Morgunblaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hægviðri, skýj-
að með köflum og
yfirleitt þurrt.
Vaxandi SA-átt
sunnan- og vestanlands þeg-
ar líður á daginn. » 8
Heitast Kaldast
4°C -3°C
MARGT bendir til þess að fjölskyldulífið
eigi nú erfiðara uppdráttar en oft áður, að
mati Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands, en nýársávarp hans er birt í heild
á miðopnu Morgunblaðsins.
„Kapphlaupið um lífsins gæði, langur og
strangur vinnudagur, kvaðir sem hvíla á
foreldrunum, kröfurnar sem gerðar eru –
allt hefur þetta dregið úr samvistunum;
börnin eru jafnvel skemur með foreldrum
sínum en kennurum sem taka við þeim
árla morguns og annast þau fullan vinnu-
dag.“
Börnin bera kostnaðinn
„Hver eru þau verðmæti sem við metum
mest? Hvaða áhrif hefur lífsgæðakapp-
hlaup hinna eldri á umönnun yngstu
barna? Er ekki mannauðurinn dýrmæt-
asta auðlindin í harðnandi samkeppni
þjóða heims?“
Minnti forsetinn í ávarpi sínu á fréttir af
fátækt meðal íslenskra barna. „Hinn langi
vinnudagur tekur toll og börnin bera
kostnaðinn í ríkum mæli. Og á aðventunni
bárust fréttir um að þúsundir íslenskra
barna búi við fátækt, geti ekki nýtt sér
sömu tækifæri og bekkjarsystkin og vina-
fjöld.“ | Miðopna
Langur vinnu-
dagur bitnar
á börnunum
Morgunblaðið/Jim Smart
SVIFRYK vegna flugelda á höfuðborg-
arsvæðinu var meira en svo að tæki um-
hverfissviðs Reykjavíkurborgar næðu að
mæla það, að sögn Lúðvíks Gústafssonar,
deildarstjóra Mengunarvarna umhverf-
issviðs. „Þegar veður er stillt um áramót
getur svifryksmengun tímabundið orðið
mjög mikil.“ Sem dæmi má nefna að magn
svifryks, sem venjulega er um 10–50
míkrógrömm í rúmmetra af lofti (mg/m3),
var yfir áramótin 1.820 míkrógrömm í
rúmmetranum. Hálftíma síðar var magnið
hins vegar komið í 619 mg/m3 og er nú
komið í eðlilegt horf.
Svifryksmengun
sprengdi mæla
SAMGÖNGUVANDI er ekki eina vandamálið
sem við er að etja í umferðinni, að mati Karls
Sigurbjörnssonar, biskups Íslands. Hann vék
að umferðarslysum í nýárspredikun í gær.
„Þarna er líka siðferðismein á ferðinni, vax-
andi yfirgangur og æsingur í samfélaginu.
Fregnir af háttsemi vegfarenda, sem komu þar
að sem stórslys urðu á þjóðvegum, og með
frekju og óþolinmæði trufluðu störf lögregl-
unnar og þeirra sem hlynntu að slösuðum, eru
ótrúlegar og skelfilegar,“ sagði Karl. Umferð-
arslysin sem ollu dauða 30 karla, kvenna og
barna í fyrra eru ægileg blóðtaka, sem helst má
líkja við hamfarir, að mati biskups. Augljóst sé
að allt of víða anni vegakerfið ekki sívaxandi
umferðarþunga. „En eitt er alveg víst, engin
ríkisstjórn, ekkert löggjafarþing, ekkert fjár-
magn, hvaðan svo sem það kemur, getur breytt
því sem mestu máli skiptir í þessum efnum, og
helst má duga gegn óheillaþróun,“ sagði biskup.
Í stað þess að bregðast við með ásökunum, leita
sökudólga og höfða til reiði og ótta ættum við að
leita þess sem miðar að lausn og von. Hvert og
eitt okkar getur lagt mikilvægasta lóðið á þá
vog, „sem er tillitssemi, aðgæsla og virðing.“
Karl spurði hvort við værum ef til vill meira
og minna slegin hraðablindu, það er blindu,
ónæmi á eigin hraða og afleiðingar hans. Hann
sagði spennufíkn vera eina birtingarmynd
hraðablindunnar og að hún væri vaxandi vanda-
mál. Ástæða væri til að hafa áhyggjur af því
hvernig hún gripi um sig meðal ungs fólks, um-
fram allt ungra karla. Sýnt hefði verið fram á
að tölvuleikir af ýmsu tagi slævðu vitund um
mörk raunveruleikans.
Andstyggð á dauðarefsingum
Karl vék að „tilgangslausu stríði í Írak“
þar sem þúsundir á þúsundir ofan hafa fallið í
valinn. „Aftaka Saddams var einn viðbjóðs-
legi þátturinn í þeirri ömurlegu atburðarás
og verður eflaust vatn á myllu hermdarverka-
manna sem nota það tækifæri til að réttlæta
enn meiri dráp og skelfingu. Ég hef megn-
ustu andstyggð og óbeit á dauðarefsingum,
eins og þorri Íslendinga,“ sagði biskup.
Blóðtöku á vegum | 25
Vaxandi yfirgangur og æsingur
Biskup Íslands segir dauðaslysin í umferðinni ægilega blóðtöku sem líkja megi við hamfarir
Aftaka Saddams Husseins var einn viðbjóðslegi þátturinn í ömurlegri atburðarás Íraksstríðsins
Morgunblaðið/Golli
Nýárspredikun Karl Sigurbjörnsson biskup
fjallaði m.a. um siðferðismein í samfélaginu.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
SALA Heilsuverndarstöðvarinnar
við Barónsstíg er stærstu mistök
sem gerð hafa verið í heilbrigðis-
kerfinu, segir Reynir Tómas Geirs-
son, sviðsstjóri kvennasviðs LSH,
en hann kveðst engan heilbrigðis-
starfsmann þekkja sem hafi verið
hlynntur sölunni. Ríki og borg áttu
Heilsuverndarstöðina en hún var
seld einkaaðila fyrir 980 milljónir
króna í nóvember árið 2005. Hús-
næðið hefur síðan verið auglýst til
sölu. Reynir Tómas segir ákvörð-
unina um sölu hússins hafa verið
furðulega. „Það var furðulegt að
borgin og ríkið skyldu ekki geta
komið sér saman um að ríkið fengi
hlut borgarinnar á viðunandi verði,“
segir hann.
Vegna sölunnar var sú starfsemi
sem til húsa var í Heilsuverndar-
stöðinni flutt í leiguhúsnæði í Mjódd
í Breiðholti. Miðstöð mæðraverndar
var meðal þeirra starfseininga sem
fluttar voru, en milli hennar og
LSH hafði verið samstarf, sem fólst
meðal annars í því að LSH lagði til
stöðu sérfræðings við eftirlit mæðra
í svonefndri áhættumeðgöngu. Við
flutninginn breyttist skipulag mið-
stöðvarinnar en þá lauk samstarf-
inu við LSH og háskólaspítalinn tók
við eftirliti kvenna í áhættumeð-
göngu. Reynir Tómas segir að sök-
um manneklu hafi LSH séð fram á
að geta ekki sent sérfræðinga sína
af spítalanum til starfa í Mjóddinni.
Pólitísk ákvörðun
„Við vorum ekkert látin vita sér-
staklega og heldur ekki um söluna
[á Heilsuverndarstöðinni],“ segir
Reynir Tómas um flutningana í
Mjódd og söluna á húsnæðinu við
Barónsstíg. Um pólitíska ákvörðun
hafi verið að ræða.
„Stærstu mistökin
í heilbrigðiskerfinu“
Í HNOTSKURN
» Heilsuverndarstöðin varseld einkaaðilum síðla
árs 2005 fyrir 980 milljónir
króna.
» Sú starfsemi sem þarvar hefur verið flutt í
leiguhúsnæði í Mjódd í
Breiðholti.
» Reynir Tómas Geirsson,sviðsstjóri kvennasviðs
LSH, segir ákvörðunina um
að selja húsið hafa verið
furðulega. Heilbrigðisstarfsfólk | 10
VEÐRIÐ var með besta móti á suðvesturhorninu í gær, nýársdag, og
gripu margir tækifærið og skelltu sér í göngutúr í náttúrunni, eins og
þessar ungu konur gerðu á Álftanesinu með ferfættan vin sér við hlið.
Búist er við hægri norðlægri eða breytilegri átt fram eftir degi í dag.
Skýjað verður með köflum eða bjartviðri, en stöku él um landið norð-
austanvert. Síðdegis er svo búist við því að vindur snúist í suðaustan 8–
13 m/s með slyddu eða rigningu sunnan- og vestanlands ásamt hlýnandi
veðri.
Morgunblaðið/Kristinn
Nýársganga á Álftanesi