Morgunblaðið - 02.01.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 1. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
LÍFIÐ Í BOLTANUM
BJÖRN JÓNSSON FÓR AÐ HEIMAN FJÓRTÁN
ÁRA TIL AÐ SPILA FÓTBOLTA Í HOLLANDI >> 23
LEIKHÚSGESTIR
OG SENUÞJÓFAR
FLUGAN
DULÚÐ OG DRAMATÍK >> 40
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SPRENGINGIN var svo svakaleg
að ég fór eina fjóra hringi í loftinu,“
sagði Sölvi Axelsson flugstjóri,
sem slapp með skrekkinn þegar
sprengja sprakk þar sem hann var
á gangi í Bangkok á gamlárskvöld.
Níu sprengjur sprungu í borginni
þetta kvöld. Þrír dóu og hátt á
fjórða tug slasaðist, að því er er-
lendar fréttastofur herma. Sölvi
telur að mun fleiri hafi farist og
slasast, eftir því sem hann sá.
Sölvi kvaðst hafa verið að ganga
burt frá mótorhjóli sem hafði ekið
með hann. Yfirleitt sagðist hann
prútta um verðið, en af því að það
var gamlárs-
kvöld gerði
hann það ekki.
„Þegar ég var
búinn að ganga
svona fjörutíu
skref varð þessi
svakalega
sprenging
hægra megin
við mig. Það
sem bjargaði
mér var að það var ljósastaur á
milli mín og sprengingarinnar og
hann hlífði mér. Ég held að ég hafi
flogið eina 25–30 metra.“
Þegar Sölvi rankaði við sér ríkti
fullkomin ringulreið á götunni og
skelfilegt var um að litast. Honum
fannst þetta algerlega óraunveru-
legt – líkt og hann væri að horfa á
bíómynd. „Ég hélt að allir væru
dánir. Fólk lá um allt og hreyfði sig
ekki. Á götunni var blóð, tennur,
líkamsleifar og skór eins og þeir
hefðu verið sprengdir af fólki. Per-
sónulegir munir, myndir og fleira
sem fólk er með í fórum sínum, lá
út um allt. Sprengingin var svo
rosaleg. Það sem mér dettur helst í
hug er að þetta sé eins og að lenda
inni í fallbyssu sem hleypt er af.
Mér datt ekki annað í hug en að ég
væri klofinn í tvennt. Staurinn
hlífði mér en augun fóru úr manni
sem var við hliðina á mér.“
Sölvi segir að staurinn hafi farið
í tætlur og rétt hangið uppi. Sú hlið
sem sneri að sprengjunni var alsett
hvössum sprengjubrotum sem
stóðu út úr staurnum. Sprengju-
brotin flugu allt í kringum Sölva og
mátti engu muna að hann skaðað-
ist.
„Skyrtan tættist utan af mér. Ég
er búinn að vera í megrun, annars
hefði ég fengið sprengjubrot í ístr-
una. Það er ég viss um. Framan á
skyrtunni var brunagat og hún var
í tætlum,“ sagði Sölvi. Hann kom
sér af vettvangi og þuklaði sig allan
til að ganga úr skugga um að hann
væri óslasaður. Það eina sem am-
aði að var að heyrnin hvarf á
hægra eyra, en hún var að koma
aftur í gærkvöldi.
„Hélt að allir væru dánir“
Sölvi Axelsson
flugstjóri
Sölvi Axelsson flugstjóri slapp naumlega í sprengjutilræði í Bangkok á
gamlárskvöld Skyrtan tættist utan af honum og hann þeyttist tugi metra
TÆPLEGA tíu manns tóku þátt í
nýárssjósundi lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu sem fram fór í
Nauthólsvík skömmu eftir klukkan
14 í gær. Sól var og veður kyrrt.
Hitastig sjávar mældist 3,9 gráð-
ur á Celsíus. Þrír lögreglumenn
syntu ásamt óbreyttum en áhuga-
sömum sjósundmönnum. Nýskip-
aður lögreglustjóri höfuðborg-
arsvæðisins, Stefán Eiríksson, kom
til að fylgjast með sínum mönnum
og var það eitt af fyrstu embættis-
verkum hans í þessu nýja embætti.
Morgunblaðið/Júlíus
Harðjaxlar
í sjósundi
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
GÓÐUR árangur náðist í viðræðum
stjórnar Félags íslenskra flugum-
ferðarstjóra og Flugstoða um lífeyr-
issjóðsmál á gamlársdag og verður
þeim haldið áfram í dag.
Loftur Jóhannsson, formaður Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra,
segir að nokkuð hafi miðað áfram í
viðræðunum, en tími hafi ekki verið
nægur til að ganga frá málum. „Ég
er sæmilega bjartsýnn,“ segir hann
og bætir við að menn séu loksins
sammála um hvað semja skuli um.
„Það að menn skuli halda áfram eyk-
ur manni bjartsýni.“
Þorgeir Pálsson, forstjóri Flug-
stoða ohf., segir að stjórn Flugstoða
hafi verið búin að gefa mjög skýr fyr-
irheit varðandi lífeyrissjóðsmálið og
greint frá því að flugumferðarstjórar
myndu ekki bera skarðan hlut frá því
borði. Farið hafi verið yfir málið og
það skýrt enn betur á gamlársdag
með góðum árangri. „Menn gera sér
betur grein fyrir þessum þáttum en
áður,“ segir hann og bendir á að ekki
sé verið að ræða um kjör enda engir
kjarasamningar lausir hjá flugum-
ferðarstjórum.
Viðbúnaðaráætlun Flugstoða um
flugumferðarþjónustu á íslenska
flugstjórnarsvæðinu tók gildi á nýju
ári. Þorgeir segir að flugið hafi geng-
ið mjög vel og engin truflun verið á
flugi til og frá landinu. Um 150 vélar
fóru í gegnum flugumferðarsvæðið í
gær og er það yfir meðallagi.
Góður árangur í viðræðum
Mikil umferð á flugstjórnarsvæðinu en engin truflun á flugi til og frá landinu
Moskvu. AFP. | Nýr samningur Rússa og
Hvít-Rússa um verð á jarðgasi frá Rúss-
landi til Hvíta-Rússlands var undirritaður
tveimur mínútum fyrir miðnætti á gamlárs-
kvöld. Hvít-Rússar ætluðu ekki að leyfa
flutning á jarðgasi frá Rússlandi til annarra
Evrópuríkja um Hvíta-Rússland frá og með
1. janúar nema samkomulag um verðið
næðist fyrir þann tíma. Stjórnendur rúss-
neska olíufyrirtækisins Gazprom eru
ánægðir með samninginn en Hvít-Rússar
eru ekki sama sinnis.
Samningurinn er til fimm ára og sam-
þykkti Hvíta-Rússland að greiða meira en
tvöfalt hærra verð fyrir gas frá Rússum en
hingað til. 2006 greiddi Hvíta-Rússland 45
dollara fyrir 1.000 rúmmetra af gasi og 100
dollara í ár en síðan fer verðið stighækkandi
til 2011 þegar það verður það sama og greitt
er fyrir gas annars staðar í Evrópu eða um
og yfir 200 dollara fyrir umrætt magn.
Reuters
Samningur Sergei Sidorsky, forsætisráð-
herra Hvíta-Rússlands, og Alexei Miller,
forstjóri Gazprom, kynna samninginn.
Samningur
um jarðgas á
síðustu stundu
Jakarta. AFP. | Leit verður haldið áfram í
dag að Boeing 737-400 flugvél Adam Air, en
ekkert hefur til hennar spurst eftir að neyð-
arkall barst frá henni á leið milli indónes-
ísku eyjanna Jövu og Sulawesi. 96 farþegar
eru um borð og sex manna áhöfn.
Vélin fór frá Surabaya á Jövu klukkan
eitt eftir hádegi í gær að staðartíma, klukk-
an sex í gærmorgun að íslenskum tíma, og
eftir um klukkustundarflug hvarf hún af
ratsjá en þá var flugið til Manado á Sula-
wesi um það bil hálfnað.
Þegar var hafist handa við leit en leit-
arskilyrði voru mjög slæm vegna veðurs og
varð að fresta aðgerðum.
Óttast um flugvél
með 102 mönnum
♦♦♦