Morgunblaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞAÐ VAR FRÁBÆRT AÐ FARA Í
BÍÓ MEÐ LÍSU Í GÆR...
ÉG VAR BÚINN AÐ GLEYMA
ÞVÍ HVERNIG POPPKORN ER Á
BRAGÐIÐ ÞEGAR ÞAÐ ERU EKKI
KATTARHÁR Í ÞVÍ
EKKI
VENJAST ÞVÍ
LÚLLI SAGÐI
AÐ RÓSA HEFÐI
TALAÐ ILLA UM
TEPPI Í DAG...
HÚN SAGÐI AÐ EF BARN
VÆRI ALLTAF MEÐ TEPPI MEÐ
SÉR ÞÁ VÆRI ÞAÐ MERKI
ÞESS AÐ ÞAÐ ÞYRFTI AÐ
ÞROSKAST OG HÚN MYNDI
ALDREI LEYFA ÞAU!
VÁ! ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ
HANN ÞARF AÐ VELJA Á
MILLI TEPPISINS, SÍN OG
FRÚ RÓSU, ER ÞAÐ EKKI?
HVER ER FRÚ RÓSA?
HVAÐ ERTU
AÐ GERA
PABBI? ERTU
AÐ TEIKNA?
JÁ HVAÐ ER
ÞETTA,
RISAEÐLA MEÐ
HUNDAÆÐI?
NEI,
ÞETTA ER
EYJAN
ÞARNA
Ó!
HVERSU VEL
SÉRÐU ÁN
ÞESS AÐ VERA
MEÐ GLER-
AUGUN? SÉRÐU
MIG NÚNA?
ÞEGAR
ÉG LÍT UPP
ÞÁ ER
EINS GOTT
AÐ ÉG SJÁI
ÞIG EKKI
ÉG ER
TÝNDUR!!
ÉG
JÁTA
ÞAÐ!!
OG HÆTTU AÐ SEGJA MÉR AÐ SPYRJA
EINHVERN UM LEIÐBEININGAR!
FYRIRGEFÐU,
EN ÞAÐ
LÍTUR ÚT
FYRIR AÐ ÉG
ÞURFI AÐ
SKRIFA HANDA
ÞÉR ÁVÍSUN
HVERNIG EIGUM VIÐ AÐ
HAGA OKKUR GAGNVART LINDU
OG DODDA EFTIR AÐ ÞAU SKILJA
ÞAÐ
VERÐUR EKKI
AUÐVELT...
VIÐ VERÐUM BARA AÐ LÁTA
ÞAU VITA AÐ OKKUR ÞYKI VÆNT
UM ÞAU BÆÐI OG AÐ VIÐ
ÆTLUM EKKI AÐ HALDA MEÐ
NEINUM Í ÞESSU MÁLI
SEM ÞÝÐIR AÐ ÞAU EIGA
ÖRUGGLEGA EFTIR AÐ HATA
OKKUR BÆÐI
SVO LENGI SEM
VIÐ HÖTUM EKKI
HVORT ANNAÐ
Á BIÐSTOFUNNI HJÁ
LÆKNINUM...
TÓNLISTIN Í ÚTVARPINU ER
ALVEG AÐ SVÆFA MIG
HÉR KEMUR FRÉTTASKOT!
LÖGREGLAN ER AÐ ELTAST VIÐ
BANKARÆNINGJA Í ÞESSUM
TÖLUÐU ORÐUM
ÉG VERÐ AÐ
DRÍFA MIG AÐ
HJÁLPA ÞEIM
LÆKNIRINN
GETUR TEKIÐ Á
MÓTI ÞÉR NÚNA
HERRA PARKER
Æ, NEI...
Endurmenntunarstofnun HÍbýður upp á námskeiðiðBreytingastjórnun á vor-önn. Umsjónarmaður
námskeiðsins er Árelía Eydís Guð-
mundsdóttir, lektor við viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands:
„Breytingastjórnun er hugtak sem
nær til þeirra þátta sem sérstaklega
þarf að huga að þegar skipulags-
heildir, hvort heldur fyrirtæki eða
stofnanir, takast á við breytingar,“
segir Árelía Eydís. „Nú til dags eru
fyrirtæki og stofnanir stöðugt í þró-
un, og er breytingastjórnun að því
leyti ekki frábrugðin venjulegri
stjórnun frá degi til dags að lykillinn
að árangri felst í að vera stöðugt vak-
andi, og meðvitaður um eigin við-
brögð og annarra. Breytingum fylgir
streita og álag og þarf góður stjórn-
andi að kunna að bregðast rétt við, til
að breytingaferlið verði sem árang-
ursríkast og áreynslulaust.“
Árelía Eydís á að baki langan
kennsluferil í stjórnun og hefur kennt
breytingastjórnun við bæði Háskóla
Íslands og Háskólann í Reykjavík. Á
námskeiði Endurmenntunarstofn-
unar byrjar Árelía Eydís á að beina
sjónum nemenda að sjálfum sér: „Við
reynum að skilja eigin viðbrögð undir
álagi breytinga, og út frá því reyna að
skilja viðbrögð annarra,“ segir Árelía
Eydís sem segir nemendur öðlast
bæði fræðilega og hagnýta þekkingu
á því hvernig einstaklingar bregðast
á mismunandi hátt við breytingaferli.
Engar skyndilausnir
Árelía Eydís segir því miður ekki
hægt að kortleggja hið óskeikula
breytingaferli í afmörkuðum skrefum
eða veita nemendum uppskriftina að
skyndilausnum þegar kemur að
breytingum: „Hins vegar eru ýmis
góð ráð sem gagnlegt er að fylgja.
Meðal annars hafa rannsóknir sýnt
að breytingar sem eiga sér stað með
friði og spekt eru líklegri en hinar
sem fara fram með lúðrablæstri. Sum
fyrirtæki hafa á liðnum árum viljað
sameina deildir eða fyrirtæki með
pomp og pragt, þar sem fjölmiðlar
eru kvaddir til og auglýsingastofur
eru virkjaðar. Þessi sömu fyrirtæki
væru ef til vill betur stödd ef farið
væri hægar í sakirnar,“ segir Árelía
Eydís. „Lykillinn að farsælum breyt-
ingum er að vera viss um tilgang
breytingaferlisins og rasa ekki um
ráð fram, en ekki síður að tryggja að
hinn almenni starfsmaður sé upp-
lýstur og áhugasamur um breyt-
ingaferlið. Eins og gefur að skilja er
þetta mikil kúnst og nátengt dag-
legum stjórnunarháttum, en nem-
endur á námskeiðinu ættu að vera
betur í stakk búnir að náminu loknu
til að fást við þetta flókna viðfangs-
efni.“
Námskeiðið Breytingastjórnun er
kennt morgnana 23. og 25. janúar frá
kl. 8.30 til 12.30. Kennsla fer fram
með fyrirlestrum, umræðum og æf-
ingum. Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið og skráningu má finna á slóð-
inni www.endurmenntun.hi.is og
www.areliaeydis.com.
Mörg stéttarfélög og fyrirtæki
taka þátt í kostnaði við námskeið
Endurmenntunarstofnunar, þá er
vakin er athygli á gjafabréfum End-
urmenntunar Háskólans.
Stjórnun | Námskeið hjá Endurmenntun
um stjórnun breytinga innan fyrirtækja
Kúnstir breyt-
ingastjórnunar
Árelía Eydís
Guðmundsdóttir
fæddist 1966 og
ólst upp í Kefla-
vík. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum
í Reykjavík 1987,
BA-gráðu í
stjórnmálafræði
frá Háskóla Íslands, 1991, M.Sc. í
vinnumarkaðsfræði frá London
School of Economics 1993, dokt-
orsprófi frá Háskóla Íslands.
Árelía Eydís starfaði við við-
skiptadeild Háskólans í Reykjavík
1998 til 2003, og við viðskipta- og
hagfræðideild HÍ frá 2003. Árelía
Eydís er gift Sigurði Áss Grét-
arssyni og eiga þau til samans fimm
börn.
MIKIÐ var um dýrðir á opnunarhátíð Persaflóamótsins í knattspyrnu sem
sett var í gærkvöldi. Keppnin, sem nú er haldin í 18. sinn, fer fram í borg-
inni Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Reuters
Hátíð í skugga átaka