Morgunblaðið - 28.03.2007, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ einföldun sem kalla má
grófa eða gagnlega eftir því hvað-
an horft er má segja að Þorvaldur
Þorsteinsson sé tveir höfundar, og
eru þar ótaldir aðrir listamenn
sem í honum búa og fást við sjón-
listir af ýmsum toga. Annar höf-
undanna skrifar djúp og dularfull
verk fyrir börn, sem gjarnan eru
það innihaldsrík að fullorðnum er
skemmt líka, Skilaboðaskjóðuna
og bækurnar um Blíðfinn. Hinn
fer í könnunarleiðangra um nú-
tímasamfélagið og niður í undir-
heima sálarlífsins og flytur okkur
tíðindi úr skúmaskotum sem leyn-
ast (kannski) í venjulegu fólki sem
maður hittir á götu eða býr í
næsta húsi. Verk eins og Sveins-
stykki, And Björk of Course og
Maríusögur, sem Þorvaldur skrif-
aði einmitt fyrir Nemendaleik-
húsið eins og Lífið – notk-
unarreglur nú.
Svo einfölduninni sé haldið að-
eins til streitu þá er það fyrr-
nefndi höfundurinn sem núna
spreytir sig. Lífið – notk-
unarreglur er ævintýraverk fyrir
fullorðna, tilraun til að nota form
og skáldaleyfi slíkra verka til að
koma erindi sínu á framfæri. Það
er nokkuð vel til fundið. Grunnlík-
ing verksins um fólkið sem er á
leiðinni í gegnum skóginn er kjör-
in til að tjá mismunandi afstöðu
okkar til vegferðarinnar og þá
ekki síður til að beina athyglinni
að hinum óorðuðu og óskráðu
reglum og kröfum sem við þurfum
að hlíta, eða teljum okkur þurfa
að gangast undir.
Efnið er kunnuglegt þeim sem
fylgst hafa með skrifum Þorvaldar
undanfarið eða hlýtt á fyrirlestra
hans. Hér er lofsungin sú frjáls-
borna afstaða til lífsins að líta á
allar athafnir sínar sem skapandi
en messað gegn ítroðslu og braut-
arlagningu skólakerfisins og sam-
félagsins. Hér er þessum boðskap
komið haganlega fyrir í stórri lík-
ingu, sögu af hópi ungs fólks á leið
gegnum skóg með ólíka afstöðu til
ferðalagsins. Sumir njóta ferð-
arinnar, mæta því sem fyrir augu
ber opnir og tilbúnir. Aðrir mæna
stífir á sjóndeildarhringinn, stað-
ráðnir í að ná leiðarenda sem þeir
vita vart hver er. Sumir gleðjast
yfir fegurðinni, aðrir mæla og
skrásetja tré og annað sem fyrir
augu ber.
Boðskapurinn er fallegur og fer
vel í þessari umgjörð. Tvennt
kemur þó í veg fyrir að þessi rýn-
ir heillist algerlega upp úr skón-
um. Fyrir það fyrsta þá vinna þær
formkröfur sem verkefni fyrir út-
skriftarhóp gera dálítið gegn
áhrifamættinum og ævintýratöfr-
unum. Það þarf nefnilega að skrifa
verk með átta nokkurn veginn
jafnbitastæðum hlutverkum, og
það hefur Þorvaldur gert. En það
sem tapast við það er ein dýpsta
uppspretta töframáttar ævintýr-
isins: sagan. Framvindan verður
óhjákvæmilega í öðru sæti þegar
svo margir þurfa að láta ljós sitt
skína. Svo er líka snúið að finna
átta áhugaverðar afstöður til
ferðalagsins, og tekst ekki alveg
hér.
Hitt atriðið sem togar hrifning-
arstigið niður er stíllinn á text-
anum, þ.e.a.s. sá hluti hans sem er
í bundnu máli. Þetta er vand-
meðfarið stílbragð og nær fyrir
minn smekk ekki því flugi hér sem
réttlætir notkun þess. Í stað þess
að efla slagkraftinn í verkinu dró
mælgin úr honum, en sem betur
fer er sú aðferð ekki allsráðandi í
textanum. Og þegar best lætur er
hann magnaður og lýsir persónun-
um betur en þær ætluðust kannski
til sjálfar, nokkuð sem hinn höf-
undurinn sem býr í Þorvaldi er
meistari í.
En þótt rímið í leiktextanum sé
stundum fullrislítið þá eru söng-
textarnir glettilega góðir, og tón-
listin frábær. Það er töfrablær yf-
ir lögum Megasar sem bæði hafa
skýr höfundareinkenni hans en
eru jafnframt eins og sniðin fyrir
leiksvið og vísa bæði í söngleikja-
hefð og barnaleikrit. Flutning-
urinn smekklegur mjög, bæði hjá
hljómsveit og söngvurum.
Flæðið í sýningunni er mark-
visst og efnistök leikstjórans
örugg. Umgjörðin er rómantísk,
litir mildir, búningar með fallegum
fortíðarblæ þótt viðfangsefnið sé
klárlega hráblautur samtíminn.
Þessi sýning er þótt skömm sé
frá að segja mín fyrstu kynni af
útskriftarhóp Listaháskólans að
þessu sinni. Eiginlega finnst mér
lítið um hvern einstakan leikara
að segja á grundvelli frammistöð-
unnar hér, sem er heilt yfir alveg
skotheld. Hef reyndar grun um að
sem leikverkefni séu hlutverkin
hér ekki ýkja krefjandi. Það sama
má segja um aðrar rullur sem
leikarar Leikfélags Akureyrar
skila með prýði. Ég hlakka til að
fylgjast með framgangi hinna
ungu listamanna næstu árin og
óska þeim alls hins besta.
Lífið – notkunarreglur er
óvenjuleg og áhrifamikil sýning
sem skilur eftir bæði spurningar
og skýra tilfinningu fyrir afstöðu
höfundar síns til ýmissa gilda í nú-
tímanum. Það er alvara á bak við
bernska útfærsluna, þungi undir
rómatísku yfirborðinu. Það eru
mörg vopn á lofti og kannski ekki
skrítið að ekki takist að hafa
styrka hönd á þeim öllum. En það
sem hún hefur að segja er mik-
ilvægt og hlátur áhorfenda á
frumsýningu var aldrei hæðn-
ishlátur þeirra sem vita betur, æv-
inlega hlátur þess sem hittir sjálf-
an sig fyrir á óvæntum stað.
Skógar-
ferð
Öruggt „Flæðið í sýningunni er markvisst og efnistök leikstjórans örugg.“
LEIKLIST
Leikfélag Akureyrar
og leiklistardeild LHÍ
Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson. Tón-
list: Megas. Leikstjóri: Kjartan Ragn-
arsson. Leikmynd og búningar: Þorvaldur
Þorsteinsson. Tónlistarstjórn: Magga
Stína. Lýsing: Björn Bergsteinn Guð-
mundsson. Hljóðmynd: Magga Stína og
Kristján Edelstein. Leikgervi: Ragna
Fossberg. Hljómsveit: Magga Stína,
Kristján Edelstein, Unnur Birna Björns-
dóttir og Sigurður Helgi Oddsson. Leik-
endur: Anna Svava Knútsdóttir, Bjarni
Snæbjörnsson, Guðjón Davíð Karlsson,
Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra Har-
aldsdóttir, Magnús Guðmundsson, Ólafur
Steinn Ingunnarson, Páll Sigþór Pálsson,
Sara Marti Guðmundsdóttir, Sigrún Huld
Skúladóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir,
Vignir Rafn Valþórsson og Þráinn Karls-
son.
LÍFIÐ – NOTKUNARREGLUR
Þorgeir Tryggvason
TÓNLISTARMAÐURINN Michael
Jackson virðist ætla að endurnýja
feril sinn í skemmtanaborginni Las
Vegas ef marka má síðustu fréttir.
Fregnir bárust af því fyrir nokkru
að Jackson-bræðurnir myndu sam-
einast fyrir sérstaka Jackson 5-
sýningu en nú lítur út fyrir að atriðið
muni eingöngu snúast um skærustu
stjörnuna af þeim bræðrum. Þetta
styður að minnsta kosti hugmynd
tónlistarmannsins um risastórt vél-
menni í hans mynd sem ætlað er að
skjóta leysigeislum út í loftið í miðri
eyðimörkinni. Er vélmennið hugsað
sem auglýsing fyrir væntanlega sýn-
ingu og mun Andre Van Pier, sem
hannaði geimbúningana fyrir tón-
leika U2 í New Orleans á dögunum,
sjá um að smíða vélmennið.
Vinnur að nýrri plötu
Þá segir sagan að Michael Jack-
son hafi keypt sér fasteign í borginni
og hitt á fundi fjölmarga hóteleig-
endur og framámenn í skemmt-
anaiðnaðinum í þeim tilgangi að
ræða hugmyndir um væntanlega
Jackson-sýningu. Talsmaður Jack-
sons, Raymon Bain, vill þó ekki stað-
festa að tónlistarmaðurinn muni
skemmta í Las Vegas og segir of
snemmt að alhæfa nokkuð.
„Hann hefur ekki ákveðið sig
ennþá hvort hann komi til með að
sýna í Las Vegas en hann er þar
staddur til að klára breiðskífu sem
hann er með í smíðum. Honum líður
vel í Las Vegas og upptökustjórar
og lagahöfundar eiga auðvelt með að
hitta hann þar.“
Á meðal þeirra sem leggja til lög á
plötuna eru Rodney Jerkins, will.i-
.am úr Black Eyed Peas og Neffu.
Jackson er samningslaus sem stend-
ur en stendur í samningaviðræðum
um dreifingarsamning. Ekki er vitað
hvert nafn plötunnar verður.
Vill risastórt vélmenni í eyði-
mörkinni sem skýtur geislum
Michael Jackson þreifar fyrir sér í Las Vegas
Skrítinn Jackson er líklega þekktasti furðufugl samtímans og orðspor
hans hefur af ýmsum sökum tekið djúpa dýfu á undanförnum missserum.
Reuters
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
The Hitcher kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
The Hitcher LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
Epic Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
The Number 23 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 5.30 og 10.15 B.i. 12 ára
Anna og Skapsveiflurnar STUTTMYND kl. 4 og 4.45
Night at the Museum kl. 5.40
The Hitcher kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Epic Movie kl. 6 og 10 B.i. 7 ára
Norbit kl. 6 og 8
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
JIM
CARREY
eeee
K.H.H. - FBL
HÚN ER STÓR...
VIÐ MÆLDUM
UPPLIFÐU MYNDINA SEM
FÉKK ENGIN ÓSKARS-
VERÐLAUN!
700 kr fyrir fullorðna
og 500 kr fyrir börn
Frá framleiðendum
Texas Chainsaw Massacre
og The Amityville Horror
Magnaður spen-
nutryllir um
ferðalag tveggja
háskólanema
á ónefndum
þjóðvegi í USA
og hremmingum
þeirra!
Stranglega bönnun innan 16 ára