Fréttablaðið - 03.04.2009, Qupperneq 41
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009 7blátt áfram ● fréttablaðið ●
sinna forvörnum
„Sumum börnum finnst gott að láta strjúka á sér handarbakið og öðrum ekki. Þá
er frábært að þau þori að segja það,“ segir Rannveig Bjarnadóttir leikskólastjóri á
Gullborg við Rekagranda. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ð axla ábyrgð
M
YN
D
/B
Æ
JA
RI
N
S
BE
ST
A
hafa móttökur verið góðar. „Hvar
sem við komum er vel tekið á móti
okkur og hafa sveitarfélögin verið
mjög jákvæð gagnvart okkur og
vilja endilega fá okkur til að fræða
alla sína starfsmenn.“
Á námskeiðunum er fólk hvatt
til að sýna kjark og þor til að tala
um málin almennt í fyrirtækj-
um, stofnunum og heima við. „Við
viljum uppræta þá trú að um-
ræður um kynferðisofbeldi gegn
börnum séu eitthvert tabú. Nauð-
synlegt er að ræða um hlutina til
að koma í veg fyrir þá. Þannig
sýnum við gerendum að þeir eru
ekki velkomnir í okkar sam félag,
við erum að fylgjast með,“ segir
Harpa ákveðin. „Efni námskeiðs-
ins er fengið frá Charleston í
Suður-Karólínu í Bandaríkjunum
og hefur nýst vel. Í námskeiðinu
er innifalin vinnubók sem er mjög
gott tæki að grípa til þegar maður
er í einhverjum vafa eða vantar
upplýsingar. Þar eru spurning-
ar sem svara þarf á námskeiðinu
og allir fá sjö skrefa bæklinginn
sem námskeiðið byggir á en þar er
farið í sjö skref til verndar börn-
um okkar. Þar leiðbeinum við fólki
hvernig það getur greint merki
þess að barn hafi orðið fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi og hvernig við
fullorðna fólkið getum fyrirbyggt
að það eigi sér yfirleitt stað, hvaða
aðstæður ber að varast og svo
framvegis, en líka hvernig skal
bregðast við þegar börn leita að-
stoðar og segja frá kynferðislegu
ofbeldi. Þá má ekki sýna börnum
hræðslu og ótta heldur bregðast
þannig við að þau styrkist og þori
að segja frá.“
Harpa viðurkennir að til að
byrja með hafi sér reynst erfitt
að koma fram og segja sína sögu
sem þolandi. „Það tók gríðarlega
á. Ég lét birta mína sögu í bæjar-
blaðinu hér á Ísafirði og lýsti þar
því sem kom fyrir mig. Í raun leið
mér eins og ég væri nakin á eftir
en við hvert skipti sem ég ræði um
þetta styrkist ég og verð ábyrgari
og hugrakkari að tala um þessi
mál. Ein helsta afleiðing kynferðis-
ofbeldis er skömmin og þegar
maður áttar sig á að þetta er ekki
manns skömm að bera fylgir því
mikil frelsun,“ segir hún einlæg.
Eftir námskeiðin hafa komið fram
fleiri sem hafa haft svipaða sögu
að segja en í kjölfar námskeiðanna
hafa einnig skapast jákvæðar um-
ræður til styrktar átakinu. „Í maí
verða fleiri leiðbeinandanámskeið
hjá Blátt áfram og finna má frek-
ari upplýsingar á vefsíðunum sol-
stafir.is og blattafram.is.“
- hs
sem við höfum verið að vinna að
og höfum aukið fræðslu um líkam-
ann. Eins hefur starfsfólkið verið
að lesa bækur um tilfinningar og
samskipti. Leikskólar hafa velferð
barna að leiðarljósi og fræðsla af
þessu tagi gerir starfið enn mark-
vissara.“ - gun
FORVARNIR ERU
BESTA LEIÐIN
Ráðstefna um forvarnir gegn
kynferðislegu ofbeldi á börnum
í Háskólanum í Reykjavík
dagana 19. og 20. maí 2009
Skráning hefst 1 apríl
www.blattafram.is
Ráðstefnan er öllum opin og fer fram á ensku.
Fundarstjórar eru þær Guðrún Ebba Ólafsdóttir
grunnskólakennari og Sigríður Björnsdóttir
framkvæmdastjóri Blátt áfram.
Verð 9.500 kr.
og 5.500 kr. fyrir nema og atvinnulausa
Allar helstu upplýsingar er að finna
á www.blattafram.is eða hjá Svövu Björnsdóttur
svava@blattafram.is
Markmið
Markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir
sem samfélagið getur farið í að fyrirbyggja kynferðislegt
ofbeldi á börnum. Þegar forvarnir gegn kynferðislegu
ofbeldi á börnum eru ræddar eru viðbrögð almennings
oft ótti, reiði og afneitun og er það miður. Um leið og
lagðar eru fram tillögur um að þessi mál séu rædd,
blátt áfram og í dagsljósinu þarf jafnframt að taka
ábyrgð á því að vera gott fordæmi fyrir umhverfið. Það
er gert með því að vekja athygli á þeim fjölda leiða sem
eru færar til þess að fræðast um og fyrirbyggja
kynferðislegt ofbeldi á börnum. Á þessari ráðstefnu
verður lögð áhersla á meðferðarúrræði fyrir þolendur
og unga gerendur kynferðislegs ofbeldis.
Á ráðstefnunni verður einnig haldið áfram að vekja fólk
til umhugsunar um að ofneysla áfengis, fíkniefna og lyfja
er oft nátengd kynferðislegri misnotkun og/eða öðrum
áföllum í æsku, eins og fjölmargar rannsóknir gefa til
kynna.
Ráðstefnan Forvarnir er besta leið-
in fer fram í Háskóla Reykjavíkur
dagana 19. og 20. maí. Tilgangur-
inn er að bjóða helstu stofnunum
og félagasamtökum að taka þátt í
því mikilvæga forvarnarverkefni
að vernda börn gegn kynferðislegu
ofbeldi.
Á ráðstefnunni verður vakin at-
hygli meðal annars á eftirfarandi:
Hafa áföll í æsku áhrif á heilsu
síðar meir? Hvernig er best hægt
að styðja við einstaklinga sem
verða fyrir áfalli? Hvernig getum
við fyrirbyggt frekari áföll? Þess-
um spurningum erum við að leitast
við að svara meðal annars á þess-
ari árlegu forvarnarráðstefnu Blátt
áfram.
Rannsóknir sýna að ofneysla
áfengis, fíkinefna og lyfjaneystu
eru oft nátengd kynferðislegri
misnotkun og eða öðrum áföllum í
æsku. Einnig hafa rannsóknir sýnt
að meðal þolenda kynferðislegar
misnotkunar í æsku eru mjög mikl-
ar líkur á að viðkomandi nái ekki
að þroska varnarkerfi heilans með
eðlilegum hætti og leiðist út á braut
áhættuhegðunar, áfengismisnotk-
unar og fíkniefna síðar á ævinni.
Skilningur á mörgum hliðum vand-
ans og afleiðingum hans hafa því
mikið forvarnargildi.
Hugmyndin með ráðstefnunni er
að sýna fram á mikilvægi þess að
einstaklingar sem hafa orðið fyrir
ofbeldi leiti sér hjálpar og mikil-
vægi þess að fagfólk sé vel upplýst
um hvernig best er að hjálpa hverj-
um einstakling fyrir sig. Afleiðing-
ar ofbeldis eru að mörgu leiti svip-
aðar en hvernig einstaklingurinn
vinnur úr þessari reynslu er mjög
einstaklingsbundið. Margar leiðir
er hægt að fara fyrir einstaklinga
sem vilja ná bata. Það tekur tíma
og þolinmæði, en mikilvægt er að
bæði fagfólk og þeir sem hafa orðið
fyrir ofbeldi kynni sér vel hvað
best hentar hverjum einstakling.
Við teljum það hluta af okkar starfi
að minna fólk á mikilvægi þess að
leita sér hjálpar. Margar breyting-
ar hafa átt sér stað en við eigum
ennþá mikið verk fyrir höndum.
Meðal gesta á ráðstefnunni verð-
ur David Burton, MSW, Ph.D, sem
fjallar um rannsóknir og saman-
burð á meðferðarúrræðum fyrir
unga gerendur. Sá hópur sem fer
ört vaxandi í kynferðisbrotum eru
ungmenni sem gera sig sek um
kynferðislega misnotkun. Þá fjall-
ar Linn Getz læknir um hvaða áhrif
áföll í æsku geta haft á heilsuna
síðar. Nánar á www.blattafram.is.
Svava Björnsdóttir
Áríðandi að leita hjálpar
„Áföll í æsku geta síðar haft alvarlegar afleiðingar í för með sér á bæði líkamlega og
andlega heislu. Því þarf að tryggja að öll börn fái öruggt uppeldi. Þá myndum við
spara mikla fjármuni í öllu heilbrigðiskerfinu,“ segir Linn Getz, sem flytur erindi á
ráðstefnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR