Morgunblaðið - 28.03.2007, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 51
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
6
9
12
250
50
300
milljónir
Bónus-vinningur
8
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
lotto.is
Vertu me› fyrir kl.16.
1. vinningur
Sumar í
Evrópu!
Sölukössum loka› klukkutíma fyrr
á sumrin -- kl. 16.
Potturinn stefnir í 50 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 250 milljónir og bónusvinningurinn í 8 milljónir.
NÝ SKÁLDSAGA eftir J.J.R. Tol-
kien er væntanleg í næsta mánuði.
Nú hvá eflaust margir enda lést Tol-
kien árið 1971. Bókin heitir The
Children of Húrin en það er, Chri-
stopher sonur höfundarins sem hefur
unnið að því að ganga frá ókláruðu
handriti Tolkiens.
Bókin mun koma út 17. apríl næst-
komandi en þá verða 89 ár liðin síðan
höfundur hennar byrjaði á henni.
Í breska dagblaðinu The Indep-
endent segir að útgefandinn Harper-
Collins gefi ekkert uppi um sögu-
þráðinn en að bókin muni að öllum
líkindum verða vel til þess fallin að
kvikmynda hana.
Að sögn Chris Crawshaw, sem er
formaður Tolkien-félagsins í Bret-
landi, leit Tolkien á verk sín sem eina
langa sögu um Miðgarð (Middle
Earth), frá sköpun hans að endalok-
um þriðja tímaskeiðinu en þessi saga
mun gerast snemma í heildarsögunni.
Christopher Tolkien studdist við
gríðarlegt safn minnispunkta föður
síns. Þetta er annað ókláraða verkið
sem hann lýkur við eftir fráfall föður
síns en 1977 kom út bókin Silm-
arillion.
Ný bók eftir Tolkien
Vinsæll Hringadróttinssaga Tolkiens hefur hrifið marga í gegnum tíðina.
GAMANMYNDIN Borat er nú
komin á DVD í verslanir um land
allt og líkt og búast mátti við,
selst myndin vel enda Sacha
Baron Cohen, sá sem leikur
Borat, einn vinsælasti grínari
heims um þessar mundir. Senu
hafa hins vegar borist allmörg
símtöl vegna útgáfu mynd-
disksins þar sem útlit hans sjálfs
gefur til kynna að diskurinn sé
afritaður eða skrifaður á tölvu.
Sannleikurinn er sá að Sacha
Baron Choen setti það skilyrði
við útgáfuna að diskurinn skyldi
framleiddur með þessum merki-
miða – sem sagt grín sem ekki
virðist skila sér til allra grínelsk-
andi aðdáenda Cohens.
Sena vill af þessu tilefni full-
vissa viðskiptavini sína um það
að allir Borat-mynddiskarnir sem
keyptir eru hér á landi – og eru
með Senu-merkinu á hulstrinu –
eru hágæðavara og framleiddir
af fyrirtækinu Cinram í Þýska-
landi.
Óskiljan-
legt grín
Sökudólgurinn Sacha B. Cohen í
hlutverki fréttamannsins Borats.
TILRAUNAELDHÚSIÐ, eða
Kitchen Motors, stendur fyrir tón-
leikum í Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld og annað kvöld.
Í kvöld koma fram Jóhann Jó-
hannsson & Monade, The Reykja-
vik Trombone Choir og Angil &
the Hiddentracks ft. Kira Kira.
Monade, öðru nafni Laetitia Sa-
dier, er frönsk tónlistarkona og
rithöfundur, best þekkt fyrir söng
sinn með tilraunarokkhljómsveit-
inni Stereolab. Jóhann Jóhannsson
hefur komið víða við í íslensku
tónlistarlífi og starfað með fjöl-
mörgum þekktum tónlist-
armönnum, bæði innlendum og er-
lendum. Hann stofnaði
Orgelkvartettinn Apparat árið
1999 og er einnig einn af stofn-
endum Tilraunaeldhússins.
Annað kvöld flytja svo lista-
menn úr ýmsum áttum The Hel-
vetis Plinki Plonk Symphony sem
er framúrstefnuleg raftónlist.
Bæði kvöldin hefjast tónleikarn-
ir klukkan 22.00.
Fjölbreytt tilraunaeldhús
Jóhann Jóhannsson Kemur fram í
kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum.