Fréttablaðið - 03.04.2009, Side 45
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 2009 11blátt áfram ● fréttablaðið ●
gt starf
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
á einstaklingsgrunni,“ segir hann
og á þá til dæmis við börn sem
lent hafa í einhverju kynferðislegu
þegar þau voru ung, eru búin að fá
aðstoð frá Barnahúsi og verða síðan
kynþroska og þá getur fyrri reynsla
truflað þau.
„Þá er mjög gott að tala við ein-
hverja um þessa hluti eins og til
dæmis einhvern frá samtökunum
Blátt áfram sem getur gefið þeim
þessa leiðréttingu, staðfest að þau
beri enga sök og útskýra fyrir þeim
hvað er að gerast á mannamáli.
Blátt áfram talar nefnilega um
þessa hluti á mannamáli sem börn
skilja og er það dýrmætt.“
- hs
Öll börn eiga rétt á að geta greint á milli
þess hvað má og má ekki gera við líkama þeirra.
Talaðu við barnið þitt og upplýstu það
um staðreyndirnar - því fyrr því betra
Barn sem þekkir muninn á réttu og röngu er betur
í stakk búið að neita, segja frá og komast óskaddað frá
óeðlilegum kringumstæðum sem það vill ekki taka þátt í.
„Ég vil ekki að einhver strjúki mér
og verði góður við pjölluna mína“
Þögnin er
Rjúfðu þögnina og fræddu barnið þitt – það er þín ábyrgð
Hvernig tölum við um þetta við börnin? www.blattafram.is / Ef velferð barns er í húfi hringdu í 112
AN
TO
N
&B
ER
G
U
R
Þegar Blátt áfram fór að leita að
efni sem mætti nota í grunnskólum
Íslands var bent á The Kids on the
Block, eða Krakkarnir í hverfinu.
Áhugi vaknaði þegar ljóst varð að
þetta efni hefur þegar reynst vel til
að fræða börn og unglinga um mál
eins og kynferðislegt ofbeldi.
Í leikþætti talast brúður við og
taka við spurningum frá börnum um
ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi, en
brúður sem tala líkt og börn geta oft
náð betur til þeirra en fullorðnir og
svarað spurningum um hvað er satt
og logið þegar málin eru rædd.
Sálfræðingur eða ráðgjafi verður
að vera viðstaddur hverja sýningu.
Komi barn fram eftir eða í sýningu
og lýsir ofbeldi verður að taka rétt
á því. Blátt áfram hefur samband
við félagsþjónustu í þeim bæ þar
sem sýningar fara fram og biður
um samstarf og stuðning við sýn-
ingarnar.
Annar kostur við efnið er að hér
gefst fullorðnum, sem vinna með
börnum, kostur á að sjá og læra
hvernig börn taka á þessum málum,
sérstaklega af hverju þau „kjafta
ekki frá“.
Með efninu vonast Blátt áfram
til þess að stuðla að frekari skiln-
ingi barna og unglinga á kynferð-
islegu ofbeldi. Einnig að fræðslan
veiti einhverjum börnum leið til að
koma fram og biðja um hjálp. Vitað
er um allt að tíu tilkynningar til
barnaverndarnefnda í kjölfar sýn-
inga. Efnið er áhrifaríkt og fræð-
andi.
Rannsókn hefur verið gerð á efn-
inu og niðurstöður sýna að brúðu-
leikhúsið eykur öryggiskunnáttu
barna.
Þess skal getið að Blátt áfram
fékk veglega styrki árið 2004 frá
Velferðarsjóði íslenskra barna og
forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar
til þess að koma brúðuleikhúsinu á
legg. Án þessa framlags og stuðn-
ings væri leikhúsið draumur einn.
Brúðuleikhúsið hefur farið víða í
grunn- og leikskóla landsins. Til að
fá sýningu er hægt að fá nánari upp-
lýsingar á vefsíðu félagsins.
Sigríður Björnsdóttir
Leikhús sem stuðlar að frekari skilningi
Blátt áfram stendur fyrir Verndar-
ar barna-maraþoni í húsnæði sínu
að Haukanesi 23, Garðabæ, 18.
apríl næstkomandi. Um þrjú nám-
skeið er að ræða. Það fyrsta hefst
klukkan 10, næsta klukkan 13 og
síðasta klukkan 16. Hvert nám-
skeið tekur um þrjá klukkutíma.
Nauðsynlegt er að skrá sig í
maraþonið með því að senda tölvu-
póst á blattafram@blattafram.is
eða hafa samband í síma 893 2929.
Þess skal sérstaklega getið að frítt
er fyrir foreldra.
Barnamaraþon
Maraþonið fer fram 18. apríl.