Morgunblaðið - 01.11.2006, Side 38

Morgunblaðið - 01.11.2006, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ eeeee „Eitt orð: Frábær“ -Heat eeee Empire Fearless kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 The Devil Wears Prada kl. 5.40, 8 og 10.20 Talladega Nights kl. 8 og 10.20 Monster House m.ensku.tali kl. 3.50 B.i. 7 ára Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 og 6 B.i. 7 ára Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50 Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára Scoop kl. 8 Takk Fyrir að Reykja kl. 6 og 10 B.i. 7 ára „...epískt meistaraverk!“ - Salon.com „Tveir þumlar upp!“ - Ebert & Roeper Frá framleiðendum Crouching Tiger, Hidden Dragon kemur síðasta bardagamynd súperstjörnunnar Jet Li.20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍ-NUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI Varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK BYGGÐ Á METSÖLUBÓK ARNALDAR INDRIÐASONAR eeeee Hallgrímur Helgason – Kastljósið eeee Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com eeee H.S. – Morgunblaðið eeee DV eeeee Jón Viðar – Ísafold eee LIB, Topp5.is Sími - 564 0000Sími - 462 3500 40.000 manns á aðeins 11.dögum ! SAMFÉLAGIÐ, félag framhalds- nema við félagsvísindadeild Há- skóla Íslands, stendur fyrir hádeg- isfundi undir heitinu: „Nauðganir á Íslandi. Hvað getum við gert?“ í Há- tíðarsal Háskóla Íslands 1. nóv. kl. 12. Eftir tvö framsöguerindi verða pallborðsumræður með fulltrúum frá öllum stjórnmálaflokkum. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Á tónleikum í Norræna húsinu í dag kl. 12.30 flytur Kolbeinn Bjarnason m.a. verk eftir Toshio Hosokawa (frumflutningur hérlendis) og Doina Rotaru en það verk var sam- ið sérstaklega fyrir Kolbein og frumflutt í Skálholti í sumar. Kolbeinn frumflytur líka Atla Heimis Sveinssonar á Prelúdíu í fís- moll eftir Bach. HANDRITIÐ Skarðsbók post- ulasagna er nú sýnt í fyrsta skipti í Þjóðmenningarhúsinu á Handritasýningunni. Skarðsbók er stærst og veglegust af varð- veittum handritum postulasagna og í henni eru ellefu post- ulasögur. Bókin er líklega skrif- uð nálægt 1360 í klaustrinu að Helgafelli fyrir Orm lögmann Snorrason á Skarði á Skarðs- strönd, en hann gaf hana kirkjunni á Skarði. Handritið er sýnt nú til að minnast þess að 18. október voru liðin 40 ár síðan dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, afhenti íslensku þjóðinni Skarðsbók postulasagna. Af sama tilefni kemur út ritgerð þar sem Jóhann- es Nordal segir frá flóknum og spennandi aðdraganda þess að handritið var keypt. Ritgerðin er prýdd fjölmörgum myndum úr Skarðsbók og verð- ur til sölu í safnbúð Þjóðmenningarhússins. Sýningar og safnbúð eru opnar daglega frá kl. 11 til 17. Tónlist Norræna húsið | Háskólatónleikar í Nor- ræna húsinu miðvikudaginn 1. nóv. kl. 12.30. Kolbeinn Bjarnason flautuleikari flytur m.a. verk eftir Toshio Hosokawa, Atla Heimi Sveinsson og Doina Rotaru. Að- gangur kr. 1000. Fyrir eldri borgara og ör- yrkja kr. 500. Salurinn, Kópavogi | Miðvikudagur 1. nóv. kl. 20, fimmtudag 2. nóv. kl. 20 og sunnu- dag 5. nóv. kl. 16. Samkór Kópavogs heldur upp á 40 ára afmæli kórsins með þrennum tónleikum í Salnum. Þema tónleikanna er Kópavogur. Miðaverð: 2000 kr. í síma 5700 400 og á salurinn.is Myndlist Anima gallerí | Hjörtur Hjartarson sýnir málverk unnin á þessu og síðasta ári, þar sem myndlistamaðurinn vinnur með nátt- úruform, liti og ljós. Opið þri.–lau. kl. 13– 17. www.animagalleri.is – Til 4. nóv. Art-Iceland.com | María Jónsóttir sýnir í Art-Iceland.com á Skólavörðustíg 1a frá 30. okt. til 6. nóv. Sveitarómantíkin á hug hennar allan. Hún sýnir klippimyndir af hestum, hundum, geitum og kindum. Einn- ig málaða steina með dýramyndum. Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir verkið „Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið með blandaðri tækni. Opið mán–þri. kl. 10– 18 og laug. kl. 11–16. Til 17. nóv. Café Karólína | Ásmundur sýnir óvenju- legar teikningar á Café Karólínu og Snorri bróðir hans sýnir jafnvel enn óvenjulegri málverk á veitingastaðnum. Til 3. nóv. Gallerí Fold | Einar Hákonarson sýnir í Bak- sal til 12. nóvember. Gallerí Stígur | „Vinátta“, myndlistarsýn- ing Elsu Nielsen, stendur nú yfir í Gallerí Stíg á Skólavörðustíg 22, Reykjavík. Sýn- ingin stendur yfir til 17. nóvember og er op- in kl. 13–18 virka daga og 11–16 laugardaga. Gerðuberg | Sýning á mannlífsmyndum Ara í tilefni 220 ára afmælis Reykjavík- urborgar. Ljósmyndirnar sýna mannlíf í Reykjavík sem fáir veita eftirtekt í daglegu amstri. Sýning á afrískum minjagripum sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur hefur safnað saman. Skemmtileg blanda af gömlum munum og nýstárlegum en saman mynda þeir heild sem gefur góða mynd af minjagripaúrvali í Afríku. Sýning Sigurbjörns Kristinsson stendur yf- ir. Á sýningunni má sjá abstraktmyndir í anda gömlu íslensku meistaranna. Opið virka daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16. www.gerduberg.is Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll, ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 13–19 og á sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv. Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir með myndlistarsýningu til 24. nóv. Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðnum Karólínu. Á sama tíma opnar Ásmundur bróðir Snorra sýningu á Café Karólínu. Kling og Bang gallerí | 8 myndlistarmenn, búsettir í New York, sýna í Kling og Bang gallerí. Ætlun INVASIONISTAS er að kanna merkingu innrásar almennt og hvernig hún endurspeglast í veröldinni, í íslensku sög- unni og í blindgötustjórnmálum heima- lands síns. Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Eirún Sig- urðardóttir – Blóðhola. Blönduð tækni. Gryfja og Arinstofa: Pétur Örn Friðriksson – Halkíon. Farartæki, fyrirbæramódel, land- hermar. Sýningarnar standa til 5. nóv- ember. Opið kl. 13–17. Aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946– 2000). Dröfn lét mikið að sér kveða í ís- lensku listalífi og haslaði hún sér völl í ein- um erfiðasta geira grafíklistarinnar, trérist- unni. Opið virka daga nema mánud. 12–17. Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eft- ir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur þróunina í málverkinu frá upphafi níunda áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins í dag. Til 26. nóv. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan- adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn- ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada. Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember. Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Lista- safni Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist Sog. Viðfangsefni listamannsins er straumvatn og sýnir hann þarna ný mál- verk unnin með olíu á striga og rýmisverk. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasalur Mosfellsbæjar | Grasakonan Gréta Berg fjallar um tengsl hjúkrunar, geðræktar og lista og stendur til 11. nóv. Heilbrigði og dramatík sálarlífsins leika um myndirnar. Boðið er upp á slökun á laugard. Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, er opinn virka daga kl. 12–19 og laugard. 12–15 og er í Bókasafni Mosfellsbæjar. Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu- hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn tíma. Árni sýnir olíumálverk 70x100. Opið kl. 9–17 alla daga nema laugardaga er opið kl. 12–16. www.arnibjorn.com Næsti Bar | Bjarni Helgason hefur opnað sýninguna Undir meðvitund og þar sýnir hann tíu akrýlmálverk ásamt skissum og útprenti tengt þema sýningarinnar. Sýn- ingin er opin á afgreiðslutíma Næsta bars og stendur til 11. nóvember. Safn | Tilo Baumgärtel og Martin Kobe, ungir málarar frá Leipzig í Þýskalandi, sýna ný verk sín. Innsetning svissneska lista- mannsins Romans Signer á miðhæð. Gjörningar í Safni; 13.–28.okt. Opið mið.– fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17 www.safn.is Ókeypis aðgangur. Til 5. nóv. Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum William Thomas Thompson stendur yfir í Listasal Saltfisksetursins. William er vel þekktur listamaður í Bandaríkjunum. Sýn- inguna kallar hann Sýnir og stendur hún til 6. nóvember. Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11–18. Skaftfell | Sýning vegna Listmunaupp- boðs. 42 verk eftir 36 listamenn af öllum stærðum og gerðum. sjá www.skaftfell.is VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda af málverki og pólitísku innleggi í anda hefðbundins veggjakrots. Sem málverk takmarkast verkið af eðli Gallerísins Vegg- Verk. Þannig á þetta verk, og þau sem á eftir munu koma, styttri líftíma en hefð- bundin málverk, því listamennirnir munu allir nota sama rýmið. Til 25. nóv. Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning á ljósmyndum sem varðveittar eru í Myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hef- ur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru myndir af óþekktum stöðum, húsum og fólki og gestir beðnir um að þekkja mynd- efnið og gefa upplýsingar um það. Söfn Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tek- ið á móti hópum eftir samkomulagi. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í Borg- arskjalasafni stendur nú yfir sýning á skjöl- um úr einkaskjalasafni Hjörleifs Hjörleifs- sonar. Skjölin sem tengjast öll fjölskyldu Hjörleifs eru flest frá um 1900 og eru mörg þeirra glæsileg að útliti. Sýningin er opin öllum frá 10–16, alla virka daga. Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgríms- kirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hef- ur sett saman með sóknarnefnd og List- vinafélagi Hallgrímskirkju. Minnst er ein- stakra þátta úr byggingarsögunni og fórnfýsi fylgismanna til að gera kirkjuna að veruleika. Til. 30. nóv. Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú- inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk- aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í Gamla Presthúsinu. Opið eftir sam- komulagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066. Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja- vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla daga kl. 10–17. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimað- ur, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir bera vott um. Sýningin spannar æviferill Jónasar í máli og myndum. Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist – sýningartími lengdur. Trúlofunar- og brúð- kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung- barnaumönnun og þróun klæðnaðar og ljósmyndahefðar frá 1800-2005. Unnið í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Opið laugardaga og sunnudaga til 19. nóvember frá 14–16. Aðrar sýningar: Eyjafjörður frá öndverðu og Akureyri – bærinn við Pollinn. Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12– 17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik- myndir sem segja söguna frá landnámi til 1550. www.sagamuseum.is Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp- haf símasambands við útlönd. Símritari sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit- símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka daga kl. 13–16 www.tekmus.is Veiðisafnið, Stokkseyri | Skotveiðisafn – uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið alla daga kl. 11–18. www.hunting.is Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum Berlínarforlagsins Mariannenpresse stend- ur yfir. Hver bók er listaverk unnið í sam- vinnu rithöfundar og myndlistarmanns. Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk tísku- hönnun og Fyrirheitna landið. Veit- ingastofa með hádegisverðar- og kaffimat- seðli er í húsinu, einnig safnbúð. Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til sýnis útsaumuð handaverk listfengra kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin byggir á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Leiklist Reiðhöll Gusts | Hvað er Þjóðarsálin? Er hún hjartnæm fjölskyldusápa? Er hún dramatísk og kraftmikil hestasýning? Er hún hárbeitt ádeila? Er hún sterkar konur í fyrsta klassa? Eða hraustir menn með stinna rassa? Þjóðarsálin er allt þetta og svo miklu meira. Miðasölusími: 694 8900 midasala@einleikhusid.is Dans Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús á Álfabakka 14a miðvikudag kl. 20.30. Gömlu dansarnir. Allir velkomnir. Skemmtanir Málaskólinn LINGVA | Okkar skemmtilegu TAL-hópar í ítölsku, spænsku og ensku hefjast að nýju í nóvember. Allar upplýs- ingar á www.lingva.is, sími 561 0315. Our successful courses in Icelandic for for- eigners start again in nóvember. Price only 12.500. tel: 561 0306, www.lingva.is. SÁÁ félagsstarf | Árshátíð SÁÁ verður haldin í Lídó, Hallveigarstíg 1, föstudaginn 3. nóvember, glæsileg skemmtiatriði. Hljómsveit Grétars Örvarssonar leikur fyrir dansi, ásamt Regínu Ósk og Friðrik Ómari. Mannfagnaður Seyðfirðingafélagið | Seyðfirðingafélagið í Reykjavík heldur upp á 25 ára afmæli sitt 4. nóv. kl. 17 í Gjábakka. Mætum nú vel. Stjórnin. staðurstund Tónlist Háskóla- tónleikar Fundir Hádegisfundur Samfélagsins Söfn Sýning á handriti Skarðsbókar í Þjóðmenningarhúsinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.