Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 42
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is Reykjavík – Halifax frá 24.800 kr. Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum. Flogið er 3 sinnum í viku. Flug til Halifax gefur 3.500–11.200 Vildarpunkta. Vildarklúbbur sem koma til Halifax, líkist hún meira smábæ en borg með nærri hálfri milljón íbúa. Þið veitið því fljótt athygli að ökumenn stöðva bíla sína þegar þið gangið nærri gangstéttarbrún og gefið í skyn að þið ætlið yfir götuna. Þó að Halifax sé stærsta borgin í Nova Scotia er hún örugg borg á evrópskan og bandarískan mælikvarða. Gaman að versla Í Halifax býðst frábært tækifæri til að versla og gera góð kaup. Innan borgarmarkanna er fjöl- breytt úrval verslana, allt frá litlum, sérhæfðum búðum upp í stórar, yfirbyggðar verslana- miðstöðvar þar sem þekktustu tísku- og stórmarkaðsverslanir í Norður-Ameríku eru með útibú. Látið ekki hjá líða að líta við á Brewery- bændamarkaðnum á laugardögum. Háskólar, krár og næturklúbbar Halifax er miðstöð mennta, menningar og skemmtanalífs á suðurströnd Nova Scotia og þekkt fyrir fjörugt næturlíf, menningarviðburði og alls konar afþreyingu. Í miðbænum er iðandi mannlíf og á hafnarbakkanum urmull af krám og MÍN Ólafur Þorsteinsson Borgarvirkið – Citadel Þótt Halifax sé tiltölulega ung borg á evrópskan mælikvarða er hún fyrsta borgin, sem Bretar settu á stofn í Kanada, en það gerðist árið 1749. Borgin breiðir úr sér út frá endurgerðu Borgarvirkinu, efst á hæðinni fyrir ofan höfnina. Langi þig að fá innsýn í sögu Halifax ættir þú að bregða þér í Borgarvirkið á sólríkum morgni. Alls konar andlit Íbúar Halifax, „Haligonians“ eins og þeir kalla sig á móðurmálinu, eru flestir af evrópskum uppruna. Þegar blaðað er í símaskránni sjáum við að mikið ber á nöfnum með enskar, keltn- eskar, þýskar og franskar rætur. Í Halifax eru fimm háskólar þar sem stúdentar hvaðanæva úr veröldinni stunda nám. Því ætti ekki að koma okkur á óvart að sjá Kínverja, Nígeríumann eða Kúvæta á götunum. Gestrisni og vinsemd Eitt af því fyrsta, sem þið takið eftir þegar þið komið til Halifax, er hvað gestkomandi er tekið af mikilli hlýju, vinsemd og gestrisni. Í augum flestra, ALIFA næturklúbbum, fyrir utan að sjálfsögðu spilavítis- höllina þar sem einnig eru í boði fyrsta flokks tónleikar og kabarettsýningar. Þið megið búast við að sjá þarna á götu frægar stjörnur úr kvikmyndaheiminum og tökulið á þönum að taka upp atriði í kvikmynd eða sjónvarpsþátt. Útiatriði í mörgum Hollywood-kvikmyndum hafa verið tekin í Halifax. Bregðið ykkur út fyrir borgina Ekki þarf að aka langt út fyrir Halifax til að fá stórkostlegt útsýni yfir klettaótta ströndina, sandfjörur og víðáttumikið Atlantshaf. Mikið er um göngustíga og ferðamenn geta notið náttúrunnar á landi eða t.d. með því að róa út á kajak (ég mæli með því). Í grennd við Halifax eru margir góðir golfvellir (ég mæli sérstaklega með Glen Arbour) og eilítið fjær borginni eru margir frábærir golfvellir í heimsklassa. Hafið í huga að Halifax er á sömu breiddargráðu og sunnanvert Frakkland svo að sumrin eru yndislegur tími og veðrið sólríkt og hlýtt; reyndar svo gott að aðeins klukkustundar-akstur frá Halifax eru ágæt vínræktarsvæði. Golf í Nova Scotia Nova Scotia og þar með talið næsta nágrenni Halifax er sannkölluð paradís fyrir golfara. Í Nova Scotia eru meira en 60 golfvellir opnir almenningi (public golf courses), margir þeirra í undurfallegu umhverfi með fram ströndinni og henta bæði þeim sem eru að taka fyrstu skref sín í íþróttinni og snillingum í greininni. Ágætar upplýsingar um golf í Nova Scotia má fá t.d. á www.golfnovascotia.com Flug og gisting í 2 nætur frá 48.900 kr. á mann í tvíbýli á Citadel Halifax Hotel *** Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. Oak Island Resort 45 MÍN. FRÁ HALIFAX Þriggja nátta pakki á þessum skemmtilega stað rétt fyrir utan Halifax. Slökun, spa, siglingar og fleira spennandi í boði. Möguleiki á að bæta við aukanóttum. Oak Island Resort and Spa er huggulegt hótel þar sem margt er í boði. Spa, dekur og slökun, fallegt umhverfi, bátsferðir, kajakferðir og margt fleira. Nauðsynlegt er að hafa bíl þar sem Oak Island er í 45 mínútna akstursfjarlægð frá Halifax. Í nágrenni Oak Island er margt að sjá eins og Lunenburg, Mahone Bay, Peggys Cove og margt fleira. Verð á mann í tvíbýli frá 52.900 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 3 nætur á Oak Island Resort and Spa og morgunverður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.