Morgunblaðið - 01.11.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 13
ÚR VERINU
!
" #$$%&#$$'(
)
* +
*
*,
-,
.
/
*,
0
*
-1
*+
2
3
Atvinnurekstrardeild Trygginga-
miðstöðvarinnar hefur gert samning
við Heilsuverndarstöðina ehf. um
heilsufarsskoðun á sjómönnum fyrir
þau útgerðarfélög sem TM vátrygg-
ir. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkur
samningur er gerður á Íslandi.
Í skoðuninni felast bæði árlegar
heilsufarsskoðanir áhafnarmeðlima
og skoðanir á nýráðnum starfsmönn-
um. Markmið samningsins er meðal
annars að stuðla að bættri heilsu,
draga úr fjarvistum vegna slysa og
veikinda og auka öryggi sjómanna.
Þar með er hægt að fækka slysum og
veikindum áhafnarmeðlima og jafn-
framt draga úr útgjöldum útgerðar-
fyrirtækja og TM vegna þeirra.
Heilsufarsskoðunin er athugun á
líkams- og heilsufarsástandi ásamt
fræðslu um hvernig efla megi heils-
una. Hver og einn er skoðaður út frá
áhættuþáttum sem tengjast aldri,
sögu og starfi. Skoðunin er löguð að
þörfum sjómanna og lögð er áhersla
á ráðgjöf um lífshætti og lífsstíl auk
þess sem farið er yfir hreyfingu,
svefn og næringu.
Samið um skoðun
á sjómönnum
Markmiðið að stuðla að bættri heilsu
Skagaströnd | Það verður að teljast
óvenjulegur meðafli sem Arnar HU
1 kom með úr síðustu veiðiferð. Í
trollið hafði komið risastór síld,
rúmlega 50 sm löng. Hér er ekki
um venjulega síld að ræða heldur
síld af tegundinni maísíld (Alosa
alosa) eða augnasíld (Alosa fallax)
en báðar tegundirnar eru mjög
sjaldséðar á Íslandsmiðum.
Ekki er nema á færi sérfræðinga
að þekkja þessar tegundir sundur,
svo líkar eru þær. Þær eru merki-
legar fyrir þá sök að þær hrygna í
ósöltu vatni og ganga þá gjarnan
upp í ármynni í Evrópu til þess.
Báðar tegundirnar eru á válista
vegna útrýmingarhættu. Augnsíld-
in hefur stærra útbreiðslusvæði en
maísíldin og mun sú fyrrnefnda
berast hingað upp að Austur- og
Suðausturlandi einstaka sinnum.
Arnar var einmitt að veiðum á
Austfjarðamiðum þegar þessi fal-
legi fiskur kom upp í einu halinu.
Annar evrópskur gestur
Annar evrópskur gestur kom líka
um borð í túrnum. Sá kom fljúgandi
sjálfur og settist á skipið. Var hann
fangaður en lifði ekki nema nokkra
klukkutíma þrátt fyrir að skipverj-
ar gerðu allt sem þeir gátu til að
halda lífi í honum. Þetta var gló-
kollur sem er minnsta fuglategund
Evrópu. Samkvæmt upplýsingum á
vef Náttúrufræðistofnunar Íslands
er glókollur nýlegur varpfugl á Ís-
landi en vitað er til að hann hafi
verpt hér á landi síðan 1995. Mjög
misjafnt er eftir árum hversu mörg
varppör er um að ræða og er talið
að veðurfarið hafi mest um það að
segja. Urðu skipverjar á Arnari
undrandi á heimsókn þessa litla
gests en uppáhalds vistkerfi hans
er í barrskógum en alls ekki úti á
sjó. Sjálfsagt má þó telja að þetta
litla kríli hafi fokið á haf út, ann-
aðhvort frá Íslandi eða meginlandi
Evrópu.
Morgunblaðið/ÓB
Óvenjulegur meðafli
Fagmennska í fFagmennska í fyrirrúmi
Vökvadælur
Vökvamótorar
Stjórnbúnaður
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf