Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 15 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is OFT er sagt að sagan endurtaki sig. Á dögum Rom- anov-ættarinnar, rússnesku keisaraættarinnar, þótti hinum útvöldu ómissandi að hafa með sér gull- slegin hnífapör til að fullkomna útileguna, á meðan aumur almúginn lapti dauðann úr skel. Nú vilja ný- ríkir Rússar ekki vera eftirbátar ættbogans fræga og láta sig ekki muna um að punga út hátt í hundrað milljónum íslenskra króna, fyrir sérsmíðaða, sviss- neska, demantsskreytta farsíma. Þetta kom glögglega í ljós á sérstakri vörusýn- ingu fyrir milljónamæringa í Moskvu um helgina, þar sem 40.000 Rússar komu saman til að berja lúx- usvörur augum. Stemningin var sögð engu lík, fyr- irsætur í hvítum baðfötum létu fara vel um sig í lúx- us-útgáfu af Jacuzzi-baðkari en aðrar voru í dýrum loðfeldi fyrir framan sérhannaðar bifreiðar. Demantar eru sagðir í uppáhaldi hjá konunum sem geta valið úr skartgripum þótt engin séu Fa- bergé-eggin. Svissneska fyrirtækið GoldVish not- aði tækifærið og kynnti þrjá farsíma sem voru sett- ir 2.000 demöntum. Heppinn Rússi nældi sér í einn þeirra en verðið var rétt um 87 milljónir króna. „Þær hafa fallegt hár og ganga í fallegum fötum […] því skyldu þær hafa skitinn plastsíma í tösk- unum sínum,“ sagði Ephraim Goldstoff, sérlegur ráðgjafi GoldVish á sviði demanta, um takmarkað úrval á farsímum fyrir sterkefnaðar konur. Þyrlusalar höfðu í nógu að snúast og þeir sem vildu hvíla sig á milli sýningaratriða báru saman bankabækur sínar með kampavínsglasið í annarri hendinni og þéttvafinn kúbuvindilinn í hinni. Eins og gefur að skilja vill hin nýja yfirstétt Rússlands ekki búa þröngt eða í stigagöngum þar sem ósamlyndi um húsþrif ríkir. Þannig tryggði einn heppinn sýningargestur sér eyju við Panama á aðeins rétt rúmlega 1.700 milljónir króna. Þetta þykir ekki mikið í ljósi þess, að hana má nota sem skattaparadís. Þá keyptu fjórir gestir sér glæsieignir í Rubl- evsky-hverfinu í Moskvu, sem seldust á allt að 547 milljónir króna og hafa byggingaraðilar haft í nógu að snúast við að anna eftirspurn kröfuharðra kaup- enda á þessum ört vaxandi markaði. Hátt í níutíu þúsund auðmenn í landinu Fyrir aldarfjórðungi síðan voru engir milljóna- mæringar í Rússlandi, að því er segir í frétt breska dagblaðsins Times um vörusýninguna. Þar segir einnig, að nú sé talið að fjöldi þeirra eystra sé 88.000 – sé miðað við evruna – og þar af séu 33 millj- arðamæringar í landinu. „Rússar eru, ásamt Aröbum, mestu eyðsluklær í heiminum og rússneski markaðurinn er nú meðal þriggja helstu markaða fyrir lúxusvörur,“ hafði blaðið eftir Yves Gijrath, stofnanda sýningarinnar. Var þetta í annað sinn sem Gijrath stóð fyrir slíkri kaupstefnu í fyrrum sæluríki öreiganna en hún er reglulega haldin víða um heim. Dagblaðið Washington Post gerir sýningunni einnig skil og minnir á að um fimmtungur Rússa lifi undir fátæktarmörkum og að meðaltekjur lands- manna séu um fimm þúsund Bandaríkjadalir, um 342 þúsund kr. Lýkur blaðið umfjöllun sinni á því að benda á að óformlegt slagorð fyrrnefnds Gijraths hafi verið „Milljónamæringar Rússlands, samein- ist!“, sem verður að teljast fremur kaldhæðinn út- úrsnúningur á lokaorðum kommúnistaávarpsins og ákalli Marx og Engels um byltingu öreiganna. „Milljónamæringar Rússlands, sameinist!“ Rússneski peningaaðallinn veltir sér upp úr auðnum Í HNOTSKURN »Þrátt fyrir að mikill auður hafi safnast áfárra hendur bendir Financial Times á að millistéttin sé farin að kaupa meira en áður. »Kemur þar fram að mikla aukningu íneyslu millistéttarinnar megi m.a. rekja til hás olíuverðs á undanförnum árum. Sendir hann SMS? Kona virðir fyrir sér nýja GoldVish-farsímann á sýningunni um helgina. AP Í NÝRRI skýrslu Alþjóðabankans kemur fram að aukinn hagvöxtur og færri átök en áður hafi gert árið 2005 að tímamó- taári fyrir þróun Afríku. Þannig kemur þar m.a. fram að 16 Afr- íkuríkjum hafi tekist að viðhalda yfir 4,5 prósenta hagvexti síðan á síðasta áratug og hafi fyrir vikið lyft mörg- um þegnum sínum úr viðjum fátækt- ar, að því er fram kemur í frétt á vef- síðu breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. Skýrsluhöfundar lýsa einnig yf- ir ánægju sinni með að dregið hafi úr átökum í álfunni, sem hafi fækkað úr sextán árið 2002 í fimm árið 2005. „Afríka er í dag álfa í framför,“ sagði Gobind Nankani, aðstoðarfor- seti Alþjóðabankans fyrir Afríku. Að sögn BBC minnir skýrslan einnig á mikinn mun í frammistöðu Afríkuríkja á efnahagssviðinu, með dæmi af Zimbabve, sem hafi árið 2004 upplifað samdrátt í hagkerfinu um sem nemur 2,4 prósentum. Á hinn bóginn kemur fram í frétt BBC, að verðbólga í álfunni sé í sögu- legu lágmarki og að ríkjum hennar hafi tekist að lágmarka áhrif hás olíu- verðs á síðustu árum á hagkerfið. Hins vegar skorti mjög á erlenda fjárfestingu í álfunni, sem sé 1,6 pró- sent af heimsfjárfestingunni. Síðasta ár tímamót fyrir Afríku Alþjóðabankinn kynnir ný gögn Gobind Nankani Hong Kong. AFP. | Vísindamenn hafa ítrekað, að hætta sé á fuglaflensu- faraldri í mönnum, en nú hefur fund- ist nýtt afbrigði af fuglaflensuveir- unni H5N1. Vísindamenn í Hong Kong og Bandaríkjunum telja, að nýja af- brigðið, „Fujian-afbrigðið“ eins og það er kallað, kunni að hafa komið fram sem svar við bólusetningu á fuglabúum. Hættan á, að veiran, sem er oft banvæn, geti farið að ber- ast manna á milli sé því enn fyrir hendi. Sagt er, að Fujian-afbrigðið sé nú orðið algengt í Kína, Hong Kong, Taílandi, Laos og Malasíu. Hjá WHO, Alþjóðaheilbrigðis- stofnuninni, er það talið næstum öruggt, að fuglaflensufaraldur verði í mönnum innan ekki langs tíma en í versta falli gæti hann orðið milljón- um manna að fjörtjóni. Það var árið 1997 í Hong Kong, sem H5N1-veir- an varð fyrst mönnum að bana en þá létust sex af hennar völdum. Veiran breytist Fuglabú Nýja afbrigðið af H5N1- veirunni er að verða algengt í Kína. Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn K R A FT A V ER K Omega-3 fitusýrur geta dregið úr hættu á hjarta og kransæðasjúkdómum. Jafnframt hafa rannsóknir sýnt fram á gagnsemi omega-3 gegn liðagigt. Össur Skarphéðinsson býður gesti velkomna. Jóhannes Kristjánsson eftirherma fjallar um stjórn- málaástandið. Elísabet Eyþórsdóttir syngur lög Barkar Hrafns Birgissonar við ljóð Einars Más Guðmundssonar af geisladiskinum Þriðja leiðin. Andríkt spjall og léttar veitingar. v/Austurvöll í dag kl. 17 til 19. Vinir og samherjar Össurar Skarphéðinssonar boða Fagnaðarfund á NASA Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík fer fram laugardaginn 11. nóvember. www.ossur.hexia.net

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.