Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is BANASLYS varð í Fljótsdalsstöð, stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar, í gær, þegar portúgalskur starfsmað- ur erlends verktakafélags lést af völdum áverka sem hann hlaut við fjögurra metra fall niður á steingólf í stöðvarhúsinu. Hann var fluttur með sjúkrabifreið til Egilsstaða en þaðan átti að senda hann flugleiðis til Reykjavíkur. Á leiðinni lést maður- inn í sjúkrabílnum vegna höfuð- áverka og innvortis blæðinga. Ekki er hægt að birta nafn hans að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum Guðjóns Jónssonar, staðgengils öryggis- stjóra hjá Landsvirkjun, varð slysið þegar verið var að hífa 300 kg járn- stykki milli hæða í stöðvarhúsinu. Stykkið er hluti af sérstökum loku- búnaði í stöðinni en í hífingunni kom ófyrirséður slinkur á stálvírinn sem notaður var með þeim afleiðingum að stykkið rakst í manninn og sló hann fram af hæðinni þar sem hann stóð. Þegar staðið er að hífingum sem þessum þarf að taka frá örygg- isgirðingu sem alla jafna skýla opum við hæðargólfin. Hafa hífingar til þessa ávallt gengið vel í stöðinni að hans sögn. Guðjón segir að hinn látni hafi haft það hlutverk að fylgjast með hífingunni, sem vinnufélagi hans framkvæmdi, en staðið á röng- um stað. Maðurinn var með öryggishjálm þegar slysið átti sér stað samkvæmt upplýsingum á vef Kárahnjúkavirkj- unar. Fyrirtækið sem maðurinn starfaði fyrir er þýsk/austurríska fyrir VA-Tech. Lögreglan á Egilsstöðum rann- sakar tildrög slyssins og einnig var Vinnueftirlitið kvatt á vettvang. Var stefnt að því að ljúka vettvangsrann- sókn í gærkvöld og opna vinnusvæð- ið aftur í kjölfarið. Staðhæfir hann að ekkert sé að öryggismálum á staðn- um, heldur hafi slysið orðið þegar ör- yggiskeðjan var tekin frá vegna híf- ingarinnar og mennirnir ekki áttað sig á því að stykkið gæti slegist til í hífingunni. Ef einhverju verður breytt á staðnum, verður það gert á grundvelli skýrslu Vinnueftirlitsins, komi þar fram athugasemdir. Slysið í gær er fimmta banaslysið á rúmlega þremur árum vegna fram- kvæmda við Kárahnjúkavirkjunar. Þar af eru þrír Íslendingar í hópi hinna látnu. Fékk í sig 300 kílóa járn- stykki og féll fjóra metra Fimmta banaslys- ið vegna Kára- hnjúkavirkjunar Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Lokubúnaður Algengt er að þungir hlutir séu hífðir milli hæða. Beðið er niðurstöðu Vinnueftirlitsins um hvort breyta þurfi vinnutilhögun. „MÉR finnst þetta ágæt hug- mynd hjá Birni og hún er í anda þess sem að hefur áður farið fram á milli embættanna,“ segir Árni M. Mathiesen, fjár- málaráðherra, inntur eftir við- brögðum við þeim orðum Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, að nú væri rétti tíminn fyrir fjármála- ráðuneytið til þess að ræða við ráðu- neyti sitt um breytta skipan ákæru- valds í skattalagabrotum. Björn viðraði þá hugmynd að sérstakur saksóknari myndi starfa með skatt- rannsóknarstjóra og annast ákæru- vald hans en bæri faglega ábyrgð gagnvart ríkissaksóknara. Þessi skipan er þekkt hjá ríkislögreglu- stjóra, en þar annast saksóknari efnahagsbrota ákæruvald hans í efnahagsbrotamálum, en ber faglega ábyrgð gagnvart ríkissaksóknara. Árni segir að þeir Björn muni fara yfir málið á næstu dögum, en segist ekki geta tjáð sig meira um málið að svo stöddu. „Ágæt hugmynd hjá Birni“ Árni M. Mathiesen Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@mbl.is NÆSTA hálfa árið mun ekki einn einasti spilakassi finnast í gjörvöll- um Noregi. Er það liður í áætlun norskra stjórnvalda til þess að vinna gegn spilafíkn, en frá og með næstu mánaðamótum á norska ríkið einkarétt á rekstri spilakassa. Að hálfu ári liðnu mun ríkisfyr- irtækið Norsk tipping hefja rekstur spilakassa í landinu og mun ágóð- anum sem safnast verða deilt til þeirra góðgerðarsamtaka sem áður höfðu tekjur af spilakössunum. Nýju reglurnar takmarka því ekki bara fjáröflunarmöguleika góðgerð- arfyrirtækja heldur koma einnig í veg fyrir að í Noregi starfi fyrirtæki sem hyggist græða á rekstri spila- kassa. Í Noregi, líkt og á Íslandi, hefur verið hefð fyrir því að góðgerðar- félög afli fjár með rekstri spilakassa og missa þau því spón úr aski sínum við þessa breytingu. Fjármagnið sem þau munu fá frá Norsk tipping jafnast fráleitt á við það sem þau hafa mátt venjast síðustu ár. Miðað er við að fyrirtækin fái greidda jafnháa upphæð og þau öfluðu árið 2001, en síðan þá hefur notkun spilakassa margfaldast. Þegar mest var voru um 18.500 spilakassar í Noregi. Mikilvægt að hamla gegn spilafíkn Árið 2005 voru tekjur úr spila- kössum þriðjungur tekna Norska krabbameinsfélagsins og helmingur tekna norska Rauða krossins. Ákvörðunin er tekin vegna vax- andi spilafíknar, en það er metið svo að 71 þúsund Norðmanna, eða um 1,5% þjóðarinnar, séu spilafíklar. 133.000 eru að auki taldir í áhættu- hópi. „Bannið mun skerða þá fjár- muni sem renna til góðgerðarmála, en okkur þykir meiru muna að koma í veg fyrir spilafíkn,“ sagði Halvard Ingebrigtsen, starfsmaður mennta- og kirkjumálaráðuneytis Noregs, í samtali við AFP-frétta- stofuna. Stjórnvöld fullyrða að spilakass- arnir sem Norsk tipping setur upp um áramótin verði ekki „jafnágeng- ir“ og fyrirrennararnir. Bernt Apeland, talsmaður Rauða krossins í Noregi, sagði í samtali við Morgunblaðið að um umtalsvert tekjutap væri að ræða fyrir sam- tökin, en rekstur spilakassanna hafi um árabil verið hryggjarstykkið í fjáröflun samtakanna. Þegar mest var ráku samtökin um 3.000 kassa um allan Noreg. Viðmiðunarárið 2001 hafi tekjur Rauða krossins af rekstri spilakassanna verið 216 milljónir norskra króna, eða 2,3 milljarðar íslenskra króna en árið 2005 voru þær orðnar 840 milljónir norskra króna, eða 8,9 milljarðar ís- lenskra króna. Því er ljóst að fram- lagið frá Norsk tipping verður ekk- ert í líkingu við tekjur síðustu ára. Apeland segir þó að á móti komi að þessar breytingar hafi verið í far- vatninu um árabil og því hafi góð- gerðarfyrirtækin haft nægan tíma til undirbúnings. Þannig hafi Rauði krossinn lagt drjúgan hluta tekna sinna síðustu ár í fjárfestingarsjóð, sem búist er við að fari að skila arði á næsta ári. Þegar lagt verði saman fjármagnið frá Norsk tipping og ávöxtunin úr sjóðnum, áætluð um 120 milljónir norskra króna á ári, geri Rauði krossinn ráð fyrir að geta haldið uppi óskertri starfsemi. Apeland bætir því við að Rauða krossinum hafi þótt það heldur óþægileg staða siðferðislega að treysta á tekjur af fjárhættuspili. Björn Bjarnason, dómsmálaráð- herra, sagði aðspurður um afstöðu Íslands í málinu að sér væri ekki kunnugt með hvaða rökum einstök samtök í Noregi hafi fallist á rík- iseinokun á þessu sviði og gæti því ekki tjáð sig um þá hlið málsins. Hins vegar væri það svo að nýlegir úrskurðir EFTA staðfestu rétt þjóða, þ.m.t. Íslands, til þess að hefta aðgang einkafyrirtækja að spilamörkuðum þjóða, ef það væri í þeim tilgangi að sporna við spila- fíkn. Ríkið tekur yfir rekstur spilakassa í Noregi AP Útlægir Sjón sem þessi ætti að vera orðin Norðmönnum framandi um næstu áramót, en þá munu spilakassar hafa verið ólöglegir í hálft ár. Í HNOTSKURN »Á Íslandi starfa tvö fyrir-tæki sem reka um 1.000 spilakassa, Happdrætti Há- skóla Íslands og Íslandsspil, sem er í eigu Rauða krossins, Landsbjargar og SÁÁ. »Tekjur af spilakössum á Ís-landi eru um þrír milljarð- ar árlega. »Rúmlega tveir fimmtuhlutar heildartekna Rauða krossins á Íslandi koma frá rekstri spilakassa. Bjóðum nú síðustu sætin til Mallorca 29. júní í 1 eða 2 vikur á frábæru til- boði. Þú bókar flugsæti og gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Mallorca 29. júní frá kr. 29.990 Allra síðustu sætin Verð kr. 39.990 Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna saman í herbergi/stúdíó/íbúð, m.v. stökktu tilboð í viku. Aukavika kr. 14.000. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 29.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, m.v. stökktu tilboð í viku. Aukavika kr. 14.000. SIGURÐUR Ásgeirsson vann Ís- landsmeistaratitilinn í listflugi á laugardaginn en mótið fór fram á Flugdögum á Akureyri. Hann var ánægður með titilinn þegar rætt var við hann í gær þótt hann teldi að fleiri hefðu mátt taka þátt í mótinu. Sigurður starfar sem þyrluflugmaður hjá Land- helgisgæslunni og segir hann ým- islegt svipað með þessu tvennu. „Það þarf að sýna ákveðinn aga en auðvitað er þetta samt gjör- ólíkt.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Reynir á þolmörkin Íslandsmeistari í listflugi Uppáhaldsæfingin er Hausverkur VEFVARP mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.