Fréttablaðið - 03.04.2009, Page 62
30 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég er komin með nóg af heims-
meistarakeppninni í fótbolta,
löngu áður en hún byrjar!
Halló?
Í guðs bænum! Þú
getur alveg talað við
stelpur þó
ég sé hérna!
Fram-
köllun
Opið
Filmur
hingað
Stjáni
Við vorum að
heyra að þú
væri að byggja
örk!
Rétt
...
Gjarnan.
Við viljum fá að
vera með!
Og við vildum panta
káetu nálægt
sólbaðsþilfarinu.
Það er svo skrítið að sjá
Lóu skríða.
Ég veit.
Ég veit
hvað þú
átt við.
Ég held að ég hafi verið svo spennt yfir
því að hún næði þessum áfanga að ég
hef ekki notið þess að hafa
ungbarn í húsinu. ... og stingur
hendinni ofan í
tebollann þinn.
Úff. Ætli maður kunni nokkurn tímann
að meta það sem maður hefur fyrr en
það rís upp og
skríður burt.
Ég myndi vilja fá
þessa framkall-
aða í svarthvítu.
FRÁBÆRT!
Það er að vísu nokkuð langt síðan ég las bókina Lífssaga Ragga Bjarna söngv-ara og spaugara eftir Eðvarð Ingólfs-
son sem gefin var út af Æskunni árið 1992,
en skemmtilegasti hluti ritsins er mér enn í
fersku minni.
Þannig var að stórsöngvarinn Raggi var
staddur í sumarfríi í Disneyworld í Flórída
snemma á níunda áratugnum. Þar sem hann
sat við bar og dreypti á göróttum drykk
settist við hlið hans maður, dökkur á hör-
und, sem Ragga þótti kunnuglegur mjög.
Söngvarinn spurði manninn hvaðan
hann kannaðist við hann, en kunnug-
legi maðurinn gaf lítið út á það.
Raggi gekk á hann og spurði hvort
hann væri ekki örugglega þekkt-
ur körfuknattleiksmaður. Við
þetta fór sá kunnuglegi að hlæja,
og upp úr kafinu kom að Raggi
sat við hlið Louis Gossett Jr.,
leikarans góðkunna. Leikarinn og söngvar-
inn (og spaugarinn) spjölluðu saman dágóða
stund og kvöddust svo.
Um það bil tveimur árum síðar var Raggi
einu sinni sem oftar að skemmta á Hótel
Sögu. Að settinu loknu heyrðist kallað
dimmri röddu innan úr myrkvuðum salnum
„Raggie!“ Var þá ekki kominn sjálfur Louis,
sem var staddur hér á landi við tökur á
kvikmyndinni Enemy Mine. Urðu vitanlega
fagnaðarfundir hjá þessum tveimur merku
listamönnum.
Geir Haarde fékk Franek Rozwadowski,
gamlan skólabróður sinn úr Brandeis-
háskólanum, til að taka að sér stöðu fulltrúa
AGS á Íslandi og Egill Helgason reddaði
okkur bjargvættinum Evu Joly. Væri ekki
margt vitlausara en að fá Ragga Bjarna til
að hóa í Louis Gossett Jr. til að bjarga mál-
unum? Pabbi hans, Louis Gossett Sr., gæti
kannski fylgt með í kaupbæti.
Goss-et, drekk og ver glaðr
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson
Helgarblaðið:
Heimili og hönnun:
Matur:
Líf okkar breyttist á einni
nóttu. Palestínskir flótta-
menn á Akranesi segja frá
skelfilegri reynslu sinni.
Eftirminnilegustu
fermingargjafir þekktra
Íslendinga.
Einstök listsköpun. Leir-
kerasmiðurinn Steinunn
Helgadóttir sótt heim.
Sælkeraveisla.
Heimagerð páskaegg,
hollusturéttir og annað
góðgæti.