Morgunblaðið - 02.04.2007, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 2. hæð, 105 Reykjavík
Símar: 515 1735 og 898 1720, fax: 515 1717
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingis-
kosninganna 12. maí nk. er hafin.
Kosið er hjá sýslumönnum um allt land. Hjá Sýslumanninum í
Reykjavík, Skógarhlíð 6, er kosið alla virka daga kl. 9.00 – 15.30,
laugardaga, sunnudaga og aðra helgidaga kl. 12-14, en lokað
föstudaginn langa og páskadag.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á
heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýsingavef
dómsmálaráðuneytisins www.kosning.is
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um stuðningsmenn sem ekki verða heima
á kjördag, t.d. námsfólk erlendis.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Ég kom með græjurnar, þegar ég var og hét maddama flokksins, þá reyndist ekkert betra,
þegar á móti blés, en „vellingurinn“ hafragrauturinn dugir ekki til, góða.
VEÐUR
Fréttaskýring, sem birtist á for-síðu Morgunblaðsins sl. föstu-
dag, leiddi í ljós, að enn eru átök í
eigendahópi Glitnis.
Það er í sjálfu sér umhugsunarefnihversu mikill órói hefur verið í
hópi helztu eigenda bankans undan-
farin ár en nú stefnir í uppgjör.
FL Group erorðin stærsti
eigandi bankans
og sennilega
langstærsti ef
með eru taldir
ýmsir samstarfs-
aðilar þess félags.
ForráðamennFL Group gera kröfu til þess að
sá veruleiki endurspeglist í stjórn
bankans og ljóst að Hannes Smára-
son ætlast til að hann verði formað-
ur bankaráðsins fyrr en síðar.
Hannes hefur augljóslega unniðafrek með uppbyggingu FL
Group og þess vegna þarf ekki að
koma á óvart að hann hafi uppi slík-
ar kröfur.
Þessi átök geta ekki endað nema áeinn veg. FL Group mun á einn
eða annan veg yfirtaka bankann.
En þar með er þessari sögu ekkilokið.
Verulegar líkur eru á, að Glitnirrenni saman við annaðhvort
Kaupþing banka eða Landsbank-
ann.
Það eru efnisleg rök fyrir slíkrisameiningu í bankaheiminum
hér og aðstæður allt aðrar en fyrir
nokkrum árum.
Kannski páskarnir verði við-burðaríkur tími í sögu Glitnis?
STAKSTEINAR
Hannes Smárason
Uppgjör í Glitni?
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
! ""
! ""
#
! ""
9
)#:; ""
! "
# $% &!
) ##: )
$% & "!
"% "!
'
#!
(#
<1 <
<1 <
<1
$'!&
")
*"+ #,
;#
<6
-#
&"."
"" "
/
#
.""
' ! "! "(
#!
/" 0"1",/
"
0
7
1&"%
&" ",/
"0"2
%& "
# %
."
"
"!
(
#!" " !#
0"3'
."
"
""!!# """
"
# 4" "%
0
5
1
5
" "
# %
" "!*
.
%
"
0
6
"" #
% #"
#.
"
"
"%
0
1""
""
."
""-#
#
0
7/""#88
#!""5 #
#")
2&34 =3
=)<4>?@
)A-.@<4>?@
+4B/A (-@
.
.
.
0 0 .
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
. .
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Guðríður Haraldsdóttir | 1. apríl
1. apríl!
Alltaf er maður nú
að fá skemmtileg
SMS ... ég fékk eitt áð-
an frá Hildu systur og
ég er búin að flissa
síðan. Það hljómar
svona: „Er að verða
batteríslaus. Getur þú hringt í mig í
síma 535 9999.“ [...] Ég hringdi í
hvelli til að reyna að hjálpa henni og
redda ... og heyrði rödd á símsvara:
„Góðan dag. Djörfustu dömurnar
eru að sjálfsögðu á Rauða torginu...“
og skellti á í algjöru losti.
Meira: gurrihar.blog.is
Kolbrún Baldursdóttir | 1. apríl
Sorgleg niðurstaða
Rétt er að líklega
verða engar stórbreyt-
ingar hvað álverið
varðar á morgun,
næsta ár eða kannski
allra næstu árin. En
eins og Rannveig Rist
sagði þá rennur raforkusamning-
urinn út eftir 6 ár. Verksmiðjan
stenst auk þess ekki lengur sam-
keppni og hver vill reka verksmiðju
sem ekki stenst samkeppni? Stærsta
sorgin við þessa niðurstöðu er að
ekki er hægt að flytja verksmiðjuna.
Meira: kolbrunb.blog.is
Sóley Tómasdóttir | 31. mars
Til hamingju!
Til hamingju Ísland og
heimsbyggðin öll með
umhverfisvænan
meirihluta Hafnfirð-
inga sem hafnaði
stækkun álversins í
Straumsvík. Auk þess
langar mig að óska Agli Helgasyni
til hamingju, enda lítur út fyrir að á
morgun mæti til hans fjórar konur
og tveir karlar. Það er bara að verða
full vinna að hrósa Stöð 2 fyrir fram-
farir í jafnréttismálum, en ég tel það
ekki eftir mér.
Meira: soley.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 1. apríl
Húsvíkingar fagna
Húsvíkingar, vinir mín-
ir, vonuðu langflestir að
Hafnfirðingar felldu
stækkun álversins í
Straumsvík af skilj-
anlegum ástæðum.
Kannski má segja að
Húsvíkingar og nærsveitamenn mín-
ir í Þingeyjarsýslum sem styðja álver
við Bakka gleðjist mest í kvöld. Það
skil ég mjög vel. Það má í raun finna
blæ gleðinnar sveima hingað yfir í
Eyjafjörðinn á þessari nóttu. Ég
samfagna með Húsvíkingum. Þetta
er þeirra tækifæri til að sækja fram!
Hafnarfjörður er klofinn í tvær
jafnstórar fylkingar eftir atburði
dagsins. Kosningin skilur eftir sig
erfið úrlausnarefni - þar eru fylkingar
sem börðust á banaspjótum til hinstu
stundar. Baráttan var hörð, sárin eru
augljós. Gangi þeim vel skoðanalausa
bæjarstjóranum í Hafnarfirði og
flokksfélögum hans að bera klæði á
vopnin. Oft er sagt að skoðanaleys-
ingjar séu ágætir í að bera klæði á
vopnin. Það reynir á það í Hafn-
arfirði.
Það er oft sagt að eins dauði sé
annars brauð. Þeir á Húsavík munu
sækjast eftir því að nýta tækifærin
sem koma til þegar að aðrir sólunda
þeim. Gangi Húsvíkingum vel í sinni
baráttu fyrir stóriðju. Hafnfirðingar
færðu þeim glæsileg tromp til þeirrar
baráttu á þessum merkilega laug-
ardegi.
Meira: stebbifr.blog.is
Anna Karen | 31. mars 2007
Um þjóðsönginn
Þetta er ekki texti um
það hversvegna við
séum svona frábært
land, heldur það hvern-
ig við eigum allt Guði að
þakka, án hans erum
við ekkert og íslend-
ingar eru samkvæmt textanum guð-
hræddari en allt hreinlega og und-
irgefnir við Guð, síkvakandi og
þakkandi fyrir þessa miklu dýrð-
argjöf sem Ísland er. Mér finnst þetta
því snúast fyrst og fremst um virð-
ingu fyrir Guði. Þeir sem sömdu þjóð-
sönginn og völdu hann fyrir okkur
vildu fjúsa guðhræðslu saman við allt
sem skiptir máli, náttúruna, óham-
ingjuna og gleðina.
Meira: halkatla.blog.isMeira:
BLOG.IS