Morgunblaðið - 01.11.2006, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919
Varðveit líf mitt fyrir
ógnum óvinarinsKVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
MÝRIN kl. 5:50 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára.
WORLD TRADE CENTER kl. 8 - 10:30 B.i. 12.ára
THE QUEEN kl. 5:50 - 8 B.i. 12.ára.
THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 8 B.i.12.ára.
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 6 - 10:10 LEYFÐ
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
BESTA MYND MARTINS
SCORSESE TIL ÞESSA
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA
„THE DEPARTED ER EÐAL
GLÆPAMYND EINS OG ÞÆR
GERAST BESTAR OG ER ENN EIN
RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
Munið afsláttinn
eee
H.J. MBL
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
Árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Fyrirkvíðanlegt að verða
eldri borgari
VIÐ eigum að búa við eitt besta heil-
brigðiskerfi í heimi sem og svokallað
velferðarkerfi! Hvar eru mannrétt-
indi t.d. eldra fólksins okkar?
Sjúkrahúsin, hjúkrunarheimilin og
ýmsir aðrir staðir á okkar landi er
allt of víða svo illa mannað að starfs-
fólkið sem vinnur þessi mikilvægu
umönnunarstörf kemst ekki yfir að
hugsa viðunandi um ástvini okkar
sökum manneklu – ekki er við það að
sakast. Við eigum mikið af mennt-
uðu og góðu fólki sem vill vinna þessi
mikilvægu umönnunarstörf en getur
það ekki vegna launamála. Ef ráða-
menn þjóðarinnar tækju sig saman,
sýndu samstöðu, samvinnu og vilja
til að manna þau fjölmörgu stöðu-
gildi sem þarf að manna STRAX,
gæti umönnunin orðið mannsæm-
andi en ekki þjóðarskömm eins og
staðan hefur verið allt of lengi. Það
má tala um að byggja og byggja ný
sjúkrahús og hjúkrunarheimili, en
manna fyrst þær stöður sem bráð-
vantar nú þegar víða á landinu. Í
okkar velferðarþjóðfélagi og með
einhverja fullkomnustu heilbrigð-
isþjónustu í heimi! Ástandið er til
skammar.
Olga Björk Ómarsdóttir.
Réttmeti
Ömmubakstur, Ormsson og World
Class í samstarfi við Ríkisútvarpið
Rás 2. Þetta eru fyrirtæki sem eiga
heiður skilinn. Ég undirrituð tók
þátt í leik þar sem viðkomandi átti
að skrifa nafn, vinnustað og sam-
starfsmenn.
Við vorum svo heppnar að vera
dregnar út. Við erum því búnar að
borða hvern réttinn á eftir öðrum frá
Ömmubakstri, alveg nýja rétti sem
heita Réttmeti, þvílíkt góða, í fimm
daga. Ekki nóg með það því á fyrsta
degi var komið með örbylgjuofn frá
Ormsson til að hita réttina í og svo
var okkur öllum boðið í líkamsrækt
hjá World Class í eina viku. Svo í
lokin var komið með kaffibrauð frá
Ömmubakstri, svona til að enda vik-
una.
Þess vegna viljum við þakka kær-
lega fyrir okkur.
Hrafnhildur og stelpurnar
í Skógarbæ.
Kira er týnd
30. október sl. hvarf Rottweiler-tíkin
mín Kira frá vinnusvæðinu við Bláa
lónið. Hún er 3ja mánaða og er ör-
merkt. Þeir sem
hafa séð hana eða
vita um hana eru
vinsamlega beðnir
að hafa samband í
síma 858 7102.
Eins er hægt að
senda tölvupóst um
hvar ég get nálgast
hana á: langholtsvegur79@visir.is ,
eða skila henni til lögreglu, á sama
svæði og hún var tekin af eða til
næsta dýralæknis.
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90ára af-mæli. Í
dag, 1. nóvember,
er níræður Guðni
Eyjólfsson, fyrr-
verandi skip-
stjóri og vigt-
armaður,
Höfðagrund 23,
Akranesi. Hann
tekur á móti gest-
um í sal Félags eldri borgara á Akra-
nesi, Kirkjubraut 40, laugardaginn 4.
nóvember kl. 15–18. Hann biðst ein-
dregið undan öllum blómum og gjöfum
en biður sem flesta að gera sér þá
ánægju að líta við og þiggja veitingar.
80ára af-mæli. Í
dag, 1. nóv-
ember, er átt-
ræður Valdimar
Tryggvason,
loftskeytamað-
ur, Hjallahlíð 12,
Mosfellsbæ.
Valdimar dvelur
á heimili dóttur
sinnar, á Hrafnshöfða 19, Mosfellsbæ,
á afmælisdaginn.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað. Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100 eða
sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Eltið peningaslóð-ina,“ var við-
kvæðið hjá
stjórnmálafræði-
prófessor, sem Vík-
verji sat eitt sinn í
tímum hjá, þegar
hann var spurður um
það hverjir stæðu
best að vígi í kosn-
ingum, sem þá stóðu
fyrir dyrum í Banda-
ríkjunum. Prófess-
orinn heitir Tom
Ferguson og hefur
fjallað rækilega um
þessi tengsl peninga
og fylgis í ræðu og
riti vestan hafs.
Kenning hans snýst ekki aðeins
um það að peningar búi til fram-
bjóðendur, heldur einnig að pen-
ingarnir elti þá frambjóðendur,
sem þyki sigurstranglegir og geri
síðan að verkum að þeir verði
óstöðvandi. Stundum geta þeir,
sem eiga peningana einnig verið
seinir að taka við sér og þá elta
peningarnir almenningsálitið. Það
virðist vera að eiga sér stað í
bandarískum stjórnmálum þessa
dagana.
Bandaríkjamenn kjósa til þings
og um nokkra ríkisstjórastóla eftir
viku. Ef horft er á fjárframlög fyr-
irtækja til þingframbjóðenda und-
anfarin tólf ár hefur yfirleitt hallað
mjög á demókrata. Í
bandaríska dagblaðinu
The New York Times
um helgina kom fram
að síðast hefðu fram-
lög verið nokkurn veg-
inn jöfn tímabilið jan-
úar fram í september
1994. Mánuði fyrir
kosningar fór hins
vegar að halla undan
fæti, repúblikanar
fengu mun hærra
hlutfall framlaga og
náðu enda meirihluta í
kosningunum þá um
haustið. Síðan hafa
framlög skipst þannig
að demókratar hafa
fengið um 30% framlaga, en repú-
blikanar 70%, allt þar til nú í októ-
ber. Frá janúar og út september
var staðan þannig að demókratar
fengu 33% framlaga, en repúblik-
anar 67%. Í október hafa demó-
kratar hins vegar fengið 43% og
repúblikanar 57%. Þetta er 11 pró-
sentustiga sveifla og þykir bera
því vitni að fyrirtækin séu að búa
sig undir það að demókratar nái
meirihluta bæði í fulltrúadeildinni
og öldungadeildinni. Þau koma sér
í mjúkinn hjá flokknum, sem spáð
er meirhluta og talið er að geti
jafnvel náð völdum í Hvíta húsinu
þegar forsetakosningar verða
haldnar eftir tvö ár.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er miðvikudagur
1. nóvember, 305. dagur
ársins 2006
Orð dagsins: En Jesús hrópaði: „Sá sem trúir á
mig, trúir ekki á mig, heldur þann sem sendi
mig. “ (Jh. 12, 44.)
Victoria Beckham skrökvar aðbörnum sínum með því að segja
þeim að hún sé enn í hljómsveitinni
Spice Girls. Victoria, sem er gift
knattspyrnumanninum David Beck-
ham, hefur viðurkennt að synir
þeirra þrír hafi ekki haft hugmynd
um hvað hún gerði áður en þeir
fæddust. Hún sýndi þeim því kvik-
myndina Spice Girls: The Movie.
Victoria, sem einnig er þekkt undir
nafninu Posh Spice, gat hins vegar
ekki fengið sig til þess að segja
drengjunum, sem eru sjö, fjögurra
og eins árs, að hljómsveitin væri
hætt. „Ég sýndi þeim myndina um
daginn af því að á Spáni snýst allt um
fótbolta, og allt snýst um pabba.
Strákarnir spurðu nefnilega
Bandaríski leikarinn Sylvester Stallone hefur lýst þvíyfir að hann ætli að hætta að leika þegar hann hefur
leikið í nýjustu myndinni um Rambo sem ber heitið
Rambo 4: In The Serpent’s Eye. Tökur á myndinni hefj-
ast í byrjun næsta árs. Stallone hefur hins vegar lýst því
yfir að hann ætli að halda áfram að vinna í Hollywood, en
eingöngu sem leikstjóri.
„Þegar ég verð búinn með Rambo ætla ég að einbeita
mér að leikstjóraferlinum. Ég hef verið óánægður með
nokkrar af nýjustu myndunum mínum, auk nokkurra
eldri mynda,“ segir Stallone.
Stallone, sem er orðinn sextugur, var gríðarlega vin-
sæll á áttunda og níunda áratugnum þegar hann lék í
fjölmörgum myndum um hnefaleikamanninn Rocky og
stríðsmanninn Rambo. Ferill hans hefur verið æði mis-
jafn síðan. Ný mynd um Rocky er hins vegar væntanleg
á næsta ári, en hún verður sú sjötta í röðinni og nefnist
einfaldlega Rocky Balboa.
Fólk folk@mbl.is