Morgunblaðið - 13.01.2007, Side 6

Morgunblaðið - 13.01.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is RANNVEIG Traustadóttir prófess- or hlaut í gær hvatningarverðlaun í minningu Ástu B. Þorsteinsdóttur, alþingismanns og fyrrverandi for- manns Landssamtakanna Þroska- hjálpar. Í minningu Ástu verða ár- lega einstaklingi, félagasamtökum eða stofnun veitt hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi starf sem stuðl- ar að þátttöku fatlaðs fólks í sam- félaginu til jafns við aðra. Í þakkarræðu sinni sagði Rann- veig það sérstakan heiður að fá verð- launin og hún væri afar hrærð yfir því. Hún sagði Ástu hafa verið ein- staka baráttu-, hugsjóna- og athafna- konu sem ætti engan sinn líka. „Það er stundum sagt að maður komi í manns stað og ég held að það geti verið rétt í einhverjum tilfellum. En það er ekki alltaf rétt vegna þess að stundum stíga fram einstaklingar á áveðnum sviðum sem hafa þá gæfu eða þann gjörvuleika til að bera að vera sérstakir leiðtogar, talsmenn, baráttumenn og ímynd fyrir ákveð- inn málstað, geta orðað hann og hrif- ið aðra með sér með sérstökum hætti. Ásta var þannig mannseskja í okkar málaflokki.“ Sérstök þriggja manna úthlut- unarnefnd, skipuð Friðriki Sigurðs- syni, framkvæmdastjóra Þroska- hjálpar, Stefáni Hreiðarssyni, forstöðumanni Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar ríkisins, og Svanfríði Larsen kennara, sá um valið og að sögn Stefáns varð nefndin mjög fljótt sammála um hver skyldi hljóta þau. „Þegar ferill Rannveigar er skoð- aður er ljóst að upphafleg störf henn- ar eru í starfi með fólk með fötlun. Hún lauk þroskaþjálfaprófi frá Þroskaþjálfaskóla Íslands árið 1969 og næsta rúma áratuginn vann hún á ýmsum stofnunum fatlaðra og á leik- skóla og kynntist því af eigin raun að- búnaði þeirra og lífi,“ sagði Stefán en auk þess lauk Rannveig prófi í upp- eldisfræði og stjórnun frá Social- pedagogisk højskole í Kaupmanna- höfn og BA-prófi í félagsfræði frá HÍ 1985. Hún lauk síðan doktorsprófi á sviði fötlunarfræða frá Syracuse- háskólanum í New York-ríki árið 1993. Vorið 2006 var Rannveig ráðin forstöðumaður nýstofnaðs Rann- sóknarseturs í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. „Kynntist því af eigin raun aðbúnaði fatlaðra og lífi“ Verðlaun afhent í minningu Ástu B. Þorsteinsdóttur Morgunblaðið/Kristinn Afhending Fjölskylda Ástu afhenti verðlaunin. F.v.: Þorsteinn og Ásdís Jenna, börn hennar, Rannveig og Ástráður Hreiðarsson, eiginmaður Ástu. FULLTRÚAR Hafrannsóknastofn- unar gerðu í gær tilraun til þess að taka sýni, mæla hita, seltu og súrefni í sjónum ásamt því að mynda á hafs- botni Grundarfjarðar í gær, en urðu frá að hverfa vegna veðurs. Að sögn Héðins Valdimarssonar, haffræð- ings hjá Hafró, verður gerð önnur tilraun til sýna- og myndatöku eftir helgi. Segist hann vonast til þess að komast megi að því hvað olli því að um 20 tonn af þorski í þorskeldi sjáv- arútvegsfyrirtækisins Guðmundar Runólfssonar drápust fyrir skömmu. Að sögn Þorsteins Sigurðssonar, sviðsstjóra nytjastofnasviðs Hafró, er unnið eftir tveimur tilgátum. Annars vegar að gríðarlegt magn af síld hafi valdið súrefnisskorti í sjón- um og þar með dauða þorsksins, en hins vegar að brennisteinssambönd tengd eldinu hafi valdið eitrun. Að- spurður segir hann vel þekkt að ís- lenska síldin gangi inn firði og hafi þar vetursetu. Bendir hann á að sjór- inn sé kaldari inni í fjörðum. „Með þessu móti reynir síldin að kæla sig til að draga úr efnaskiptum meðan hún er að bíða eftir vorkom- inni,“ segir Þorsteinn. Rannsóknum frestað Morgunblaðið/Alfons Vont veður Sérfræðingar Hafró sigldu með Munda SH, sem er notaður í eld- iskvíarnar hjá Guðmundi Runólfssyni, í því skyni að kanna fiskidauðann. AÐ sögn Sturlu Böðvarssonar sam- gönguráðherra liggur á þessari stundu ekki ljóst fyrir hver muni bera kostnað af færslu Reykjanes- brautar komi til stækkunar álversins í Straumsvík. „Ég tel að það sé ekki tímabært að taka neina afstöðu til málsins fyrr en búið er að kjósa um þetta og fyrir liggur hvað verður,“ segir Sturla og tekur fram að hann sjái fyrir sér að fulltrúar ríkisins, Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og álversins í Straumsvík fundi um málið fljótlega eftir að niðurstaða kosninganna liggi fyrir. „Það þarf að fara yfir þetta, því bæði snýst þetta um endanlega legu vegarins, skipulag, framkvæmd og kostnað,“ segir Sturla og tekur fram að nær undantekningarlaust beri ríkið kostnað af endurbyggingu stofnbrauta á borð við Reykjanes- braut. Aðspurður segist Sturla hafa full- an skilning á því að Hafnarfjarðar- bær vilji ekki greiða kostnað af færslu. Tekur hann fram að sér finnist hins vegar ekki útilokað að álverið í Straums- vík taki með ein- hverjum hætti þátt í verkefninu. Bendir hann jafn- framt á að þekkt sé að ríkið hafi lagt sitthvað til vegna umfangsmikillar uppbyggingar atvinnufyrirtækja. „Það kann að vera að forsvarsmönn- um ríkisins finnist eðlilegt að ríkið greiði alfarið þessa færslu og það sé þá liður í því að liðka um þessa fram- kvæmd. Þannig að það kann vel að vera að það verði niðurstaðan, en ég tel ekki ástæðu til þess að gefa neina yfirlýsingu um það af hálfu sam- gönguráðuneytisins,“ segir Sturla. Vill bíða niður- stöðu kosninga Óljóst hver beri kostnað af færslu Sturla Böðvarsson Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is RÁÐGJAFAR Félags heyrnarlausra gerðu nýlega tillögur til félagsmála- ráðuneytis um aðgerðir til stuðnings þeim sem óhjákvæmilega myndu leita til félagsins eftir að niðurstöður rann- sóknar á kynferðislegu ofbeldi í sam- félagi heyrnarlausra yrðu kynntar. Þar var bæði átt við þolendur slíks of- beldis og þá sem hefðu orðið vitni að því. Sem kunnugt er hafa Rannsóknir og greining, í samvinnu við Félag heyrnarlausra og félagsmálaráðu- neytið, unnið að rannsókninni og birt bráðabirgðaniðurstöður þar sem fram kemur m.a. að þriðjungur svar- enda hafi orðið fyrir slíku ofbeldi. Samkvæmt upplýsingum frá Þór Jónssyni, upplýsingafulltrúa félags- málaráðuneytisins, hafði ráðuneytið forgöngu um að Félag heyrnarlausra fengi styrk til að láta gera könnunina. Ráðuneytið hefur átt fundi með fulltrúum félagsins og beðið um hug- myndir um aðkomu stjórnvalda, eða annarra að verkefnum, þjónustu eða úrræðum sem niðurstöður könnunar- innar gætu gefið tilefni til. Ráðuneyt- ið segir að í því sambandi beri að taka tillit til þess að í mörgum tilvikum sé um að ræða atburði sem gerðust fyrir mörgum árum og áratugum. Ráðgjafar félagsins leggja m.a. til að aðgengi heyrnarlausra að ráðgjöf- um verði eflt. Tveir ráðgjafar starfa hjá félaginu, fíkni- og fjölskylduráð- gjafi í hálfu starfi og ráðgjafi og upp- lýsingafulltrúi í fullu starfi. Talið er að hugsanlega þurfi að bæta við fagaðil- um tímabundið. Tryggja þarf að fólk geti sótt ráðgjöfina annað en í hús- næði Félags heyrnarlausra því mörg- um muni þykja óþægilegt að geta ekki komið öðruvísi en að aðrir fé- lagsmenn séu á staðnum. Mikilvægt er að efni skýrslunnar verði kynnt í litlum hópum í samfélagi heyrnarlausra og brýnt fyrir félags- mönnum að leita sér aðstoðar telji þeir hennar þörf. Eins er talið nauð- synlegt að starfsmenn félagsins geti aðstoðað fjölskyldur heyrnarlausra og að félagsmenn, t.d. þeir sem búa úti á landi, geti leitað til ráðgjafa með hjálp tölvusamskipta. Tillögur um aukna ráð- gjöf fyrir heyrnarlausa Í HNOTSKURN »Til greina kemur aðstyrkja starfsemi Stíga- móta til að annast heyrn- arlausa þolendur kynferðisof- beldis. » Talin er mikil þörf á öfl-ugu forvarnarstarfi og er m.a. horft til menntunar starfsfólks í forvörnum. SKIPTUM er lok- ið á dánarbúi Ás- rúnar Ein- arsdóttur, ekkju Arons Guð- brandssonar, sem jafnan var kenndur við Kauphöllina. Þeim hjónum varð ekki barna auðið og í erfða- skrá sinni gengu þau frá sínum mál- um á þann veg að eigur þeirra skyldu renna til góðgerðarfélaga og rannsóknarstarfa. Í samræmi við erfðaskrána hefur um 43,5 millj- ónum króna verið skipt á milli sex aðila. Krabbameinsfélag Íslands fær 15% upphæðarinnar eða sem svarar 6,525 milljónum, Styrktarfélag van- gefinna fær líka 15%, Blindravina- félag Íslands 15%, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 15%, Krabba- meinsdeild Landspítalans fær 20% eða sem samsvarar 8,7 milljónum til eflingar á krabbameinslækningum og Háskóli Íslands fær 20% til rann- sókna á hvítblæði. Styrkja rannsókn- arstarf Aron Guðbrandsson HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest farbann yfir kínverskum starfs- manni Impregilo vegna líkamsárás- ar sem átti sér stað í aðgöngum 2 á Kárahnjúkum 1. janúar síðastlið- inn. Manninum er bönnuð för frá Íslandi þar til máli hans er lokið en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 30. janúar næstkomandi. Samkvæmt rannsóknargögnum lögreglu liggur fyrir rökstuddur grunur um að maðurinn hafi fram- ið verknaðinn. Hann hefur játað fyrir lögreglu og dómi en ber fyrir sig að um sjálfsvörn hafi verið að ræða. Maðurinn hefur ekki verið ákærður en svo virðist sem árásin hafi verið tilefnislaus og hrottaleg. Maðurinn lagði til vinnufélaga síns með hnífi og hlaut fórnarlambið tveggja cm breiðan og þriggja cm djúpan skurð á nýrnastæði á hægri síðu. Manninum hefur verið sagt upp störfum hjá Impregilo í samræmi við starfsmannastefnu fyrirtækis- ins og að mati lögreglu megi því gera ráð fyrir að hann reyni að komast undan frekari rannsókn málsins og til Kína. Bönnuð för frá Íslandi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.