Fréttablaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 109
LAUGARDAGUR 4. apríl 2009 89
FÓTBOLTI Það eru gleðitíðindi úti
um allt hjá stuðningsmönnum
Liverpool þessa dagana. Nú síðast
vegna þess að þeir Steven Gerr-
ard og Dirk Kuyt hafa framlengt
samninga sína við félagið.
Samningur Kuyts við Liverpool
er til ársins 2012 en Gerrard verð-
ur á Anfield til að minnsta kosti
2013. Gerrard átti tvö ár eftir af
núverandi samningi sínum en
ákveðið var að nota meðbyrinn hjá
félaginu þessa dagana til þess að
tryggja stöðu fyrirliðans.
Stjórinn, Rafael Benítez, var
svo sjálfur nýbúinn að gera fimm
ára samning við félagið þannig að
stuðningsmenn líta björtum augum
til framtíðar.
„Þetta eru stórkostleg tíðindi
fyrir félagið,“ segir Benítez á
heimasíðu félagsins. „Steven hefur
enn eina ferðina sýnt hollustu sína
við félagið og það var lítið mál að
ganga frá þessum samningi. Um
leið og við buðum honum upp á
þennan möguleika sagði hann já.
Það voru alls engin vandamál.
Hann vill vera hjá félaginu allt sitt
líf.“ - hbg
Steven Gerrard og Dirk Kuyt búnir að framlengja:
Gerrard vill vera hjá
Liverpool allt sitt líf
SAMHERJAR NÆSTU ÁRIN Dirk Kuyt er búinn að binda sig til 2012 hjá Liverpool og
Gerrard til 2013. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Þeir félagarnir Barry
Ferguson og Allan McGregor eru
eflaust með bullandi móral yfir
fylleríinu síðasta laugardag í Hol-
landi.
Þeir hafa fallið geysilega í áliti
hjá skosku þjóðinni, var hent á
bekkinn gegn Íslandi og í gær
voru þeir sendir heim af æfingu
hjá Glasgow Rangers vegna máls-
ins.
Til að bæta gráu ofan á svart
hefur Ferguson misst fyrirliða-
bandið hjá Rangers í hendur Dav-
ids Weir.
Félagarnir féllu í enn meiri
ónáð þegar þeir notuðu hið svo-
kallaða „V-merki“ þegar verið
var að mynda þá á bekknum í
landsleiknum á móti Íslandi.
Walter Smith, stjóri Rangers,
staðfesti að notkun Ferguson á
hinu dónalega „V-merki“ ætti
sinn þátt í því að félagið hefði
ákveðið að taka fyrirliðabandið
af Ferguson.
Ekki er talið ólíklegt að Rang-
ers setji þá báða á sölulista innan
skamms.
Seinni partinn í gær tilkynnti
svo skoska knattspyrnusamband-
ið að þeir félagar myndu aldrei
aftur fá að leika fyrir skoska
landsliðið. - hbg
Ferguson í vanda:
Fylleríið dregur
dilk á eftir sér
LENGI GETUR VONT VERSNAÐ Barry
Ferguson á ekki sjö dagana sæla um
þessar mundir. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Walter Smith, knatt-
spyrnustjóri Rangers, segir að
framkoma þeirra Barry Fergu-
son og Allans McGregor síðustu
daga sé þeim til skammar.
„Það veldur mér vonbrigðum
að við höfum þurft að grípa til
þessara aðgerða. Við urðum að
grípa til þessara aðgerða því þeir
urðu félaginu til skammar,“ sagði
Smith harðorður.
„Þessi framkoma er þeim líka
til skammar. Að sjá myndirnar af
þeim á bekknum var neyðarlegt
svo ekki sé meira sagt. Við hefð-
um vel getað lifað án þessarar
uppákomu.“ - hbg
Walter Smith, stjóri Rangers:
Skammarleg
framkoma
©
2
00
8
ad
id
as
A
G
. a
di
da
s,
th
e
3-
Ba
rs
lo
go
a
nd
th
e
3-
St
rip
es
m
ar
k
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
o
f t
he
a
di
da
s
G
ro
up
IMP O S SIBL E
I S N O T H I N G
adidas.com/running
Nýjar vörur
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500