Morgunblaðið - 02.04.2007, Side 16

Morgunblaðið - 02.04.2007, Side 16
16 MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is HEIMILDAMYNDIN „Leiðin til Gimli“ eftir Svein M. Sveinsson, kvikmyndagerðarmann og eiganda Plús-Film ehf., verður frumsýnd í Sjónvarpinu á skírdag. Myndin greinir frá póstferð íslenskra hesta- manna frá Eyrarbakka á Suðurlandi til Gimli í Manitoba í Kanada en ferðin var farin sumarið 2005 í tilefni þess að um þær mundir voru 130 ár frá því Íslendingar settust fyrst að við Winnipegvatn. Draumur að veruleika Sveinn Sveinsson segir að gerð myndarinnar megi rekja til veru Kanadamannsins Declans O’Dris- colls á Íslandi fyrir nokkrum árum. Hann hafi numið leikhúsfræði í Tor- onto og hafi heimsótt fangelsið á Litla-Hrauni og óskað eftir því að setja upp leikrit um fanga. Leyfið hafi verið veitt og hann hafi kynnst Karli Ágústi Andréssyni, fangaverði, sem hafi boðið honum að búa hjá sér gegn því að sjá um hesta sína. Karl Ágúst hafi lengi átt sér þann draum að ríða á íslenskum hestum um byggðir Íslendinga í Vesturheimi og saman hafi þeir látið drauminn ræt- ast. Lagt hafi verið upp í póstferðina frá Eyrarbakka á þjóðhátíðardegi Kanada, 1. júlí 2005, og komið til Gimli fyrir Íslendingadagshátíðina fyrsti helgina í ágúst en ferðinni hafi lokið með þátttöku í árlegri skrúð- göngu hátíðarinnar. Fjölmörg bréf til fólks í Vesturheimi voru með í för og voru þau stimpluð á Eyrarbakka og síðan á öllum áfangastöðum. Fjöldi hestamanna fylgdi póstlest- inni úr hlaði en síðan voru fimm hestar fluttir frá Íslandi til Kanada þar sem níu íslenskir hestar í eigu Bretts Arnasonar í Winnipeg bætt- ust við. Ferðin í Kanada hófst á há- tíðinni IceFest í Kinmount í Ontario og síðan var komið við á nokkrum stöðum áður en yfir lauk á Gimli. Móttökur voru skipulagðar á hverj- um viðkomustað og kom fólk víða að til að hitta ferðalangana og skoða hestana. „Segja má að íslenski hest- urinn hafi alls staðar stolið senunni,“ segir Sveinn, „en það sem kom okk- ur mest á óvart var þessi mikli mannfjöldi sem kom víða að. Flestir voru af íslensku bergi brotnir og við fundum fyrir því að við værum að opna leiðina til þeirra. Þessi mikli áhugi Kanadamanna af íslenskum uppruna á því að bæta tengslin og vera í sambandi við Ísland og Íslend- inga var áberandi og ræktin sem þeir leggja við upprunann er aðdá- unarverð.“ Alveg eins Declan skipulagði ferðina en reið- menn frá Íslandi voru Karl Ágúst Andrésson, Friðþjófur Ragnar Frið- þjófsson, Elín Ósk Þórisdóttir og Valur Gíslason. Lauren Arnason bættist svo við í Kinmount. Stefán Gunnarsson, Helga Sigurbjörns- dóttir og Herdís Stefánsdóttir sáu um að koma farangrinum á milli staða. Sveinn segir það hafa verið mjög skemmtilegt að ferðast svona langt og lengi með venjulegu fólki. Hópn- um hafi alls staðar verið vel tekið, „tekið eins og glötuðum sonum, eins og einhver sagði. Alls staðar stóðu okkur allar dyr opnar.“ Sveinn segir að í ljós hafi komið að tvö úr hópnum áttu skyldfólk í Mani- toba. Elín Ósk hefði hitt frænda sinn, kvikmyndagerðarmanninn Guy Madden og leit Karls Ágústs hefði borið árangur. „Það var ótrúleg sjón að sjá þessa fimmmenninga hittast í fyrsta sinn,“ segir Sveinn. „Þeir voru eins og bræður og meira segja með eins klippingu. Þetta var góður endir á góðri ferð.“ „Leiðin til Gimli“ frumsýnd Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Póstferð Riðið með póstkassana inn í þorpið Kinmount í Ontario 16. júlí 2005. Frá vinstri: Friðþjófur Ragnar Friðþjófsson, Karl Ágúst Andrésson, Herdís Stefánsdóttir, Valur Gíslason og Elín Ósk Þórisdóttir. Morgunblaðið/Steinþór Kvikmynd Sveinn M. Sveinsson kvikmyndagerðarmaður fylgdi hestafólk- inu eftir í ferðinni og í Kanada byrjaði filman að rúlla í Kinmount í Ontario. Póstferð frá Eyr- arbakka til Gimli Í HNOTSKURN » Íslendingar settust fyrstað við vesturströnd Winni- pegvatns 21. október 1875 og höfðu margir þeirra verið í Kinmount í Ontario árið áður. » Póstferðin „Leiðin tilGimli“ var farin í tilefni þess að um 130 ár voru frá því Íslendingar fluttu þangað. ÚR VESTURHEIMI Stykkishólmur | Frá áramótum hef- ur verið mikill uppgangur hjá Þórs- nesi í Stykkishólmi. Þar hefur verið unnið flesta daga frá byrjun janúar. Á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur fyrirtækið tekið á móti um 2.000 tonn- um af fiski til vinnslu, aðallega þorski. Flutningabílar hafa verið í stöðugum akstri með fisk til vinnslunnar, því hráefnið kemur víða að og svo hafa þeir ekið afurðunum til útskipunar í Reykjavíkurhöfn. Þórsnesið er rótgróið fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæki í Stykkishólmi, stofnað árið 1955. Starfsemi þess hef- ur verið ein af styrkum stoðum í at- vinnulífi bæjarins. Fyrir tæpum þremur árum urðu eigendaskipti. Fyrirtækið hafði áður verið í eigu einstaklinga í Stykkis- hólmi, en fyrir tæpum þremur árum var fyrirtækið selt og var kaupandinn Gunnlaugur K. Hreinsson sem rekur GPG-fiskverkun á Húsavík. Eggert Halldórsson er fram- kvæmdastjóri Þórsness og hann er að vonum ánægður með hvers vel geng- ur hjá fiskvinnslunni. „Í þessari atvinnugrein hefur mað- ur alltaf áhyggjur af því að fá nægj- anlegan afla til vinnslunnar. En á þessari vertíð hefur það verið óþarfi, sem betur fer. Það er búið að vera mjög gott fiskirí í Breiðafirði, vænn og fallegur fiskur. Marsmánuður hef- ur verið sérstaklega góður hjá neta- bátum og þarf að fara aftur í tímann til að rifja um svipuð aflabrögð. Neta- bátar hafa landað yfir 30 tonnum eftir vitjunina,“ segir Eggert „Á sama tíma í fyrra komu inn í hús 960 tonn, sem ekki er að öllu leyti sambærilegt því þá var bæði verið að fletja stóra fiskinn og flaka þann smærri, sem var fluttur ferskur er- lendis. “ En hvaðan kemur aflinn? „Við byggjum hráefni okkar að mestu leyti af viðskiptabátum. Af þessum 2.000 tonnum höfum aðeins keypt 250 tonn á markaði. Við erum í beinum við- skiptum við marga báta sem stunda netaveiðar og línuveiðar. Bátarnir landa víðsvegar og við sækjum fisk- inn alveg frá Þorlákshöfn og norður til Skagastrandar. Við erum ánægð með þessi viðskipti og ég vona að sama eigi við um þá sem selja okkur fiskinn. Allavega fæ ég ekki nema já- kvæð viðbrögð frá þeim og vona að samstarfið við þá haldi áfram,“ segir Eggert Halldórsson. Hjá Þórsnesi vinna 23 starfsmenn og þar af er Eggert og annar starfs- maður á skrifstofu. „Það er því hægt að segja að afköstin séu um 100 tonn á starfsmann í vinnslu fyrstu þrjá mán- uði ársins. Við fletjum fisk fimm daga vikunnar og jafnhliða er pökkun í gangi. Við náum að pakka í einn gám á dag. Hausarnir eru fésaðir og hryggir og annar afskurður fer til þurrkunar hjá Klumbu í Ólafsvík. Við reynum að nýta sem allra best hrá- efnið, því allt eru þetta peningar,“ segir Eggert Eggert var spurður út í afkomuna og telur hann að hún sé viðunandi. Það er hátt verð á saltfiski, en verð á hráefni hangir saman við það. Verð á fiskmörkuðum hefur hækkað um 50% á milli ára. Gott samstarf við norðanmenn Gunnlaugur K. Hreinsson, eigandi Þórsness, rekur öfluga fiskvinnslu á Húsavík, Raufarhöfn og í Noregi. „Það er ágætt samstarf við þá fyrir norðan,“ segir Eggert. „Þar er mikil þekking á saltfiskvinnslu sem hefur komið okkur til góða og var það m.a. ástæðan fyrir því að við snerum okk- ur alfarið að vinnslu á saltfiski. Þá sjá þeir hjá GPG um sölu á afurðunum. Samanlagt hafa þessi fyrirtæki inn- anlands tekið á móti 5.000 tonnum af fiski til vinnslu það sem af er þessu ári,“ segir Eggert. Hörpudiskurinn var áður mikil- vægur í starfsemi Þórsness. „Við höf- um yfir að ráða 34% af varanlegum skelkvóta í Breiðafirði og 25% í Húna- flóa. Veiði á hörpudiski var bönnuð fyrir nokkrum árum og engum skel- kvóta verið úthlutað. Við fáum bætur í bolfiski, en þær hafa minnkað með ár- unum. Það er mögulegt að segja hve- nær aftur verður farið að veiða skel, en vonandi sem fyrst,“ segir Eggert Halldórsson. Þórsnes í Stykkishólmi hefur tekið á móti 2.000 tonnum af fiski frá áramótum Það er fínn gangur hjá okkur Nóg að gera Eggert Halldórsson framkvæmdastjóri og Þorgrímur Krist- insson verkstjóri fyrir framan stæður af fiski sem bíður vinnslu. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Fésun Starfsmenn Þórsness kappkosta ávallt að nýta hráefnið sem allra best. Á myndinni sést hvar verið er að fésa þorskhausa. Í HNOTSKURN » Þórsnes ehf. er fisk-vinnslu- og útgerðarfélag í Stykkishólmi, stofnað árið 1955. Hjá fyrirtækinu starfa 23 menn í landi. »Þórsnes hefur tekið á móti2.000 tonnum af fiski frá áramótum og hafa afköstin sjaldan verið meiri. »Fyrirtækið gerir út bátinnÞórsnes SH sem er á neta- veiðum og landar í Stykkis- hólmi. »Eigandi Þórsness er Gunn-laugur K. Hreinsson á Húsavík. Hann hefur verið duglegur á síðustu árum að byggja upp öflug saltvinnslu- fyrirtæki bæði hér heima og í Noregi og er þátttakandi í út- gerð krókabáta í Stykkishólmi og fyrir norðan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.