Morgunblaðið - 11.12.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2006 47
Einn af öðrum tínast spennusagnahöfundarnir í Þjóðmenningarhúsið
á aðventunni og skjóta áhlýðendum skelk í bringu með hrollvekjandi
upplestri úr nýjum verkum sínum:
Óknyttalegt tilboð á blóðrauðri rauðrófusúpu eða
súpu dagsins á veitingastofunni Matur og menning.
Jólakort hússins, bækur og forvitnileg hollusta
til sölu í versluninni.
Þjóðmenningarhúsið
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík
sími 545-1400
thjodmenning@thjodmenning.is
www.thjodmenning.is
13. 12
Ævar Örn Jósepsson
Sá yðar sem syndlaus er
14. 12
Stefán Máni
Skipið
15. 12
Stella Blómkvist
Morðið í Rockville.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir les.
16. 12
Bragi Ólafsson
Sendiherrann
17. 12
Einar Hjartarson
Nehéz
18. 12
Steinar Bragi
Hið stórfenglega
leyndarmál Heimsins
19. 12
Sigurjón Magnússon
Gaddavír
20. 12
Árni Þórarinsson og Páll
Kristinn Pálsson
Farþeginn.
21. 12
Bjarni Klemenz
Fenrisúlfur
22. 12
Jökull Valsson
Skuldadagar
23. 12
Yrsa Sigurðardóttir
Sér grefur gröf
MEÐ FYRIRVARA UM FORFÖLL
12. 12
Arnaldur Indriðason
Konungsbók
Ingvar E. Sigurðsson les.
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
Glæsilegt úrval
úra og skartgripa
Fágun
Elsta upptaka af söngkonunniJudy Garland, sem vitað er
um, verður seld á uppboði hinn 17.
desember næstkomandi.
Um er að ræða upptöku frá árinu
1935 þar sem má heyra Garland, þá
12 ára, syngja við píanóundirleik
móður sinnar.
Upptökurnar fundust í húsi sem
Garland bjó eitt sinn í en áður var
talið að þær væru glataðar.
Á diskinum heyrist Garland
syngja „Bill“ úr söngleiknum Show-
boat auk syrpu úr lögunum „Good
Ship“, „Lollypop“, „Object of my Af-
fections“ og „Dinah“.
Garland lést árið 1969. Hún var
valin áttunda skærasta kvikmynda-
stjarna allra tíma af American Film
Institute.
Fulli og kjaftfori jólasveinninnsem leikarinn Billy Bob Thorn-
ton gerði svo eftirminnilegan í kvik-
myndinni Bad Santa hefur verið
kosinn eftirlætis kvikmynda-
jólasveinninn í nýrri skoðanakönn-
un.
Breska kvikmyndatímaritið Hot-
dog gerði könnunina og það er ekki
ólíklegt að niðurstaðan eigi eftir að
koma mörgum á óvart, enda er um-
ræddur sveinki kvenhatari, karl-
remba og kjaftfor fyllibytta. Tals-
menn tímaritsins segja hinsvegar að
persóna Thorntons eigi fyrsta sætið
fyllilega skilið.
„Jólasveinn Billy Bob Thorntons
er einn sá skemmtilegasti sem þú
munt nokkurn tíma hitta. Í stað þess
að breiða út kærleiksboðskapinn
rænir hann stórverslanir.“ Jóla-
sveinn Edmund Gwenns í kvik-
myndinni Miracle Of 34th Street
varð í öðru sæti og jólasveinninn í
teiknimyndaþáttunum South Park
varð í því þriðja. Í fjórða sæti voru
svo jólasveinastúlkurnar í í Love
Actually og jólasveinninn í teikni-
myndinni Father Christmas varð í
fimmta sæti.
Kapalsjónvarpsstöðin TV Land íBandaríkjunum tók nýverið
saman lista yfir eftirminnilegustu
setningar sem fólk hefur sagt í sjón-
varpi frá upphafi.
Eftirminnilegustu orðin eru sam-
kvæmt listanum: „Here’s Johnny!“
(„Hér kemur Johnny!“) sem þátta-
stjórnandinn Ed McMahon sagði
þegar hann kynnti á svið kollega
sinn Johnny Carson. Setningin
fræga var reyndar einnig notuð af
kolbrjáluðum Jack Nicholson í kvik-
myndinni The
Shining.
Önnur eft-
irminnilegasta
setning sjón-
varpssögunnar
þykir: „Þetta er
lítið skref fyrir
mann, en stórt
fyrir mann-
kynið“, orðin sem Neil Armstrong
lét út úr sér þegar hann steig fyrstur
á tunglið.
Í þriðja sæti var svo: „Þú ert rek-
inn“ sem auðkýfingurinn Donald
Trump sagði vikulega í sjónvarps-
þætti sínum The Apprentice.
Fjölda setninga er að finna á list-
anum góða, sumt úr sjónvarps-
auglýsingum, annað úr sjónvarps-
þáttum.
Söngkonan Britney Spears hefurverið mikið í sviðsljósinu und-
anfarin ár, svo
mikið að mörgum
þykir eflaust nóg
um. Eða hvað?
Spears er sú sem
flestir hafa flett
upp á leitarvél
vefjarins Yahoo á
þessu ári. Þetta
er í fimmta sinn á
sex árum sem Spears er sú sem
mest er leitað að á vefnum.
Niðurstöðurnar komu á óvart, að
sögn Cathi Early hjá Yahoo. Sér-
staklega í ljósi þess að Spears hefur
ekki gefið út plötu í nokkur ár.
Fregnir af einkalífi hennar þykja
greinilega spennandi en hún á tvö
börn með eiginmanni sínum Kevin
Federline, sem hún sótti nýverið um
skilnað frá.
Einnig var þeim stöllum Shakiru,
Jessicu Simpson og Paris Hilton
mikið flett upp á leitarvél Yahoo á
árinu.
Þær fréttir sem mest voru lesnar
á síðunni eru annars vegar fregnin
af dauða krókódílamannsins Steves
Irwins og af dauða sonar Önnu Ni-
cole Smith.
Taylor Hicks,síðasti sig-
urvegari American
Idol, sendi á dög-
unum frá sér sína
fyrstu plötu.
Platan ber nafn
söngvarans en þar
syngur hann lög
eftir kempur á borð
við Bryan Adams, Marvin Gaye og
Smokey Robinson.
Áætlað er að platan komi út í
Bandaríkjunum í vikunni.
Hicks stó uppi sem sigurvegari
American Idol þegar 36,4 milljónir
manna greiddu honum atkvæði sitt
fyrr á árinu.
Fólk folk@mbl.is