Fréttablaðið - 03.04.2009, Page 40
3. APRÍL 2009 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● blátt áfram
Rannveig Bjarnadóttir er leik-
skólastjóri, móðir og systir. Hún
sótti nýlega námskeið hjá Blátt
áfram um verndun barna og hreifst
af því.
„Í samskiptum sínum bæði við
félagana og fullorðið fólk þarf barn
að þora að segja „nei, ég vil þetta
ekki“ þegar það á við,“ segir Rann-
veig, sem er leikskólastjóri á Gull-
borg við Rekagranda.
Eftir að hafa sjálf sótt námskeið
hjá Blátt áfram vildi hún kynna
öllum starfsmönnum sínum efni
þess og fékk því systurnar í Blátt
áfram til að koma með fræðslu í
leikskólann á skipulagsdegi. „Þær
eru nefnilega færanlegar og við
erum með stóran sal þar sem nóg
pláss var fyrir alla,“ lýsir hún.
En hvað fannst henni eftirtekt-
arverðast á námskeiðinu? „Hversu
einfalt er fyrir hvern og einn að
sinna forvörnum gegn hvers kyns
ofbeldi. Það er best gert með því
að styrkja sjálfsmynd barna sem
er aðalmarkmið leikskólans. En
við fengum viðbótarfræðslu um
hvernig við eigum að hlusta á börn-
in í stórum atriðum sem smáum.
Sumum finnst kannski gott að
láta strjúka á sér handarbakið en
öðrum ekki. Svo rýnum við í hegð-
un þeirra og ef grunur vaknar um
misnotkun af einhverju tagi þá leit-
um við til Barnahúss eða Barna-
verndarstofu. Þar tekur annað fag-
fólk við. Þá er frábært að þau þori
að segja það og koma tilfinningum
sínum á framfæri. Við skoðuðum
líka húsnæðið hér því mikilvægt er
að hvergi sé hægt að loka að sér.“
Spurð hvort eitthvað hafi breyst
í vinnuferli leikskólans eftir nám-
skeiðið svarar Rannveig.
„Við skerptum á ýmsum atriðum
Einfalt fyrir alla að
Að hefja fræðslu inni á þínu heim-
ili, í þinni fjölskyldu, í þínu sam-
félagi verður erfitt í fyrstu, því
get ég lofað þér. En ég get lofað
þér öðru; að líf þitt verður þér og
öllum börnum í kringum þig dýr-
mætara ef þú tekur þetta eina
skref til að vernda börn, sama
hvað aðrir segja og segja ekki.
Því fyrr því betra, bæði fyrir
þig og fyrir barnið. Eins og þú
væntanlega áttar þig á við þessa
lesningu snýst fræðsla um kyn-
ferðislegt ofbeldi og forvarn-
ir gegn því ekki um að tala um
hræðilega hluti, heldur miklu
frekar um að mynda tengsl við
barnið þitt og fræða það um mikil-
vægustu hlutina í lífi þess: Að geta
sett fólki mörk, fjölskyldumeðlim-
um jafnt sem ókunnugum. Fræðsl-
an er um líkama þeirra og að þau
megi segja nei við alla ef þau eru
ekki sátt við það sem þau eru
beðin um að segja eða gera.
Það má ekki snerta einkastaði
þeirra og þau eiga heldur ekki
að snerta einkastaði annarra. Þá
er mikilvægt að segja þeim að
ef þau lenda í þeim aðstæðum að
þora ekki að segja nei eða ein-
hver snertir þau samt sem áður,
sé það aldrei þeim að kenna og þau
eigi að segja einhverjum sem þau
treysta frá því. Leyndarmál sem
ekki má segja mömmu og pabba
frá eru slæm og það ber að segja
foreldrum sínum strax frá því
eða einhverjum öðrum fullorðn-
um sem börnin treysta.
Börn eru miklu hugrakkari
heldur en við gerum okkur grein
fyrir og þeim þykir gott að fá regl-
ur og fara eftir þeim. Svo lengi
sem fullorðna fólkið í kringum
þau gerir slíkt hið sama og eru
þeim góðar fyrirmyndir.
Sigríður Björnsdóttir
Lífið verður dýrmætara
Erfitt getur verið að hefja fræðslu innan fjölskyldunnar en það er vel þess virði.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sveitarfélög Vestfjarða voru
fyrst til að ná því marki að fá
fimm prósent fullorðinna á
Vestfjörðum til að sitja for-
varnanámskeiðið Verndarar
barna. Harpa Oddbjörnsdóttir
á stóran þátt í þeim árangri.
„Ég hef setið leiðbeinandanám-
skeið hjá Blátt áfram en við erum
þrjár hjá Sólstöfum sem lærðum
að leiða námskeiðið. Að því loknu
gerðum við okkur grein fyrir hvað
þetta væri í raun mikilvægt tól
sem við værum með í höndunum,“
segir Harpa Oddbjörns dóttir, en
hún hefur ásamt samstarfs konum
sínum náð því marki að fá rúm
fimm prósent fullorðinna á Vest-
fjörðum til að sitja námskeiðið
Verndarar barna sem er hluti af
forvarnaátaki Blátt áfram. Voru
sveitarfélög á Vestfjörðum fyrst
til að ná því marki.
Sólstafir Vestfjarða eru systur-
samtök Stígamóta en fyrsta verk-
efni samtakanna var að koma á
fót ráðgjafar- og upplýsingamið-
stöð fyrir konur, karla og börn
sem hafa verið beitt kynferðisof-
beldi. „Við byrjuðum á því að vera
með einstaklingsviðtöl og fórum
með fræðslu í grunnskólana. Svo
áttuðum við okkur á því að ekki
væri nóg að taka bara við brota-
þolum heldur þyrftum við líka
að taka þátt í forvarnastarfi og
fórum þá í samstarf við Blátt
áfram sem berst gegn kynferðis-
ofbeldi gegn börnum. Nauðsyn-
legt er að taka þessa ábyrgð af
börnunum og færa hana yfir á
hina fullorðnu því það er okkar
að vernda þau,“ útskýrir hún.
Starfskonur Sólstafa Vestfjarða
fengu styrki frá sveitarfélögum
og fyrirtækjum á Vestfjörðum en
einnig frá dóms- og kirkjumála-
ráðuneyti og heilbrigðis- og fé-
lagsmálaráðuneyti. Átta af tíu
sveitarfélögum á Vestfjörðum
hafa samþykkt að senda alla sína
starfsmenn á námskeiðið Vernd-
arar barna og hafa Sólstafakon-
ur nú þegar farið víða. „Við búum
allar á Ísafirði og náðum fimm
prósenta markinu í síðasta mán-
uði þegar við fórum til Hólmavík-
ur. Markmiðið var að ná um 230
manns á aldursbilinu 18 til 65 ára
á Vestfjörðum á námskeiðin og
erum við komnar í um 280 manns
núna og höldum bara áfram,“
segir Harpa bjartsýn en þeim
stöllum tókst að ná fimm prósenta
markinu á einungis sex mánuð-
um. Að sögn Hörpu hafa nám-
skeiðin gengið framar vonum og
Nauðsynlegt a
Harpa Oddbjörnsdóttir hefur ásamt
samstarfskonum sínum hjá Sólstöfum
Vestfjarða starfað ötullega að forvarnar-
átaki Blátt áfram með því að halda
námskeið víða á Vestfjörðum.
Ásta Gunnarsdóttir, náms- og
starfsráðgjafi í Garðaskóla,
sótti námskeiðið Verndarar
barna á vegum Blátt áfram.
„Þetta var mjög upplýsandi og
merkilegt námskeið og gaf mér
góða innsýn inn í þennan mála-
flokk sem maður þarf virkilega
á að halda,“ segir Ásta Gunnars-
dóttir, náms- og starfsráðgjafi í
Garðaskóla, um námskeiðið Vernd-
arar barna, á vegum Blátt áfram.
Námskeiðið fjallaði um kyn-
ferðislegt ofbeldi gegn börnum og
hvernig ætti að bregðast við því.
„Mér þótti þetta mjög þarft fyrir
mig í starfi en hafði ekki síður
gott af því að hlusta á fyrirlest-
ur Sigríðar Björnsdóttur sem full-
orðin manneskja, móðir og þjóð-
félagsþegn,“ segir Ásta og telur
mikilvægt að fólk sem starfi með
börnum sé vel upplýst og frótt um
þessi málefni og sé þar af leiðandi
óhrætt við að takast á við þau.
„Námskeiðið vakti mig að auki
til umhugsunar um hve mikla
ábyrgð við fullorðna fólkið berum,“
segir Ásta sem fór út af námskeið-
inu með það í huga að hún gæti
gert eitthvað sem skipti máli.
Í Garðaskóla hefur börnum í átt-
unda bekk verið boðið upp á fyr-
irlestra frá Blátt áfram í svokall-
aðri Lífsleiknifræðslu síðustu tvö
ár. „Við sjáum mikinn árangur af
þessum fyrirlestrum og umræðum
sem skapast í kjölfarið,“ segir Ásta
og telur að með því að ræða um
kynferðislegt ofbeldi finni börn
sem hafi orðið fyrir því loks að þau
séu ekki ein í heiminum og öðlist
styrk til að leita eftir hjálp.
„Það sem við þurfum að gera í
framhaldi af slíkum námskeiðum
er að fylgja þeim eftir með um-
ræðum innan skólans,“ segir Ásta
en með fræðslunni hafa fleiri mál
komið inn á hennar borð. Ásta
telur einnig mikilvægt að hver
skóli komi sér upp ákveðnu ferli
sem farið sé í þegar slík mál koma
upp.
„Eftir námskeiðið finnst mér
ég betur í stakk búin til að taka á
slíkum málum og ég veit líka hvar
ég get leitað eftir aðstoð,“ segir
Ásta. Hún horfir jákvæð til þess
tíma þegar allt starfsfólk skólans
verður búið að fara á námskeið-
ið Verndarar barna, en stefnan er
að halda slíkt námskeið í skólan-
um í haust. „Þá getum við staðið
saman að því að taka á málum,“
segir Ásta og tekur fram að nám-
skeiðið hafi veitt henni hugrekki
og styrk. „Maður verður að taka
ábyrgð og vera hugrakkur gagn-
vart kynferðislegu ofbeldi gegn
börnum. Það er skylda okkar full-
orðnu.“ - sg
Öðlaðist hugrekki og
styrk á námskeiðinu
Ásta Gunnarsdóttir námsráðgjafi í Garðaskóla lærði margt á námskeiði Blátt áfram,
Verndarar barna, sem nýtist henni í starfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON