Morgunblaðið - 01.11.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 37
dægradvöl
1. d4 d5 2. c4 e6 3. cxd5 exd5 4. Rf3 Rf6
5. Rc3 Be7 6. Bg5 O-O 7. e3 b6 8. Dc2
Bb7 9. Bd3 h6 10. h4 Rbd7 11. O-O-O
c5 12. Bf5 c4 13. g4 He8 14. Bxf6 Bxf6
15. g5 Be7 16. gxh6 gxh6 17. Hdg1+
Kf8 18. Be6 Rf6
Staðan kom upp í fyrri hluta 2. deild-
ar Íslandsmóts skákfélaga sem fór
fram fyrir skömmu í Menntaskólanum
í Hamrahlíð. Halldór Grétar Ein-
arsson (2261) hafði hvítt gegn Sigurði
Herlufsen (1965).19. Hg8+! Kxg8
svartur hefði einnig orðið mát eftir 19...
Rxg8 20. Dh7 fxe6 21. Re5. 20. Dg6+
Kh8 21. Dxh6+ og svartur gafst upp
þar sem hann væri óverjandi mát eftir
21... Rh7 22. Bf5.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Erfið ákvörðun.
Norður
♠G753
♥1064
♦K5
♣K543
Vestur Austur
♠-- ♠2
♥ÁKDG9853 ♥72
♦G982 ♦ÁD7643
♣7 ♣G1098
Suður
♠ÁKD109864
♥--
♦10
♣ÁD62
Suður spilar 6♠ og fær út hjartaás.
Vestur gaf og vakti á fjórum hjört-
um. Sú sögn gekk til suðurs, sem beit á
jaxlinn og stökk beint í sex spaða. Sem
er vissulega frekjumelding, en það er
erfitt að virkja makker til samstarfs í
slíkum spilum. Alla vega lítur málið
ágætlega út þegar blindur kemur upp.
Laufið er hins vegar ekki líklegt til að
falla og sagnhafi þarf gera upp við sig
hvorum megin tígulásinn liggur. Á að
spila að kóngnum, eða reyna að þvinga
austur með tígulás og líklega lauf-
lengd? Þetta er erfið ákvörðun, en ef
sagnhafi reiknar með tígulásnum í
austur er einfaldast að henda tígultíu í
hjartaásinn í fyrsta slag. Austur mun
þá þvingast sjálfkrafa þegar trompin
eru tekin.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 ungi lundinn, 4
eyja, 7 setur, 8 illa inn-
rætt, 9 þrældómur, 11
hina, 13 glóandi aska, 14
kapítuli, 15 drepa, 17 úr-
koma, 20 sjávardýr, 22
heyið, 23 opið, 24 setja í
óreiðu, 25 deila.
Lóðrétt | 1 kollótt ær, 2
útlimir, 3 hím, 4 trjá-
mylsna, 5 lítill fingur, 6
rýma, 10 fjandskapur, 12
keyra, 13 málmur, 15
stúfur, 16 róin, 18 baun-
in, 19 afkomenda, 20
sprota, 21 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 svipþungt, 8 kútur, 9 gæðin, 10 lóu, 11 purka,
13 renna, 15 spons, 18 sleit, 21 vik, 22 ginna, 23 julla, 24
greftraði.
Lóðrétt: 2 vitur, 3 perla, 4 uggur, 5 goðin, 6 skap, 7 unna,
12 kyn, 14 ell, 15 segl, 16 ofnar, 17 svarf, 18 skjár, 19 efl-
ið, 20 tían.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
1 Uppreisnarmenn frá Sri Lankahættu við Íslandsferð eftir að
upp úr slitnaði í sáttaviðræðum í
Genf. Hvað kallast uppreisnarmenn?
2 Tímamót voru sögð í íslenskumkörfuknattleik í fyrrakvöld þegar
mættust ÍS og Keflavík í efstu deild
kvenna. Í hverju voru tímamótin fólg-
in?
3 Avion Group hefur selt hlutastarfseminnar og hagnast um
10,5 milljarða króna. Hver er stjórn-
arformaður félagsins?
4 Ný orðabók var að koma út.Hvaða tungumál geymir hún.
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Skólastjóri á Akranesi varð í efsta sæti
í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvest-
urkjördæmi um helgina. Hvað heitir hann?
Guðbjartur Hannesson. 2. Menningar-
dagskrá var í Riverton í Kanada nýlega til
að minnast sameiningar Nýja Íslands og
Manitobafylkis. Hversu mörg ár eru liðin
frá sameiningunni. 125 ár. 3. Forseti
Brasilíu var endurkjörinn í síðari umferð
forsetakosninganna á sunnudag. Hvað
heitir hann? Luiz Inacio Luka da Silva. 4.
Íslenska landsliðið í handknattleik karla
lék tvo landsleiki um síðustu helgi. Hvar
fóru leikirnir fram? Ungverjalandi.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
KARLAKÓRINN Fóstbræður fagn-
ar níutíu ára afmæli um þessar mund-
ir og hélt upp á það ásamt Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á
hátíðartónleikum í Háskólabíói á
laugardaginn var. Segja má að efnis-
skráin hafi verið einskonar þver-
skurður af starfi kórsins í gegnum
tíðina, en hann hefur víða komið við í
tónlistarlífinu, frumflutt ný tónverk,
tekið þátt í óperusýningum, starfað í
poppgeiranum, o.s.frv.
Í rauninni er saga Fóstbræðra
tengd órjúfanlegum böndum hinni
ótrúlegu uppbyggingu sem átti sér
stað í íslensku tónlistarlífi á 20. öld-
inni. Því ættu allir sem einhvern
áhuga hafa á tónlistarsögu að lesa
vandaða bók Páls Ásgeirs Ásgeirs-
sonar um kórinn.
Tónleikarnir hófust á hinum gamla
stríðshesti Fóstbræðra, „Brennið þið
vitar“ eftir Pál Ísólfsson, en endaði á
tveimur Stuðmannalögum sem kór-
inn flutti með dyggum stuðningi
þriggja meðlima úr hljómsveitinni sí-
vinsælu. Inn á milli voru svo kóratriði
úr þekktum óperum, lög eftir Holst,
Grieg og Björk Guðmundsdóttur, auk
þess sem frumflutt var nýtt verk eftir
Áskel Másson.
Óneitanlega var það síðastnefnda
eitt hið athyglisverðasta, og um leið
það skemmtilegasta á dagskránni.
Verkið heitir Seig ég í björg, en text-
inn, sem er eftir Hannes Pétursson,
fjallar um það þegar Hólabiskup síg-
ur í djöflasetið bjarg til að blessa það.
Loðin loppa birtist þá og sker á reip-
ið, og þótt þjóðsagan endi á farsælan
hátt (ef ég man rétt) fer illa fyrir
biskupnum í ljóðinu. Eftir þessu er
stemningin myrk í tónlist Áskels og
notar hann ýmis áhrifshljóð til því
undirstrikunar. Hann gerir það samt
svo smekklega að maður tekur nán-
ast ekkert eftir því; þvert á móti falla
áhrifshljóðin fullkomlega inn í tón-
málið, sem er notalega auðskiljanlegt.
Útkoman á tónleikunum var einfald-
lega frábær, enda flutningur kórs og
hljómsveitar undir markvissri stjórn
Árna Harðarsonar ákaflega vand-
aður.
Margt annað var líka vel heppnað á
dagskránni, t.d. voru óperukórarnir
yfirleitt glæsilegir og einsöngur
Bjarna Thors Kristinssonar í nokkr-
um atriðum glimrandi góður.
Sérstaklega gaman var að heyra
Gáttir allar áður gangi fram úr
„Þrymskviðu“ Jóns Ásgeirssonar; er
ekki kominn tími til að flytja þá óperu
alla í heild sinni aftur?
Síðustu atriðin á tónleikunum voru
þrír söngvar eftir Gustav Holst, en
þeir voru ekki nægilega tærir í með-
förum Fóstbræðra. Einnig hefði mátt
sleppa „Army of Me“ eftir Björk, en
þetta sjarmerandi lag naut sín engan
veginn í útfærslu kórsins. Eitt af því
sem einkennir tónlist Bjarkar er hinn
sérstæði hljóðheimur sem hún skapar
með hugvitsamlegu og óvenjulegu
samspili mismunandi hljóðfæra og
radda. Hér vantaði alla töfrana og
þótt karlakórinn stæði sig vel náði
hann ekki að gera neitt annað en að
skrumskæla tónlistina. Upplifunin
var eins og að sjá mynd af fagurri
konu sem einhver hafði málað skegg
á.
Aðrar útsetningar voru betri; lögin
„Slá í gegn“ eftir Valgeir Guðjónsson
og Íslenskir karlmenn eftir þá Val-
geir og Egil Ólafsson voru ein-
staklega áhrifamikil í hljómsveit-
arbúningi Haraldar Vignis
Sveinbjörnssonar. Flutningurinn var
líka gæddur viðeigandi húmor og lífs-
krafti, enda brutust gífurleg fagn-
aðarlæti út í lokin. Óneitanlega var
það vel heppnaður endir á tónleik-
unum.
Fóstbræðrum er hér með óskað til
hamingju með afmælið; megi þeir
halda áfram að gleðja okkur um
ókomna tíð.
Til hamingju
með afmælið!
Morgunblaðið/Sverrir
Frá æfingu „Fóstbræðrum er hér með óskað til hamingju með afmælið;
megi þeir halda áfram að gleðja okkur um ókomna tíð.“
TÓNLIST
Háskólabíó
Tónlist eftir Pál Ísólfsson, Grieg, Verdi,
Jón Ásgeirsson, Weber, Gershwin, Holst,
Áskel Másson, Björk Guðmundsdóttur,
Valgeir Guðjónsson og Egil Ólafsson.
Karlakórinn Fóstbræður söng ásamt Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og Stuðmönnum
undir stjórn Árna Harðarsonar. Ein-
söngur: Bjarni Thor Kristinsson. Kynnir:
Þorgeir J. Andrésson. Laugardagur 28.
október.
Kór- og sinfóníutónleikar
Jónas Sen