Morgunblaðið - 05.01.2007, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Björg Jóhann-esdóttir fæddist
á Karlsstöðum í
Vöðlavík í Helgu-
staðahreppi hinn
15. júní 1923. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 28. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jóhannes Sig-
fússon, f. 1889, d.
1933, og Valgerður
Arnoddsdóttir, f.
1889, d. 1962.
Systkini Bjargar eru: Aðalheiður
Sigurveig, f. 1910, d. 1985,
Jón, f. 1911, d. 1984, Arnoddur,
f. 1913, d. 1984, Björg, f. 1915, d.
1923, Ágúst, f. 1916, d. 1989, Þor-
björg, f. 1919, d. 1983, Ragnheið-
ur, f. 1921, Sigfús, f. 1924, Hulda,
f. 1926, Gunnlaugur, f. 1926, og
Alexander, f. 1928, d. 1999.
Hinn 28. júlí 1945 giftist Björg
Árnadóttir, f. 24. september 1977.
Börn þeirra eru: Eyþór Ingi og
Eva Lind. Fyrir átti Róbert son-
inn Daníel Aron. d) Jóhann Ingi,
f. 30. nóvember 1982, maki Hjör-
dís Emilsdóttir, f. 19. janúar
1984. Dóttir þeirra er Aþena Ósk.
2) Alexander Vilmarsson, f. 27.
nóvember 1948, maki Lilja Frið-
riksdóttir, f. 23. ágúst 1953. Börn
þeirra eru: a) Friðrik, f. 23. októ-
ber 1972. b) Björg, f. 22. júlí
1975, maki Arinbjörn Þórhalls-
son, f. 4. ágúst 1962. Börn þeirra
eru Alexander og Magdalena. c)
Eyjólfur, f. 3. mars 1981.
Björg ólst upp til tíu ára aldurs
í Vöðlavík. Þá fluttist hún ásamt
móður og systkinum til Keflavík-
ur og þar bjó hún alla tíð síðan.
Björg vann hin ýmsu störf utan
heimilisins ásamt því að sinna
börnum og búi.
Þau hjónin byggðu sér hús við
Tjarnargötu 25 í Keflavík og
bjuggu þau þar allan sinn bú-
skap.
Útför Bjargar verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Vilmari Guðmunds-
syni frá Hafnarfirði,
f. 28.júní 1922. For-
eldrar hans voru
Katrín Margrét El-
ísdóttir, f. 1900, d.
1984, og Guðmundur
Sigurðsson, f. 1894,
d. 1938. Fósturfaðir
Vilmars var Jóhann
Skagfjörð, f. 1892, d.
1976. Börn Bjargar
og Vilmars eru: 1)
Margrét Jóhanna, f.
25. september 1945,
maki Reynir Guð-
jónsson, f. 14. júní 1945. Börn
þeirra eru: a) Guðjón Vilmar, f.
20. febrúar 1966, maki Lilja Jó-
elsdóttir, f. 28.júlí 1965. Börn
þeirra eru Margrét Jóhanna,
Guðrún Rannveig og Reynir. b)
Bryndís Ásta, f. 3. janúar 1970.
Börn hennar eru Viktoría Hrund
og Ragnar. c) Róbert Arnar, f.
15. september 1976, maki Ása
Ljúfsárar minningar hafa leikið í
gegnum huga okkar síðastliðna
daga og við erum enn ekki búin að
átta okkur á því að amma sé dáin.
Amma var ótrúleg kona, smágerð
og pen en krafturinn og dugnaður-
inn í henni var ekki í samræmi við
hið ytra byrði. Meðan heilsan leyfði
gerði amma allt sem þurfti á heim-
ilinu og meira til. Hún var hvorki
sérhlífin né eigingjörn. Amma var
alltaf með fulla dalla af kökum og
öðru bakkelsi. Pönnukökurnar
hennar voru umtalaðar í fjölskyld-
unni, svo þunnar og mátulega
steiktar, garðurinn hjá henni og
afa á Tjarnargötunni alltaf til fyr-
irmyndar, dragtirnar, kjólarnir og
allt sem hún saumaði var ótrúlega
vel gert og vandað í alla staði. Það
sem amma tók sér fyrir hendur var
vel gert og hún lagði metnað sinn í
hvert handtak.
Það var sama á hvaða tíma dags
maður kíkti í heimsókn, alltaf var
tekið á móti okkur með opinn
faðminn og maður fékk það aldrei
á tilfinninguna að maður væri að
trufla. Alltaf var nóg til af öllu og
maður var ekki fyrr sestur en búið
var að koma upp myndarlegu hlað-
borði fullu af kræsingum og amma
stóð við eldavélina búin að hræra
út pönnukökudeig og farin að
steikja pönnukökur.
Það var ömmu mikið hjartans
mál að allir myndu hittast eins og
vaninn var á aðfangadagskvöld og
það var í raun hún sem lagði mest
á sig til að svo gæti orðið. Við er-
um henni ævinlega þakklát fyrir
þetta einstaka kvöld.
Minningin um yndislega konu lif-
ir áfram í hjörtum okkar og yljar
okkur á þessum köldu og myrku
vetrardögum. Megi Guð leiða elsku
afa okkar með styrkri hendi í
gegnum sorgarferlið og umvefja
alla þá sem nú syrgja af öllu
hjarta.
Þegar þú ert sorgmæddur
skoðaðu þá aftur huga þinn,
og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum)
Hinsta kveðja.
Friðrik, Björg og Eyjólfur
Alexandersbörn.
Ég dey og ég veit, nær dauðann að ber.
Ég dey, þegar komin er stundin.
Ég dey, þegar ábati dauðinn er mér.
Ég dey, þegar lausnin mér hentust er
og eilífs lífs uppspretta er fundin.
(Stefán Thor.)
Björg Jóhannesdóttir föðursystir
okkar er látin. Björg frænka var
einstök kona. Hún var hlý, glaðvær
og fádæma mikil mamma, amma,
frænka, systir, félagi og vinur. Í
kringum Björgu var alltaf mikill
gestagangur enda var viðkvæðið
alltaf: „Hvað, ætlið þið ekki að
koma inn?“ sem hún sagði svo
glaðlega með sínu skemmtilega
austfirska málfari. Það voru marg-
ir sem leituðu til hennar og löð-
uðust að henni. Fjölskyldan átti
hug hennar allan. Hún var ein af
ellefu systkinum og fylgdist náið
með afkomendum systkina sinna
allra.
Björg skipaði stóran sess í upp-
vexti okkar systkinanna. Hún pass-
aði okkur ef foreldrar okkar þurftu
að fara í burtu og tók alltaf á móti
okkur opnum örmum eins og við
værum mikilvægustu manneskjur í
heimi. Þegar við vorum lítil börn
komu Björg og Villi eitt sinn sem
oftar í heimsókn rétt fyrir jólin og
gáfu okkur fallegar jólabjöllur.
Þessar jólabjöllur hafa verið og
munu alltaf verða mestu gersem-
arnar sem prýða jólatrén okkar. Ef
okkur vantaði aðstoð við til dæmis
saumaskap þá fórum við til Bjarg-
ar frænku og þegar mikið stóð til í
fjölskyldunni svo sem brúðkaup
eða aðrar veislur þá var Björg mið-
punkturinn í undirbúningnum. Allt
varð fallegt sem hún snerti á.
Á milli Bjargar og pabba var
alltaf mjög náið og gott samband,
eins og hún orðaði það sjálf: „Við
getum ekki án hvort annars verið.“
Hinn 1. september sl. vorum við
systur staddar í Keflavík, á ljósa-
nótt. Það var afmælisdagurinn
hans pabba en hann var staddur á
Vestfjörðum. Björgu fannst ekki
hægt að við fengjum ekki afmæl-
iskaffi, jafnvel þótt afmælisbarnið
væri víðs fjarri. Þess vegna fórum
við í afmælið hans pabba hjá
Björgu, með pönnukökum og tert-
um, og eins og venjulega spurði
hún frétta af fjölskyldunni og
kvaddi okkur síðan með knúsi og
sínum dillandi hlátri. Sú minning
mun fylgja okkur um ókomin ár.
Villa, Grétu, Alla og fjölskyldum
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur, missir þeirra er mikill.
Blessuð sé minning Bjargar.
Valgerður, Sigurbjörg,
Björg og Jóhannes.
Elskuleg amma okkar er dáin.
Okkur finnst erfitt að hugsa til
þess að hún sé ekki lengur meðal
okkar því hún amma var stór hluti
af okkar lífi og fyrirmynd okkar
allra. Amma var dugleg kona og
hugsaði vel um fjölskyldu sína,
vildi öllum vel og gerði aldrei upp á
milli fólks. Þrautseigja hennar kom
bersýnilega í ljós í veikindum
hennar. Þegar við systkinin sitjum
hér saman, lítum til baka og rifjum
upp þá kemur ýmislegt upp í hug-
ann. Á Tjarnargötuna var alltaf
gott að koma og var amma ávallt
með miklar kræsingar á borðum.
Villi man vel eftir steikta stein-
bítnum með lauksósunni, Bryndís
eftir kvöldkaffinu þegar hún gisti
hjá þeim afa og amma lagaði heitt
kakó úr ekta súkkulaði og Róbert
og Jóhann muna eftir ristabrauð-
inu sem amma smurði fyrir þá og
að sjálfsögðu var brauðið hvítt.
Ekki má gleyma „ömmukókinu“ en
það drukkum við með bestu lyst þó
svo að það væri löngu orðið gos-
laust.
Amma var mikil saumakona og
mjög handlagin. Hún var iðin við
að sauma á okkur systkinin föt hér
á árum áður og voru þær mæðgur,
amma og mamma, mjög hug-
myndaríkar hvað saumaskapinn
varðaði. Á okkar yngri árum gerði
amma oft alls kyns fígúrur úr
pappír okkur barnabörnunum til
skemmtunar og afþreyingar. Fí-
gúrur eins og fugla og báta, þetta
kunni enginn nema amma. Hún
kunni líka margar vísur og er vísan
„Fagur fiskur í sjó“ okkur minn-
isstæðust.
Amma fylgdist vel með sínu fólki
og gladdist þegar okkur gekk vel.
Hún vildi vita hvernig okkur vegn-
aði hvort sem var í námi eða hinu
daglega lífi. Hún hafði gaman af að
segja frá og lá ekki á sínum skoð-
unum og sagði hún það sem henni
fannst, var ekkert að fara í kring-
um hlutina.
Nú er amma komin á fallegan
stað og laus við veikindin, í faðmi
ástvina sinna sem tóku á móti
henni. Við erum þakklát fyrir þann
tíma sem við áttum með ömmu og
munum við varðveita minningu
hennar í hjörtum okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð blessi þig elsku amma og
hvíl þú í friði.
Guðjón Vilmar, Bryndís Ásta,
Róbert Arnar og Jóhann Ingi.
Elsku langmamma, nú ert þú hjá
Guði og munt ávallt líta eftir okk-
ur. Þó svo að þú sért farin þá verð-
ur þú alltaf í hjörtum okkar og við
munum aldrei gleyma hversu hepp-
in við vorum að eiga þig fyrir lang-
ömmu.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson)
Þín
barnabarnabörn.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson)
Litlu langömmubörnin
Alexander og Magdalena.
Björg Jóhannesdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ELÍN MARGRÉT SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 28. desember.
Útför hennar fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugar-
daginn 6. janúar kl. 13.00.
Sigríður Birna Birgisdóttir,
Ingibjörg Birgisdóttir,
Sveinbjörn Birgisson,
Sigurjón Halldór Birgisson,
Sævar Birgisson,
Rúnar Birgisson,
tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
✝
Útför elsku, elsku eiginmanns míns, föður okkar,
sonar, bróður, barnabarns, frænda og vinar,
TORFA FREYS ALEXANDERSSONAR,
sem lést miðvikudaginn 13. desember, fer fram frá
Fella- og Hólakirkju mánudaginn 8. janúar kl. 13.00.
Renata Edwardsdóttir,
Karólína Vilborg Torfadóttir,
Hafdís Lilja Torfadóttir,
Alexander Valdimarsson,
Hafdís Lilja Pétursdóttir, Ágúst Guðmundsson,
Bjarki Þór Alexandersson, Elín Jónsdóttir,
Óliver Bjarkason,
Soffía Bæringsdóttir, Helgi Hafsteinsson,
Hlynur Bæringsson, Unnur Edda Davíðsdóttir,
Valdimar Ólafsson, Helga Árnadóttir,
Vilborg Torfadóttir,
frændfólk og vinir.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
FRIÐRIK BJÖRNSSON
bóndi á Gili í Svartárdal,
andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
miðvikudaginn 3. janúar síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Erla Hafsteinsdóttir,
Örn Friðriksson,
Guðríður Friðriksdóttir,
Hafrún Friðriksdóttir,
Sigþrúður Friðriksdóttir,
Björn Grétar Friðriksson,
tengdabörn og barnabörn.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir, barnabarn, barna-
barnabarn og frændi,
JÓN ÆVAR ÁRMANNSSON,
Vallengi 7,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
miðvikudaginn 3. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Elísabet Unnur Jónsdóttir, Ármann Rögnvaldsson,
Steinunn Birna Ármannsdóttir, Ásdís Ósk Ármannsdóttir,
Steinunn Melsted,
Birna F. Óskarsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson,
langömmur, langafar og frændsystkini.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SÖLVÍNA HERDÍS JÓNSDÓTTIR,
Lyngholti,
Ólafsfirði,
síðar dvalarheimilinu Ási,
Hveragerði,
andaðist þriðjudaginn 2. janúar.
Minningarathöfn verður haldin í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í dag,
föstudaginn 5. janúar kl. 13.00. Jarðsungið verður frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 13. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Hjálparstarf kirkjunnar.
Kristján Reykdal,
Guðfinna Ólöf Friðriksdóttir, Gunnar Ágústsson,
Margrét Friðriksdóttir, Einar Gestsson,
Hildur Friðriksdóttir, Gylfi Ólafsson,
Jón Sveinn Friðriksson, Jóna Gunnarsdóttir,
Auður Regína Friðriksdóttir, Sævar Anton Hafsteinsson,
Eygló Friðriksdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.