Fréttablaðið - 04.04.2009, Side 48
● Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók mynd á heimili
Steinunnar Aldísar Helgadóttur Útgáfufélag: 365 miðlar
ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar:
Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Emilía
Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur
Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
HEIMILISHALD
ROALD EYVINDSSON
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009
KÓSÍ Í
KYRRÐINNI
Steinunn Aldís Helgadóttur nýtur
lífsins í náttúrufegurð Álftaness.
BLS. 6-7
Á FERÐ UM LANDIÐ
Fyrirtækið Síbyr hefur sett
á markað nýstárlegt
fatahengi þar sem
fyrirmyndin er
landið sjálft. BLS. 2
EINU SINNI ER Handverk
og hönnun opnar sýningu í
Safnahúsinu á Svalbarðs-
strönd í dag. Þar verða til
sýnis verk eftir 24 lista-
menn. BLS. 4
● heimili&hönnun
N
ýlega festi ég kaup á alveg frábærri bók um mann sem vill koma
betra lagi á líf sitt og fær þá hugdettu að setja saman verkefna-
lista í því skyni. Í fyrstu hripar hann niður nokkur atriði sem
hann vill ljúka til að ná settu marki en fyrr en varir hefur list-
inn tekið völdin og lengist úr hófi fram þar til eftir standa 1.271 verkefni.
Bókin gengur síðan út á glímuna við að ljúka við verkin innan árs og fá
svo vinina til að meta árangur erfiðisins.
Sjaldan hefur ein bók haft jafnmikil og jafnframt óvænt áhrif á mig.
Ég lagði hana uppljómaður frá mér að lestri loknum og rifjaði upp þá
dýrðartíð þegar ég bjó til mína eigin verkefnalista og þá ómældu ánægju
sem það veitti mér að ljúka við verkefnin á þeim. Velti svo í framhaldinu
fyrir mér hvort ég byggi enn yfir þeirri staðfestu
sem þarf til verksins, greip í skyndi penna og
blað og hófst handa við að útbúa minn eigin verk-
efnalista, algjörlega óviss um hvaða stefnu hann
kynni að taka.
Fyrst á listann rötuðu nokkrar syndir sem
höfðu lengi plagað mig. Þannig fór á hann ýmis-
legt sem vinum og vandamönnum
viðkemur, svo sem loforð um að halda betri tengslum.
Nokkur stórvirki bókmennta og kvikmynda fengu
pláss og ýmsir duttlungar eins og heimsókn til spá-
konu, ferð í Fíladelfíu og brasilísk vaxmeðferð.
Heimilishaldið var svo sérstaklega sett undir smá-
sjá, sem leiddi í ljós að ótrúlegustu hlutir hafa
setið á hakanum síðustu ár.
Þannig hefur blá tunna ekki enn verið pöntuð
þrátt fyrir að hafa verið í umræðunni í tvö ár, kjall-
arinn er fullur af drasli sem á eftir að flokka og hluti
búslóðarinnar er enn í foreldrahúsum, húsráðendum
til ómældrar gleði. Skammarlegast fannst mér þó að
uppgötva að frá því að við félagarnir fluttum í húsið
árið 2001 hef ég ekki í eitt einasta sinn þvegið glugg-
ana, heldur sársaukalaust eftirlátið betri helmingn-
um þetta leiðindaverk. Sem er athyglisvert í ljósi þess að ég
setti ekki fyrir mig að taka húsið í gegn ásamt eiginmanninum svo inn-
volsið varð nær óþekkjanlegt. Við nánari umhugsun er það kannski það
afrek sem veldur því að mér gengur illa að takast á við einföld húsverk
eins og gluggaþvott og verður óglatt af tilhugsuninni einni saman.
En nú á sem sagt að bæta fyrir gamlar syndir, verkefnin liggja fyrir
og bara spurning um að takast á við þau af þeirri auðmýkt, kjarki og stað-
festu sem til þarf. Og að sjálfsögðu með ælufötuna við hendina.
Íslandslaga fatahengi er hugar-
fóstur húsgagnaframleiðandanna
í Síbyr. Fatahengið, sem fæst í
fánalitunum, er þannig úr garði
gert að hægt er að hengja af sér
á mismunandi stöðum á landinu.
Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri,
Egilsstaðir og Höfn eru á meðal
valkosta og geta áhugasamir skoð-
að fatahengin í Epal.
Fatahengin eru framleidd í
Vestmannaeyjum og hafa þeir
Sigurður Gústafsson arkitekt,
Leifur Ársæll Leifsson smiður
og Björgvin Björgvinsson tækni-
fræðingur, sem standa að baki
Síbyr, nýtt sér aðstöðuna í staf-
rænu smiðjunni FAB LAB, sem
var sett á laggirnar í Vestmanna-
eyjum síðastliðið sumar. Þar
hafa þeir aðgang að nauðsynleg-
um tölvubúnaði og fræsivélum. Þá
eru snagarnir framleiddir hjá vél-
smiðjunni Þór og kortin sprautuð
hjá bílasprautunarverkstæðinu
Bragganum ásamt því sem tré-
smíðaverkstæðið Tréverk hefur
lagt hönd á plóg.
„Við höfum það að markmiði
að að halda framleiðslunni hér í
Eyjum, að minnsta kosti fyrst um
sinn,“ segir Björg-
vin en hann og
Sigurður hafa
gengið með
hugmyndina
að Síbyr í mag-
anum um nokkurra
ára skeið. „Við Sig-
urður höfum unnið
saman við húsbyggingar og
annað en Sigurður hefur auk þess
starfað við húsgagnahönnun um
áratuga skeið. Okkur langaði að
vita hvort við gætum ekki skapað
einhvern atvinnugrundvöll með
frekari samvinnu og erum nú að
ýta þessu úr vör,“ segir Björgvin
en Síbyr framleiðir húsgögn, hill-
ur, lampa og fleira. „Um notenda-
væna húsgagna- og húsbúnaðar-
list er að ræða, auðuga að lit og
lögun.“ - ve
Snagarnir úti um allt land
● Ísland er formfagurt. Það nýta þeir Sigurður, Leifur og Björgvin hjá Síbyr sér til hins ýtr-
asta eins og sjá má á fatahengi þeirra, Íslandi, sem býður upp á skemmtilega möguleika.
Fatahengið tekur sig
vel út eitt og sér en
býður gestum og gang-
andi upp á þann mögu-
leika að hengja yfirhöfnina á
uppáhaldslandshlutann.
Gamlar syndir gerðar upp
...hluti búslóðarinn-
ar er enn í foreldra-
húsum, húsráðend-
um til ómældrar
gleði.
Þeir Leifur og Björgvin hafa
ásamt Sigurði einnig leikið sér
að því að gera „pikkólóa“ sem
taka við yfirhöfnum gesta.
M
YN
D
/Ú
R
EI
N
KA
SA
FN
I
SÍGILDUR Þessi stóll eftir hinn heimsfræga
hönnuð Arne Jakobsen (1902-1971) nefnist
Svanur inn (1957) og er meðal hans þekktustu
verka, ásamt Egginu (1957) og Maurnum (1951).
Stólinn hannaði hann sérstaklega inn í SAS Royal
hótelið, sem Jakobsen hannaði jafnframt allt.
Akralind 9
201 Kópavogur
Sími 553 7100
www.linan.is
VIÐ HÖFUM DREGIÐ SAMAN SEGLIN TÍMABUNDIÐ OG LOKAÐ
VERLSUNINNI Í BÆJARLIND. VIÐ MUNUM EINGÖNGU SELJA
VÖRUR OKKAR Á LAGERSÖLU Í AKRALIND 9
OPIÐ FÖSTUDAGA 14 - 18 OG LAUGARDAGA 12 - 15
LÍTIL YFIRBYGGING = LÆGRA VERÐ
LAGERSALA AKRALIND 9
ALLAR VÖRUR Á 40 - 50% AFSLÆTTI
4. APRÍL 2009 LAUGARDAGUR2