Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.04.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 03.04.2009, Qupperneq 24
24 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ T alsmenn ríkisstjórnarinnar segja að stjórnarskrárbreyt- ingar þær sem nú er verið að gera séu svar við ákalli fólksins, fyrir fólkið og fólksins vegna. Að því leyti hafa þeir rétt fyrir sér að skoðanakannanir gefa til kynna að meirihluti kjósenda sé þeim fylgjandi. Á hinn bóginn liggur fyrir að meirihluti allra þeirra sérfræð- inga sem stjórnarskrárnefnd þingsins hefur kallað til varar við því flaustri sem ríkisstjórnin hefur á breytingunum. Sumir vilja ekki segja álit sitt vegna óvandaðra vinnubragða. Aðrir benda á hætt- una sem fylgir óskýrum stjórnarskrárákvæðum. Loks eru þeir sem leggja áherslu á að reyna eigi til þrautar að ná víðtækri samstöðu þegar sjálf stjórnarskráin á í hlut. Umræðan á Alþingi snýst ekki um málefnaleg rök og gagnrök af því tagi sem lesa má í umsögnum um stjórnarskrárfrumvarpið. Hún fer alfarið eftir forskriftarbók lýðskrumsins: Við erum með fólkinu. Þeir sem ekki eru sammála okkur eru á móti fólkinu. Röksemda- færslur lýðskrumsins hafa orðið ofan á. Stjórnarandstaðan hefur orðið undir í þeirri orðræðu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fresta kosningu til stjórnlagaþings um eitt ár. Ljóst er að kjósa þarf til Alþingis um leið og ný stjórnar- skrá hefur verið samþykkt. Með þessari frestun á stjórnlagaþing- inu hefur ríkisstjórnin tryggt að hún getur setið einu ári lengur en áformað var. Á síðustu stundu er þannig verið að fresta því um að minnsta kosti eitt ár að fólkið fái stjórnarbót og rétt til að kjósa eftir nýjum stjórnskipunarreglum. Sá háttur að umsagnir séu veittar um lagafrumvörp er í þágu fólksins. Hann er málefnaleg vörn þess gegn ofríki framkvæmdar- valdsins. Hefði ríkisstjórnin hlustað á þær athugasemdir sem Alþingi hafa borist er eins víst að ná hefði mátt sátt um bæði vandaðri og skjótvirkari framgang stjórnarskrárbreytinga en raun verður á. Málamiðlun hefði falist í því að ákveða nú að stjórnarskrárbreyt- ingar tækju gildi með samþykki þjóðarinnar í allsherjaratkvæða- greiðslu. Alþingi fengi þá allan næsta vetur til að ljúka vandaðri endurskoðun sem síðan yrði borin undir þjóðaratkvæði samhliða sveitarstjórnarkosningum strax næsta vor. Í beinu framhaldi af því fengi þjóðin að kjósa fulltrúa á löggjafar- samkomuna á grundvelli nýrra stjórnarskrárákvæða og eftir atvik- um að kjósa framkvæmdarvaldið beint í sérstökum kosningum. Vönduð vinnubrögð hefðu tryggt fólkinu þegar á næsta ári nýja stjórnarskrá og valdhafa með umboð á nýjum grundvelli. Málefna- leg sjónarmið hafa nú vikið fyrir textabók lýðskrumsins í þessu mikilvæga máli. Mesta athygli vekur þó að ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan hafa með öllu útilokað að setja ákvæði í stjórnarskrána sem heimilar aðild að Evrópusambandinu. Þvert á móti hefur verið bent á að auð- lindaákvæðið geti verið Þrándur í Götu aðildar. Allra alvarlegast er að með frestun á kosningu stjórnlagaþings er um leið verið að fresta að heimildarákvæði um aðild komist í stjórnarskrá. Augljóst er að umboð Alþingis til stjórnarskrárbreyt- inga fellur niður þar til bráðabirgðaákvæðið um stjórnlagaþing verður óvirkt með starfslokum þess. Alvöruleysi stjórnmálaumræðunnar lýsir sér best í því að þing- menn Samfylkingarinnar telja nú brýnast að ljúka störfum Alþingis með stjórnarskrárleikfléttum sem viðhalda aðildarbanni næsta kjör- tímabil. Er þetta í þágu fólksins? Stjórnarskrárleikfléttur: Fyrir fólkið? ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR UMRÆÐAN Sóley Tómasdóttir skrifar um fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar Endurskoðuð fjárhagsáætlun Reykja-víkurborgar liggur nú fyrir, sam- þykkt af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Fjárhagsáætlun sem meirihlutinn fullyrðir að stríði ekki gegn aðgerðaráætlun borgarinnar, þar sem kveðið er á um að standa skuli vörð um störf á vegum borgarinnar, þjónust- an verði ekki skert og gjaldskrár ekki hækkaðar. Fullyrðingar meirihlutans standast því miður ekki. Á flestum sviðum er gengið í berhögg við aðgerðaráætlunina, en tvö skýr dæmi um það er að finna í endurskoðaðri fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundasviðs. Í fyrsta lagi er alls ekki útséð um að staðinn verði vörður um störf á vegum sviðsins, þar sem ekki hefur verið tryggt fjármagn í starfsemi vinnuskólahópa á vegum félagsmið- stöðvanna í ár. Félagsmiðstöðvahóparn- ir hafa verið starfræktir um margra ára skeið og hafa reynst afar mikilvægir fyrir unglinga í áhættuhópi. Áframhald- andi starf og áframhaldandi fastráðning 22 starfsmanna ÍTR veltur á því að ein- hvers staðar finnist 10 milljónir króna. Hagræðing um 10 milljónir þar sem mikilvægt forvarnarstarf og 22 stöðu- gildi eru í húfi getur ekki borgað sig. Annað skýrt dæmi um skammsýni meirihlutans eru áform um að loka frí- stundaheimilum á frídögum skóla. Frá stofnun frístundaheimilanna hefur frístundastarf staðið börnum í 1.-4. bekk til boða allan daginn á starfsdögum og foreldraviðtalsdögum, í jólafríum og páskafríum. Í hagræðingarskyni ætlar meiri- hlutinn nú að afnema þessa þjónustu og fría sig ábyrgð á börnunum í borginni þá 16 daga sem um er að ræða á hverju ári. Forgangsröðun meirihlutans kemur ekki aðeins til með að bitna á börnum og fjölskyldum samtím- ans, heldur er hún verulega kostnaðarsöm þegar til lengri tíma er litið. Það vita Finnar og það vita Svíar. En meirihlutinn hefur ekki – og ætlar ekki – að taka mið af reynslu nágrannaþjóða okkar. Markmið þeirra er að skila sléttu og snurðulausu bókhaldi á síðasta ári fyrir kosningar. Redda deginum í dag og árinu í ár. Slík vinnubrögð eru óábyrg og beinlínis skaðleg fyrir samfélagið Reykjavík. Barna- og unglingastarf í uppnámi SÓLEY TÓMASDÓTTIR Forgangsröðun meirihlutans kemur ekki aðeins til með að bitna á börnum og fjölskyldum sam- tímans, heldur er hún verulega kostnaðarsöm þegar til lengri tíma er litið. Skoðaðu Mín borg ferðablað Icelandair á www.icelandair.is Duglegur umsækjandi Umsóknir um störf aðal- og aðstoðar- bankastjóra Seðlabankans voru opin- beraðar í gær. Einn þeirra sem vilja verða aðstoðarbankastjóri er Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, þjóðréttar- fræðingur og kraftlyftingadómari. Halldór Eiríkur sótti einnig um stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins á dög- unum, en greina á frá því hver hlaut það hnoss í dag. Og Halldór hefur ekki látið það nægja, því hann sótti einnig um starf skrifstofustjóra hjá samgönguráðuneytinu á dögunum, sem og starf forstöðumanns fang- elsisins á Litla-Hrauni. Harðjaxl í starfið Stjórn FME á ekki einfalt verk fyrir höndum þegar velja skal nýjan for- stjóra. Stjórnarformaðurinn Gunnar Haraldsson hlýtur þó að horfa hýrum augum til manns sem er bæði með þekkingu á kraftlyftingum og reiðu- búinn að stýra fangelsi til að tukta til harðsvíraða íslenska fjármálajöfra. Óþekktir á Vellinum Völlurinn heitir nýtt vefrit um stjórnmál sem hefur hafið göngu sína á slóðinni vollur- inn.is. Á kornungum vefnum kennir þegar ýmissa grasa en af efnistökum má ráða að síðuhaldarar hneigist töluvert til hægri og þeim sé fremur lítt gefið um sitjandi ríkisstjórn. Á upplýsingasíðu vefritsins segir að því sé haldið úti af „hópi áhugamanna um stjórn- mál sem allir hafa langa reynslu af fjölmiðlun“. Ólíkt því sem gengur og gerist á flestum miðlum er hins vegar hvergi að finna neitt um það hverjir bera ábyrgð á efni því sem þar er að finna. Lénið er hins vegar skráð á Steingrím nokkurn Sigurgeirsson, þaulvanan sjálfstæðismann sem var aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í ráðherratíð hennar. stigur@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.