Morgunblaðið - 02.04.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 91. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Epli, gulrætur
og enginn viðbættur sykur!
Nýtt
bragð!
Aðeins 42 hitaeiningar í 100 g
og hentar flestum sem hafa
mjólkursykursóþol
MJÓI OG FEITI
ALEXANDER OG ÍSLEIFUR ERU SVARTIR
OG SAMRÝNDIR KYNJAKETTIR >> 17
GÆÐINGAVEISLA
Á ÍS OG JÖRÐ
KVENNAFANS
HESTAÍÞRÓTTIR >> 28
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
SVEITARFÉLÖG sem hafa á sínum svæð-
um miklar og vaxandi frístundabyggðir
liggja ekki á digrum sjóðum af þeim sökum.
Kostnaður vegna sorphirðu og frárennslis-
mála getur verið mun meiri en tekjur sveit-
arfélagsins vegna gjalda sem lögð eru á
sumarhúsaeigendur vegna þessarar þjón-
ustu sem og fasteignagjalda.
Þannig er því m.a. farið í sveitarfélaginu
Bláskógabyggð, þar sem er eitt blómlegasta
sumarbústaðasvæði landsins. „Það er að
minnsta kosti eitt sem er öruggt, Bláskóga-
byggð liggur ekki á digrum sjóðum vegna
fasteignagjalda sumarhúsaeigenda,“ segir
Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri í Bláskóga-
byggð.
Erfitt er að aðgreina hver kostnaður
vegna frístundabyggða er hjá sveitarfélög-
um, þar sem sumarhúsaeigendur nýta sér
margs konar þjónustu sveitarfélagsins líkt
og íbúar sem þar búa árið um kring. Má þar
nefna læknisþjónustu, menningar- og
íþróttastarf.
Meiri kostnaður en tekjur
Á dreifbýlum svæðum, líkt og þeim sem
vinsæl eru fyrir frístundabyggðir, er kostn-
aður vegna sorphirðu og hreinsunar rotþróa
mjög mikill. „Í engum af þessum málaflokk-
um erum við með gjaldtöku sem er nálægt
því að dekka þann kostnað sem hlýst af
framkvæmdinni,“ segir Valtýr.
Mikill mismunur er á þeim tölum sem
Fasteignamat ríkisins gefur upp varðandi
fjölda sumarhúsa í Bláskógabyggð annars
vegar og fjölda þeirra sumarhúsa sem inn-
heimt eru gjöld af hins vegar. Munurinn er
um 30–40%. Helgast það m.a. af því að
stundum eru talin tvö sumarhús á hverri lóð,
sé þar að finna lítið gestahús eða bátaskýli.
Hefur Bláskógabyggð farið þess á leit við
Fasteignamatið að tölurnar verði endur-
skoðaðar. Þá vinnur starfshópur, sem skip-
aður er fulltrúum Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og Landssambands sumarhúsa-
eigenda, að gerð skýrslu um frístunda-
byggðir og hefur óskað eftir upplýsingum
frá sveitarfélögum um fjölda sumarhúsa,
fasteignaskatta, sorphirðugjöld o.fl.
Um síðustu áramót voru skráð 10.450
sumarhús á landinu, þar af 4.451 í uppsveit-
um Árnessýslu. 1.702 þeirra eru í Bláskóga-
byggð og 2.304 í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Á síðasta ári voru óvenjumörg ný
íbúðarhús samþykkt á þessu svæði eða 77 en
voru 36 árið áður. Einnig hefur verið síaukin
ásókn í að stofna ný lítil lögbýli þar sem fólk
byggir t.d. íbúðarhús og hesthús.
Ljósmynd/Sigurður Jónsson
Ásókn Sumarhús í Grímsnesi eru vinsæl.
Liggja ekki
á digrum
sjóðum
Mikil ásókn í íbúðar-
húsalóðir í uppsveitum
HAFNFIRÐINGAR höfnuðu
stækkun álversins í Straumsvík í
íbúakosningu á laugardag með 88
atkvæða mun. Kjörsókn var mikil
eða tæp 77%, sem er meiri kjörsókn
en var í sveitarstjórnarkosningun-
um fyrir tæpu ári. Rannveig Rist,
forstjóri Alcan, segir niðurstöðu
kosninganna eitt versta áfall í sögu
fyrirtækisins og Pétur Óskarsson,
talsmaður Sólar í Straumi, segist
ekki hafa áhyggjur af því að ál-
verinu í Straumsvík verði lokað og
það fari úr Hafnarfirði.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, segir úrslit kosning-
arinnar endurspegla það sem menn
áttu von á, að afar mjótt væri á mun-
um. „En þetta er eiginlega minni
munur en ég átti von á, ekki síst
vegna þess að það var gríðarlega
mikil þátttaka og það er það ánægju-
legasta við þessar kosningar.“ Hann
segir ekki óeðlilegt að löggjafinn setji
rammalöggjöf um kosningar sem
þessar og í sama streng tekur Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins og
menntamálaráðherra. „Þetta eru
ákveðin þáttaskil hvað varðar íbúa-
lýðræði og ég tel að það sé alveg ljóst
að í framhaldinu verðum við að setja
skýrari reglur og ramma um slíkar
kosningar,“ segir hún.
Virkjað í Þjórsá
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að
þessi úrslit hafi ekki áhrif á fyrirætl-
anir um virkjanir í neðri hluta Þjórs-
ár, en framkvæmdir muni ekki hefj-
ast fyrr en kaupandi að raforkunni sé
fundinn. Árni Sigfússon, bæjarstjóri
í Reykjanesbæ, og Ragnar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri hjá
Norðuráli, segja að niðurstaðan í
Hafnarfirði breyti engu um fyrirætl-
anir um byggingu álvers í Helguvík,
en stefnt er að því að fyrsti áfangi
verði tekinn í notkun haustið 2010.
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins og iðnaðarráð-
herra, segir að niðurstaðan haldi
ekki lengur en bæjarstjórnin vilji.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, segir úrslitin stóran sigur fyrir
lýðræðið og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingarinn-
ar, segir að kosningin í Hafnarfirði
marki söguleg tímamót. | 20
Eitt versta áfall í sögu
álversins í Straumsvík
Löggjafinn þarf að setja ramma og skýrari reglur um íbúakosningar
!
!
"
$
BJÖRK Guðmundsdóttir fór fyrir fríðum flokki tónlistarmanna á
tónleikum á NASA við Austurvöll í gærkvöldi.
Tónleikarnir, sem báru yfirskriftina Vaknaðu!, voru haldnir fyrir
tilstuðlan FORMA, samtaka átröskunarsjúklinga á Íslandi. Rennur
allur ágóði af tónleikunum til samtakanna, sem hafa það að mark-
miði að vekja máls á sjúkdómnum.
Auk Bjarkar var gert ráð fyrir að myndu stíga á pall tónlistar-
mennirnir Mugison, Lay Low, Pétur Ben, KK, Wulfgang og Magga
Stína og Esja. Jafnframt áttu að koma fram stjórnmálamennirnir
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra, Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
stjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Kolbrún Halldórsdóttir, auk
Matthíasar Halldórssonar landlæknis.
Björk tróð upp á Íslandi með Sykurmolunum sl. haust en hún er
nú að leggja í heimstónleikaferð til kynningar á nýrri breiðskífu,
Volta, sem kemur út 7. maí nk. Verða fyrstu tónleikarnir í tónleika-
ferðinni hér á Íslandi eftir viku og það verða jafnframt fyrstu tón-
leikar hennar á Íslandi í sex ár.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Vaknað á NASA