Morgunblaðið - 26.02.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2007 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Fallegar blússur
og peysur
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
ÍSTÖLT Austurlands fór fram á
laugardag á Eiðavatni. Í opnum
flokki var mikil barátta milli Hin-
riks Bragasonar á Skúmi frá Neðri-
Svertingsstöðum og Daníels Jóns-
sonar á Þóroddi frá Þórodds-
stöðum. Þeir urðu efstir og jafnir í
1.–2. sæti og þurfti að varpa hlut-
kesti um hvort tæki verðlaunagrip-
inn Ormsbikarinn til varðveislu.
Daníel hreppti hnossið og telst því
sigurvegari mótsins.
Í 100 m skeiði bar Þórður Þor-
geirsson á Ási frá Ármóti sigur úr
býtum, fór brautina á 8,7 sek-
úndum. Sigurður Sveinbjörnsson á
Farsæli frá Neskaupstað sigraði í
flokki áhugamanna eftir bráðabana
við Pálma Guðmundsson og Nikol-
ína Rúnarsdóttir á Laufa frá Kolla-
leiru varð hlutskörpust í flokki
ungmenna. Alls var keppt í sex
flokkum. 120 keppendur voru
skráðir í keppni nú og er það mikil
aukning frá ístöltinu í fyrra þegar
60 skráningar voru til keppni.
Ísinn á Eiðavatni var góður en
skafa þurfti snjó af honum til að út-
búa rásbrautina. Hestamenn héldu
að keppni lokinni uppskeruhátíð í
samkomusalnum á Eiðum þar sem
verðlaunaafhending fór fram um
kvöldið.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kjöraðstæður Mikil stemning var á ístöltinu á Eiðavatni og veður hið besta.
Skúmur og Þóroddur í topp-
baráttunni á Eiðavatnsísnum
Afbragð Sigurvegari Ístölts Austurlands 2007 á Eiðavatni, Daníel Jónsson
á Þóroddi frá Þóroddsstöðum, miklum keppnis- og kynbótagæðingi.
ENDURSKOÐUN refsilöggjafar-
innar að því er lýtur að kynbundnu
ofbeldi, minnkun óútskýrðs kyn-
bundins launamunar og fjölgun
kvenna í yfirmannsstöðum hjá ríkinu
voru meðal þeirra úrræða sem Sam-
fylkingin vill beita komist flokkurinn
í ríkisstjórn í vor. Aðalfundur
Kvennahreyfingar flokksins fór
fram nú um helgina.
„Samfylkingarkonur eru stað-
ráðnar í að hafa afgerandi áhrif á
stefnumótun Samfylkingarinnar fyr-
ir þessar kosningar og sjá til þess að
ný ríkisstjórn, sem Samfylkingin á
aðild að, marki tímamót í þeim mál-
um sem mest brenna á konum,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, við
setningu ársfundarins. „Í íslensku
samfélagi er lýðræðishalli en hann
felst ekki síst í því að konur hafa ekki
áhrif né völd til jafns við karla. Þær
hafa ekki jafnmikil áhrif á pólitíska
umræðu og ákvarðanir og þeir.
Þeirra reynsla, þarfir og þekking
vega ekki jafnþungt á vogarskálum
stefnumótunar og stjórnvalds-
ákvarðana og reynsla, þarfir og
þekking karla. Þess vegna er sam-
félagið ekki nógu heppilega innrétt-
að fyrir konur.“
Máli sínu til stuðnings benti Ingi-
björg á að þrátt fyrir að flestum
formlegum hindrunum hefði verið
rutt úr vegi, og konur ynnu og
menntuðu sig, vantaði talsvert upp á
að karlar og konur sætu við sama
borð. Færri konur sætu á Alþingi,
laun kvenna væru um 70% af launum
karla, menntun skilaði körlum
lengra á vinnumarkaðnum, sárafáar
konur sætu í stjórnum fyrirtækja og
enn fjölgaði skráðum kynferðisbrot-
um gegn konum og börnum. „Í mis-
réttinu felst sóun á mannauði. Það er
þess vegna hagur karla að jafna hlut
kynjanna og því eðlilegt og nauðsyn-
legt að þeir taki þátt í umræðunni og
þeim breytingum sem gera þarf.“
Vinnutíma og refsilöggjöf
breytt og launamunur jafnaður
Ingibjörg Sólrún lagði fram hug-
myndir sem Samfylkingin myndi
koma í framkvæmd ef flokkurinn
kæmist í ríkisstjórn. Séð yrði til þess
að nægt fjármagn og þekking væri
til að sinna jafnréttismálum en Ingi-
björg taldi að þau hefðu verið látin
sitja á hakanum í flestum ráðuneyt-
um. Setja þyrfti skýr mælanleg
markmið og vitnaði Ingibjörg til
stjórnartíðar R-listans í Reykjavík-
urborg. Setja ætti markmið um að
minnka óútskýrðan launamun milli
kynja um helming á fyrsta kjörtíma-
bili. Einnig yrði konum í hópi for-
stöðumanna ráðuneyta og ríkis-
starfsmanna fjölgað þannig að konur
yrðu u.þ.b. jafnmargar körlum við
lok næsta kjörtímabils. Endurskoða
yrði refsilöggjöfina að því er lyti að
kynbundnu ofbeldi í þeim tilgangi að
veita brotaþola viðunandi vernd.
Auk þess myndi flokkurinn beita sér
fyrir viðræðum milli aðila vinnu-
markaðarins og ríkisvaldsins um að
stytta hinn virka vinnutíma í áföng-
um og auðvelda þannig vinnandi
fólki að samræma atvinnuþátttöku
og fjölskylduábyrgð.
Samfylkingin vill rétta hlut
kvenna í íslensku samfélagi
Morgunblaðið/Ómar
Konur Ólína Þorvarðardóttir, Ingibjörg Sólrún og Steinunn Valdís Óskars-
dóttir. Steinunn Valdís var kjörin nýr formaður Kvennahreyfingarinnar.
Í HNOTSKURN
»Meðal samþykkta Kvenna-hreyfingarinnar:
»Helmingur ráðherra rík-isstjórnarinnar verði konur
»Fyrirtækjum gefinn 6 árafrestur til að koma hlutfalli
kvenna í stjórnum í 40%. Laga-
setningu beitt ef þarf.
»Jafnréttisstofu veittarheimildir til að rannsaka og
afla gagna sé grunur um brot
jafnréttislaga.
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
Á ÁRSFUNDI kvennahreyfingar
Samfylkingarinnar um helgina gekk
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Reykjavík, í
flokkinn. Í tilkynningu frá Björk kem-
ur fram að það hafi einkum verið
stefna Samfylkingarinnar í kvenfrels-
ismálum og umhverfismálum sem
ollu því að hún tók þessa ákvörðun.
Björk var áður fulltrúi Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs í R-list-
anum í borgarstjórn Reykjavíkur en
bauð sig fram á lista Samfylkingar-
innar fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar.
Jakob Frímann Magnússon, tón-
listarmaður og varaþingmaður Sam-
fylkingarinnar, tilkynnti hins vegar í
sjónvarpsþættinum Silfri Egils í gær
að hann væri formlega hættur í
flokknum.
Í samtali við Fréttavef Morgun-
blaðsins í gær sagði Jakob að hann
hefði fallist á að miðla reynslu sinni af
vettvangi umhverfismála með Græna
hernum og Framtíðarlandinu til aðila
sem íhuga stofnun umhverfis- og vel-
ferðarframboðs. Hann kvað þó engar
ákvarðanir hafa verið teknar hvað
snertir framboð slíkra afla en áréttaði
að hann teldi umhverfismálin mikil-
vægasta málaflokk samtímans.
Jakob hættur
og Björk gengin
í Samfylkinguna
Jakob Frímann
Magnússon
Björk
Vilhelmsdóttir
BENÓNÝ Jóns-
son líffræðingur
gefur kost á sér í
1. sæti á fram-
boðslista Frjáls-
lynda flokksins í
Suðurkjördæmi
fyrir komandi al-
þingiskosningar.
Benóný skipaði 7.
sæti framboðs-
lista flokksins fyrir síðustu kosning-
ar og hefur gegnt trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn og setið í stjórn kjör-
dæmafélags hans. Benóný hefur
starfað sem bóndi en síðastliðin ár
hefur hann starfað hjá Veiðimála-
stofnun við rannsóknir á ferskvatns-
fiskum og vatnalífríki almennt. Hef-
ur hann einnig starfað sem
trúnaðarmaður fyrir Félag íslenskra
náttúrufræðinga.
Gefur kost á sér í 1. sæti
Benóný Jónsson
FYLGI Samfylkingarinnar og VG
mældist jafn mikið í nýjustu skoð-
anakönnun Fréttablaðsins sem birt-
ist í blaðinu í gær. Mælist Samfylk-
ingin nú með 24% fylgi en VG
23,5%.Ef miðað er við að flokkarnir
fengju það fylgi á landsvísu fengju
þeir 15 þingmenn hvor. Þingstyrkur
VG myndi því þrefaldast síðan í Al-
þingiskosningunum 2003 en Sam-
fylkingarinnar minnka um fjórðung.
Framsóknarflokkurinn mælist með
8,8% fylgi og fengi 5 þingmenn, mið-
að við 12 þingmenn nú og Frjálslyndi
flokkurinn héldi sínum 4 þingmönn-
um þar sem flokkurinn mælist með
6,1% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn
myndi bæta við sig tveimur þing-
mönnum yrði niðurstaða kosning-
anna þessi, fengi 36,9% fylgi og 24
þingmenn.
Úrtak könnunarinnar var 800
manns og sögðust 34% þeirra vera
óákveðnir.
Ef úrslit kosninganna yrðu í sam-
ræmi við könnunina yrði ljóst að nú-
verandi stjórnarflokkar gætu ekki
myndað ríkisstjórn með þingmeiri-
hluta og að einungis yrði hægt að
mynda tveggja flokka ríkisstjórn
með Sjálfstæðisflokkinn innanborðs.
Í slíkri stjórn gæti Sjálfstæðisflokk-
urinn annað hvort starfað með Sam-
fylkingu eða VG. Vinstri flokkarnir
tveir gætu aftur á móti saman mynd-
að þriggja flokka stjórn með annað
hvort Frjálslynda flokknum eða
Framsóknarflokknum.
Vinstri
flokkarnir
jafnstórir