Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÉLAGSMIÐSTÖÐVASTARF fyrir unglinga hófst í Reykjavík fyrir rúmum 30 árum. Allt frá opnun Fellahellis árið 1974 hefur fé- lagsmiðstöðvum fjölgað og nú starfa 18 félagsmiðstöðvar á vegum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykja- víkur (ÍTR). Könnun sem unnin var fyrir ÍTR vorið 2006 sýnir að um 40% unglinga í Reykjavík sækja að jafnaði fé- lagsmiðstöðvastarfið. En hvaða erindi eiga unglingar í fé- lagsmiðstöð? Rannsóknir und- anfarin ár sýna að ung- lingar sem verja mest- um tíma með foreldrum sínum eru líklegri til að velja heilbrigðan lífstíl og sniðganga vímuefni. Rannsóknir sýna jafn- framt að þátttaka í skipulögðu félagsstarfi dregur úr líkum á vímuefnaneyslu. Samvera með jafnöldrum utan skóla og heimilis er mikilvægur þáttur í þroska unglings og heilmikið púður fer í að máta sig við jafningjahópinn, samsama sig þeim sem hafa svipaða lífssýn og að greina sig frá þeim sem ekki aðhyllast sömu skoðanir eða svipuð gildi. Samvera með félögun- um er því liður í leit unglingsins að sjálfum sér ásamt því að vera til- rauna- og þjálfunarvettvangur í sam- skiptum. Unglingar verja tíma með jafn- ingjunum í skapandi og krefjandi verkefni sem og í afþreyingu, að „chilla“. Félagsmiðstöðin býður vett- vang fyrir hvort tveggja. Í fé- lagsmiðstöðvum er oftast að finna notalega og góða aðstöðu til að hangsa og spjalla í góðu tómi. Í sóf- anum í félagsmiðstöðinni er jöfnun höndum slúðrað um stórstjörnur úti í heimi, siðferðileg álita- mál, heimsmál, hug- myndir, brandara og það sem á daginn hefur drifið. Og frístundaráð- gjafarnir eru ávallt ná- lægir þegar á þarf að halda. Félagsmiðstöðin býður jafnframt upp á aðstöðu fyrir unglinga og stuðning við að koma hugmyndum sínum um uppákomur, tónleika, heimsóknir, fræðslu- erindi, hópastarf og skemmtanir í fram- kvæmd. Í félagsmiðstöðina sækja ungling- ar sem eru virkir í íþróttafélaginu, í skátunum, í æskulýðsfélaginu eða ungliðahreyfingunni, sem og þeir sem ekki finna sig í hefðbundnum ramma félagasamtaka. Það er því fjölbreyttur og litríkur hópur sem tekur þátt í félagsmiðstöðvastarfinu sem hefur til skamms tíma verið vel geymt „leyndarmál“ unglinganna. En miðvikudaginn 1. nóvember gefst Reykvíkingum tækifæri á að skyggn- ast inn í þennan heim því þá standa félagsmiðstöðvar ÍTR fyrir fé- lagsmiðstöðvadeginum í Reykjavík. Markmið dagsins er að bjóða áhuga- sömum í heimsókn í félagsmiðstöð hverfisins til að kynnast ungling- unum og viðfangsefnum þeirra. Dagskrá félagsmiðstöðvadagsins er breytileg milli félagsmiðstöðva. Undirbúningur hefur hvílt á ungling- aráðum og unglingunum sjálfum ásamt frístundaráðgjöfum. Meg- inþungi dagskrárinnar er þó alls staðar á framlag og sköpun ungling- anna sjálfra. Dagurinn er samstarfs- verkefni félagsmiðstöðvanna í Reykjavík og verða þær opnar fyrir gesti og gangandi frá kl. 17:00 til kl. 21:00 þennan dag. Það verður enginn svikinn af heim- sókn í félagsmiðstöðina. Kynntu þér dagskrá félagsmiðstöðvadagsins á www.itr.is og komdu í heimsókn. Komdu í heimsókn! Eygló Rúnarsdóttir fjallar um starfsemi félagsmiðstöðva »Dagskrá félagsmið-stöðvadagsins er breytileg milli fé- lagsmiðstöðva. Und- irbúningur hefur hvílt á unglingaráðum og ung- lingunum sjálfum ásamt frístundaráðgjöfum. Eygló Rúnarsdóttir Höfundur er verkefnisstjóri hjá ÍTR. ÁRIÐ 1988 fluttum við Að- alheiður Bjarnfreðsdóttir frumvarp til laga á Alþingi um að banna hval- veiðar. Töluverð andstaða var við málið, eins og gefur að skilja. Aðeins tveir hæstvirtir þingmenn tóku að fullu undir það mál, Kristín Halldórs- dóttir og Ásgeir Hann- es Eiríksson. Þó að langur tími hafi liðið síðan hefur ekkert breyst í málinu okkur í hag. Hins vegar hefur afstaða mín breyst á þá lund, að nú tel ég að ekki sé einungis brýnt hagsmunamál að veiða ekki hvali, heldur tel ég það nú einnig dýra- verndunarmál. Það samræmist ekki hegðun hjá nútímamönnum að veiða hvali. Við umræður á Alþingi árið 1988 lét Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir þessi orð falla; ,,Menn bera fyrir sig vísindi og aftur vísindi. Síðan þetta hvalamál kom upp á borðið svona mikið og var farið að ræða það hef ég gert mér far um að hlusta alveg lon og don á það sem vísindamenn hafa að segja. Og viti menn, þeir segja algjörlega sitt hvað. Hverju á svona fólk eins og ég að trúa? Sumir segja: Hvalveiðar voru bannaðar áratugum saman og það hafði engin áhrif á lífríki sjávar, aðrir segja að það sé alveg stór- hættulegt að veiða ekki þessi 70 kvikindi sem við erum að veiða núna á sumrin af því að lífríkið bara eyði- leggst. Einn sagði að útflutningur á hval væri svona sem svarar 1% af þjóðartekjum, aðrar sjávarafurðir væru um 80%. Eigum við kannski að leggja þessi 80% í hættu fyrir þetta 1%? Það hljóta að vera margar spurn- ingar í þessu máli. Ég er meðflutningsmaður að þessari tillögu af ýmsum ástæðum, t.d. þeim sem ég er nú þegar búin að rekja. Ég hef alltaf haft hálfgert ógeð á þessu hvaladrápi, og alltaf verið ákaflega fegin þegar ég hef komist fyrir Hvalfjörðinn án þess að þar væri hvalur í skurði, en lítið lagt þar til mála eins og kannski í mörgu öðru. Ég tel að þetta sé tapað stríð, það stangast á við alla skynsemi að vera að halda þessu áfram. Ég sé ekki nokkra skynsemi í þessu. Ég sé enga líkingu með þessu og land- helgisdeilunni. Þá vorum við að berjast fyrir lífi okkar og lífshags- munum. Ekki nú.“ Svo mörg voru þau orð hjá Aðalheiði og eru í fullu gildi í dag. Staðreyndirnar tala sínu máli. Hvalamálið árið 1988 varð banabiti lagmetisiðnaðar á Íslandi, sem það seldi fyrir 1,5 milljarða kr. fob á ári, en tæp 60% fóru á markað í Vestur-Þýskalandi, þar sem um- hverfis væn fyrirtæki hættu við- skiptum við okkur. Öll þau fyr- irtæki, sem voru í þeim geira eru horfin, ef ORA í Kópavogi er frátal- ið. Þeim var fórnað fyrir örfáa hvali. Spyrja má: Væri rækjuverð hærra í dag, ef svo hefði ekki farið? Fer Súsí-verksmiðjan á Ísafirði næst sömu leið í þessum slag núna? Við megum heldur ekki gleyma útrás fjölda íslenskra fyrirtækja, sem get- ur verið í hættu. Aðstæður í dag eru mun verri, okkur í óhag, heldur en voru árið 1988, þar kemur til netið og miklu öflugri fjölmiðlun. Ég hefi fylgst með þróun þessara mála í þýskumælandi löndum og fullyrði, að sú einstaka jákvæða um- fjöllun, sem við höfum notið þar í sí- vaxandi mæli er í mikilli hættu. Þá getur forsætisráðherra Geir Haarde spurt utanríkisráðherra Valgerði Sverrisdóttur, eins og Ólafur Tryggvason Noregskon- ungur forðum, þegar brast í sundur bogi Einars þambarskelfis: ,,Hvað brast?“ og Einar svaraði: ,,Noregur úr hendi þér, konungur.“ Geir myndi spyrja: „Hvað brast?“ Og Valgerður myndi svara: ,,Örygg- isráðið úr hendi þér, forsætisráð- herra.“ Íslendingar hafa nefnilega tapað virðingu sinni á alþjóðavett- vangi. Barnaleg Bush-gleði forystu- manna í hvalveiðimálinu endar með sömu skelfingu og við erum að upp- lifa í Írak. Heimskuleg þjóðern- ishyggja og stolt yfir því að við höf- um rétt fyrir okkur er liðin tíð. Við erum í dag hluti af alþjóða- samfélaginu, en ekki einangruð þjóð, sem getur farið sínu fram að vild. Víti til varnaðar er stefna Kim Jong-il í Norður-Kóreu. Hvalveiðibann eða veiðar? Hreggviður Jónsson skrifar um hvalveiðar »Hins vegar hefur af-staða mín breyst á þá lund, að nú tel ég að ekki sé einungis brýnt hagsmunamál að veiða ekki hvali, heldur tel ég það nú einnig dýra- verndunarmál. Hreggviður Jónsson Höfundur er fyrrv. þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. hcjons@gmail.com NÁTTÚRUVERNDARFÓLKI liggur mikið á hjarta og enn birtast greinar í blöðum um náttúruspjöllin norðan Vatnajökuls. En jafnmikil- vægt og það er að viðhalda umræð- unni um öll þau ósköp er nú brýnt að bregðast í tæka tíð við áformum um orkunýtingu á ýmsum öðrum stöðum, m.a. á Reykjanesskaganum. Þar hef- ur Orkuveita Reykjavíkur stigið þungt til jarðar vítt og breitt um Hellisheiðina og Hita- veita Suðurnesja hefur markað sín spor í Svartsenginu. Bæði fyrirtækin hyggja á frekari landvinninga. Baráttan um náttúru Reykjanesskagans er hafin. Jarðfræðileg sér- staða á heimsvísu „Framtíðarsýn Landverndar fyrir Reykjanesskaga, þ.m.t. Hengilssvæðið, er að frá Þingvallavatni og út á Reykja- nestá og Eldey verði stofnaður „Eld- fjallagarður og fólkvangur“. Þessi framtíðarsýn grundvallast á nátt- úruvernd samhliða fjölbreyttri ann- arri nýtingu á auðlindum Reykjanes- skagans. Skaginn hefur óumdeilanlega jarð- fræðilega sérstöðu á heimsvísu og í reynd skortir alþjóðleg viðmið til að staðfesta verndargildi hans. Reykja- nes er til að mynda eini staðurinn á jörðinni þar sem berlega má sjá hvar úthafshryggur gengur á land með eldsumbrotum og jarðhræringum.“ Þannig lýsir Landvernd framtíð- arsýn fyrir Reykjanesskagann í riti sínu Kríunni í ágúst 2006 og kynnti hana enn frekar á ráðstefnu í sept- ember sl. Þetta framtak Landverndar er gott og þarft, ekki síst í ljósi þess að orkufyrirtæki sækja nú fast að fá rannsóknarleyfi á þessu svæði og því brýnt að móta stefnu um ráðstöfun þess til framtíðar. Ósnortið víðerni Svæðið frá Stóra Kóngsfelli suður og vestur fyrir Brennisteinsfjöll er skilgreint sem ósnortið víðerni og er rétt í því sambandi að minna á skil- greininguna í lögum um nátt- úruvernd: „Ósnortið víðerni: Landsvæði sem er a.m.k. 25 km² að stærð eða þannig að hægt sé að njóta þar einveru og náttúrunnar án truflunar af mann- virkjum eða umferð vélknúinna far- artækja á jörðu, er í a.m.k. 5 km fjar- lægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunarlónum og þjóðvegum, og þar sem ekki gætir beinna ummerkja mannsins og nátt- úran fær að þróast án álags af mann- legum umsvifum.“ Aðdráttarafl fyrir útivistarfólk Á svæðinu eru fjölmörg nátt- úruvætti og minjar á náttúruminja- skrá sem yrðu innan marka Eld- fjallagarðs og fólkvangs. Þar eru jarðmyndanir með hátt verndargildi og mikið aðdráttarafl fyrir útivistarfólk jafnt og jarðvís- indamenn. Þar er einnig að finna verðmætar menningarminjar og má t.d. minna á Selvog, Krýsuvík, Húshólma og Sela- tanga. Búsetuminjasvæði eru fjölmörg á Reykja- nesskaganum eins og fram kemur í grein Óm- ars Smára Ármanns- sonar í ágústhefti Krí- unnar: „Þau hafa að geyma tæplega 200 sel- stöðuminjar, yfir 100 hlaðin fjárskjól, meira en 100 réttir og stekki, um 80 fjárborgir, ótal vörður tengdar sögu- legum atburðum, a.m.k. 28 hlaðnar refagildrur, yfir 100 brunna og vatnsstæði, ótal gamlar götur þar sem fætur, hófar og klaufir liðinna kynslóða hafa markað djúp för í hraunhelluna, allnokkrar verminjar, varir, naust og lendingar, fiskverkunarminjar og aðrar þær mannvistarleifar sem maðurinn hefur skilið eftir sig á löngum tíma.“ Má nærri geta að allt framantalið hefur mikið gildi fyrir ferðaþjón- ustuna, eins og raunar kom fram á ráðstefnu Landverndar í september. Afar hátt verndargildi Vinstri græn hafa þegar fjallað talsvert um þetta svæði og sam- þykktu m.a. ályktun á landsfundi í október 2005 þar sem skorað var á stjórnvöld að friðlýsa Brennisteins- fjöll, varðveita þau sem ósnortið víð- erni og tengja þau friðlandinu í Her- dísarvík eins og lagt er til í Náttúruverndaráætlun. Í ályktuninni segir m.a: „Svæðið er hið eina fjögurra eldfjallakerfa á Reykjanesi, sem ekki hefur verið spillt með borunum, vegagerð og línulögnum. Í Brennisteinsfjöllum eru merkar gosminjar frá sögulegum tíma, um- hverfið er stórbrotið með gígum, eld- hraunum og hellum, og þar má rekja opnar jarðskjálftasprungur og mis- gengi. Eldvirkt svæði nær alveg frá sjó norður fyrir Sandskeið.“ Verndargildi háhitasvæðisins í Brennisteinsfjöllum er metið afar hátt og svæðið allt býður upp á mikla möguleika. Má segja að þetta merkilega svæði hafi lengi verið eins og falinn fjár- sjóður við bæjardyr höfuðborg- arsvæðisins. Við þurfum að átta okkur á hvílíkar gersemar þar er að finna og tryggja varðveislu þeirra. Stofnun Eldfjallagarðs og fólk- vangs er góð hugmynd. Eldfjallagarð og fólkvang á Reykjanesskaga Kristín Halldórsdóttir fjallar um náttúruvernd Kristín Halldórsdóttir » Baráttan um náttúru Reykjanesskagans er hafin. Höfundur er fyrrverandi alþingiskona. Einhver sagði: Þeir komu í stað hvors annars. RÉTT VÆRI: Þeir komu hvor í annars stað. Gætum tungunnar Dóra Hjálmarsdóttir: Áhættu- mati fyrir Kárahnjúkavirkjun er ekki ábótavant. Oddur Benediktsson: Áhættumati fyrir Kárahnjúka- virkjun er ábótavant. www.mbl.is/profkjor Hafsteinn Karlsson skóla- stjóri styður Þórunni Svein- bjarnardóttur í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvest- urkjördæmi. Ragnheiður Davíðsdóttir styður Sigurð Pétursson í próf- kjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar SANDUR MÖL FYLLINGAREFNI WWW.BJORGUN.IS Sævarhöfða 33, 112 Reykjavík, sími 577 2000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.