnan- og suð- austanlands upp úr hádegi. Hlýjast norðanlands. » 8 Heitast Kaldast 13°C 7°C ANDRI Már Ingólfsson, eigandi og forstjóri Heimsferða, hefur stofnað fyrirtækið Primera Travel Group utan um hina nýju samstæðu Heimsferða. Fyrirtækið er fjórða stærsta ferðaskrifstofan á Norðurlöndum og sú stærsta í einkaeigu. Heimsferðir hófu útrás í fyrra og hefur fyr- irtækið tekið stakkaskiptum; veltan tífaldast úr 3,5 milljörðum kr. í 35 milljarða og í ár flytur félagið 500.000 farþega til áfangastaða um all- an heim. Dótturfélög Primera-samstæðunnar eru sex, auk íslensku ferðaskrifstofanna Heimsferða og Terranova; Bravo Tours í Dan- mörku, Solresor í Svíþjóð, Solia í Noregi, Matka Vekka og Lomamatkan í Finnlandi. Flugfélagið jetx er einnig hluti af Primera. Andri Már segir vöxtinn hafa verið mjög hraðan en kaupin í samræmi við áætlun. „Við hófum að leita að tækifærum á Norðurlönd- unum fyrir fjórum árum en við lögðum áherslu á að velja fyrirtæki með stjórnun og menningu sem passaði við hugmyndafræðina á bak við rekstur okkar heima. Mikill innri vöxtur á árinu og góð arðsemi benda til þess að þessi að- ferð og vinna sé að skila sér.“ | Viðskipti Stofnar Primera Travel KLUKKAN 10 árdegis í dag opnar IKEA stærstu verslun landsins í Kauptúni 4 í Garðabæ, við Reykjanesbrautina, rétt sunn- an við Vífilsstaði. Gólfflötur nýju verslunarinnar er um 20.600 fermetrar og hefur sölurýmið nær þrefaldast frá því sem áður var í versluninni við Holtagarða, sem nú hefur verið lokað fyrir fullt og allt. Vöruúrvalið hefur aukist mikið og er nú boðið upp á um 7.000 vöru- tegundir. 55 vörustúkur eru í versluninni og um 850 malbikuð bílastæði á lóðinni við bygginguna. Í IKEA er 250 manna veitingastaður auk þess sem kaupa má smárétti og sænskar matvörur við útganginn. Í versluninni er sérstakt barnaland, sjúkraherbergi og læstir skápar fyrir við- skiptavini. | 22 Morgunblaðið/Eyþór Opnað í dag Ný verslun IKEA í Garðabæ. Stærsta versl- un landsins ÞETTA er án efa besti leikur landsliðsins undir minni stjórn,“ sagði Eyjólfur Sverr- isson, þjálfari íslenska landsliðsins, eftir 2:1- tap liðsins gegn Svíum í undankeppni Evr- ópumóts landsliða á Laugardalsvelli í gær. Íslenska liðið er sem fyrr í næstneðsta sæti riðilsins, með 3 stig, að loknum fjórum leikjum en næsti leikur liðsins er á útivelli gegn Spánverjum 28. mars á næsta ári. Arnar Þór Viðarsson kom íslenska liðinu yfir með glæsilegu marki á 6. mínútu en Kim Källström jafnaði aðeins mínútu síðar. Christian Wilhelmsson skoraði sigurmark Svía á 59. mínútu. Íslenska liðið hafði heppnina ekki með sér fyrir framan sænska markið og átti fyrirlið- inn, Eiður Smári Guðjohnsen, þrumuskot beint úr aukaspyrnu sem small í þverslá sænska marksins á 83. mínútu. „Ég var þreyttur og orkulaus í þessum leik,“ sagði Eiður Smári m.a. eftir leikinn. Lars Lag- erbäck þjálfari sænska landsliðsins sagði sitt lið hafa „stolið“ sigrinum gegn sterku og vel skipulögðu íslensku liði. Morgunblaðið/Golli Markinu fagnað Arnar Þór Viðarsson dró hvergi af er hann fagnaði markinu ásamt fyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen gegn Svíum í gær. Glæsimark Arnars dugði skammt www.meistarinn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.