Morgunblaðið - 13.01.2007, Page 52

Morgunblaðið - 13.01.2007, Page 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Vestan 3–10 metrar á sekúndu og víða dálítil él en austlægari og snjókoma suðvestantil seinnipartinn. » 8 Heitast Kaldast 0°C -10°C NÝRNAVEIKI fannst nýverið í hrognum klaklaxa úr Elliðaánum og var öllum hrognunum fargað. Hrognin, sem voru úr náttúrulegum stofni ánna, áttu að fara sem seiði í árnar á næsta ári, 2008, til að styðja við náttúrulega hrygningu í ánni. Áttu þau síðan að skila sér í laxa- gengd árið eftir. Vegna þessa, og til að búa í haginn fyrir minnkandi laxagengd, hefur sérstakur sam- ráðshópur um árnar lagt til að kvóti á stöng á vakt verði minnkaður úr fjórum löxum í þrjá í sumar. Í tilkynningu Veiðimálastofnunar segir að nýrnaveiki sé landlægur sjúkdómur í laxfiskum á Íslandi. Finnst hann bæði í laxi og silungi, en urriði og bleikja hafa meira þol fyrir honum en laxinn. Líkur benda til þess að villtur fiskur verði ekki fyrir skaða af sýklinum í náttúrunni en í eldisstöðvum magnast smit mikið. Nýrnaveiki hefur fundist í klak- laxi úr nokkum ám á hverju hausti, í mismiklum mæli eftir ám og milli ára. Í haust sem leið var óvenjumik- ið um að smit mældist í klakfiski og í sumum tilfellum í ám þar sem það hefur varla mælst áður. Þar á meðal greindist smit í klaklaxi úr Elliða- ánum en þar hefur ekki mælst smit í laxi í mörg ár. Morgunblaðið/Golli Laxar Sökum nýrnaveiki hefur öll- um hrognum úr klaklaxi í Elliða- ánum verið eytt. Laxahrogn- um úr Elliða- ánum fargað ÞREFALT magn af lýkópeni er í þeim tómötum sem hjónin Guðjón Birgisson og Sigríður Helga Karls- dóttir eru farin að rækta en þau eiga og reka garðyrkjustöðina Mela á Flúðum. Lýkópen er öflugt andox- unarefni og sú tilgáta hefur verið sett fram á síðustu árum að lýkópen veiti vörn gegn hjartasjúkdómum og krabbameini í blöðruhálskirtli og meltingarvegi. Nokkrar faralds- fræðilegar rannsóknir styðja þá til- gátu. Sýnt hefur verið fram á að lýkópen hamlar vexti krabbameins- frumna í ræktun á rannsóknarstofu. Lýkópentómatarnir eru einungis ræktaðir á tveimur stöðum í Evrópu, í Hollandi og nú á Flúðum. | 22 Rækta lýkópen- tómata á Flúðum Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Hollt Guðjón Birgisson og Sigríður Helga Karlsdóttir með lýkópentóm- atana sem þau eru að setja á mark- að þessa dagana. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is STJÓRNVÖLD stefna að því að kynna í næstu viku breytingar á tollkvótum með landbúnaðarvörur sem m.a. fela í sér að leyfilegt verði að flytja inn umtalsvert magn af kjötvörum á lágmarkstollum. Þetta er þó háð því að Evrópusambandið staðfesti fyrirliggjandi drög að samningi um viðskipti með land- búnaðarvörur, en von er á end- anlegu svari frá sambandinu nk. þriðjudag. Í dag er heimilt að flytja inn landbúnaðarvörur á lágmarkstollum sem nemur um 5% af innanlands- neyslu. Stjórnvöld bjóða árlega út þessa tollkvóta og fá þeir sem hæst bjóða að flytja inn. Á undanförnum árum hefur áhugi innflytjenda á að nýta sér þessa kvóta aukist og verðið hefur hækkað. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fela þau samningsdrög við ESB sem nú liggja á borðinu í sér að heimilt verður að flytja inn til landsins hundruð tonna af landbún- aðarvörum á lágum gjöldum, þar á meðal umtalsvert magn af kjöti. Á móti fær Ísland heimild til að flytja smjör og skyr tollfrjálst til Evrópu- sambandsins. Það kemur í ljós nk. þriðjudag hvort Evrópusambandið samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að hún stefni að því að lækka tolla á landbúnaðarvörum um allt að 40%. Þessir tollar eru mjög háir í dag og því telja innflytendur að áhrifin af þessari lækkun verði takmörkuð. Stækkun tollkvóta er hins vegar talin hafa mun meiri áhrif á vöru- verð. Meira af kjöti verði flutt inn á lágmarkstollum Í HNOTSKURN »Íslensk stjórnvöld munu ínæstu viku kynna breyt- ingar á tollkvótum með land- búnaðarvörur. »Breytingarnar fela m.a. ísér að leyfilegt verði að flytja inn talsvert magn af kjötvörum á lágmarkstollum. »Þetta er háð því að ESBstaðfesti fyrirliggjandi drög að samningi um viðskipti með landbúnaðarvörur.  Kvótar fyrri | 11 TRÍÓ Reykjavíkur hlaut í gær formlega útnefn- ingu sem Tónlistarhópur Reykjavíkur árið 2007 við athöfn í Iðnó. Tríóið er skipað þeim Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara, Gunnari Kvaran sellóleikara og Peter Maté píanóleikara, en þau hljóta eina milljón króna í styrk, auk starfssamn- ings. Að sögn Gunnars hlakka þau mjög til sam- starfsins við borgina. Tríóið lék tvo þætti úr Síg- aunatríói eftir Haydn af þessu tilefni. Morgunblaðið/Ómar Hlakka til samstarfs við Reykjavíkurborg Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is LANDLÆKNIR hefur skrifað Landspítala – há- skólasjúkrahúsi (LSH) bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um mál Sigurlínar Margrétar Sigurð- ardóttur, varaþingmanns Frjálslynda flokksins og táknmálsþulu. Í viðtali við Morgunblaðið í vikunni sagði Sigurlín, sem hefur greinst sykursjúk, að hún hefði ekki fengið að vita niðurstöðu blóðprufu sem hún fór í á bráðamóttöku LSH. Niðurstaðan sýndi mjög há blóðsykursgildi eins og Sigurlín komst síð- ar að. „Sé rétt eftir haft, sem ég dreg ekki í efa að óreyndu, hefur eitthvað brugðist,“ segir Matthías Halldórsson landlæknir. „Ég hef sérstaklega óskað eftir að þeir [LSH] geri grein fyrir verkferlinu þeg- ar fram kemur afbrigðilegt prófsvar þótt skoðun kunni að vera eðlileg og sé ákveðið verkferli til, hvað þá hafi farið úrskeiðis.“ Yfirlæknir ætlar að kalla Sigurlín á sinn fund Sigurlín hafði áður verið neitað um blóðsykursmælingu á Heilsugæslustöðinni í Garða- bæ á þeirri forsendu að læknir yrði að fyrirskipa slíka mæl- ingu. Þurfti hún að bíða í 12 daga eftir tíma hjá lækni. Matthías segir yfirlækni heilsugæslunnar hafa tilkynnt landlæknisembætt- inu nýverið að lokað yrði fyrir nýskráningar á stöð- ina tímabundið vegna mikils álags en ekki hafi verið annars getið en að þeim sem þegar væru skráðir yrði sinnt. „Í kjölfar fréttar um mál Sig- urlínar ræddi ég við yfirlækn- inn,“ segir Matthías. „Hann sagði að þegar skráður sjúk- lingur hringdi og teldi sig þurfa tíma fljótlega og ekki væru lausir tímar hjá lækni, þá fengi viðkomandi símtal við hjúkrun- arfræðing sem mæti þörfina. Þar kynni því að hafa komið upp misskilningur varðandi Sigurlín og talið að einungis væri spurning um blóðprufu, sem þá væri ekki sér- staklega aðkallandi. Þeir ætla hins vegar að fara of- an í málið, kalla Sigurlín á sinn fund með túlki og sjá hvort rétt sé að þetta sé skýringin. Þeir munu síðan senda mér skýrslu um sína niðurstöðu og ég mun kanna hvort hún telji þetta rétt eftir haft.“ Spyr LSH hvað fór úrskeiðis Landlæknir óskar upplýsinga frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi um mál Sigurlínar Margrétar Sigurðardóttur, varaþingmanns og táknmálsþulu Matthías Halldórsson Sigurlín Margrét Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.