Fréttablaðið - 04.04.2009, Side 36

Fréttablaðið - 04.04.2009, Side 36
36 4. apríl 2009 LAUGARDAGUR að lýsa yfir stríði á hendur þeim. Helgi telur að neysla á fíkniefnum eigi ekki endilega heima innan refsilöggjafar- innar. Hún virðist frekar vera félags- og heilbrigðismál. Reynsla Hollands og Ameríku „Við höfum reynsluna frá Bandaríkjun- um þar sem um fimmtán ríki breyttu lögum um neyslu kannabisefna milli 1970 og 1980, þannig að neytendur fóru ekki á sakaskrá. Þá varðaði þetta ekki lengur við refsilög, heldur var gert að minni háttar broti, sem var sektað fyrir eins og fyrir umferðarlagabrot eða slíkt. Þessi afglæpun hafði ekki áhrif á neyslu þessara efna. Hún jókst ekki sérstak- lega, heldur þróaðist með sama hætti og í öðrum ríkjum,“ segir Helgi og bætir við að í Hollandi séu kannabisefni ekki lögleg, heldur sé neysla þeirra bundin skilyrðum og við ákveðna sölustaði. Fá lönd uppræti til að mynda jafn mikið af ólöglegum fíkniefnum og Holland. „Það sem kemur í ljós þar er að það er hugsanlegt að heldur fleiri hafi einhvern tíma prófað þessi efni en í öðrum löndum. Ef við tökum hins vegar vananeytendur eða misneyt- endur er lítið sem bendir til þess að Holland standi síður en önnur lönd, heldur jafnvel þvert á móti. Áhættu- þættirnir og misnotkunin fara eftir einhverju öðru en löggjöfinni,“ segir Helgi. Að hans sögn eru áherslubreytingar víða í Evr- ópu í þessum málum. Lögreglan dragi úr því að eltast við neyt- endur og veikari efni. Hún ein- blíni frekar á sölu harðari efna. Bann getur klofið samfélagið Spurningin um lögleiðingu kannabisefna er pólitísk og afar viðkvæm, segir Helgi, og erfitt að svara henni án þess að vita nákvæmlega við hvað sé átt; hvernig eigi að framkvæma slíka lögleiðingu. „Menn verða að skoða þetta í mikilli yfirvegun og íhuga ólíkar leiðir, út frá því hvað er í húfi. Við lög- leiðingu má búast við að þessi mál komi meira upp á yfirborðið, sem gæti verið jákvætt. Í dag eru þessir einstaklingar í felum. Með ríkjandi stefnu eigum við á hættu að ýta þessum hópum út í jaðar samfélagsins og þar grasserar ýmis- legt sem við vitum ekkert af og fáum kannski í bakið á okkur síðar. Þessu fylgja afbrot og ofbeldi og fleira. Þar er til dæmis verið að bítast um sölu- svæði og ef þú telur þig hlunnfarinn er hringt í handrukkara og slíkt. Svo er engin neytendavörn. Það eru fleiri nei- kvæðir fylgifiskar bannstefnunnar og með lögleiðingu myndum við vissulega draga úr þeim. Hins vegar ber að fara mjög varlega í þeim efnum.“ Lögleiðing leiðir til meiri neyslu „Síðan er spurningin um mat á skað- semi. Það er búið að sýna fram á að kannabisefni eru skaðleg og að ein- staklingar fari illa út úr ofneyslu. En spurningin er hversu mikil skaðsemin sé, til dæmis í samanburði við tóbak og áfengi. Við lögleiðingu er einnig hætta á að fleiri einstaklingar neyti þessara efna og misnoti þau og það viljum við vita- skuld ekki sjá. Aukin notkun er þó ekki alveg sjálfgefin, eins og framangreint dæmi frá Hollandi sýnir,“ segir Helgi. Engin einföld svör séu við þessum spurningum. Fræðsla frekar en uppræting Helgi telur að fræðsla og forvarnir geti gert meira gagn en bannstefnan. Ekki sé raunhæft að uppræta efnin, heldur eigi að leita leiða til að einstaklingar fari sér ekki að voða við neyslu þeirra. „Opinbera stefnan er sú að engin svona neysla eigi að vera í samfélaginu og það er nánast tabú að ræða um hana. En þessi efni eru þarna og það þýðir ekkert að loka augunum fyrir því. Með leiðbeiningum getum við jafnvel dregið úr skaðsemi þeirra. Þetta er spurning um hvaða skilaboðum við getum komið til neytendanna.“ Um útbreiðslu kannabisefna tekur hann dæmi af um hundrað manna hópum nemenda sinna í Háskólanum. Hann spyrji þá öðru hvoru hvort erf- itt sé að nálgast þessi efni. Yfirgnæf- andi meirihluti nemanna rétti upp hönd og segi að það sé litlum vandkvæðum bundið. „Það er því tímabært að kanna vel hversu mikil þessi neysla er meðal fullorðinna, því við vitum ekki nægi- lega mikið um það. Maður hefur á til- finningunni að það sé mikið af efnum í umferð en að það sé um leið bannað að ræða hvað beri að varast.“ Vímuefni eru hluti samfélagsins hvort sem fólki líkar betur eða verr. Ísland stefnir í sama farveg og Bandaríkin í fangelsismál- um, hvað varðar þróun í fjölda fanga sem sitja inni fyrir innflutning og sölu efnanna, segir Helgi. Um helmingur fanga þar afpláni vegna fíkniefnabrota. „Nú er hlutfall fíkniefnafanga komið í um þriðjung hér á landi, en fyrir fimmtán árum voru þeir undir tíu prósent- um. Landslagið í löggæslu- og réttarvörslukostnaði er því talsvert breytt.“ Hann rifjar upp ástand mála á áfengisbannárunum. „Litla-Hraun var stofnað 1929 og þá voru fimm, sex ár eftir af bannárum. Þá sat helmingur fanga inni fyrir áfengislagabrot og við erum á leiðinni í sömu átt með fíkniefnabrotin,“ segir hann. Þá hafi verið starfræktar á Íslandi áfengissérsveitir lögreglu sem unnu gegn fram- leiðslu, smygli og dreifingu áfengis. Áfengi var bannað hér á landi árið 1915, en sala léttvína leyfð að nýju árið 1922. Annað áfengi, fyrir utan bjór, var svo leyft aftur árið 1935. Bjórinn var ólöglegur allt til ársins 1989. Áfengissérsveitir lögreglu K annabisræktun virðist í miklum vexti hér á landi, miðað við að lögregl- an finnur nokkur slík gróður hús í viku hverri. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands, telur þetta benda til að spurn eftir þessum vímugjafa hljóti einnig að vera töluverð. Dýrara sé að kaupa inn- flutta vöru en áður og erfitt að verða sér úti um gjaldeyri til að kaupa hass erlendis. Því fari fólki út í innlenda framleiðslu. Fréttablaðið spurði Helga hvern- ig hann teldi að bregðast ætti við því sem virðist vera mikil neysla og mikill hvati til lögbrota, en hann gaf út bók í fyrra þar sem segir meðal annars að hertar aðgerðir virðist ekki slá á neyslu þessara efna og að „afglæpun“ á neyslu kannabisefna erlendis hafi heldur ekki ýtt undir notkunina þar. Vímuefni séu hluti samfélagsins, hvort sem fólki líki betur eða verr. Nauðsynlegt sé að borgar arnir taki upplýstar ákvarðanir um þessa neyslu og að reynt sé að draga úr áhættuhegðun ungmenna, í stað þess Margt neikvætt fylgir banninu Lögreglan hefur lagt hald á þúsundir kannabisplantna á árinu og ljóst að einhver spurn er eftir þeim. Viðskiptin fara öll fram í undirheimum þar sem ofbeldi tíðkast og harðari efni fást. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði, segir í samtali við Klemens Ólaf Þrastarson að stjórnvöld þurfi að íhuga stefnu sína í vímuefnamálum hverju sinni, og fordómalaust. HELGI GUNNLAUGSSON Prófessorinn telur óheilbrigt að næstum sé bannað að ræða kosti og galla löggjafar, sem virðist ekki skila miklum árangri. Hann hvetur til þess að sem flestir möguleikar verði skoðaðir, en að farið sé með ýtrustu gát þegar ákvörðun er tekin. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Hátt í sjöunda þúsund manna hafa skráð sig í nýjan þrýstihóp, sem kallast Lögleið- um kannabis og skattleggjum neysluna. Hópurinn telur að með því að koma böndum á fjárhagslega veltu af sölu kannabisefna, og skattleggja hagnaðinn, megi meðal annars styrkja heilbrigðis- kerfið myndarlega. „Björgum fjárhag heilbrigðiskerfisins, lögreglunnar og fang- elsismálastofnunar og hættum að henda fjármunum út um gluggann. Lögleiðum kannabis og skattleggjum neysluna,“ segir á Facebook-síðu hópsins. Nýr skattstofn?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.