Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 25

Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 25 sem var og það var óspart nýtt. Við notuðum hina ýmsu húsmuni til skemmtunar og gangurinn á Laug- arnesveginum var vinsæll vett- vangur fyrir hinar ýmsu keppn- isgreinar, hlaup, langstökk, kapp með „ruggustólinn“ á hvolfi o.s.frv. Það voru líka rólegri athafnir sem voru vinsælar, Stella í orlofi fékk að rúlla ótal sinnum í vídeótækinu og það var hægt að eyða mörgum klukkutímum í stofuglugganum, þar sem blómunum var ýtt til hlið- ar og amma stóð á bak við til að passa að enginn dytti. Einnig voru líka til margir árgangar af Andrési Önd, sem hægt var að sitja yfir í rólegheitum og glugga í. Þau sem eldri voru fengu svo að njóta þekk- ingar og áhuga ömmu á ættfræði því hún gat sagt svo skemmtilega frá lífinu í gamla daga. Amma var mikil handavinnu- kona. Það var sama hvað okkur barnabörnunum datt í hug að okk- ur langaði í af prjónuðum flíkum, viðkvæðið var alltaf: „Finndu bara uppskrift og ég skal prjóna hana.“ Yfirleitt liðu ekki nema nokkrir dagar þar til flíkin var tilbúin. Lopapeysur, ullarsokkar og vett- lingar voru líka afgreiddir eftir pöntun. Upp úr aldamótum veiktist amma af heilabilunarsjúkdómi. Hún fluttist á Skógarbæ þar sem hún naut aðhlynningar yndislegs starfsfólks og kunnum við því þakkir fyrir. Eftir að amma flutti á Skógarbæ kom afi til hennar á hverjum degi. Þar gat hann setið tímunum saman og haldið í hönd- ina á henni, talað við hana um allt og ekkert, jafnvel þótt hún væri hætt að svara. Afi flutti svo á Skógarbæ og þau fengu að eyða síðustu ævidögum hennar saman þar. Það er mikið gleðiefni að þau hafi átt þann tíma, því þar sást, svo ekki verður um villst, að þau sterku bönd sem mynduðust í þeirra langa hjúskap voru ekki horfin þrátt fyrir að bæði væru nú með sama sjúkdóm. Sam- an hafa þau gengið í gegnum súrt og sætt í nærri sjötíu ár, erfiða sjúkdóma, þau misstu fyrsta barnið sitt, eignuðust svo fimm börn, þrettán barnabörn og sex barna- barnabörn. Við munum alltaf minnast ömmu sem þeirrar atorkusömu, vinnu- sömu, fróðu, hlýju og góðu konu sem hún var. Ölrún, Soffía, Eiríkur, Þórdís og Hildur. Við eyddum ekki jafn miklum tíma hjá ömmu Buddu og sum af frændsystkinum okkar þar sem við bjuggum úti á landi en alltaf var samt jafn gott að koma á Laug- arnesveginn og þiggja kókómjólk og leika sér á ganginum eða í fata- skápnum þar sem ljósið slokknaði þegar dyrnar lokuðust. Minning- arnar um ömmu eru fæstar tengd- ar einstökum atburðum heldur er minnisstæðast hvað amma var góð og hvað manni leið alltaf vel þegar maður var í heimsókn, hvort sem það var þegar maður var lítill skæruliði eða eftir að maður varð aðeins stálpaðri. Það var líka alltaf gaman að fá ömmu og afa og oft Boggu frænku með í heimsókn í sveitina. Þau reyndu jafnvel að koma seinni hlutann í ágúst svo að hægt væri að tína ber og amma átti ákveðnar brekkur enda fannst henni ber góð. Á Laugarnesveg- inum kom maturinn endalaust upp úr pottunum eins og einhver brögð væru í tafli; alveg sama hvað gest- unum fjölgaði, alltaf var til nóg handa öllum. Eftir að við fluttum til Reykjavíkur til þess að fara í skóla voru sunnudagskvöldin okkar í mat á Laugarnesvegi ásamt Boggu frænku fastur liður. Þá varð að mæta á réttum tíma því ekki mátti amma missa af Star Trek í sjónvarpinu. Það var alltaf svo gaman að tala við ömmu því allt mundi hún og gat sagt manni í smáatriðum frá öllu sem mann langaði að vita … eða hér um bil. Kæra amma, þín verður sárt sakn- að. Hrönn Magnúsardóttir og Bjarki Magnúsarson. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og stuðning við andlát og kveðjuathöfn föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNESAR GÍSLA SÖLVASONAR, sem lést að heimili sínu í Bandaríkjunum þann 19. febrúar sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Icelandair, starfsfólks útfararstofunnar Athafnar og samstúdenta hans frá Menntaskólanum á Akureyri 1953. Jakob Friðrik Jóhannesson, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Peter Klindt, Salvör Jóhannesdóttir, Magnús Einarsson, Helga Jóhannesdóttir, Hannes Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, VIGDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR SCHRAM (Nenna), sem andaðist þriðjudaginn 28. mars verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 3. apríl kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldu hennar, Kristján Tómas Ragnarsson, Hrafnhildur Ágústsdóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Árni Tómas Ragnarsson, Selma Guðmundsdóttir, Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, Valgeir Guðjónsson, Hallgrímur Tómas Ragnarsson, Anna Haraldsdóttir. ✝ Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SVALA KRISTÍN ÓSKARSDÓTTIR, sem lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands, Egilsstöðum fimmtudaginn 29. mars síðastliðinn, verður jarðsungin miðvikudaginn 4. apríl frá Egils- staðakirkju og hefst athöfnin kl 14.00. Jón Sigfússon, Sigfús Jónsson, Dagný Sylvía Sævarsdóttir, Gúðný Á. Jónsdóttir, Vignir Guðmundsson, Eygló Þ. Jónsdóttir, Ben Shields og barnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, fósturmóðir, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS METÚSALEMSDÓTTIR frá Glúmsstöðum, síðast til heimilis á Dvalarheimili aldraðra á Egilsstöðum, lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands, Egilsstöðum, miðvikudaginn 28. mars. Útför hennar fer fram frá Valþjófsstaðarkirkju þriðjudaginn 3. apríl kl. 14.00. Helga Hallbjörg Vigfúsdóttir, Friðrik Ingi Ingólfsson, Jón Þór Þorvarðarson, Margaret Anne Johnson og barnabörn. ✝ Áslaug Þór-arinsdóttir Bo- ucher fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1917. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 26. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þórarinn Guð- mundsson, skip- stjóri í Reykjavík, f. 29. nóvember 1872, d. 29. ágúst 1951, og kona hans Ragn- heiður Sigurjóna Jónsdóttir, f. 24. júní 1875, d. 6. janúar 1923. Áslaug var næst- yngst tólf systkina sem öll eru lát- in. Áslaug giftist 28. febrúar 1942 Alan Estcourt Boucher, síðar pró- fessor í ensku við heimspekideild Háskóla Íslands. Börn Áslaugar og Alans eru: 1) Alice Kristín Estcourt Bouc- her, f. 9. maí 1944. 2) Robin Gunn- ar Estcourt Bouc- her, f. 15. september 1947, d. mars 1992. Maki: Ingibjörg Dís Geirs- dóttir, f. 18. apríl 1962. Sonur Robins og Ástu S. Eyjólfs- dóttur er Kristófer Estcourt Boucher, f. 15. júlí 1978. 3) Ant- ony Leifur Estcourt Boucher, f. 8. maí 1954, d. 5. apríl 1997. Maki: Angela Boucher, f. 16. nóv- ember 1957. Börn þeirra: a) Petar Alan Estcourt Boucher, f. 13. febrúar 1978. Maki: Jodie Bouc- her. b) Katherine Estcourt Chandler, f. 4. júní 1980. Maki: Michael Chandler. Áslaug á þrjú barnabarnabörn. Sálumessa verður sungin fyrir Áslaugu í Kristskirkju í Landa- koti í Reykjavík í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Nokkur fátækleg orð vegna fráfalls frænku minnar Áslaugar sem ávallt gekk undir nafninu Ása frænka. Kynni mín af Ásu urðu strax þegar ég var varla táningur þegar ég var fenginn til að vera hjá Stínu og Robin þegar þau Alan fóru eitthvað að kvöldi til. Þá strax fann ég til mikillar elsku frá þeim báðum í minn garð. Svo þegar ég fór til Englands til enskunáms haustið 1957 bjó ég hjá þeim, bæði um jólin 1957 og páskana 1958. Hjá þeim og börnum þeirra átti ég dásamlegar stundir. Frænka mín úr móðurætt, Ester, var au pair hjá þeim um þetta leyti. Ég kom með vin- konu mína í heimsókn til þeirra um jólin. Þessi vinkona mín er nú og hef- ur verið eiginkona mín í nær hálfa öld. Þær Ása frænka og Þorbjörg bundust fljótlega vinarböndum sem entust þeim alla ævi Ásu. Það var mikil gæfa að eiga þessa glæsilegu og líflegu frænku og ekki var síður frábært að kynnast Alan þeim frábæra manni sem ég gerist svo djarfur að segja að hafi verið mjög góður vinur minn þrátt fyrir aldursmuninn. Það er alltaf erfitt og líklega óþarfi að hrósa þeim sem hafa haft góð áhrif á mann á lífsleiðinni en ég er sann- færður um það að þau hjónin Ása frænka og Alan eiga stóran þátt í því að ég er og hef verið þó þessi maður sem ég er. Ég þakka þeim báðum af heilum hug fyrir vinskap þeirra við mig og mína. Ég kem til með að sakna þín Ása mín. Þinn frændi, Þórarinn Þ. Jónsson. Ég hitti Ásu fyrst fyrir næstum 26 árum. Þó finnst mér eins og það hafi gerst í gær þegar ég kom fyrst í heim- sókn á Tjarnargötuna. Þar hélt Ása fallegt og rausnarlegt heimili og þar tóku Ása og Alan vel á móti öllum, bæði ungum og gömlum og úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Þá var ekki síður notalegt að heimsækja þau Alan til Englands. Það var yndislegt að slappa af í fallegum garðinum og gaman að hjálpa til við garðvinnu ef svo bar undir. Einu sinni rétti Ása mér sög og bað mig að saga niður tré. Það hafði ég aldrei gert áður, en tók þegar til verka, því hún var svo rösk og drífandi. Já, hún Ása var ekki að hangsa við hlutina. Hún var líka alltaf svo ótrúlega hress og skemmtileg. Hún tók gríni vel og hló bara þegar Robin gerði at í henni. Ég skelli ennþá upp úr í eins manns hljóði, þeg- ar ég minnist þess er við Robin fórum í heimsókn á Tjarnargötuna. Sigga systir mín var með í för, hún var slá- andi lík mér á þeim tíma og Robin datt í hug að hrekkja mömmu sína. Hann lét mig bíða fyrir utan, en fór sjálfur inn með Siggu eins og hún væri nýja kærastan hans. Eitthvað fannst Ásu nýja kærastan öðruvísi en áður, en gat ekki alveg áttað sig á því, fyrr en ég birtist á tröppunum nokkr- um mínútum síðar. Örlögin höguðu því svo til að Ása lifði eiginmann sinn og tvö af þremur börnum sínum. Hún hélt lífinu áfram með aðdáunarverðum styrk og stó- ískri ró, þó harmur hennar væri mik- ill. Á síðari árum hafði hún komið sér vel fyrir í Englandi, í fallegu húsi með bílakjallara og garði. Þar átti ég standandi heimboð og á ferð minni um England síðasta sumar, ákvað ég að líta óvænt í heimsókn. Því miður missti ég af henni en hún hafði þá skroppið til Stínu í eftirmiðdagste. Ég ákvað með sjálfri mér að hafa betri fyrirvara næst, en vissi ekki þá hversu alvarlega veik hún þegar var orðin. Ása gleymdi ekki sínum minnsta bróður, hún vann ötullega að góð- gerðarmálum og var alltaf tilbúin að hjálpa vinum og fjölskyldu við hvað- eina. Tryggð hennar og vinátta, bæði í blíðu og stríðu, reyndist mér og fjöl- skyldu minni ómetanleg. Ég kveð Ásu með söknuði og bið góðan Guð að varðveita hana og blessa minningu hennar. Elsku Stína mín, Kristófer, Pétur og Kathy, ég votta ykkur og öðrum í fjölskyldunni innilega samúð mína. Ingibjörg Dís Geirsdóttir. Mánudagurinn 26. mars sl. var mildur og hlýr dagur, en skiptust þó á skin og skúrir eins og gerist í lífinu. Þennan dag kvaddi kær vinkona mín Áslaug Boucher þennan heim, en af ættingjum og vinum var hún alltaf kölluð Ása. Ég kynntist henni fyrst þegar við Alice dóttir hennar vorum samtíða í Söngskólanum í Reykjavík 1973, en það var fyrsta starfsár skólans. Það var alltaf ánægjulegt að koma á Tjarnargötuna þar sem þau Ása og Alan bjuggu og tel ég mig heppna að verða þeirrar gæfu aðnjótandi að fá tækifæri til að kynnast þeim. Þau voru ólík hjón, en þau báru mikla virðingu hvort fyrir öðru og er það ekki öllum gefið. Ása var mikil félagsvera. Hún hafði unun af því að fara á tónleika, í leik- hús og ég tala nú ekki um þegar hún fór með manni sínum í veislur og boð, en sem prófessor í ensku í heimspeki- deild Háskóla Íslands var þetta ákveðinn hluti af hans starfi og þótti henni þetta ákaflega skemmtilegt. Ása var mjög heppin í lífinu. Hún átti góðan mann og eignaðist þrjú mannvænleg börn. Fjölskyldan bjó nokkur ár í Englandi, en þar var Alan fæddur. Síðar fluttu þau til Íslands og eins og áður kom fram varð hann pró- fessor við Háskóla Íslands. Ása var heimavinnandi húsmóðir og hafði allt- af nóg að gera. Hún var lítil og grönn kona og er mér alveg óhætt að segja að ég sá hana aldrei beinlínis ganga, heldur hljóp hún. Hún var lifandi per- sóna sem gaman var að spjalla við og áttum við margar ánægjustundir saman. Í einni af mínum mörgu heim- sóknum til Alice eða Stínu eins hún er alltaf kölluð í fjölskyldunni, þá brugð- um við Ása okkur til London, en þau bjuggu í litlum bæ stutt frá Cam- bridge, sem heitir Linton. Henni fannst ótrúlega gaman að fara í búðir og mátti ég þakka fyrir að fylgja henni eftir í gegnum öll þessi „magas- ín“. Á henni var enga þreytu að sjá, en ég var gjörsamlega orðin ör- magna, þegar við loksins komum heim. En lífið var henni ekki bara dans á rósum. Sorgin knúði dyra í Tjarnar- götunni og á örfáum árum missti Ása eiginmann sinn og tvo syni. Þrátt fyr- ir alla þessa erfiðleika stóð þessi smá- vaxna kona upprétt og hélt sínu lífs- munstri. Þetta var henni erfiður tími en þrjóska hennar og stolt hjálpuðu henni yfir örðugasta hjallann ásamt góðum ættingjum hennar og vinum. Árin liðu og dvaldi hún ýmist hér á Ís- landi eða í Englandi þar sem hún átti sitt annað heimili og naut hún þess eins lengi og heilsa hennar leyfði. Síð- astliðið ár var vinkonu minni erfitt. Heilsu hennar fór að hraka en sem betur fer þurfti hún ekki að kveljast lengi. Ég vil að leiðarlokum fá að þakka fyrir samfylgdina og þau for- rréttindi að hafa átt hana Ásu að vin- konu. Hvíl þú í friði mín kæra. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku Alice mín. Ég votta þér og ættingjum þínum mína dýpstu samúð vegna fráfalls yndislegrar móður, ömmu og frænku. Guð blessi ykkur öll. Þóra Einarsdóttir. Áslaug Boucher Þórarinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.