Morgunblaðið - 14.06.2007, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Við tryggjum þér
faglega ráðgjöf
Vörður tryggingar hf. I Borgartúni 25 I sími 514 1000 I www.vordur.is
G
O
TT FÓ
LK
FIMMTÁNDA þing norrænna heimilislækna verður haldið í Reykjavík
dagana 13.-16. júní. Um 1.300 manns frá 19 löndum sækja þingið. Þetta er
fyrsta þing norrænna heimilislækna sem einnig er alþjóðlegt.
Yfirskrift þingsins, sem fer fram á ensku, er „The human face of medic-
ine in a hi-tech world“ sem þýða mætti sem Mannleg hlið læknisfræðinnar í
hátækniheimi. Á þinginu verða um 200 vísindaviðburðir; fyrirlestrar, mál-
þing, málstofur og veggspjaldasýningar.
Efnið sem fjallað er um á þinginu er afar fjölbreytt. Kynntar eru ýmsar
hliðar á veitingu veikindaleyfa, fjallað er um framtíð norræna velferð-
arkerfisins og ýmsar ögranir sem heimilislæknar takast á við. Varpað er
fram spurningunni: Þarf læknirinn að vita hvort þú ert lesbía? og rætt er
um hvort gefa eigi öllum yfir 55 ára fyrirbyggjandi pillu gegn hjarta- og
æðasjúkdómum, svo aðeins örfá og ólík dæmi séu tínd til.
Nánari upplýsingar um þingið, markmið þess, dagskrá og gesti er að
finna á slóðinni http://www.meetingiceland.com/gp2007/.
Hvað þarf læknirinn að vita?
Ólafsvík | Það hvein í vængjum
hrafnsins því hann neytti allra
sinna krafta á flótta undan kríu-
hópi, svartur og sekur með egg í
goggnum. Varðliðið fylgdi honum
lengi eftir en varð svo frá að
hverfa.
Þarna fór illa fyrir einu af fáum
nýorpnum eggjum kríunnar í Rifi.
Hún kom seint vegna vorkulda en
daginn sem hlýnaði iðaði loftið af
lífi. Lítið hefur samt orðið úr varpi
enn sem komið er. Fuglinn hegðar
sér eins og geldfugl og situr í
stórum hópum á kvöldin. Þetta get-
ur svo breyst á einni nóttu komi síl-
isganga í fjörðinn.
Morgunblaðið/ÞÖK
Svartur og
sekur með egg
í goggnum
UMSÓKNUM í grunnnám við Há-
skóla Íslands hefur fjölgað um rúm
18% frá fyrra ári. Að teknu tilliti til
þeirra stúdenta sem þreyta inn-
tökupróf í greinar heilbrigðisvís-
inda og umsókna erlendra stúdenta
í grunnnámið má ætla að hátt á
þriðja þúsund nýnema hefji nám
við Háskólann næsta haust, segir í
frétt frá HÍ.
Sé litið til einstakra námsleiða
má nefna að um 50% fleiri stúd-
entar sækja um að hefja nám í við-
skiptafræði en síðastliðið haust og
nærri 100% fleiri vilja hefja nám í
iðnaðarverkfræði núna. Nærri 75%
fleiri vilja læra tölvunarfræði við
Háskólann en haustið 2006.
16 stúdentar sækja um að hefja
nám í rússnesku og 20 í Austur-
Asíufræðum. Báðar þessar náms-
leiðir eru nýjar við HÍ. Innan ein-
stakra námsleiða raunvís-
indadeildar má nefna að rúmlega
fjórðungi fleiri sækja um í líf-
fræðinám og í hátæknieðlisfræði
hafa fimm stúdentar sótt um skóla-
vist. Það er 150% aukning. Sé litið
til fjölda umsókna eftir deildum
Háskólans sækja um þriðjungi
fleiri stúdentar um í læknadeild,
viðskipta- og hagfræðideild og
verkfræði. Stúdentar sem sækja
um í greinum læknadeildar þreyta
inntökupróf næstu daga.
Enn aukin ásókn
í viðskiptafræði
UMSÓKNARFRESTUR um nám í dag-
skóla á haustönn 2007 rann út á mánudag.
Um 4.200 af 4.500 nemendum 10. bekkjar
grunnskóla höfðu þá sótt um skólavist á
haustönn 2007. Flestar umsóknir bárust
Verzlunarskóla Íslands, Menntaskólanum
við Hamrahlíð, Menntaskólanum í Reykja-
vík og Kvennaskólanum. Þessir skólar
þurfa að vísa frá rúmlega 400 nemendum
sem höfðu valið þá sem fyrsta kost. Þeir
eiga þó vísa vist í öðrum skólum þar sem
pláss er nægilegt í framhaldsskólunum,
segir í frétt frá menntamálaráðuneytinu.
Frá og með kl. 18 á morgun geta umsækjendur opnað umsóknir sínar aftur
og fylgst með afgreiðslu þeirra. Afgreiðslu á að vera lokið fyrir miðnætti
þriðjudaginn 19. júní.
Flestir vilja í VÍ, MH, MR og Kvennó
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
FERÐAMENN sem stunda heilsu-
bótarferðir stoppa lengur á landinu
og koma hingað á öllum árstímum.
Þeir skila þjóðarbúinu því meiri
peningum en aðrir ferðamenn. Vilji
er fyrir uppbyggingu á Mývatni í
þessum geira og Náttúrulækninga-
félagið hyggur á markaðssetningu
erlendis.
Gunnar Páll Pálsson, nýútskrif-
aður ferðamálafræðingur frá Hóla-
skóla, kannaði nýlega möguleika Ís-
lands í heilsuferðaþjónustu. Hann
segir að hér á landi hafi mest
áhersla verið lögð á svokallaða
lækningaferðaþjónustu þar sem
fólk sækir sér meðferð og end-
urhæfingu vegna kvilla á borð við
psoriasis og gigt.
Samkvæmt könnun sem Sam-
gönguráðuneytið stóð fyrir árið
2005 hafa ferðamenn sem hingað
koma þær hugmyndir um landið að
það sé hreint, fagurt og öruggt.
Þessi ímynd landsins út á við er
góður grundvöllur fyrir markaðs-
setningu þess sem heilsuparadísar.
Nú þegar sækja um 244 þúsund
ferðamenn sundstaði á hverju ári
og 84 þúsund stunda annarskonar
líkamsrækt.
Staldra lengur við og eyða
meiri peningum.
Meðaldvöl ferðamanna á Íslandi
er aðeins tíu dagar og þróunin í
heiminum hefur verið sú að ferða-
menn hafa sífellt styttri viðdvöl á
hverjum stað. Heilsuferðaþjónusta
lýtur öðrum lögmálum og þetta
ferðafólk hefur lengri viðkomu, um
tvær vikur. Þessi tegund ferða-
mennsku er líka óbundnari árstíð-
unum en til dæmis náttúruskoðun.
Gunnar segir að samkvæmt erlend-
um rannsóknum eyði heilsu-
ferðamenn um tífalt meiri pen-
ingum á ferðum sínum en aðrir
ferðamenn.
Náttúrulækningafélagið stefnir
á erlendan markað
Hingað til hefur Heilsustofnun
Náttúrulækningafélagsins í Hvera-
gerði nánast eingöngu sinnt Íslend-
ingum. Þeir fáu ferðamenn sem
þangað koma hafa yfirleitt frétt af
meðferðum þar hjá íslenskum
kunningjum, en Gunnar segir það
vera að breytast. „Ekkert hefur
verið gert af hálfu HNFLÍ til þess
að efla markaðssetningu erlendis
eða til þess að ná athygli erlendra
gesta sem hingað koma. Nú hafa
þeir ráðið til sín markaðsfræðing
og eru í startholunum.“
Á Mývatni er einnig vilji til þess
að byggja upp heilsulind að sögn
Gunnars. „Innan Heilbrigðistofn-
unar Þingeyinga eru uppi hug-
myndir um að splæsa saman óhefð-
bundnar lækningar og hefð-
bundnar. Fjöldi starfsmanna
stofnunarinnar hefur kynnt sér
óhefðbundnar lækningar og notar
þær í starfi. Stofnunin hefur áhuga
á því að stofna endurhæfingastöð
svipaða þeirri sem starfrækt er hjá
HNFLÍ í Hveragerði í samstarfi við
Jarðböðin við Mývatn.
Ég myndi vilja sjá opinberar
stofnanir fá að stíga þetta skref í
átt að ferðaþjónustunni, þetta er
líka spurning um að efla byggð úti
á landi,“ sagði Gunnar að lokum.
Heilsuferðamenn stoppa lengur og eyða meiru
Góð heilsa gulli betri
Morgunblaðið/Sverrir
Heilsuferðir Gunnar Páll Pálsson, nýútskrifaður ferðamálafræðingur frá
Hólaskóla, kannaði möguleika Íslands í heilsuferðaþjónustu
Markaðssetning
og uppbygging að
hefjast í Hvera-
gerði og á Mývatni
Í HNOTSKURN
»Heilsuferðaþjónustaspannar allt frá gestum
sundlauga til þeirra sem gang-
ast undir hátæknilegar skurð-
aðgerðir.
»Nota ber hugtökin heilsaog hreinleiki í öllu kynn-
ingarefni og markaðssetningu
á Íslandi samkvæmt Ferða-
málaáætlun 2006-2015.
»2003 komu sex þúsundmanns að utan til lækn-
ingameðferðar í Bláa lóninu.
VEL gekk að flytja burt húsið sem
áður stóð á lóð Laugavegar 74.
Húsið var flutt til geymslu en mun
síðar öðlast nýtt líf við Nýlendu-
götu þar sem nýir eigendur hyggj-
ast koma því fyrir.
Um klukkutíma tók að flytja hús-
ið frá Laugavegi niður á Granda
og hófst ferðin á miðnætti í fyrri-
nótt. Helgi Ólafsson, einn af eig-
endum Þústar ehf., hafði yfirum-
sjón með verkinu og var ánægður
með hvernig til tókst. „Þetta gekk
eins og í lygasögu. Við höfðum
reiknað með að verkið tæki tvær
klukkustundir en þetta var vel
undirbúið og bílstjórinn var góð-
ur.“ Keyrt var á gönguhraða upp
Laugaveginn, niður Barónsstíg og
af Skúlagötu niður á Sæbraut og
loks Geirsgötuna. Húsið er tæp 40
tonn að þyngd og segir Helgi að
mesta vinnan hafi falist í að koma
krananum sem hífði húsið upp á
bílpallinn fyrir á Laugaveginum.
Taka þurfti niður marga ljósa-
staura á leiðinni auk umferðarskilta
og segir Helgi að margir hafi komið
að undirbúningi flutninganna.
Morgunblaðið/Júlíus
Gekk eins og í lygasögu
Ekið með hús um borgina.
VEFVARP mbl.is