Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2009, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 04.04.2009, Qupperneq 26
26 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir skrifar um jafnréttismál Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám mismununar gegn konum var samþykktur fyrir 30 árum. Þó að margt hafi áunnist í jafnréttisbarátt- unni er ljóst að jafnrétti er ekki að fullu náð. Til þess þarf hugar- farsbreytingu. Hún verður ekki án þess að styrkja grunninn til framtíðar með því að fræða börn- in. Leikskólar og grunnskólar eru mikilvægar menntastofnanir. Þeir gegna veigamiklu hlutverki í upp- eldi barna og félagsmótun. Höfuð- máli skiptir því að áhersla sé lögð á fræðslu og umræðu um jafnrétti og mannréttindi í öllu skólastarfi, þannig er stutt við málaflokkinn til framtíðar. Í lögum um jafna stöðu og rétt kynjanna er kveðið á um að á öllum skólastigum skuli nemend- ur hljóta fræðslu um jafnréttis- mál. Skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, bæði í fjölskyldu- og atvinnulífi. Stórt skref í þessa átt var stigið í fyrra þegar farið var af stað með þróunarverkefnið jafnréttis- fræðsla í leik- og grunnskólum en það miðar að því að auka og efla jafnréttis- og kynjasjónar- mið í leikskólum og grunnskólum. Að verkefninu standa félags- og tryggingamálaráðuneytið, Jafn- réttisstofa og fimm sveitarfélög: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Mos- fellsbær og Akureyrarkaupstaður. Menntamálaráðuneytið leggur verkefninu lið ásamt Jafnréttisráði og mörgum styrktaraðilum. Annað markmið verkefnisins er að auka samvinnu innan og milli sveitar- félaga um jafnréttismál, auka upplýsingar um jafnréttisfræðslu og búa til vettvang til að miðla reynslunni af verkefninu. Fimm leikskólar og fimm grunnskólar hafa í vetur unnið tilrauna- verkefni á sviði jafnréttis- mála. Námsstefna þar sem þeir kynna verkefnin verður haldin 26. maí. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vefsetrinu jafnretti- iskolum.is. Þar er aðgengilegt fjölbreytt efni sem hentar vel til jafnréttisfræðslu í skólastarfi. Í ár gegnir Ísland formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og er jafnréttisfræðsla í skólum eitt af fimm meginjafnréttisþemum ársins. Norræn ráðstefna um jafnréttis fræðslu í skólum verður haldin hér á landi í september 2009. Fyrirmyndarverkefni Norður landanna verða kynnt þar. Þegar samningur SÞ um afnám kynjamismununar var gerður bjuggu margar konur við misrétti. Enn er hann mikilvægt tæki í jafn- réttisbaráttunni. Félags- og trygg- ingamálaráðuneytið útbjó dagatal í samstarfi við Jafnréttisstofu, Kópavogsbæ og Fljótsdalshérað til að marka tímamótin. Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars, færði undirrituð öllum bekkjardeildum tólf ára nemenda í grunnskólum landsins dagatalið sem daglega áminningu um mikil- vægi jafnréttis. Með því að fræða börnin okkar um jafnrétti og mannréttindi gerum við þau meðvituð um mikil- vægi þeirra. Með aukinni jafnrétt- isfræðslu eflum við einnig skiln- ing barna okkar á því að réttindi þessi eru ekki sjálfgefin heldur afrakstur langrar baráttu sem enn á langt í land víða um heim. Höfundur er félags- og tryggingamálaráðherra. Jafnrétti á erindi við börn ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR UMRÆÐAN Hjörtur Hjartarson skrifar um persónukjör Í kjölfar fjármála- og efnahagshruns risu örvæntingarfullar og til- finningaþrungnar kröfur almennings um aukið lýð- ræði. Málsmetandi fólk sagði berum orðum að „stjórnmálastéttin“ yrði að víkja til hliðar. Öllum var ljóst að við lýð- ræðiskröfunum yrði að bregðast 25. apríl. Persónukjör og stjórnlaga- þing urðu aðalatriði í málefnasátt- mála ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna, með stuðningi Framsóknarflokksins. Frumvarpið um persónukjör gerir ráð fyrir varfærnu skrefi í átt til meiri áhrifa kjósenda í alþingiskosningum. Flokk- arnir geta boðið fram rað- aða lista eins og venjulega. Breytingin felst í því að framboðum verður einn- ig heimilt að bjóða fram óraðaða lista sem kjósend- ur þeirra mega raða ef þeir vilja. Það er nú öll bylting- in. Engu skiptir þótt lokuð prófkjör eða forval hafi þegar farið fram. Flokkarnir ákveða sjálfir hvora leiðina þeir fara. Þorkell Helgason upplýsti að tæknilega væri ekkert því til fyrirstöðu að leyfa framboðum að viðhafa persónukjör 25. apríl. Með því er heldur ekki verið að leggja í neina óvissuferð. Í nágrannalöndum okkar eru þrautreynd kosningakerfi með persónukjöri sem nær öll gera kjósendum hærra undir höfði en hér þekkist. Getur verið að þingmenn og frambjóðendur sem nú hafa tryggt sér örugg þingsæti í lokuðum próf- kjörum flokkanna hafi misst áhuga á lýðræðisumbótum? Svo er að sjá. Hálmstrá þeirra er að vísa í eina mjög ósannfærandi álitsgerð eins starfsmanns Alþingis þar sem segir að 2/3 hluta atkvæða þurfi til að sam- þykkja frumvarpið um persónukjör. Ríkisstjórnin ætlar að láta það duga til þess að hætta við allt saman. Það mun hefna sín grimmilega. Stjórnmálamenn verða að þekkja sinn vitjunartíma. Vorið 2009 á Íslandi gæti orðið heitt ekki síður en haustið 2008, og þá verður erfitt að standa uppi með svikin loforð. Höfundur er í framboði fyrir Borgarahreyfinguna. Sviknir um persónukjör(?) UMRÆÐAN Jakob Hrafnsson skrifar um menningu Menningarstefna Reykjavíkurborgar hefur verið í endurskoðun að undanförnu með það að markmiði að finna enn betri leiðir til að stuðla að því að blómleg menning og listir ein- kenni höfuðborgina áfram. Samstarf borgarinnar við tónlistarmenn hefur verið gott og hefur Reykjavíkurborg um árabil stutt dyggilega við bakið á íslenskri tónlist með ýmsum hætti, t.d. með starfssamningum og verk- efnastyrkjum til allra tegunda tón- listar og stuðningi sínum við ýmsar hátíðir og viðburði tengda tónlist. Eitt af betur heppnuðum verkefnum á sviði tónlistar er svo útflutnings- sjóðurinn Reykjavík Loftbrú. Nú er gaman að segja frá því að Reykja- víkurborg, Icelandair, FÍH, STEF og SFH hafa endurnýj- að samstarf sitt um sjóðinn Reykjavík Loftbrú en fregna af framhaldinu hefur verið beðið með eftirvæntingu. Sjóðurinn hefur verið starfræktur frá miðju ári 2003 og styður framsækið tónlistarfólk við að hasla sér völl erlendis. Á síðasta ári styrkti sjóðurinn 197 verkefni, sem á bak við stóðu 497 tónlistar- menn, tónskáld, textahöfundar og útgefendur. Í heildina hefur sjóður- inn styrkt 536 verkefni frá stofnun árið 2003, eða hátt á þriðja þúsund einstaklinga. Útflutningsverðlaun Reykjavík- ur Loftbrúar voru afhent á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir skömmu og varð Mugison fyrir val- inu að þessu sinni. Hann er tvímæla- laust glæsilegur fulltrúi Íslands og íslenskrar tónlistar erlendis. Með stofnun Reykjavíkur Loft- brúar felst viðurkenning á hlut tón- listar og lista í kynningu á Reykjavík sem nútímalegrar menningarborgar og spennandi viðkomustaðar ferða- manna. Markmið styrkveitinga er að auka tækifæri íslenskra tónlist- armanna, tónskálda og útgefenda til að sækja á erlenda markaði. Úthlut- að er úr sjóðnum mánaðarlega og er hann vistaður hjá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar og eru ný umsóknareyðublöð ásamt upplýsingum um breytt fyrirkomu- lag aðgengileg á vefsíðum aðstand- enda sjóðsins s.s. á www.reykjavik. is, www.icelandair.is/loftbru og á vefsíður fagfélaga tónlistarmanna og útgefenda. Samningurinn gildir út árið 2009 og stefnt er að endur- skoðun og viðræðum um framhaldið á haustdögum. Höfundur er formaður stjórnar Reykjavíkur Loftbrúar. Góðar fréttir af Reykjavík Loftbrú HJÖRTUR HJARTARSON JAKOB HRAFNSSON fyrst og fremst ódýr 4x2 l kippa Þú kaup ir 4x2l Coke eð a Coke Lig ht og Fr eyju Rísegg n r. 4 sam an á aðeins 998kr. FLOTT TILBOÐ FYRIR PÁSKANA!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.