Morgunblaðið - 26.02.2007, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
menning
DAGUR VONAR
Fim 1/3 kl. 20 UPPS. Lau 3/3 kl. 20 UPPS.
Sun 4/3 kl. 20 UPPS. Fim 8/3 kl. 20 UPPS.
Fös 9/3 kl. 20 UPPS. Fim 15/3 kl. 20
Fös 16/3 kl. 20 Lau 24/3 kl. 20
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Mið 28/3 kl. 20 FORSÝNING MIÐAVERÐ 1.500
Fim 29/3 kl. 20 FORSÝNING MIÐAVERÐ 1.500
Fös 30/3 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 4/3 kl. 14 Sun 11/3 kl.14
Sun 18/3 kl. 14 Sun 25/3 kl. 14
Síðustu sýningar
KILLER JOE
Í samstarfi við leikhúsið Skámána
Fim 1/3 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 3/3 kl. 20 Fim 8/3 kl. 20
KARÍUS OG BAKTUS
Sun 4/3 kl. 13,14, 15, Sun 11/3 kl.13, 14, 15,
Sun 18/3 kl. 13, 14, 15, Sun 25/3 kl. 13, 14, 15,
Sun 1/4 kl. 13, 14, 15, Sun 15/4 kl. 13,14,15
Uppselt á þessar sýningar!
Sun 22/4 kl. 13,14, 15 AUKASÝNINGAR
Sun 29/4 kl. 13, 14, 15 AUKASÝNINGAR
Sun 6/5 kl. 13, 14, 15 AUKASÝNINGAR
Gestaleikur frá Leikfélagi Akureyrar
FEBRÚARSÝNING Íd
Sun 4/3 kl. 20 3.sýning Rauð kort
Sun 11/3 kl. 20 4.sýning Græn kort
Sun 18/3 kl. 20 5.sýning Blá kort
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR
ÓFAGRA VERÖLD
Fim 1/3 kl. 20 Fös 9/3 kl. 20
Síðustu sýningar
VILTU FINNA MILLJÓN?
Fös 2/3 kl. 20 Lau 10/3 kl. 20
Lau 17/3 kl. 20 Lau 31/3 kl. 20
MEIN KAMPF
Mið 28/2 kl. 20 AUKAS.
Sun 18/3 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar
EILÍF HAMINGJA
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Sun 4/3 kl. 20 Sun 11/3 kl. 20
Sun 18/3 kl. 20 Sun 25/3 kl. 20
LADDI 6-TUGUR
Lau 3/3 kl. 20 UPPS. Lau 3/3 kl. 22:30 UPPS.
Fim 8/3 kl. 21 UPPS. Fös 16/3 kl. 21 UPPS.
Lau 24/3 kl. 20 UPPS. Lau 24/3 kl. 22:30 UPPS.
Mið 28/2 kl. 20 UPPS. Lau 10/3 kl. 14 AUKAS.
Fim 15/3 kl. 20 AUKAS. Fös 16/3 kl. 21 UPPS.
Lau 24/3 kl. 20 AUKAS
Lau 24/3 kl. 22:30 UPPS.
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fös 2/3 kl. 20 AUKAS.
Þri 13/3 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Mán 5/3 kl. 20 FORSÝNING UPPS.
Þri 6/3 kl. 20 FORSÝNING UPPS.
Mið 7/3 kl. 20 FORSÝNING UPPS.
Lau 10/3 kl. 20 FRUMSÝNING UPPS.
Sun 11/3 kl. 20 Lau 17/3 kl. 20
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
FLAGARI Í FRAMSÓKN - The Rake’s Progress e. STRAVINSKY
fös. 2. mars - SÝNINGIN HEFST KL. 20
ALLRA SÍÐASTA SÝNING- TRYGGÐU ÞÉR MIÐA!
IGOR STRAVINSKY
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Kynning fyrir sýningu í boði VÍÓ - Kynningin hefst kl. 19.15
ÞJÓÐARÓPERA ÍSLENDINGA
Í 25 ÁR
GULLÖLD GÍTARSINS
HÁDEGISTÓNLEIKAR - ÞRIÐJUD. 27. FEB. KL. 12.15
Pierre Laniau - gítarleikari
Miðaverð kr. 1.000
sun. 4. mars kl. 17 Örfá sæti laus
sun. 11. mars kl. 17
pabbinn.is
2/3 UPPSELT, 3/3 ÖRFÁ SÆTI LAUS, 4/3 ÖRFÁ SÆTI
LAUS, 7/3 LAUS SÆTI, 9/3 UPPSELT, 10/3 LAUS SÆTI,
15/3 LAUS SÆTI, 17/3 UPPSELT, 18/3 LAUS SÆTI,
22/3 LAUS SÆTI, 23/3 ÖRFÁ SÆTI LAUS,
24/3 ÖRFÁ SÆTI LAUS, 29/3, 30/3, 31/3.
Allar sýningar hefjast kl. 20 nema 10/3 kl. 15.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!!
BJARNI HAUKUR (HELLISBÚINN)
Í GLÆNÝRRI GAMANSÝNINGU
Miðasalan í Iðnó er opin 11.00 til 16.00 virka daga
og tveim tímum fyrir sýningu. Sími miðasölu er 562 9700.
Svartur köttur - Ekki við hæfi barna
Fös. 2/3 kl. 20 örfá sæti,
Lau. 3/3 kl. 20 UPPSELT - Síðustu sýningar!
Karíus og Baktus í Reykjavík.
Sun 4/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT
Sun 11/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT
Sun 18/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT
Sun 25/3 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT
Sun 1/4 kl. 13 UPPSELT, kl. 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT
Sun 15/4 kl. 13 UPPSELT, kl 14 UPPSELT, kl. 15 UPPSELT
Sun 22/4 kl. 13 örfá sæti, kl 14 örfá sæti, kl 15 örfá sæti
Aukasýningar í sölu núna: 15/4, 22/4 kl. 13, 14 og 15.
www.leikfelag.is
4 600 200
SÖNGKVARTETTINN Vallargerð-
isbræður á sér nokkuð sérstaka sögu.
Hann er skipaður unglingspiltum
sem sungu allir með Skólakór Kárs-
ness í eina tíð, en í stað þess að hverfa
úr honum er þeir fóru í mútur eins og
algengt er héldu þeir áfram að mæta
á æfingar ótrauðir. Þórunn Björns-
dóttir kórstjóri sá sér þann kost
vænstan að taka þá í einkatíma og
með tíð og tíma spratt fram karlakv-
artett í anda Comedian Harmonists
og Álftagerðisbræðra.
Platan Æskunnar förunautar kall-
ar fram þá tíma er poppsveitir Ís-
lands voru söngflokkar á borð við
MA-kvartettinn og Leikbræður, og
það er því eins og hún komi hoppandi
út úr tímavél. Fyrst þegar ég heyrði
um Vallargerðisbræður taldi ég þá
vera að sækja í menntaskólalegt
grallaragrín, svona eins og hljóm-
sveitin Kósí gerði í eina tíð (og bara
svo það sé á hreinu, þá er sú ágæta
sveit í miklum hávegum hjá mér!).
Hér er aðkoman hins vegar hrein
og bein ef svo mætti segja. Bræð-
urnir syngja sig í gegnum æði fjöl-
breytta efnisskrá, þar sem er að finna
sígild íslensk lög eins og „Litlu flug-
una“ og „Sjómannslíf“ en einnig er-
lend lög, og bregður þar fyrir negra-
sálmum sem skandinavískum lögum.
Hér að finna grátur og gleði; kerskni
og dramatík og bræðurnir fara þann-
ig um víðan völl. Ástríða fyrir söngn-
um keyrir yfir það sem upp á vantar í
tæknilegri getu, enn vantar talsvert
upp á fyllingu í raddirnar og stundum
eru þær óstyrkar. Það má líka gagn-
rýna það mikla umfang sem í efnis-
valinu er, en það gefur þó meira til
kynna hversu óþrjótandi áhuginn er;
það þarf að prufa allt úr því að menn
eru að þessu á annað borð. Þetta
æskufjör gerir líka að verkum að
platan er, þrátt fyrir upptalda ann-
marka, fyrst og fremst skemmtileg
áheyrnar og þá er nú mikilvægum
áfanga náð.
Gleðjast gumar
TÓNLIST
Geisladiskur
Vallargerðisbræður eru þeir Ríkharður
Þór Brandsson (1. tenór), Þorkell Helgi
Sigfússon (2. tenór), Eysteinn Hjálm-
arsson (1. bassi) og Örn Ýmir Arason (2.
bassi). Lög eru innlend og erlend, gömul
sem ný. Um undirleik sjá Hjörtur Ingvi Jó-
hannsson (píanó) og Marteinn H. Frið-
riksson (píanó). Þórunn Björnsdóttir
stjórnaði en Sigurður Rúnar Jónsson tók
upp. Skólakór Kársness og Vallargerð-
isbræður gefa út.
Vallargerðisbræður – Æskunnar förunautar
Arnar Eggert Thoroddsen
var Virginia á tímum Þrælastríðs-
ins, Innbrot gerist í Lundúnum
samtímans. Aðalkarlpersónur
beggja myndanna leikur Jude Law,
sem fer að þessu sinni með hlutverk
landslagsarkítektsins Will, sem er
nýbúinn að koma skrifstofum sínum
fyrir í vafasömum hluta King’s
Cross-hverfisins. Hann og Sandy,
meðeigandi hans (Freeman), fá að
gjalda ákvörðunarinnar því þeir eru
tæpast búnir að flytja þegar brotist
er inn í marggang og greipar látnar
sópa um tæki og hugbúnað.
Af tilviljun kemst Will á spor eins
þjófsins, Miro (Gavron), ungs pilts,
sem flúið hefur hörmungarnar í
Bosníu ásamt Amiru móður sinni
(Binoche).
Will býr með Liv (Wright-Penn),
sænskættaðri konu og Beu (Ro-
gers), ungri dóttur hennar sem á við
geðræn vandamál að stríða. Það
hriktir í sambúðinni af ýmsum or-
sökum og fer vandi Wills síst minnk-
andi þegar hann kynnist Almiru og
NÝ mynd frá Anthony Minghella
vekur jafnan athygli. Hann er metn-
aðarfullur og samviskusamur leik-
stjóri (stundum einnig handritshöf-
undur), sem gefur sér góðan tíma til
að snurfusa og fínpússa, og telst frek-
ar afkastalítill hvað magnið varðar.
Hann sló í gegn með Enska sjúk-
lingnum (The English Patient),
þriðju myndinni, frumsýnd 1993. Hún
vann öll helstu Óskarsverðlaunin það
árið, m.a. Binoche, sem ber af öðrum
leikurum í Innbroti.
Minghella hefur fært sig yfir hafið,
umhverfi Kaldbaks – Cold Mountain
(’03), næstu myndar hans á undan,
þau taka upp ástarsamband.
Minghella veltir fyrir sér sekt og
iðrun aðalpersónanna sem hann stillir
upp á athyglisverðan hátt á mótum
tveggja heima í stórborginni. Persón-
urnar eru einnig áhugaverðar,
sprottnar úr fjölþjóðasamfélaginu
sem einkennir yfirbragð mannlífsins.
Þær eru ríkar og snauðar, heið-
arlegar, óráðvandar, af ýmsu þjóð-
erni, kynþáttum, trúarbrögðum og
skarast í mannlífsdeiglunni við King’s
Cross.
Víða glittir í betri mynd en sann-
færingarkraftinn vantar í handritið
og þar af leiðandi eru flestar persón-
urnar og athafnir þeirra, dáðlitlar,
þrátt fyrir dramatíkina. Sekt-
artilfinningin grúfir yfir, ekki síst
arkítektinum sem veit ekki í hvorn
fótinn hann á að stíga, biður afsök-
unar til hægri og vinstri uns hann
endurmetur það sem hann á undir
lokin en það uppgjör er ósannfærandi
svo ekki sé meira sagt.
Law er sagður mikið kvennagull,
sá sjarmi fer almennt framhjá karl-
peningnum, held ég. Það vantar í
hann spennuna og náttúruöflin, fyr-
irstöðuna. A.m.k. hér og í síðasta af-
reksverki hans á undan, sem nefnist
Holiday. Þessi frambærilegi leikari
má gæta sín að verða ekki annar
Hugh Grant með sama áframhaldi.
Wright-Penn tekur sig ámóta vel út í
hlutverki sambýliskonu hans, og
klæðir einkar vel ljósi háraliturinn.
Handritið markar þeim vissulega
þröngan bás en þau ná ekki til manns.
Binoche fær meira svigrúm og þessi
gæðaleikkona lífgar heilmikið upp á
þau atriði sem hún kemur fram í og
saga þeirra mæðginanna er hvað eft-
irminnilegast af leiftrum úr mannhaf-
inu í Lundúnaborg.
Minghella er mikið niðri fyrir en
kemur væntingum sínum til skila í
handriti í aðeins fáeinum, afmörk-
uðum atriðum sem eru frumleg og
markviss. Þar kemur m.a. Farmiga
(The Departed), við sögu í skondnu
hlutverki austur-evrópskrar gleði-
konu; Samband bosnísku mæðg-
inanna er heilsteypt og trúverðugt,
sama má segja um samdrátt Sandys
og þeldökkrar ræstingakonu sem
vinnur hjá honum. Tónlist, kvik-
myndataka og útlit er Innbroti í hag.
Arkítekt endur-
skoðar líf sitt
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjóri:Anthony Minghella. Aðalleik-
endur: Jude Law, Juliette Binoche, Robin
Wright Penn, Rafi Gavron, Poppy Rogers,
Martin Freeman, Vera Farmiga, Ray Win-
stone. 120 mín. Bandaríkin 2007.
Innbrot/Breaking and Entering
Sæbjörn Valdimarsson
Innbrot „Víða glittir í betri mynd en sannfæringarkraftinn vantar í hand-
ritið og þar af leiðandi eru flestar persónurnar og athafnir þeirra, dáðlitl-
ar, þrátt fyrir dramatíkina,“ segir m.a í dómnum.
Söngkonan Britney Spears hittisyni sína tvo um helgina þegar
þeir heimsóttu hana á Promises-
meðferðarheimilið segir á vefriti
People í gærkvöldi.
Fyrrverandi eiginmaður hennar,
Keven Federline,
kom með synina
til hennar, Sean
Preston, 17 mán-
aða, og Jayden,
fimm mánaða, á
laugardags-
kvöldið.
„Börnin eru
númer eitt í for-
gangsröðinni hjá
Federline og hafa alltaf verið,“ sagði
heimildarmaður við People.
„Hann er mjög stressaður núna út
af ástandinu en hann vill aðeins það
besta fyrir Britney og börnin.“
Þetta var í annað skipti sem Fe-
derline heimsótti Britney en hann
fór einnig til hennar síðastliðinn
föstudag en var þá einn á ferð.
Britney sem er aðeins 25 ára
skráði sig sjálf inn á meðferðarheim-
ilið í Malibu þriðjudaginn 20. febr-
úar, hún fór þaðan morguninn eftir
en sneri til baka á fimmtudagskvöld-
inu. Heimsbyggðin fór ekki varhluta
af fréttum af lífi Britney þá daga
sem hún var ekki á heimilinu því
eins og frægt er orðið rakað hún sig
sköllótta í vikunni.
Fólk folk@mbl.is