Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 41 KEVIN COSTNER ASHTON KUTCHER SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. / ÁLFABAKKA THE DEPARTED kl. 5 - 7 - 8 - 10:10 B.i. 16 THE DEPARTED VIP kl. 5 - 8 THE GUARDIAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 JACKASS NUMBER TWO kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ BARNYARD m/ensku tali kl. 4 - 8 - 10:10 LEYFÐ MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ / KRINGLUNNI THE DEPARTED kl. 5:30 - 8:30 - 10 B.i. 16 DIGITAL BÆJARHLAÐIÐ kl. 6 LEYFÐ m/ísl. tali THE GUARDIAN kl. 10:30 B.i. 12 MATERIAL GIRLS kl. 8 LEYFÐ BEERFEST kl. 8:30 B.i. 12 / AKUREYRI THE DEPARTED kl. 8 b.i. 16 BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ THE GUARDIAN kl. 8 b.i. 12 / KEFLAVÍK MÝRIN kl. 8 B.I. 12 GUARDIAN kl. 10:10 B.I. 12 THE TEXAS CHAINSAW... kl. 10 B.I. 18 THE DEVIL WEARS PRADA kl. 8 LEYFÐ eeee H.Ó. MBL eee LIB Topp5.is Þú átt eftir að skemmta þér sjúklega vel. eee EMPIRE ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! BESTA MYND MARTINS SCORSESE TIL ÞESSA SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA UPPRUNALEGU PARTÝ- DÝRIN ERU MÆTT Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu „THE DEPARTED ER EÐAL GLÆPAMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR OG ER ENN EIN RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“ eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS Munið afsláttinn Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI eee H.J. MBL Omega 3-6-9 FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Fjölómettaðar fitusýrur NNFA QUALITY APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Iðkaðu óskilyrta ást eingöngu. Þú veist, þeirrar tegundar sem merkir að hinn að- ilinn getur verið eins og honum sýnist og samt notið aðdáunar þinnar. Þó að þú gerir ekkert annað en þetta í dag, er það meira en nóg. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er í eilífu ákvörðunarferli. Kannski er það orðið leitt á þessu og lík- lega að bíða þess tíma er enginn spyr það að neinu. Bráðum munu allir skilja til hvers er ætlast af þeim og spurn- ingaflóðinu linna. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn stefnir ótrauður þangað sem hann ætlar sér og þarf á leiðbeiningum að halda til þess að sortera þá veik- byggðari frá. Hérna er vísbending – eitt helsta einkenni þroskaðrar manneskju er að hún tekur ábyrgð á sínu eigin ástandi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Munurinn á uppbyggilegri gagnrýni og niðurrifi er geta hinnar manneskjunnar til þess að meðtaka það sem þú hefur fram að færa. Hafðu dómgreindina til hliðsjónar að þessu leyti, þannig verður þú líka góður leiðtogi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið hefur ekkert til þess að hafa sam- viskubit yfir og á að losa sig við þessa neikvæðu tilfinningu í eitt skipti fyrir öll. Slíttu hana upp með rótum. Það krefst smávegis ígrundunar og þess að þú rótir aðeins upp í fortíðinni og í dag er rétti dagurinn til þess. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Fikraðu þig í átt að markmiði þínu með eitt takmark í huga, en þröngt sjón- arhorn. Ef þú segir „já“ við of mörgum nýjum kvöðum á það bara eftir að íþyngja þér. Dans eða hröð líkams- þjálfun gefur þér tíma til þess að með- taka svörin sem þú hefur beðið eftir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ástin sigrar allt, að lokum. En það ást- ríkasta sem maður getur gert, er ekki endilega alltaf það auðveldasta. Skoraðu á sjálfa þig að setja markið hátt í hvaða aðstæðum sem kunna að koma upp. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Hugmynd einhvers um skemmtun sam- rýmist þinni alls ekki. Eyddu meiri tíma með fólki sem „nær“ þér og kemur þér til þess að hlæja, eins og einhverjir í ljóns- eða meyjarmerki. Þín bíður ein- stök gjöf í kvöld, en hún er samt ekki í umbúðum með slaufu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Fyrirgefðu. Fúslega. Öllum. Það er fljót- legasta leiðin til þess að verða sú mann- eskja sem þú þarft að vera til þess að öðlast allt sem þú þarft og óskar eftir. Ástríkt samband sem þú getur reitt þig á er eitt af þessu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það sem steingeitina langar til þess að gefa er ekki endilega það sem aðrir vilja fá. Gerðu breytingar. Ekki vera hrædd við að spyrja ástvini hvers þeir þarfnast frá þér. Niðurstaðan leiðir til þeirrar til- finningar að allir leggi sitt af mörkum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Að vera viðkunnanlegur eða góður er stórlega ofmetið. Allir bera ábyrgð á sín- um eigin gjörðum. Ef maður gerir það ekki, bitnar vanrækslan á því sem maður er að fást við. Þú þarft meira á árangri að halda en samþykki. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ekki vera hissa þótt enginn í kringum þig hugsi jafn stórt og þú. Hvað þig varðar, ertu ekki bara að reyna að vera á undan boltanum, heldur viltu senda hann í mark og vinna leikinn. Stjörnuspá Holiday Mathis Merkúr og Satúrnus takast á að nýju. Stuttorðar stjörnusamræður laða mótþróann fram í hvorri plánetu fyrir sig – og hið sama gildir um samtöl í mannheimum. Höfum í huga að það er sjaldnast það sem maður segir sem vekur tilfinningar hjá öðrum heldur hvernig það er sagt. Tökum ákefðarmælinn í hönd og höfum stjórn á okkur. ÞEIR Wilson-bræður skilja sjálf- sagt ekki eftir sig djúp spor í kvik- myndasögunni en þeir eru geðþekk- ir piltar og liðtækir gamanleikarar báðir, Luke og Owen. Nú færast þeir fullmikið í fang, láta ekki gott heita að dandalast framan við myndavélina heldur setur Luke sig í mikilúðlegar stellingar og skrifar handritið og leikstýrir ásamt þriðja bróðurnum, Andrew. Afleiðingin, The Wendell Baker Story, er hvorki fugl né fiskur, víða bólar á góðum hugmyndum, atrið- um og leikhópurinn er vel mann- aður með karla á borð við Stanton, Cassell, Ferrell og Kristofferson innanborðs, sem jafnan standa fyrir sínu og lífga upp á hversdagsleik- ann og hugmyndaleysið sem annars ræður ríkjum hjá Wilsonunum. Sagan er ekki flókin, Luke leikur smákrimma í Texas sem gómar ólöglega innflytjendur frá Mexíkó – til þess að selja þeim fölsuð skilríki. Lendir í grjótinu, missir kærustuna (Mendes), í hendur kaupmannsins á horninu (Ferrell); snýr út aftur og setur upp hrikalegt plott til að jafna um fjendur sína. Nýtur til þess stuðnings vistmanna á elliheimilinu sem hann er skikkaður til að vinna á meðan á skilorðinu stendur. Myndin kemst aldrei á siglingu þrátt fyrir talsverðar væntingar af og til, Luke er handónýtur höf- undur en tekst að setja af stað örfáa fyndna spretti (alla með hjálp Cassells, Farrells og Stantons), en kæfir þá jafnharðan í vel kunnri suðurríkja „Good-old-boys-kátínu“ sem virkar ekki og ákefð í að koma öllum í gott skap án þess að eiga inni fyrir því. Undir The Wendell Baker Story duna linnulaust gamlir og góðir kántrísmellir, þeir eru mun hressilegri en myndefnið sem hugnast hvað helst unnendum slíkr- ar tónlistar. Luke Wilson „Þeir Wilson-bræður skilja sjálfsagt ekki eftir sig djúp spor í kvikmyndasögunni en þeir eru geðþekkir piltar og liðtækir gamanleikarar báðir, Luke og Owen,“ segir meðal annars í umsögn gagnrýnanda. Bræðrabylta KVIKMYNDIR Laugarásbíó Leikstjórn: Andrew Wilson, Luke Wilson. Aðalleikendur: Luke Wilson, Seymour Cassel, Owen Wilson, Eddie Griffin, Harry Dean Stanton, Kris Kristofferson, Eva Mendes, Will Ferrell. 95 mín. Banda- ríkin 2005. The Wendell Baker Story  Sæbjörn Valdimarsson vaxtaauki! 10% „Mamma hvað gerðir þú eig- inlega?“,“ sagði Victoria í viðtali við Radio 1 í Bretlandi. „Þeir voru alveg rosalega hrifnir af myndinni og hafa horft á hana aftur og aftur síðan þá. Einn daginn þegar ég kom heim kom Romeo hlaupandi á móti mér og spurði: „Mamma, hef- ur þú verið að vinna með Spice Girls?“ Ég gat ekki valdið honum vonbrigðum og sagði bara já.“ Victoria segir hins vegar að litlar líkur séu á því að hún, Mel C, Mel B, Emma Bunton og Geri Halliwell muni koma saman aftur. „Ég efast um að það muni gerast því við erum allar að gera okkar eigin hluti núna. Ég held ég nenni ekki að fara að skoppa um upp á sviði aftur.“ Leikarahjónin Reese Witherspoon og Ryan Phil-lippe hafa skilið að borði og sæng. Frá þessu greindi fjölmiðlafulltrúinn Nancy Ryder í gær. Í yf- irlýsingu frá henni kemur fram að þau muni skuld- binda sig fjölskyldu sinni þrátt fyrir viðskilnaðinn. Þá óskuðu þau eftir því að fjölmiðlar myndu virða einkalíf þeirra og barnanna þeirra. Witherspoon, sem er þrítug, og Phillippe, sem er 32ja ára, eiga saman tvö börn. Dótturina Övu, sem fæddist árið 1999, og soninn Deacon, sem fæddist árið 2003. Þau léku saman í kvikmyndinni Cruel In- tention árið 1999 og giftust síðar sama ár. Witherspoon hlaut Óskarinn í mars sl. fyrir hlut- verk sitt sem June Carter í kvikmyndinni Walk the Line. Phillippe lék aukahlutverk í kvikmyndinni Crash sem var valin besta kvikmyndin á Ósk- arsverðlaunahátíðinni í ár. Hann leikur nú eitt aðal- hlutverka Flags of Our Fathers í leikstjórn Clints Eastwoods. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.