Fréttablaðið - 03.04.2009, Qupperneq 78
46 3. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT
2. blikk, 6. mannþyrping, 8. skar, 9.
stormur, 11. samanburðartenging,
12. tólf tylftir, 14. beikon, 16. í röð,
17. mánuður, 18. ennþá, 20. átt, 21.
velta.
LÓÐRÉTT
1. ófá, 3. eftir hádegi, 4. fjölmiðlar, 5.
hylur, 7. slípaður, 10. eldsneyti, 13. er,
15. ávöxtur, 16. húðpoki, 19. nudd.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. depl, 6. ös, 8. hró, 9. rok,
11. en, 12. gross, 14. flesk, 16. hi, 17.
maí, 18. enn, 20. nv, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. mörg, 3. eh, 4. pressan,
5. lón, 7. sorfinn, 10. kol, 13. sem, 15.
kíví, 16. hes, 19. nú.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Sarah Brown.
2 Þorleifur Gunnlaugsson,
borgarfulltrúi VG.
3 Mistökum R-listans í
skipulagsmálum.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Margir fá þá
grillu í höfuðið
að þeir megi ekki
láta sjá sig neins
staðar. Ég hef
aldrei þjáðst yfir
því að vera þekkt-
ur og fer á barinn
ef mig langar.
Stundum verður
maður fyrir óþægindum, þegar
ráðist er að manni og maður er
ekki í skapi til að tala við fólk.
En ég held nú reyndar að allir
verði fyrir því.“
Egill Ólafsson í Pressunni 1991. „Ég hef
kannski verið aðeins uppteknari af því
að vera þekktur á þessum tíma, en það
má venjast öllu. Ég verð ekki var við neitt
annað en velvilja og góðvild. Það er bara
gaman að hitta fólk, maður er manns
gaman,“ segir Egill um ummæli sín í dag.
Útvarpsstöðin Bylgjan
hefur tekið Spurninga-
keppni fjölmiðlanna upp
á sína arma eftir að Rás
2 skar keppnina
niður vegna sparn-
aðar. Fréttablaðið
sagði á dögunum
frá því að þetta væri
í bígerð og upphaflega hugmyndin
var að fá Ævar Örn Jósepsson til að
stjórna keppninni líkt og á Rás 2.
Það gekk ekki eftir og í staðinn var
Logi Bergmann Eiðsson fenginn
til starfans. Logi er þrautreyndur
stjórnandi spurningakeppna og
mun jafnframt semja spurningarn-
ar. Spurningakeppni fjölmiðlanna
verður send út um páskana.
Áhugi erlendra fjöl-
miðla á Íslandi hefur
verið ótrúlegur eftir
bankahrunið. Nýjasti
miðillinn sem sýnir
ógöngum okkar Íslend-
inga áhuga er franska
útgáfan af Marie Claire.
Í nýjasta tölublaði
þess er að finna viðtal
við blaðakonuna og
rithöfundinn Snæfríði Ingadóttur.
Fyrirsögn viðtalsins við hana, og
viðmælendur víðar að, er „Krísan
gerði þær sterkari“. Þar segir af því
hvernig Snæfríður hefur nýverið
snúið sér að því að skrifa vinsæl-
ar ferðamannabækur sem vekja
athygli út fyrir landsteinana. Og
sagan er sögð á ljóðrænan hátt
eins og tíðkast hjá þeim frönsku.
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá
er mikil óánægja með þá ákvörðun
RÚV að sýna ekki beint frá Söng-
keppni framhaldsskólanna. Í gær
höfðu rúmlega níu þúsund skráð
sig á Facebook-síðu þar sem skor-
að er á Sjónvarpið að endurskoða
þessa ákvörðun. Meðal
þeirra sem leggja orð í
belg er tónlistamaður-
inn André Bachmann
sem tekur undir áskor-
un framhalds-
skólanem-
anna.
- hdm, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tónlistarsjóðurinn Kraumur úthlutaði í gær tæpum
ellefu milljónum króna til listamanna og hljómsveita,
eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðs-
ins.
Alls var 4,9 milljónum veitt til tónlistarmanna og
hljómsveita. Hjaltalín fékk hæsta styrkinn, eða 1,2
milljónir króna. Hann mun nýtast við gerð nýrr-
ar plötu og tónleikahald. „Fyrir hljómsveit eins og
Hjaltalín þar sem eru sjö kjarnameðlimir er það mjög
gott að fá svona pening. Við erum líka að vinna í okkar
næstu plötu og það er mikill kostnaður við hana. Þessi
peningur verður vel nýttur við gerð hennar,“ segir
Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður Hjalta-
lín, hæstánægður með styrkinn.
Næsthæsta styrkinn, eða hálfa milljón, fengu Nord-
ic Affect, Sin Fang Bous, Ólafur Arnalds og For a
Minor Reflection. Einnig fékk Lay Low hálfa milljón
fyrir tónleika sína erlendis síðar á árinu, þar á meðal
á hátíðunum Glastonbury og End of the Road. Að auki
fékk Mógil hálfa milljón í styrk fyrir tónleika sína
á stærstu heims- og þjóðlagahátíð heims, Vomex, og
fyrir væntanlega tónleikaferð sína um Ísland.
Ólöf Arnalds, sem spilaði einmitt á Vomex í fyrra
við mjög góðar undirtektir, fær einnig hálfa milljón
vegna undirbúnings annarrar plötu sinnar.
Þá fá þrjár efstu sveitirnar á Músíktilraunum eina
milljón króna samanlagt fyrir hljóðverstíma á Flat-
eyri. Einnig voru myndarlegir styrkir veittir vegna
námskeiða og vinnusmiðja á tónlistarhátíðinni Aldrei
fór ég suður og vegna tónleika ungra listamanna á
Listahátíð Reykjavíkur og tónlistarhátíð unga fólks-
ins í Kópavogi, auk fleiri styrkja. - fb
Tónlistarmenn fengu 11 milljónir
KRAUMUR ÚTHLUTAR MILLJÓNUM Eldar Ástþórsson hjá
Kraumi tilkynnir um úthlutanir Kraums á skemmtistaðnum
Boston við Laugaveginn. FRÉTTBLAÐIÐ/ANTON
Keppendur á alþjóðlegu páskamóti Stráka-
félagsins Styrmis í fótbolta ætla saman
í kvöldsiglingu næsta fimmtudag með
hvalaskoðunarbátnum Eldingu. Til-
gangurinn er að gefa samkyn-
hneigðum þátttakendum tækifæri
til að kynnast betur.
„Pælingin er að þjappa fólkinu
betur saman. Þau koma héðan og
þaðan þessi lið og við ætlum að
taka tveggja til þriggja tíma sigl-
ingu um sundin hérna,“
segir Jón Þór Þorleifson,
skipuleggjandi mótsins.
„Hápunkturinn verð-
ur síðan lokaballið á
Rúbín á laugardeginum
með Páli Óskari.“ Fyrr um daginn verður
verðlaunaafhending í Kórnum í
Kópavogi.
Alls etja tólf lið kappi á mót-
inu. Þau eru skipuð hommum og
lesbíum, þar af tíu erlend, og segir
Jón Þór útlendingana gífurlega
spennta fyrir Íslandsförinni.
Þeir munu gista víða á höfuð-
borgarsvæðinu, margir hverjir
í heimahúsum. „Einhverjir fá
að gista hjá liðsmönnum og
fjölskyldum þeirra. Ég lána
dómurunum íbúðina mína
því ég verð fyrir vestan,“
segir Jón Þór, sem kemur
einnig að skipulagningu
hátíðarinnar Aldrei fór ég
suður á Ísafirði þessa sömu
helgi. - fb
Samkynhneigðir boltastrákar í kvöldsiglingu
STYRMIR Strákafélagið Styrmir stendur fyrir alþjóðlegu
páskamóti í fótbolta þar sem tólf lið taka þátt.
ELDING Samkynhneigt knatt-
spyrnufólk ætlar í kvöldsiglingu
með bátnum.
„Við erum að halda námskeið úti
um allan bæ og verðum á Hótel
Sögu á morgun og flytjum þar
fyrirlestur um verkefnið okkar.
Félagsmálaráðherra opnar fyrir-
lesturinn og borgarstjórinn lýkur
honum,“ segir Sigríður Snævarr,
fyrrverandi sendiherra. Hún hefur
ásamt Maríu Björk Óskarsdóttur
stofnað fyrirtækið Nýttu kraft-
inn en tilgangur þess er hvatning
og stuðningur við atvinnulausa í
formi fræðslu, fyrirlestra og nám-
skeiðahalds eins og það er orðað í
fyrirtækjalýsingunni.
María segir hugmyndina upp-
haflega komna frá Sigríði. Hún
hafi viljað miðla af reynslu sinni
sem sendiherra í Finnlandi og
Svíþjóð þegar kreppan skall þar
á undir lok síðustu aldar. Sigríður
hafi síðan haft samband við hana
skömmu eftir að hún missti vinn-
una í Landsbankanum og feng-
ið hana til að móta með sér hug-
myndafræðina sem býr að baki
Nýttu kraftinn. María segir grunn-
hugmynd Sigríðar hafa verið þá að
atvinnumissirinn hefði í raun ekk-
ert með einstaklinginn eða hæfni
hans að gera.
Ferlið sem þær María og Sigríð-
ur hafa sett saman stendur yfir í
þrjá mánuði. Grundvallaratriðið er
að viðkomandi gangi til hvers dags
sem vinnudagur væri. Fólk eigi að
nota að minnsta kosti fjóra tíma á
hverjum virkum degi í eitthvað
uppbyggilegt. Þetta felist ekki í
því að setja í uppþvottavélina eða
önnur hversdagsleg störf held-
ur að það fari á námskeið, sinni
sjálfboðastörfum eða láti gaml-
an draum rætast. „Allt á þetta að
miða að því að gera hvern og einn
samkeppnishæfan í atvinnuleit-
inni,“ útskýrir María og bætir við
að allir taki áhugasviðspróf til að
víkka hugann og skapa ný tæki-
færi.
Of langt mál færi í að útskýra
þetta ferli og námskeiðið í þaula.
María segir þó að þær leggi mikla
áherslu á tengingu við atvinnu-
lífið. Stór þáttur í því sé að hver
og einn fái svokallaðan mentor úr
atvinnulífinu sem hann hittir aðra
hverja viku. „Auðvitað geta fjár-
hagsáhyggjurnar verið miklar og
við gerum ekkert lítið úr því. Aðal-
atriðið er hins vegar að brjótast út
úr þeirri einangrun sem atvinnu-
leysi getur reynst mörgum.“
freyrgigja@frettabladid.is
MARÍA BJÖRK ÓSKARSDÓTTIR: ATVINNULEYSI ÞARF EKKI AÐ ÞÝÐA EINANGRUN
Sigríður Snævarr aðstoðar
atvinnulausa í kreppunni
BYGGT Á REYNSLU FRÁ FINNLANDI Sigríður Snævarr vildi miðla af reynslu sinni sem
sendiherra í Finnlandi og Svíþjóð þegar kreppan skall þar á. Ásamt Maríu Björk
Óskarsdóttur hjálpar hún nú atvinnulausum að takast á við hversdagsleikann og
atvinnuleitina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN