Morgunblaðið - 02.01.2007, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 43
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Munið að
slökkva á
kertunum
i
Forðist að koma
kerti fyrir nálægt
opnum glugga þar
sem vindur getur
sveiflað gluggatjöld-
um í kertalogann
Gleðilegt ár!
Kennsla hefst
8. janúar
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620
frá kl. 12-17
www.schballett.is
SKRIFSTOFUPLÁSS ÓSKAST TIL LEIGU
Traustur aðili óskar eftir 300-500 fm skrifstofuplássi á leigu,
gjarnan nálægt miðborginni.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
ÍSLENSKIR áhugamenn um
knattspyrnu dýrka margir hverjir
knattspyrnukappann snjalla Eið
Smára Guðjohnsen enda er hann í
sérflokki íslenskra knattspyrnu-
manna og þó víðar væri leitað.
Sömu sögu er að segja af Skaga-
manninum Ríkharði Jónssyni, eða
Rikka, fyrir um hálfri öld. Þá var
hann kóngur í ríki sínu.
Aðstæður til knattspyrnuiðkunar
hafa gjörbreyst á nokkrum nýliðn-
um árum og öll umgjörð hefur tek-
ið ótrúlegum breytingum á skömm-
um tíma. Í hópi þeirra bestu er
ekkert til sparað og hinir reyna að
fylgja í kjölfarið. Ekki er ofsagt að
margir leikmenn séu ofdekraðir.
Það orð var ekki til í orðaforða
Rikka og félaga á gullaldarárum
Skagamanna.
Rikki var ekki aðeins besti leik-
maður landsins um árabil heldur
kom hann með nýjar áherslur inn í
íþróttina eftir að hafa kynnst gangi
mála í Þýskalandi um hríð. Hann
þjálfaði Skagamenn og kom liðinu
á toppinn, hann var landsliðsmaður
í tvo áratugi og landsliðsþjálfari
um árabil. Líf hans snerist um
boltann.
Frá þessu segir Jón Birgir Pét-
ursson í bók sinni Rikki fótbolta-
kappi. Hann rifjar upp liðna tíð
með Rikka, fær Hallberu Leósdótt-
ur, eiginkonu meistarans, og ýmsa
samtíðarmenn til að varpa frekara
ljósi á kappann og birtir umsagnir
og jafnvel greinar úr dagblöðum til
að undirstrika þátt Rikka í ís-
lenskri knattspyrnu. Ennfremur er
lítillega komið inn á þátttöku mál-
arameistarans í stjórnmálum.
Allt er þetta hið besta mál. Þó
mikið hafi verið skrifað um Rikka
á sínum tíma og hann verið á hvers
manns vörum á hverju tímabili um
árabil var umfjöllunin allt önnur og
mun minni en nú er. Þá var til
dæmis ekkert sjónvarp og fólk
hafði því ekki tækifæri til þess að
vera með snillingana reglulega inni
í stofu.
Það er mikilvægt að halda ýmsu
til haga, þar á meðal sögu Rikka.
Að því leyti er þessi bók kærkom-
in. Hún varpar ljósi á einn fremsta
mann íslenskrar íþróttasögu, fórnir
hans og mótlæti.
„Ferill hans er glæsilegur og líf
hans innihaldsríkt,“ segir Jón
Birgir Pétursson meðal annars um
Rikka í 1. kafla bókarinnar. Knatt-
spyrnuferlinum eru gerð ágæt skil
í bókinni, en ýmislegt hefði mátt
betur fara. Í fyrsta lagi er mikið
um endurtekningar, jafnvel á sömu
opnu. Í öðru lagi vilja frásagnir af
ýmsum leikjum, þar sem nánast er
um upptalningu að ræða, úrslit og
hverjir skoruðu, verða frekar leiði-
gjarnar. Í þriðja lagi hefði verið
fyllra að hafa alls staðar nöfn und-
ir myndum.
Höfundur segir líf Rikka hafa
verið innihaldsríkt. Fram kemur
hjá Rikka að hafa verði hagsmuni
fjölskyldunnar í fyrirrúmi. Fótbolt-
inn hafi gengið fyrir í lífinu og
hann hafi alltaf verið vinnuhestur
en fjölskyldan hafi alltaf verið sér
dýrmæt. Þarna vantar eitthvað
meira um Rikka og fjölskyldulífið,
en samt ber að hafa í huga að
þetta er ekki ævisaga, heldur frek-
ar saga um fótboltann og Rikka.
Afreksmenn eru fyrirmyndir og
Rikki var góð fyrirmynd. Hann
hefur alla tíð verið bindindismaður
á vín og tóbak og leynir því ekki
að áfengið hafi leikið margan
knattspyrnumanninn grátt. Hann
leggur áherslu á heiðarleika og
segist einu sinni hafa haft vísvit-
andi rangt við, fiskað vítaspyrnu
og brennt af af ásettu ráði. Þetta
segir meira en mörg orð og svona
frásagnir eiga erindi til allra
íþróttamanna.
Kóngur í ríki sínu
BÆKUR
Endurminningar
Eftir Jón Birgi Pétursson, Tindur, 2006.
Rikki fótboltakappi
Kappi Ríkharður Jónsson borinn á gullstól af leikvelli eftir að hafa skorað öll
mörk Íslands í 4-3 sigri á Svíum á Melavellinum 1951. Það eru Karl Guð-
mundsson, Sæmundur Gíslason og Þórður Þórðarson sem mynda gullstólinn.
Steinþór Guðbjartsson