Morgunblaðið - 11.12.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.12.2006, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Kúbu í beinu flugi 16. desember. Þú bókar og tryggir þér sæti og fjórum dögum fyrir brott- för færðu að vita hvar þú gistir. Kúba er ævintýri sem lætur engan ósnortinn. Ekki aðeins kynnist maður stórkostlegri náttúrufegurð eyjunnar, heldur einnig þjóð sem er einstök í mörgu tilliti. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Kúbu 16. desember frá kr. 49.990 Ótrúlegt tilboð - allra síðustu sæti Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 49.990 Flug, skattar og gisting í tvíbýli í viku og ís- lensk fararstjórn, m.v. stökktutilboð. Netverð á mann. BJÖRGUNARSVEITIR á suðvest- urhorninu sinntu mörgum hjálpar- beiðnum á laugardagskvöld vegna suðaustanhvassviðris. Var þetta enn eitt stóra óveðursútkallið það sem af er vetri en verkefni björgunar- sveitarmanna voru þó talsvert frá- brugðin þeim sem komið hafa upp að undanförnu. Þannig þurftu björgunarsveitarmenn að binda nið- ur flugvélar og dæla upp úr smábát- um við hafnir, enda sjávarstaða há, auk þess sem óvenjuslæmt hvass- viðri var á Kjalarnesi. Jónas Guðmundsson hjá svæðis- stjórn Landsbjargar segir veðrið hafa skollið mjög harkalega á um klukkan 21 á laugardagskvöld og unnið hafi verið í 13 björgunarhóp- um sem í voru alls 70 menn. Ástandið á Kjalarnesinu hafi staðið upp úr. „Þar var veðrið miklu verra en við höfum lengi lent í,“ segir hann. „Þar voru stórir gámar á sorpsvæð- um farnir að hreyfast og á tímabili leist okkur ekkert á blikuna og beindum því talsvert mörgum björgunarsveitarmönnum þangað. Einnig má nefna háa sjávarstöðu sem gerði okkur líka lífið leitt og því vorum við með menn í 2–3 hóp- um við að reyna að tjónka við báta og dæla upp úr þeim ásamt slökkvi- liðinu. Engu að síður sukku nokkrir bátar við bryggju.“ Jónas segir óveðrið hafa skollið á harkalega um klukkan 21 eftir ró- legan aðdraganda. Á höfuðborgarsvæðinu fuku flug- vélar, bátar og hjólhýsi og fleiri hlutir til. Á Akranesi losnuðu þrjú jólatré, sem stóðu við sjúkrahús staðarins, auk þess sem vinnupall- ar, bretti og járnarusl fuku í storm- inum. Björgunarsveitin Þorbjörn frá Grindavík var kölluð út um kvöld- matarleytið vegna óveðurs í og við Grindavík og fleiri sveitir á suð- og vesturhorninu voru einnig kallaðar út vegna veðursins. Félagar í björg- unarsveitinni Þorbirni björguðu jólatré bæjarins, sem var í þann mund að falla. Hjálparsveit skáta í Hveragerði aðstoðaði ökumenn á Hellisheiði en þar var töluverð hálka á vegi. Í Keflavík voru björgunarsveitar- menn kallaðir út um miðnættið vegna þakplatna sem voru farnar að losna af frystihúsi við Hafnargötu. Rafmagn fór af Kjós um kvöldið klukkan 21:31 og klukkan 22:27 fór rafmagn af í Hvalfirði. Viðgerðar- flokkar frá Borgarnesi voru sendir af stað til að gera við. Ellefu raf- magnsstaurar brotnuðu utan við Nauteyri í Ísafjarðardjúpi um nótt- ina og var flokkur frá Orkubúi Vestfjarða á Hólmavík sendur til viðgerðar. Þá slitnuðu rafmagnsvír- ar og staur í Dýrafirði auk þess sem vírar slitnuðu í Önundarfirði og a.m.k. fimm stautar brotnuðu. Þá slitnuðu rafmagnsvírar í Álftafirði. Bátar og flugvélar í hættu  70 björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu sendir í enn eitt óveðursútkallið á þessum vetri  Stórir gámar hreyfðust í vindi og bátar og flugvélar voru farin að láta undan vindálaginu Bátar sukku við bryggju og rafmagnsstaurar brotnuðu í óveðrinu á laugardagskvöld og voru tugir björgunarsveit- armanna sendir til að- stoðar. Óvenjuhvasst var á Kjalarnesi. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Golli Fauk Jólatré sem fauk um koll við JL húsið í Reykjavík á laugardagskvöldið Að störfum Björgunarsveitarmenn voru önnum kafnir við að bjarga verðmætum frá tjóni og leiðbeina vegfarendum í óveðrinu á laugardagskvöld ÞRJÁTÍU og eitt frumvarp var samþykkt sem lög frá Alþingi á laugardag, en það var jafnframt síðasti þing- fundurinn fyrir jól. Þing kemur saman að nýju hinn 15. janúar nk. Meðal þeirra lagafrumvarpa sem samþykkt voru eru lög um vaxtabætur. Samkvæmt þeim hækkar lágmark eignaviðmiðunar að frádregnum skuldum til skerðingar á vaxtabótum afturvirkt um 30%. Í lögunum segir að endurákvörðun vaxtabóta skuli lokið eigi síðar en 31. desember nk. Í athugasemdum frumvarpsins kemur fram að ætla megi að langstærst- ur hluti framteljenda fái þær bætur sem þeir eigi rétt á samkvæmt lögunum greiddar út á innan við viku. Hins vegar megi gera ráð fyrir að það taki tvær til þrjár vik- ur að endurákvarða og greiða einhverjum hluta manna. Þá var m.a. samþykkt lagafrumvarp um lækkun á virðisaukaskatti á matvæli í 7% frá og með 1. mars nk. Einnig var m.a. samþykkt frumvarp um lækkun tekju- skatts einstaklinga um 1% um áramótin í stað 2%, eins og áður hafði verið ákveðið. Pétur H. Blöndal, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, greiddi einn atkvæði gegn þessari breytingu og sagði að um væri að ræða skatta- hækkun. Í sömu lögum er einnig gert ráð fyrir því að persónu- afsláttur hækki í 385.800 kr. á ári en við það hækka skattleysismörk einstaklinga um 14%. Auk þess er m.a. í lögunum gert ráð fyrir því að frá og með næstu ára- mótum verði greiddar barnabætur til 18 ára aldurs í stað 16 ára aldurs. Þá var á laugardag m.a. samþykkt lagafrumvarp um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Frumvarp um vaxtabæt- ur samþykkt á þingi Þingfundum frestað fram yfir jól Morgunblaðið/ÞÖK Jólafrí Þing kemur saman að nýju 15. janúar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.