Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 305. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Suðlæg átt, 3–8 m/s. Súld eða rigning öðru hvoru sunnan- og vestanlands, bjart norðaustantil. » 8 Heitast Kaldast 8°C 2°C STEFNT er að því að húseignin Vesturgata 16b í Reykjavík, svo- nefnt Gröndalshús, verði flutt í Ár- bæjarsafn fyrir áramót. Húsið á sér merka sögu en þar bjó lengi Bene- dikt Gröndal skáld. Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður segir húsið hafa mikið varðveislugildi. „Þetta er gamalt hús sem er sérstakt á margan hátt, bæði í byggingarlagi og er mjög vel varðveitt en það hef- ur haldið sínum upprunalega svip,“ segir hún. Guðný Gerður segir að út frá sögu hússins sé mjög eðlilegt að í því verði Benedikts Gröndals á einhvern hátt minnst. | 17 Skáldið Benedikt Gröndal skáld. Gröndals- hús flutt STJÓRNENDUR Landspítala – há- skólasjúkrahúss (LSH) hafa ákveðið að áfrýja ekki dómi héraðsdóms í máli Stefáns E. Matthíassonar, fyrr- verandi yfirlæknis æðaskurðlækn- ingadeildar spítalans, sem kveðinn var upp undir lok júní. Í dómi hér- aðsdóms var kveðið á um að LSH hefði ekki haft lögmæta ástæðu til að veita Stefáni áminningu fyrir að óhlýðnast fyrirmælum spítalans með því að halda áfram rekstri lækninga- stofu sinnar, en Stefáni var á grund- velli áminningarinnar sagt upp störf- um hjá spítalanum. „Það var mat okkar að það væri ekki víst að dómi héraðsdóms yrði snúið við og það væri þess vegna skárra að hafa þetta svona,“ segir Jóhannes Gunnarsson, lækningafor- stjóri LSH. Sagði hann líkur til þess að skaðabætur í málinu myndu nema óverulegum upphæðum. Spurður hvort hann hefði ekki áhyggjur af því að skaðabætur yrðu það háar að erf- itt yrði fyrir stjórnendur spítalans að réttlæta þær fyrir skattgreiðendum svaraði Jóhannes neitandi. Samkvæmt upplýsingum frá Ragnari H. Hall, hrl. og lögmanni Stefáns, hafa að undanförnu verið reyndar viðræður við stjórnendur LSH með það að markmiði að fá þá til að ráða Stefán aftur til starfa, en án árangurs, og því sé bótaleiðin eina færa leiðin. | 11 LSH unir dómi héraðsdóms Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is FIMM langreyðar voru komnar á land í gær, fjögur kvendýr og eitt karldýr, en Hvalur 9 er væntanlegur til hafnar í dag með tvær langreyðar til viðbótar, sem veiddust í gær. Þá veiddu skip- verjar á Halldóri Sigurðssyni ÍS fyrstu hrefnuna í atvinnuskyni í gær í Ísafjarðardjúpi. Tuttugu og fimm ríki hyggjast í dag hvetja íslensk stjórnvöld til að hætta hvalveiðum í atvinnuskyni. Gísli Víkingsson, líffræðingur og hvalasérfræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir að athygl- isvert sé að fyrstu kýrnar hafi allar verið í hvíld, það er ekki með fóstri, en stór hluti úr hefðbund- inni veiði á sumrin hafi verið með fóstri. Hanga lengur frameftir hausti? Sýni verða tekin úr öllum veiddum langreyðum. Gísli Víkingsson segir að þau verði ekki rann- sökuð fyrr en að loknum veiðum og ekki sé búist við miklum niðurstöðum úr níu dýrum. Meiri rannsóknir séu í sambandi við hrefnuveiðarnar sem gerðar séu í vísindaskyni. Sama fólkið vinni við sýnatöku og rannsóknir og þar sem hvalur hafi komið á land annan hvern dag hafi ekki verið mikill tími til rannsókna. Auk þess þurfi sýnin að vera um tíma í formalíni áður en hægt sé að vinna þau. Kýrnar eiga kálfa annað hvert ár, ganga með í um það bil ár, mjólka í hálft ár og hafa svo hálft ár til að ná holdum fyrir næstu þungun. Gísli segir að sú staðreynd að veiddar langreyðar hafi ekki verið með fóstri gæti bent til og stutt vísbend- ingar um að þær kýr sem ekki eru með fóstri hangi hér lengur frameftir hausti. Eldri rann- sóknir sýndu 97% ljósátu í maga langreyða á svæðinu þar sem þær hafa veiðst að þessu sinni og segir Gísli að til þessa hafi menn ekki séð ann- að á staðnum og því ekkert nýtt í því. Haft var eftir Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf., í Morgunblaðinu í gær að nóg væri af hval. Gísli segir að hugsanlega komi það á óvart en þessi staða hafi ekki verið rannsökuð svo seint á árinu og almennt hafi verið gert ráð fyrir að hvalirnir væru farnir á þessum tíma. Fyrstu kýrnar allar í hvíld  Tuttugu og fimm ríki ætla í dag að hvetja íslensk stjórnvöld til að hætta hval- veiðum í atvinnuskyni  Búið er að veiða sjö af níu langreyðum og eina hrefnu Í HNOTSKURN »Fulltrúar landanna tuttugu og fimm,sem vilja hvetja íslensk stjórnvöld til að hætta hvalveiðum í atvinnuskyni, ætla að koma áskoruninni á framfæri við utanrík- isráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið í Reykjavík í dag. »Á meðal landanna eru Bandaríkin,Finnland, Svíþjóð og ríki í Evrópu og Rómönsku Ameríku. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Hrefna skotin fyrir vestan Skipverjar á Halldóri Sigurðssyni ÍS veiddu fyrstu hrefnuna í atvinnuskyni í Ísafjarðardjúpi rétt fyrir hádegi í gærdag. Á myndinni sést m.a. Konráð Eggertsson skipstjóri (t.v. fyrir miðju) en verið var að taka hrefnuna úr bátnum þegar ljósmyndara bar að garði. ♦♦♦ Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is ÍSLENSK erfðagreining sagði í gær upp 28 starfsmönnum hér á landi og um 20 starfsmönnum fyrirtækisins í Bandaríkjunum. Eiríkur Sigurðsson, kynningar- stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að uppsagnirnar séu liður í hagræðingaraðgerðum hjá fyrirtæk- inu sem beinist að ýmsum þáttum rekstrarins, bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. Hann segir að ástæður uppsagnanna séu meðal annars að verið sé að taka upp nýja tækni í erfðarannsóknum sem auki afköst og sjálf- virkni. Þá sé ákveðnum verk- efnum innan fyr- irtækisins lokið. Markaðir hafa verið erfiðir Alls starfa rúmlega 300 starfsmenn hjá Íslenskri erfðagreiningu hér á landi og um 100 manns í Bandaríkjunum. Fjöldi uppsagnanna nú hér heima er ekki slíkur að hann nái undir lög um hópuppsagnir. Aðspurður hvort uppsagnirnar séu til marks um erfiða stöðu fyr- irtækisins segir Eiríkur að markaðir hafi að sumu leyti verið erfiðir en hafa beri í huga að fyrirtækið starfi í síbreytilegum iðnaði. Starfsmenn sem sagt hafi verið upp fái þriggja mánaða uppsagnarfrest. „Uppsagnir sem þessar eru aldrei auðveldar. Við höfum boðið starfsfólki upp á ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit og fáum ráðgjafarfyrirtæki til þess að að- stoða,“ segir Eiríkur. Þegar hann er inntur eftir því hvort von sé á frekari aðgerðum á borð við þessar segist hann ekki vilja segja til um það. „Fyrirtækið er að skoða ýmsar leiðir til hagræðingar.“ Um 50 starfsmönnum ÍE sagt upp störfum Eiríkur Sigurðsson GÆSLUVARÐHALD yfir karli á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað erlendri stúlku aðfara- nótt sunnudags 22. október sl. renn- ur út í dag. Stúlkan var stödd á Laugavegi og þáði þaðan far með manninum. Ók hann sem leið lá út fyrir íbúðarbyggð þar sem hann þröngvaði henni til samræðis við sig. Um klukkutíma áður hafði maðurinn boðið annarri stúlku far á sömu slóð- um. Henni þótti þetta sérkennileg hegðun og skráði niður númer bíls- ins. Hún hafði samband við lögreglu þegar hún heyrði af nauðguninni og gaf upp númer bílsins sem maðurinn ók en það leiddi til handtöku hans.| 8 Hafði boðið annarri stúlku far

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.