Morgunblaðið - 05.01.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007 49
menning
Fylgist með umfjöllun um
þessa bók í helgarútgáfunni
á Rás 2, nú á
laugardaginn kl. 11.00
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Helgar
tilboð
3.493,-
Nú þegar bókaflóðinu er ný-lokið er vert að fara aðhuga að þeim erlendu og
innlendu bókum sem eru vænt-
anlegar árið 2007 og munu líklega
rata með okkur í fríið í sumar eða í
jólapakkann eftir ár.
Íslensku forlögin einblína á kilju-útgáfu fyrripart árs. Meðal þýð-
inga sem væntanlegar eru frá Eddu
útgáfu í kilju á komandi mánuðum
eru; Fyrirsætan eftir Lars Saaby
Christensen, Hundehovedet eftir
Morten Ramsland, La Cena Segreta
eftir Javier Serra og Den som blin-
ker er bange for döden eftir Knud
Romer, allt umtalaðar met-
sölubækur víða um heim. Í vor er
væntanleg glæný bók, Two Carav-
ans, eftir Marinu Lewycka, höfund
metsölubókarinnar Stutt ágrip af
sögu traktorsins í Úkraínu, en hún
kemur samhliða út á Íslandi og
Englandi. Tvær nýjar bækur koma
eftir hina vinsælu spennusagnahöf-
unda Michael Connelly og Henning
Mankell, Darkness eftir þann fyrr-
nefnda og Brandvägg eftir þann
síðarnefnda.
Í apríl kemur út bókin Maó. Sag-
an sem aldrei var sögð, margföld
metsölubók um allan heim, eftir
Jung Chang og Jon Halliday. Þá
kemur út mikið verk á þremur
tungumálum um listamanninn
Erró, Erró. Líf og list sem Danielle
Kvaran tekur saman. Nanna Rögn-
valdardóttir er svo að þýða mikið
stórvirki um mat og matargerð sem
er væntanlegt í haust.
Orðabókaútgáfan verður fjöl-
breytt á árinu hjá Eddu m.a Sjón-
ræna orðabókin sem byggist á
myndum og nær yfir fimm tungu-
mál. Þá kemur út Spænsk-íslensk
orðabók. Af öðrum bókum má að
lokum nefna yfirlitsritið, Jörðin,
Gönguleiðabók um Vestfirði eftir
Pál Ásgeir Ásgeirsson og Úrval af
bréfum Halldórs Laxness sem Hall-
dór Guðmundsson tekur saman.
Hjá Bjarti og JPV fengust þærupplýsingar að kiljuútgáfan
verði mjög blómleg fyrripart árs-
ins.
Ýmislegt er á döfinni hjá Sölku
bókaforlagi sem ráðgerir að gefa út
yfir 30 titla á árinu 2007. Fyrstu
bækur ársins verða Horfin inn í
heim átröskunar, bók þar sem Ás-
rún Eva Harðardóttir segir sögu
sína, en hún þjáðist af lystarstoli
frá 9 ára aldri og fram til tvítugs,
og Þórdís Rúnarsdóttir gerir síðan
faglega úttekt á sjúkdómnum.
Einnig mun fljótlega koma út bókin
Heilsulausnir eftir Árna Heiðar Ív-
arsson einkaþjálfara – gott eftir
jólaátið. Salka mun einnig í vor
gefa út bókina Delicious Iceland á
íslensku og matreiðslu- og ferða-
bókina Ferð sælkerans um Frakk-
land eftir Sigríði Gunnarsdóttur.
Ævisaga Vatnsenda-Rósu er einnig
væntanleg og bók um verk Guð-
finnu frá Hömrum. Ný sjálfsrækt-
arbók eftir Barböru Berger, bók
um vatnið og skilaboðin sem í því
leynast og ný lína í lífsstílsbókum
koma líka út.
Á menningarvefsíðu Guardianbirtist á seinasta degi nýliðins
árs listi yfir nokkrar bækur sem
von er á að komi út í Bretlandi á
þessu ári.
Mikið af sögunum fjallar um ástir
og dauða en það virðist vera að vin-
sælasta efnið þetta árið sé stríð.
Norman Mailer glímir við hið illa
í sinni fyrstu skáldsögu í yfir ára-
tug, The Castle in the Forest. Þar
er fjallað um þrjár kynslóðir í Hit-
ler-fjölskyldunni og þá blóðskömm
og eymd sem leiddi til fæðingar
Adolfs litla.
Tveir hafa skrifað sögur sem
gerast á stríðstíma í Wales. Bók
Owen Sheers, Resistance, gerist ár-
ið 1944 þar sem nasistar hafa tekið
yfir hálft Bretland, The Welsh Girl
eftir Peter Ho Davies fjallar síðan
um þrjár persónur á sama tíma.
Day, eftir AL Kennedy byrjar ár-
ið 1949 og lýsir tilraun manns til að
enduruppgötva sjálfan sig fyrir
stríð með því að taka að sér hlut-
verk sem aukaleikari í kvikmynd
um stríðsfanga. Rachel Seiffert
fjallar einnig um stríð í bók sinni
Afterwards þar sem segir frá lífi
konu sem er litað af því að eig-
inmaður hennar neitar að tala um
reynslu sína úr hernum.
Thomas Keneally skrifar um
svipað efni í bók sinni The Widow
and Her Hero, en þar fjallar hann
um tilraun konu til að setja saman
brot úr örlögum eiginmanns síns úr
heimsstyrjöldinni síðari. Henry
Shukman segir sögu Jackson Small
í nýrri skáldsögu sinni, The Lost
City. Hinn ungi Small lendir í því að
besti vinur hans er drepinn á víg-
vellinum og hann sjálfur er dæmd-
ur óhæfur í herinn og fer þá í ferða-
lag inn í frumskóga Perú í leit að
borginni La Joya.
Dave Eggers skrifar skáldævi-
söguna What is the What, frá Helon
Habila kemur Measuring Time, sem
segir sögu tvíburabræðra sem
reyna að flýja ráðríkan föður sinn.
Annar gengur í herinn og lifir sög-
una en hinn skrifar hana.
Etgar Keret gefur frá sér nýtt
smásagnasafn, Missing Kissinger.
Frá hinum þekkta rithöfundi Ian
McEwan kemur bókin On Chesil
Beach, en þar segir hann sögu pars
árið 1962 . Tomorrow eftir Graham
Swift segir frá öðru pari, þrjátíu
árum seinna.
Vert er að fylgjast með fyrstu
skáldsögu Jane Feaver, According
to Ruth. Lionel Shriver hefur það á
báða vegu í The Post-Birthday
World, þar sem söguhetjan er trú
elskulegum eiginmanni sínum í ein-
um heimi meðan hún hleypur á
brott með snókerleikara í öðrum.
Frá Doris Lessing kemur The Cleft
sem segir frá samfélagi kvenna sem
hafa ekki þörf fyrir eða vitneskju
um karlmenn.
Að lokum er það víst í heimi
skáldsagna að árið 2007 verður ár
Harry Potter and the Deathly Hal-
lows eftir JK Rowling.
Í flokki bóka, annarra en skáld-sagna, er von á ýmsu. Frá Ger-
maine Greer kemur bókin Shake-
speare’s Wife sem er endurskoðun
á lífi Anne Hathaway, sem var eig-
inkona William Shakespears, og
vonast Greer til að bókin setji Önnu
á betri stall í sögunni. Victoria Wo-
od hefur síðan tekið saman skoð-
anir sínar um Victoriu drottningu
og kallar bókina Victoria on Vic-
toria.
Pólitískar bækur standa alltaf
fyrir sínu, frá Nick Cohen kemur
bókin What’s Left? þar sem hann
skýrir út hvernig frjálslyndir hafa
misst tilgang sinn. Frá Will Hutton
kemur svo The Writing on the
Wall:China and the West in the 21st
Century og ætti titillinn að útskýra
innihaldið.
Þrátt fyrir minnkandi sölu á
„stóru“ bókunum kemur frá Edw-
ard Pearce bókin The Great Man:
Sir Robert Walpole og frá John
Darwin kemur After Tamerlane:
The Global History OF Emire.
Fleiri bækur tengdar sagnfræði;
Forgotten Wars:The End of Brita-
ińs Asian Empire eftir Christopher
Bayly og Tim Harper, Wash-
ington’s War eftir Sir Michael Rose
og A Savage Kingdom: Virginia
and the Founding of English Am-
erica eftir Benjamin Woolley.
The First Total War eftir David
A Bell fjallar um Napóleonstríðið
og Inferno: The Devastation of
Hamburg eftir Keith Lowe fjallar
um nýja grein hryllingsmynda.
Sjálfshjálpabækur standa alltaf
fyrir sínu, Terry Eagleton skrifaði
The Meaning of Life og Bryan App-
leyard fjallar um hugmyndir um
ódauðleika í How to Live Forever
or Die Trying.
Einnig kemur út bókin The Cu-
artain eftir Milan Kundera, nýtt rit
um lífið, listina og skáldskapinn.
Von er á ævisögu tónlistarmannsins
Prince í meðförum Brian Morton,
eins sem Hermione Lee skrifaði
ævisögu Edith Wharton.
ingveldur@mbl.is
Stríð, sjálfshjálp og sagnfræði 2007
Morgunblaðið/Jim Smart
Örlögin? Bækur 2006 munu nú víkja fyrir nýjum bókum árið 2007 og jafn-
vel enda í hrúgu í fornbókabúðum fyrr en þær grunar.
Ingveldur Geirsdóttir
» Að lokum er það vístí heimi skáldsagna að
árið 2007 verður ár
Harry Potter and the
Deathly Hallows eftir
JK Rowling.
AF LISTUM
Tveir nætur-klúbbar í
Flórída-ríki í
Bandaríkjunum
hafa ákveðið að
hætta samstarfi
við hótelerfingj-
ann Paris Hilton
en klúbbarnir
heita Club Paris
og eru nefndir eftir hótelerfingj-
anum. Að sögn eiganda klúbbanna,
Fred Khalilian, sagði hann upp
samningi við Paris Hilton þar sem
hún hefði ekki staðið við gerðan
samning um að mæta í klúbbana. Tók
hann sem dæmi að hún hefði mætt
sex tímum of seint á opnun annars
klúbbsins fyrir tveimur árum.
Hann ætlar þó ekki breyta nafni
þeirra enda segir hann næturklúbb-
ana gífurlega vinsæla en annar þeirra
er í miðborg Orlando og hinn er í
Jacksonville. Ætlar hann að koma af
stað samkeppni um hver verði nýtt
andlit Club Paris.
Hafa sumir sagt þessa ákvörðun
klúbbeigandans vera upphafið að
endinum fyrir Paris Hilton því að
þrátt fyrir gífurlega frægð djammd-
rottningarinnar séu vinsældir hennar
hvergi nærri jafn miklar. Stutt er síð-
an Britney Spears sleit vinskap sín-
um við hótelerfingjann vegna þess að
hún taldi að vináttan hefði slæm áhrif
á hennar eigin orðspor og á dögunum
heimsótti Paris svo barnaspítala í
þeim tilgangi að bæta ímynd sína sem
er orðin slæm, svo ekki sé meira sagt.
Fólk folk@mbl.is