Morgunblaðið - 13.01.2007, Síða 19

Morgunblaðið - 13.01.2007, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 19 MENNING KVIKMYNDIN Drottningin (The Queen) hefur hlotið flestar tilnefn- ingar til kvikmyndaverðlauna Bresku kvik- mynda- og sjón- varpsakademí- unnar (BAFTA) í ár. Alls hlýtur myndin tíu til- nefningar en á hæla hennar kemur James Bond-myndin Casino Royale með níu tilnefningar, þar á meðal er Daniel Craig tilnefndur fyrir besta leik í aðalhlutverki. Æv- intýramyndin Pan’s Labyrinth hlýt- ur átta tilnefningar, Babel sjö og myndirnar Little Miss Sunshine, The Departed og United 93 sex hver. Drottningin er bæði tilnefnd sem besta mynd nýliðins árs og besta breska myndin. Þá er Helen Mirr- en tilnefnd sem besta leikkona í að- alhlutverki og Stephen Frears fyrir leikstjórn. Sextugasta verðlaunahátíðin Verðlaunahátíðin fer fram í kon- unglegu óperunni í Covent Garden í London þann 11. febrúar nk. Þar keppir Helen Mirren um hin eft- irsóttu verðlaun við leikkonurnar Judi Dench (Notes on a Scandal), Penélope Cruz (Volver), Meryl Streep (The Devil Wears Prada) og Kate Winslet (Little Children). Keppinautar Daniels Craigs eru hins vegar Richard Griffiths (The History Boys), Peter O’Toole (Ven- us), Leonardo DiCaprio (The De- parted) og Forest Whitaker (The Last King of Scotland). Auk Frears eru Martin Scorsese (The Departed), Alejandro Gonzál- ez Iñárrito (Babel), Paul Green- grass (United 93) og hjónin Jonath- an Dayton og Valerie Faris (Little Miss Sunshine) tilnefnd fyrir leik- stjórn. Þetta er í sextugasta sinn sem verðlaunin verða afhent. Leikarinn og rithöfundurinn Stephen Fry mun ekki vera kynnir eins og und- anfarin sex ár. Tilnefnt til BAFTA Hinn nýi James Bond meðal tilnefndra Daniel Craig Tíu tilnefningar The Queen. ÚTLIT er fyrir að Peter Jackson komi hvergi ná- lægt gerð mynd- ar eftir sögu J.R.R. Tolkiens, Hobbitanum. Undirbúningur að myndinni er kominn vel á veg. Bob Shaye, einn yfirmanna fyrirtækisins, þvertekur fyrir að starfa með leikstjóranum. Shaye ber Jackson ekki vel söguna, segir hann nú þegar hafa þegið um 250 milljónir dala fyrir störf sín, en hann vilji enn meira og hafi höfðað mál gegn New Line Cinema án þess að reyna nokkrar viðræður fyrst. Segir Shaye að Jackson muni aldrei gera kvikmynd fyrir New Line Cinema meðan hann starfi þar. Jackson segist harma að hann fái ekki að leikstýra myndinni. Jackson útilokaður Peter Jackson SÍÐASTLIÐINN sunnudag hófst á Rás 2 endurflutningur á sjö þátta seríu um bandaríska tónlistarmanninn Bob Dylan frá árinu 1989. Þættirnir, sem eru á dagskrá á sunnudags- kvöldum klukkan 20, eru í um- sjón Megasar. Þar rekur Meg- as ævi og tónlistarferil Dylans, fer m.a. yfir hljómplötur tón- listarmannsins, ræðir þá þætti í ævi hans sem höfðu áhrif á tónlistarsköpun hans og minnist á þau fjölmörgu hljómleikaferðalög sem hann lagði í. Þess má geta að fyrr í vetur voru endurfluttir þættir sem Megas gerði um Elvis Presley. Útvarp Megas fjallar um Bob Dylan Megas KLUKKAN 14 í dag opna þær Anna-Katharina Mields og Jóna Hlíf Halldórsdóttir sýn- inguna Flying saucer? á Café Karólínu á Akureyri. Þær stöll- ur hafa unnið áður saman og settu upp sýningu í Berlín í desember 2006. Sýningin á Karólínu er innsetning sem samanstendur m.a. af mynd- bandsverki, ljósmyndum, mál- verkum, texta, og skúlptúrum. Anna-Katharina Mields er fædd í Berlín 1976 og býr í Glasgow og Jóna Hlíf Halldórsdóttir er fædd 1978 í Reykjavík og býr einnig í Glasgow. Sýningin stendur til 2. febrúar. Myndlist Jóna og Mields á Karólínu Flying saucer? Á MORGUN klukkan 15 hefjast að nýju eftir hlé, hin- ar vikulegu kvikmyndasýn- ingar MÍR á sunnudögum. Þá verður sýnd í salnum á Hverfisgötu 105 rúmlega 70 ára gömul kvikmynd sem byggð er á hinni frægu skáldsögu Lévs Tolstoj, Önnu Karenínu. Með titilhlutverkið fer engin önnur en Greta Garbo. Það er m.a. í ljósi þess að Tolstoj og verk hans voru til kynningar á skáldakvöldi MÍR í desember að þessi gamla kvikmynd er sýnd nú. Aðgangur að bíósýningum MÍR er ókeypis. Kvikmyndir Greta Garbo leikur Önnu Karenínu Greta Garbo Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is KVIKA nefnist sýning á íslenskri samtímahönnun sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum á Listahátíð í Reykjavík 19. maí næstkomandi. Þetta er ein viðamesta sýning sem sett hefur verið upp á íslenskri samtímahönnun og spannar svið hennar ótal víddir hönnunar, svo sem húsgögn, fatnað, ljós, skart- gripi, byggingarlist, vefnað, tækni- nýjungar og matargerð. „Sýningin tekur á íslenskri hönn- un í dag og framsetning hennar verður óhefðbundin. Þetta verður ekki hin venjulega stöplasýning heldur skapa verkin umhverfið og við fáum að upplifa þau eins og þau eru,“ segir Guðrún Lilja Gunn- laugsdóttir hönnuður sem er jafn- framt sýningarstjóri Kviku. Ekki er komið á hreint hversu margir hönnuðir sýna á Kjarvals- stöðum en Guðrún Lilja segir þá a.m.k verða fimmtíu. „Þar sem þetta er sýning á því sem gerist í hönnun í dag, en ekki sögusýning, verður mikið af ungum hönnuðum þarna en auðvitað líka verk eldri starfandi hönnuða. Þegar ég byrjaði að skipuleggja þessa vinnu hugsaði ég hvernig sýningu ég sjálf vildi sjá og valdi hönnuðina með tilliti til þess en ég vildi sjá það sem gerist í dag og vel verkin eftir því, tilfinningu og heiðarleika.“ Áhugi frá útlöndum Á sýningunni verða einnig kynnt nýsköpunarverkefni fimm reyndra og óreyndra hönnuða sem verða unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Að sögn Guðrúnar Lilju verða þar hönnuðirnir Ninna Þórarins- dóttir sem hefur hannað kjól fyrir sýninguna, Páll Einarsson sem er með verk er nefnist Straumrof, Sig- ríður Heimisdóttir sem hefur hann- að ljós sem nefnist Norðurljós, Unnur Friðriksdóttir sem hefur hannað töskur fyrir Kviku og Þór- unn Árnadóttir sem hannaði ofn sem er einskonar æðakerfi hús- næðis. „Mér finnst mjög mikilvægt að koma þessum nýsköpunarverk- efnum inn á sýninguna líka því hvatningin skiptir svo miklu máli, það er ekkert til sem heitir vitlaus hugmynd.“ Kviku verður fylgt úr hlaði með vandaðri bók um íslenska sam- tímahönnun og efnt verður til fræðslu- og fyrirlestradagskrár á sýningartímabilinu. „Bókina prýða myndir af gripunum á sýningunni og umfjöllun um hönnuðina auk þess sem nokkrir aðilar koma að með greinarskrif.“ Spurð hvort hönnun eigi heima á Listahátíð segir Guðrún Lilja hik- laust já og bætir við að það séu engin mörk lengur á milli listar og nytjahluta. Heyrst hefur að nokkur áhugi sé erlendis frá á sýningunni og stað- festir Guðrún Lilja það en segir ekkert ákveðið ennþá með það hvort sýningin fari eitthvað annað eftir Kjarvalsstaði. Mikill byr er í seglunum hjá ís- lenskum hönnuðum um þessar mundir og segir Guðrún Lilja svona hönnunarsýningu þurfi að halda á nokkurra ára fresti hérlendis enda sé mikið að gerast í íslenskri sam- tímahönnun. Yfirgripsmikil sýning á íslenskri samtímahönnun á Listahátíð í Reykjavík í vor Kraftur í kviku hönnunar Kvika Skór eftir Egil Kalevi Karlsson sem verða á sýningu íslenskrar sam- tímahönnunar á Kjarvalsstöðum í vor í tengslum við Listahátíð. SKRIFAÐ var undir samstarfs- samning milli Listasafns Reykjavík- ur og Straums Burðaráss í gær vegna Kviku sem iðnaðar- og við- skiptaráðuneytið styrkir einnig. Að sögn Hafþórs Yngvasonar, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, er sýningin samvinnuverkefni. „Hér tengjast list og iðnaður, einkafyrirtæki og opinberar stofn- anir. Hönnun snertir okkur öll, hver sem við erum og hvar sem við erum. Við getum öll sameinast um mikilvægi hennar og mikilvægi þess að umhverfi okkar sé skap- andi,“ sagði Hafþór við undirskrift- ina. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Straums Burðaráss, sagði að það væri þeim sönn ánægja að taka þátt í Kviku. „Þar er á nútímalegan hátt tekinn púlsinn á því besta í íslenskri hönnun í dag, sérstaða hennar í hugmyndafræði- og efnislegu sam- hengi skoðuð og kraumandi kviku sköpunarkraftsins leyft að njóta sín,“ sagði Friðrik. Samvinna FJÓRÐA árið í röð fagnar Salon- hljómsveit Sigurðar Ingva Snorra- sonar nýju ári með glæsilegum Vín- artónleikum í Salnum. Tónleikarnir fara fram í dag og eru hluti af Tí- brár-tónleikaröðinni. „Okkur finnst feikilega skemmti- legt að spila á þessum tónleikum,“ segir Sigurður Ingvi um tónleikana sem aðeins eru haldnir einu sinni í Salnum en síðastliðinn sunnudag var sveitin í Laugarborg í Eyjafirði og á morgun verður hún í Keflavík. „Fyrir hlé spilum við nær ein- göngu verk eftir Johann Strauss en eftir hlé eru leikin verk eftir aðra Vínarmeistara í bland. Við erum líka með þekktar aríur og dúetta úr þekktum óperettum.“ Ásamt Salonhljómsveitinni koma fram hjónin Hanna Dóra Sturludótt- ir sópran og Lothar Odinius tenór. „Við höfum alltaf fengið mjög góða söngvara með okkur og erum nú í fyrsta skipti með tvo söngvara sem koma alla leið frá Berlín. Hanna Dóra varð fyrsta söngkonan til að koma fram með Salonhljómsveitinni fyrir þremur árum á þessum sömu nýárs- tónleikum.“ Mikið framundan Salonhljómsveit Sigurðar Ingva er skipuð átta tónlistarmönnum; fiðlu- leikaranum Sigrúnu Eðvaldsdóttur, sem leikur einleik og er jafnframt konsertmeistari hljómsveitarinnar, Pálínu Árnadóttur fiðluleikara, Bryn- dísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, Hávarði Tryggvasyni kontrabassa- leikara, Martial Nardeau flautuleik- ara, Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara, Pétri Grétarssyni slag- verksleikara, og klarínettuleik- aranum og hljómsveitarstjóranum Sigurði Ingva Snorrasyni. „Ég er mjög stoltur af þessari hljómsveit, hún er skipuð einvala liði fólks sem er gaman og ánægjulegt að vinna með.“ Fyrir utan Vínartónleikana er ým- islegt framundan hjá Sigurði Ingva. „Ég er t.d. að undirbúa stórt verkefni vegna 200 ára afmælis Jónasar Hall- grímssonar í haust. Ég verð með dagskrá með lögum Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar og mun ferðast með hana víða á afmæl- isárinu,“ segir Sigurður Ingvi að lok- um. Nýárstónleikarnir hefjast í Saln- um kl. 16 í dag, laugardag. Einvala lið Morgunblaðið/Ómar Tíbrá Salonhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar leikur í Salnum í dag. Tónleikar | Salonhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar heldur Vínartónleika ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.