Morgunblaðið - 13.01.2007, Page 35

Morgunblaðið - 13.01.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2007 35 sauðþrá. En veistu, ég held að það sé bara í góðu lagi, það er nú ekkert slæmt að vera lík þér. Elsku afi, það verður erfitt að koma heim í Gil og þú verður ekki þar, en ég skal vera sterk, fyrir þig. Þú varst alltaf svo stoltur af mér, sama hvað ég gerði. Ég naut mikilla forréttinda að fá að alast upp að miklu leyti í svona mikilli nálægð við þig, ömmu og allt þetta góða fólk sem var á Gili. Það er ómetanlegt. Þú hafðir yndi af söng og kom það stundum fyrir að við rauluðum sam- an, einkum í skemmtilegum heið- arferðum með ömmu. Þú hafðir gaman af hestum, sérstaklega á yngri árum, og þú studdir mig alltaf hversu oft sem ég datt. Mér er það minnisstætt núna síðastliðið haust þegar við vorum að fara að smala heima á Bergsstöðum og þú baðst mig að koma aðeins inn að tala við þig. Svo baðstu mig að passa hana ömmu, Reykur væri stundum óþekkur við hana. Já, ég skal passa ömmu, alltaf. Sama dag þegar við komum heim, vorum við bara tvö inni og síðan sagði þú að ég mætti eiga brúna hestinn, hann Gust, ég væri líklegust til þess að gera eitt- hvað með hann, þetta væri víst góð- ur hestur. Afi var afar fjárglöggur maður og lifði mikið fyrir kindurnar sínar. Voru þær ófáar ferðirnar sem við fórum saman að líta eftir þeim upp á fjall. Daginn sem þú fórst frá okkur var ég á leiðinni á Akureyri í skól- ann. Þegar ég fór inn og kvaddi þig tókst þú um höndina mína og sagðir: „Gangi þér allt vel, elskan mín“. Ég gerði mér enga grein fyrir af hverju þú vildir ekki sleppa hendinni minni. Afi, ég skal lofa að koma oft í heimsókn til þín og syngja fyrir þig. Þín, Erla Rún. Nú er lífsgöngu mágs míns, Frið- riks á Gili, lokið. Öll verðum við hlíta þeim æðsta dómi að eitt sinn skal hver deyja. Það má segja að Gil hafi verið mitt annað heimili frá fjórtán ára aldri eða frá því að Erla systir mín fluttist þangað. Mér er það mjög minnisstætt þegar ég heimsótti systur mína þangað fyrst, er ég fór þá á reiðhjóli frá Gunn- steinsstöðum, hversu hlýlega Friggi tók á móti mér. Þannig hafa móttök- urnar alltaf verið alla tíð síðan og nú seinast um síðustu jól. Mikill gesta- gangur hefur alltaf verið á Gili og voru þau hjón mjög samhent í að taka vel á móti fólki og áttu menn auðvelt með að gleyma sér á spjalli við húsráðendur. Í heimsóknum mínum á Gili var oft gripið í spil og spilað brids. Var þá gjarnan hringt í nágrannana til þess að það yrði spilafært. Friggi var mjög athugull spilamaður og má segja að hann hafi verið sérfræðingur í að vinna þrjú grönd á lítil spil. Eins og fram hefur komið var Friggi mjög félagslyndur maður og starfaði t.d. um áratuga skeið með Karlakór Bólstaðarhlíð- arhrepps. Þar naut hann virðingar fyrir að vera góður félagi og söng- maður. Einnig var hann áhugamað- ur um Veiðifélag Blöndu og Svartár og var þar meðal annars lengi í stjórn. En fyrst og síðast var hann bóndi af lífi og sál, hafði glöggt auga fyrir skepnum og hugsaði vel um þær. Nú þegar komið er að leið- arlokum vil ég þakka fyrir sam- fylgdina og bið góðan Guð um að styðja systur mína til að takast á við lífið. Stefán Hafsteinsson. Vorið 1956 var ég sendur í sveit norður í land. Á þeim árum tíðkaðist að senda borgarbörnin til dvalar í sveit á sumrin þegar hlé var gert á skólastarfi. Foreldrar leituðu með tilstyrk ættingja og vina að sveita- heimili sem væri tilbúið til að taka við krakkanum. Tilgangurinn var líklega að þroska barnið með því að láta það kynnast verkmenningu sveitanna, ekki síst við umönnun og nýtingu skepnanna. Svo var líka tal- ið vænlegt fyrir ungmennið að láta það standa svolítið á eigin fótum fjarri foreldrum sínum svona eins og sumar í senn. Ég var átta ára þetta sumar. For- eldrar mínir þekktu sjálfir ekki fólk- ið á bænum, sem ætlaði að leyfa mér að vera, og þá ekki ég sjálfur. Mér var komið upp í flutningabíl sem var á leið norður í land og bíl- stjóranum sagt að hann ætti að setja mig úr á þjóðveginum við Ból- staðarhlíð, rétt áður en farið væri upp á Vatnsskarðið milli Húnavatns- sýslu og Skagafjarðar. Þangað yrði ég sóttur. Þetta gekk eftir. Ég stóð á hlaðinu við Bólstaðarhlíð með töskuna mína og þangað kom drátt- arvél frá bænum, þar sem ég átti að dveljast næstu þrjá mánuði eða svo, Gili í Svartárdal, og sótti mig. Sjálfsagt kannast margir Íslend- ingar, sem komnir eru á miðjan ald- ur, af eigin raun við að hafa verið í sveit á sumrin, eins og það var nefnt. Oft renndu foreldrar blint í sjóinn þegar leitað var eftir sveita- heimili í þessu skyni. Ekki voru allir jafnheppnir. Ég var heppinn. Fólkið á Gili í Svartárdal reyndist vera af- bragðsfólk. Ég var hjá Birni Jóns- syni bónda og konu hans Sigþrúði Friðriksdóttur. Þá hafði Friðrik son- ur þeirra einnig hafið búskap á jörð- inni á móti foreldrum sínum. Ég var fjögur sumur í sveit á Gili. Mér er ljóst að tilgangurinn með að senda mig þangað náðist. Alla tíð síðan hef ég búið að reynslunni sem ég fékk þar. Þá mynduðust líka vináttubönd við fólkið á bænum sem hafa haldist síðan. Seinni árin mín á Gili var Friðrik bóndi farinn að draga sig eftir heimasætu frá Gunnsteinsstöð- um í Langadal, Erlu Hafsteinsdótt- ur, sem nú syrgir bónda sinn. Ein- stök mannkostakona. Þegar ég var í sveit á Gili stóðu bæjarhúsin upp undir fjallinu í aust- anverðum dalnum. Þetta var sveita- bær í hefðbundnum stíl með fjórum burstum, tvær þær elstu voru úr torfi, ein þiljuð með viði og sú nýj- asta uppsteypt. Búskaparhættir voru ættaðir úr fortíðinni. Eina hey- vinnuvélin var rakstrarvél, sem ým- ist var dregin af hrossum eða hengd aftan í dráttarvélina á bænum. Þar sem tún voru óslétt var slegið með orfi og ljá. Heyinu var snúið með hrífum og svo tekið saman að miklu leyti með höndunum. Það var sett í sátur og svo dregið í böndum heim í hlöðu, annaðhvort með hestum eða dráttarvél. Beljurnar voru mjólkað- ar með höndunum í fötur og þaðan var mjólkinni hellt í brúsa. Þeir voru kældir í köldu vatni bæjarlækjarins. Fáum árum eftir að ég var síðast í sveit á Gili brann gamli bærinn. Nýtt íbúðarhús var þá reist niðri við veginn sem liggur fram dalinn. Þá varð mikil breyting á bæjarbragnum í einu vetfangi. Á þeim árum sem liðin eru frá því ég var þarna í sveit hef ég fylgst með því hvernig þessi fjölskylda á Gili hefur dafnað. Friðrik og Erla eignuðust fimm börn. Þau eru öll löngu flutt að heiman; aðeins Sig- þrúður býr nú í Svartárdalnum, á Bergsstöðum, ásamt bónda sínum Guðmundi Guðbrandssyni og börn- um. Við hjónin höfum reglulega í gegnum árin átt áfangastað í Svart- árdalnum. Ég veiddi raunar í Svartá um margra ára skeið. Þá var fastur viðkomustaður á Gili. Svo var líka oft annars, þegar við áttum leið um sveitina. Nokkur barna okkar hafa fengið að dvelja um tíma á sumrin hjá þessu góða fólki, þó að ekki hafi þá tíðkast að hafa dvölina svo langa sem fyrr var raunin. Þegar komið var að Gili voru einatt aðrir gestir þar fyrir, ýmist fólk úr sveitinni eða lengra að komnir, skyldmenni eða vinir. Það var eins og borðkrókurinn framan við eldhúsið í bænum væri eins konar samkomustaður. Þar var margt skrafað. Friðrik vinur minn var dæmigerð- ur íslenskur bóndi. Hann hafði lifað tímana tvenna í búskapnum og var af kynslóð sem upplifði meiri breyt- ingar í búskaparháttum en aðrar á undan henni. Þetta mótaði hann og þroskaði. Hann var greindur og vel heima á mörgum sviðum. Hann þorði að hafa ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Þó að hann hefði lengstan hluta ævi sinnar búið á sama blettinum við sömu störfin var hann víðsýnn og hafði hæfileik- ann til að sjá og skilja sjónarmið annarra. Þá skipti engu máli hvar menn höfðu skipað sér á bekk hinna íslensku stjórnmálaflokka. En um- fram allt bjó hann yfir persónuleika, sem einkenndist af hlýju og velvilja gagnvart öðru fólki. Það viðmót hans setti alla tíð mark sitt á heim- ilisbraginn á Gili. Gestum var jafnan tekið fagnandi og hvergi fannst manni frekar að maður væri vel- kominn en þegar komið var að Gili. Nú er hann allur þessi höfðingi í dalnum. Eftir stendur minningin um góðan dreng og eftir hann lifir ætt- boginn sem ber honum og konu hans vitni. Til nokkurs var lifað. Við hjónin og börn okkar þökkum Frið- riki bónda vináttu liðinna ára og sendum Erlu og öllum í fjölskyldu þeirra hjóna hugheilar samúðar- kveðjur. Jón Steinar Gunnlaugsson. Fyrsta minning mín sem níu ára gutta um Frigga er þegar hann á Land Rover fullum af krökkum ók eftir Svartárdalsveginum með Snata, fjárhundinn snjalla, á spretti á eftir. Við vildum vita hve hratt Snati gæti hlaupið. Þetta var gaman eins og svo margt á Gili. Það var mikil heppni að fá að vera tvö sumur í sveit hjá Frigga og Erlu. Margt var af fólki á bænum á öllum aldri og oft var líf í tuskunum. Bærinn er í alfaraleið, gestkvæmt og vel tekið á móti fólki. Friggi vildi vita hvaðeina sem var að gerast og naut þess að spjalla við fólk um menn og málefni. Við eldhúsborðið var mikið talað um hesta og heims- málin leyst bæði í alvöru og gríni. Það var stutt í fjör og gáska hjá Frigga og þá tindruðu augun hans oft svo glettnislega. Þessi strákslega glettni í augnaráðinu hélst alla hans tíð. Friggi og Erla sáu til þess að við krakkarnir hefðum nóg fyrir stafni. Við lékum okkur fyrir ofan bæinn í búum með búfé úr hornum, kjálkum og leggjum. Þess utan var farið í elt- ingaleiki, íþróttir, á hestbak og fleira. En lífið var ekki bara leikur. Hjá Frigga lærðum við til útiverka og fengum að gera gagn, svo sem að sækja kýr, reka úr túninu og bera mjólkurbrúsa. Í sauðburðinum kenndi Friggi okkur um lífið og til- veruna með sérstakri áherslu á alúð og nærgætni við dýrin. Við heyskap lærðum við að rifja, raka og sæta. Friggi var gætinn og kenndi okkur að vera varkár og varast slys bæði á sjálfum okkur og öðrum. Hann kenndi okkur að nota hlutina og nefna þá réttum nöfnum, og að vinna saman að markmiðum og klára verkin. Þessi ómetanlega kennsla varð okkur veganesti út í lífið. Þetta nám fór fram án þess að maður tæki eftir að kennsla ætti sér stað. Eftir að hafa verið með Frigga í girðingarvinnu eða heyskap fannst mér ég vera orðinn stór þegar við komum inn í bæ að þvo okkur um hendurnar og fá eitthvað gott að borða og drekka. Ég minnist þess líka þegar Friggi byggði fjárhús uppi á fjalli. Þá fékk ég að vaka nær heila nótt með vinnuhópnum við að dæla vatni úr læk í steypuna. Þarna unnu saman steypuflokkur og bænd- ur úr sveitinni, allir lögðust á eitt við að klára verkið með Frigga og við krakkarnir tilheyrðum stoltir vinnuhópnum. Þannig var gaman og gefandi að vinna með Frigga. Við smölun þekkti hann hverja kind með nafni og jafnvel kindur af öðrum bæjum. Það var skemmtilegt að eltast við hrossin með honum og skella sér á bak. Friggi hvatti óspart til þraut- seigju, dugnaðar og kjarks. Friggi og faðir minn voru æsku- vinir og skólafélagar. Vegna þeirra tengsla kynntumst við Friggi fyrir fjörutíu árum og sönn vinátta okkar hélst æ síðan. Við Hildur kona mín höfum haft mikla ánægju af því að heimsækja þau Erlu í nær hvert sinn sem við höfum átt leið norður og dætur okkar tvær voru svo heppnar að fá að vera hjá þeim í sveit. Ég kveð nú Frigga vin minn og þakka fyrir það lán að hafa kynnst honum. Erlu og fjölskyldunni á Gili votta ég mína dýpstu samúð. Gunnar Hrafn Birgisson. ✝ María Guð-munda Þor- bergsdóttir fæddist í Efri-Miðvík í Að- alvík 25. september 1908. Hún lézt á öldrunardeild Fjórð- ungssjúkrahússins á Ísafirði hinn 7. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Þorbergur Jónsson, útvegsbóndi í Efri- Miðvík, f. 19. apríl 1858, d. 9. janúar 1934, og seinni kona hans Oddný Finnbogadóttir hús- freyja, f. 15. maí 1874, d. 14. sept- ember 1938. Hálfsystkini Guð- mundu samfeðra voru Þórunn María og Óli. Alsystkini hennar voru Finnbjörn, Sölvi, Margrét Halldóra, Sigríður Jóna, Þorberg- ur, Petólína Oddný, Valdimar, Finnbogi Þórarinn og Óli Pálmi Halldór. Öll eru systkinin nú látin. Á annan dag jóla 1933 giftist Guðmunda Hermanni Snorra Jak- obssyni verkamanni, f. 25. nóv- ember 1901, d. 17. maí 1992. Hann var sonur Jakobs Snorrasonar, bónda á Sæbóli í Aðalvík, f. 8. nóv- ember 1862, d. 30. desember 1942 og Sigríðar Kristjánsdóttur hús- freyju, f. 12. febrúar 1870, d. 2. september 1955. Börn Guðmundu og Hermanns eru: 1) Snorri Edvin húsasmiður á Ísafirði, f. 2. apríl 1934, kvæntur Auði H. Hagalín. Börn þeirra eru: a) Hrafn, kvænt- ur Rannveigu Björnsdóttur, eiga þau einn son. b) Ingibjörg, gift Hávarði Bernharðssyni, frá fyrra hjónabandi með Salmari Jóhanns- syni á Ingibjörg þrjú börn. c) Snorri Már, kvæntur Kristrúnu H. Björnsdóttur og eiga þau tvö börn. d) Heimir, kvæntur Ólínu Fjólu Þorkelsdóttur og eiga þau tvær dætur, e) Hermann Þór, kvæntur Helgu Harðardóttur, þau eiga þrjú börn. 2) Jóhanna Ingibjörg, hús- móðir í Keflavík, f. 23. desember 1935, gift Jónasi Guð- mundssyni pípulagn- ingameistara. Börn þeirra eru: a) Þur- íður, gift Sævari Péturssyni, eiga þau þrjá syni. b) Her- mann Guðmundur, kvæntur Unu Guð- laugsdóttur, þau eiga tvö börn. c) María Guðmunda, gift Ólafi Magn- ússyni, þau eiga tvær dætur. d) Garðar Samúel, kvæntur Lilju Samúelsdóttur, þau eiga tvö börn. 3) Helga Birna, f. 27. febrúar 1937, gift Trausta Sig- urlaugssyni, d. 1990, dóttir þeirra er Ester Ósk og á hún tvö börn með fyrrum eiginmanni Birgi Grímssyni. 4) Trausti Jóel skrif- stofumaður í Reykjavík, f. 19. október 1944, kvæntur Sólveigu Ólafsdóttur og eiga þau soninn Trausta Berg. Áður var Trausti kvæntur Margréti Óskarsdóttur og eiga þau dótturina Maríu Björk, hún er gift Ólafi Ásgeirssyni og eiga þau tvö börn. Þau Guðmunda og Hermann hófu búskap á Látrum í Aðalvík en þau fluttu til Ísafjarðar árið 1946 þar sem þau bjuggu alla tíð. Lengst af bjuggu þau hjónin í Sundstræti 31, á Ísafirði en fluttu síðan í íbúðir aldraðra í Hlíf á Ísa- firði. Eftir að til Ísafjarðar kom stundaði Guðmunda ýmis störf ut- an heimilisins, m.a. hjá Kaupfélagi Ísfirðinga, Norðurtanganum hf., Sjúkrahúsi Ísafjarðar og Elliheim- ilinu. Þá tók hún mikinn þátt í fé- lagsstörfum, var t.d. félagi í Kvennadeild Slysavarnafélagsins og í kvenfélaginu Hlíf, en þar var hún heiðursfélagi. Útför Guðmundu verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Í rúmlega hálfa öld hafa leiðir okk- ar, tengdamóður minnar og mín, leg- ið saman. Þegar við kynntumst fyrst var Munda, eins og hún var jafnan kölluð, kona á bezta aldri. Kát og létt til líkama og sálar, ákaflega starfs- söm og þróttmikil. Hún fæddist í Efri-Miðvík í Aðalvík árið 1908 og var því orðin 98 ára þegar hún lézt. Ólst hún þar upp í stórum systkina- hópi og undi hag sínum vel. Töluvert félagslíf var í Sléttuhreppnum á þessum tíma og fólk lét sig ekki muna um að hlaupa frá Látrum og yfir á Sæból eða jafnvel inn á Hest- eyri til að skreppa á ball eða skemmtun, einungis þurfti að ná heim aftur fyrir mjaltirnar morgun- inn eftir. Þær voru margar skemmti- legar sögurnar sem Munda sagði okkur úr Aðalvíkinni og henni þótti undur vænt um sveitina sína. Hún er okkur öllum ógleymanleg ferðin sem þau Munda og Hermann fóru með börnum sínum, tengdabörnum og hluta af barnabörnunum að Látrum. Var þá gengið Víkina þvera og endi- langa og þau sögðu okkur frá fólkinu sem þarna bjó, lífi þess og störfum. Munda og Hermann hófu sinn bú- skap á Látrum í Aðalvík árið 1933 og eignuðust þar börnin sín en fluttu til Ísafjarðar árið 1946 og bjuggu þar upp frá því. Fljótlega eftir að til Ísa- fjarðar kom fór Munda að vinna utan heimilis, vann hún ýmis störf. Einnig lét hún til sín taka í félagslífinu, gekk hún m.a. í kvennadeild Slysavarna- félagsins og í kvenfélagið Hlíf, var reyndar gerð þar að heiðursfélaga. Í Hlíf var öflug starfsemi og m.a. var þar stofnaður kór fyrir rúmlega 50 árum og var Munda ein af stofnend- um hans; var 50 ára afmælisins minnzt á Hlífarsamsætinu fyrir 3 ár- um og voru þá mættar tvær af stofn- endunum, hún og frænka hennar Helga Hansdóttir. Sjóður minninganna er stór og er margs að minnast. Amma Munda var alltaf mætt þegar eitthvað var um að vera. Þorrablót Sléttuhrepps- búa sótti hún allt fram á síðustu ár og hafði óskaplega gaman af að dansa. Klæddist hún þá alltaf upp- hlutnum sínum eins og jafnan á tylli- dögum og veit ég fáar konur er borið hafa íslenzka búninginn jafnvel. Hún kenndi börnum sínum að dansa gömlu dansana eftir danslögunum í útvarpinu á sínum tíma og segir elzti sonur hennar hreykinn frá því að hann hafi aðeins verið 8 ára þegar hann fór fyrst með móður sinni á ball í sveitinni, var reyndar látinn fara heim kl. 23, þó ballið stæði fram und- ir morgun. Á gamlárskvöld var t.d. sú hefð að spilað var í Silfurgötunni og kom fjölskyldan þar saman, ungir og gamlir. Var algjört lágmark að spilað væri fram til kl. fjögur á ný- ársnótt og var spilað á mörgum borðum, eldri kynslóðin spilaði manna eða vist, hin yngri spiluðu gjarnan þau fjölskylduspil sem vin- sæl voru hverju sinni og var glatt á hjalla. Eftir að fjölskyldan eignaðist reit í Skóginum, fannst Mundu ákaf- lega gaman að eyða deginum þar í sól og logni. Kom hún þá gjarnan með kúfaðan disk af pönnukökum með sér og var sama hve kúfurinn var stór, hann var fljótur að hverfa. Eftir slíka daga sagði hún: „Þetta var nú góður dagur,“ það þurfti ekki mikið til að gleðja hana. Alla tíð var Munda ættrækin og hélt góðu sambandi við fólkið sitt að norðan og aldrei var hún glaðari en þegar húsið var fullt af gestum sem hún veitti af rausn og myndarskap. Fyrir nokkrum árum var heilsu Mundu þannig farið að hún gat ekki lengur verið ein og þurfti aðstoð. Fluttist hún þá á öldrunardeild Sjúkrahússins á Ísafirði. Þessi sjálf- stæða, dugmikla kona átti ekki alltaf auðvelt með að þiggja hjálp og reyndi til hinztu stundar að bjarga sér sem mest sjálf. Langar mig hér fyrir hönd fjölskyldu hennar að þakka öllu því góða fólki sem ann- aðist hana þar af stakri alúð og um- hyggju. Langri samleið er lokið, ég María Guðmunda Þorbergsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.