Morgunblaðið - 01.11.2006, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
eeeee
„Eitt orð: Frábær“
-Heat
eeee
Empire
Fearless kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
The Devil Wears Prada kl. 5.40, 8 og 10.20
Talladega Nights kl. 8 og 10.20
Monster House m.ensku.tali kl. 3.50 B.i. 7 ára
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50
Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Scoop kl. 8
Takk Fyrir að Reykja kl. 6 og 10 B.i. 7 ára
„...epískt meistaraverk!“
- Salon.com
„Tveir þumlar upp!“
- Ebert & Roeper
Frá framleiðendum Crouching Tiger, Hidden Dragon
kemur síðasta bardagamynd súperstjörnunnar Jet Li.20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍ-NUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
Varðveit líf mitt fyrir
ógnum óvinarins
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK ARNALDAR INDRIÐASONAR eeeee
Hallgrímur Helgason – Kastljósið
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
eee
LIB, Topp5.is
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
40.000 manns á
aðeins 11.dögum !
SAMFÉLAGIÐ, félag framhalds-
nema við félagsvísindadeild Há-
skóla Íslands, stendur fyrir hádeg-
isfundi undir heitinu: „Nauðganir á
Íslandi. Hvað getum við gert?“ í Há-
tíðarsal Háskóla Íslands 1. nóv. kl.
12. Eftir tvö framsöguerindi verða
pallborðsumræður með fulltrúum
frá öllum stjórnmálaflokkum. Allir
velkomnir, aðgangur ókeypis.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Á tónleikum í Norræna húsinu í dag
kl. 12.30 flytur Kolbeinn Bjarnason
m.a. verk eftir Toshio Hosokawa
(frumflutningur hérlendis) og
Doina Rotaru en það verk var sam-
ið sérstaklega fyrir Kolbein og
frumflutt í Skálholti í sumar.
Kolbeinn frumflytur líka Atla
Heimis Sveinssonar á Prelúdíu í fís-
moll eftir Bach.
HANDRITIÐ Skarðsbók post-
ulasagna er nú sýnt í fyrsta
skipti í Þjóðmenningarhúsinu á
Handritasýningunni. Skarðsbók
er stærst og veglegust af varð-
veittum handritum postulasagna
og í henni eru ellefu post-
ulasögur. Bókin er líklega skrif-
uð nálægt 1360 í klaustrinu að
Helgafelli fyrir Orm lögmann
Snorrason á Skarði á Skarðs-
strönd, en hann gaf hana kirkjunni á Skarði.
Handritið er sýnt nú til að minnast þess að 18. október voru liðin 40 ár
síðan dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, afhenti íslensku þjóðinni
Skarðsbók postulasagna. Af sama tilefni kemur út ritgerð þar sem Jóhann-
es Nordal segir frá flóknum og spennandi aðdraganda þess að handritið
var keypt. Ritgerðin er prýdd fjölmörgum myndum úr Skarðsbók og verð-
ur til sölu í safnbúð Þjóðmenningarhússins.
Sýningar og safnbúð eru opnar daglega frá kl. 11 til 17.
Tónlist
Norræna húsið | Háskólatónleikar í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 1. nóv. kl.
12.30. Kolbeinn Bjarnason flautuleikari
flytur m.a. verk eftir Toshio Hosokawa, Atla
Heimi Sveinsson og Doina Rotaru. Að-
gangur kr. 1000. Fyrir eldri borgara og ör-
yrkja kr. 500.
Salurinn, Kópavogi | Miðvikudagur 1. nóv.
kl. 20, fimmtudag 2. nóv. kl. 20 og sunnu-
dag 5. nóv. kl. 16. Samkór Kópavogs heldur
upp á 40 ára afmæli kórsins með þrennum
tónleikum í Salnum. Þema tónleikanna er
Kópavogur. Miðaverð: 2000 kr. í síma
5700 400 og á salurinn.is
Myndlist
Anima gallerí | Hjörtur Hjartarson sýnir
málverk unnin á þessu og síðasta ári, þar
sem myndlistamaðurinn vinnur með nátt-
úruform, liti og ljós. Opið þri.–lau. kl. 13– 17.
www.animagalleri.is – Til 4. nóv.
Art-Iceland.com | María Jónsóttir sýnir í
Art-Iceland.com á Skólavörðustíg 1a frá
30. okt. til 6. nóv. Sveitarómantíkin á hug
hennar allan. Hún sýnir klippimyndir af
hestum, hundum, geitum og kindum. Einn-
ig málaða steina með dýramyndum.
Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir
verkið „Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið
með blandaðri tækni. Opið mán–þri. kl. 10–
18 og laug. kl. 11–16. Til 17. nóv.
Café Karólína | Ásmundur sýnir óvenju-
legar teikningar á Café Karólínu og Snorri
bróðir hans sýnir jafnvel enn óvenjulegri
málverk á veitingastaðnum. Til 3. nóv.
Gallerí Fold | Einar Hákonarson sýnir í Bak-
sal til 12. nóvember.
Gallerí Stígur | „Vinátta“, myndlistarsýn-
ing Elsu Nielsen, stendur nú yfir í Gallerí
Stíg á Skólavörðustíg 22, Reykjavík. Sýn-
ingin stendur yfir til 17. nóvember og er op-
in kl. 13–18 virka daga og 11–16 laugardaga.
Gerðuberg | Sýning á mannlífsmyndum
Ara í tilefni 220 ára afmælis Reykjavík-
urborgar. Ljósmyndirnar sýna mannlíf í
Reykjavík sem fáir veita eftirtekt í daglegu
amstri.
Sýning á afrískum minjagripum sem Ólöf
Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur hefur
safnað saman. Skemmtileg blanda af
gömlum munum og nýstárlegum en saman
mynda þeir heild sem gefur góða mynd af
minjagripaúrvali í Afríku.
Sýning Sigurbjörns Kristinsson stendur yf-
ir. Á sýningunni má sjá abstraktmyndir í
anda gömlu íslensku meistaranna. Opið
virka daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16.
www.gerduberg.is
Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll,
ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar
stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 13–19 og á
sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv.
Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir með
myndlistarsýningu til 24. nóv.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðnum
Karólínu. Á sama tíma opnar Ásmundur
bróðir Snorra sýningu á Café Karólínu.
Kling og Bang gallerí | 8 myndlistarmenn,
búsettir í New York, sýna í Kling og Bang
gallerí. Ætlun INVASIONISTAS er að kanna
merkingu innrásar almennt og hvernig hún
endurspeglast í veröldinni, í íslensku sög-
unni og í blindgötustjórnmálum heima-
lands síns.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Eirún Sig-
urðardóttir – Blóðhola. Blönduð tækni.
Gryfja og Arinstofa: Pétur Örn Friðriksson
– Halkíon. Farartæki, fyrirbæramódel, land-
hermar. Sýningarnar standa til 5. nóv-
ember. Opið kl. 13–17. Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Dröfn lét mikið að sér kveða í ís-
lensku listalífi og haslaði hún sér völl í ein-
um erfiðasta geira grafíklistarinnar, trérist-
unni. Opið virka daga nema mánud. 12–17.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eft-
ir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur
þróunina í málverkinu frá upphafi níunda
áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins í
dag. Til 26. nóv.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn-
ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Lista-
safni Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist
Sog. Viðfangsefni listamannsins er
straumvatn og sýnir hann þarna ný mál-
verk unnin með olíu á striga og rýmisverk.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, gifs, stein, brons og aðra málma.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson
myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin
laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Listasalur Mosfellsbæjar | Grasakonan
Gréta Berg fjallar um tengsl hjúkrunar,
geðræktar og lista og stendur til 11. nóv.
Heilbrigði og dramatík sálarlífsins leika um
myndirnar. Boðið er upp á slökun á laugard.
Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti
2, er opinn virka daga kl. 12–19 og laugard.
12–15 og er í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn
tíma. Árni sýnir olíumálverk 70x100. Opið
kl. 9–17 alla daga nema laugardaga er opið
kl. 12–16. www.arnibjorn.com
Næsti Bar | Bjarni Helgason hefur opnað
sýninguna Undir meðvitund og þar sýnir
hann tíu akrýlmálverk ásamt skissum og
útprenti tengt þema sýningarinnar. Sýn-
ingin er opin á afgreiðslutíma Næsta bars
og stendur til 11. nóvember.
Safn | Tilo Baumgärtel og Martin Kobe,
ungir málarar frá Leipzig í Þýskalandi, sýna
ný verk sín. Innsetning svissneska lista-
mannsins Romans Signer á miðhæð.
Gjörningar í Safni; 13.–28.okt. Opið mið.–
fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17
www.safn.is Ókeypis aðgangur. Til 5. nóv.
Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum
William Thomas Thompson stendur yfir í
Listasal Saltfisksetursins. William er vel
þekktur listamaður í Bandaríkjunum. Sýn-
inguna kallar hann Sýnir og stendur hún til
6. nóvember. Saltfisksetrið er opið alla
daga frá 11–18.
Skaftfell | Sýning vegna Listmunaupp-
boðs. 42 verk eftir 36 listamenn af öllum
stærðum og gerðum. sjá www.skaftfell.is
VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda
hefðbundins veggjakrots. Sem málverk
takmarkast verkið af eðli Gallerísins Vegg-
Verk. Þannig á þetta verk, og þau sem á
eftir munu koma, styttri líftíma en hefð-
bundin málverk, því listamennirnir munu
allir nota sama rýmið. Til 25. nóv.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning
á ljósmyndum sem varðveittar eru í
Myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hef-
ur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru
myndir af óþekktum stöðum, húsum og
fólki og gestir beðnir um að þekkja mynd-
efnið og gefa upplýsingar um það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tek-
ið á móti hópum eftir samkomulagi.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í Borg-
arskjalasafni stendur nú yfir sýning á skjöl-
um úr einkaskjalasafni Hjörleifs Hjörleifs-
sonar. Skjölin sem tengjast öll fjölskyldu
Hjörleifs eru flest frá um 1900 og eru mörg
þeirra glæsileg að útliti. Sýningin er opin
öllum frá 10–16, alla virka daga.
Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgríms-
kirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og
sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hef-
ur sett saman með sóknarnefnd og List-
vinafélagi Hallgrímskirkju. Minnst er ein-
stakra þátta úr byggingarsögunni og
fórnfýsi fylgismanna til að gera kirkjuna að
veruleika. Til. 30. nóv.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í
Gamla Presthúsinu. Opið eftir sam-
komulagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja-
vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn
| Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá
Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var
prestur, rithöfundur, þýðandi og fræðimað-
ur, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir
bera vott um. Sýningin spannar æviferill
Jónasar í máli og myndum. Sjá nánar á
heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist –
sýningartími lengdur. Trúlofunar- og brúð-
kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung-
barnaumönnun og þróun klæðnaðar og
ljósmyndahefðar frá 1800-2005. Unnið í
samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Opið
laugardaga og sunnudaga til 19. nóvember
frá 14–16. Aðrar sýningar: Eyjafjörður frá
öndverðu og Akureyri – bærinn við Pollinn.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is
Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar
lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp-
haf símasambands við útlönd. Símritari
sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit-
símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns
Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið
og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka
daga kl. 13–16 www.tekmus.is
Veiðisafnið, Stokkseyri | Skotveiðisafn –
uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum
munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið
alla daga kl. 11–18. www.hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum
Berlínarforlagsins Mariannenpresse stend-
ur yfir. Hver bók er listaverk unnið í sam-
vinnu rithöfundar og myndlistarmanns.
Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk tísku-
hönnun og Fyrirheitna landið. Veit-
ingastofa með hádegisverðar- og kaffimat-
seðli er í húsinu, einnig safnbúð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til
sýnis útsaumuð handaverk listfengra
kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin byggir
á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl-
og búningafræðings.
Leiklist
Reiðhöll Gusts | Hvað er Þjóðarsálin? Er
hún hjartnæm fjölskyldusápa? Er hún
dramatísk og kraftmikil hestasýning? Er
hún hárbeitt ádeila? Er hún sterkar konur í
fyrsta klassa? Eða hraustir menn með
stinna rassa? Þjóðarsálin er allt þetta og
svo miklu meira. Miðasölusími: 694 8900
midasala@einleikhusid.is
Dans
Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús á
Álfabakka 14a miðvikudag kl. 20.30. Gömlu
dansarnir. Allir velkomnir.
Skemmtanir
Málaskólinn LINGVA | Okkar skemmtilegu
TAL-hópar í ítölsku, spænsku og ensku
hefjast að nýju í nóvember. Allar upplýs-
ingar á www.lingva.is, sími 561 0315. Our
successful courses in Icelandic for for-
eigners start again in nóvember. Price only
12.500. tel: 561 0306, www.lingva.is.
SÁÁ félagsstarf | Árshátíð SÁÁ verður
haldin í Lídó, Hallveigarstíg 1, föstudaginn
3. nóvember, glæsileg skemmtiatriði.
Hljómsveit Grétars Örvarssonar leikur fyrir
dansi, ásamt Regínu Ósk og Friðrik Ómari.
Mannfagnaður
Seyðfirðingafélagið | Seyðfirðingafélagið í
Reykjavík heldur upp á 25 ára afmæli sitt
4. nóv. kl. 17 í Gjábakka. Mætum nú vel.
Stjórnin.
staðurstund
Tónlist
Háskóla-
tónleikar
Fundir
Hádegisfundur
Samfélagsins
Söfn
Sýning á handriti Skarðsbókar
í Þjóðmenningarhúsinu