Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Susie Rut Ein-arsdóttir fædd- ist hinn 14. febrúar 1985 í Reykjavík. Hún lést á gjör- gæsludeild Land- spítala mánudaginn 18. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Einar S. Hálf- dánarson og Regína G. Pálsdóttir. Systk- ini hennar eru Diljá Mist Einarsdóttir, f. 1987, Páll Fannar Einarsson, f. 1989 og Sindri Snær Einarsson, f. 1991. Föðurforeldrar voru Hálfdán Ein- arsson og Ingibjörg Erlends- dóttir. Móðurforeldrar eru Páll Friðriksson og Susie Bachmann. Susie Rut stundaði Suzukinám í fiðluleik hjá Mary Campbell og lauk 5. stigs prófi 15 ára gömul, auk þess sem hún lék á víólu. Hún söng í allmörg ár með Graduale- kór Langholtskirkju. Susie Rut hóf störf sem tækni- maður á röntgen- deild Landspítalans árið 2003 og var í leyfi frá störfum þegar hún lést. Susie Rut lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum Hraðbraut árið 2006. Rétt rúmlega 18 ára gömul gekk hún í AA. Hún sinnti for- varnarstörfum fyrir unglinga með fyrir- lestrum og fundahaldi þar sem mikið var til hennar leitað. Susie Rut var mjög virk í starfi Sjálfstæðisflokksins, einkum í ungliðahreyfingu flokksins, en einnig innan Grafarvogshverfis- ins þar sem hún bjó og var í stjórn hverfisfélagsins. Susie Rut verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku engillinn minn. Mikið rosalega getur heimurinn verið grimmur stundum. Hvernig á ég að geta kvatt þig og öll þau plön sem við höfðum um framtíðina okkar saman? Það verður ólýsanlega erfitt að vera án þín í þessum heimi og bíða þar til við hittumst næst. Hvað ég myndi ekki gefa fyrir bara einn dag með þér núna; bara eina stund af Su- sie-speki. Þú útskýrðir einu sinni fyrir mér að þú værir með sjúkdóm. En þú sagðir að þú gætir haldið aftur af honum og ég trúði því af öllu hjarta að ég myndi alltaf hafa þig hjá mér. Stundum var ég svo rosalega reið út í þig, fannst þú bera ábyrgðina á þessum skelfilega sjúkdómi. Seinna lærði ég að aðskilja ykkur og beina reiðinni að honum, en ekki þér. Þá áttum við yndislegar stundir saman, en einhvern veginn fannst mér þú aldrei njóta þín sem skyldi. Núna þegar þú ert farin á betri stað veit ég að þú varst of góð fyrir þennan heim. Í eigingirni vildi ég að þú hefðir getað staðið hann af þér fyrir mig svo ég gæti haft þig lengur hjá mér. En þú ert komin á betri stað þar sem allir eru jafn góðir við þig og þú hefur alla tíð verið við aðra. Ég sagði þér það ekki nógu oft Súsla mín, en þú er besta systir í heiminum. Ég vildi geta haldið utan um þig og sagt þér hvað ég hef alltaf verið stolt af þér. Þegar þú fórst á gjörgæslu nú fyrir stuttu lét ég þig lofa mér því að þú myndir láta þér batna. Þú gerðir það, barðist við veik- indin og við fengum meiri tíma sam- an. Ómetanlegan tíma með bestu vin- konu og systur. Elsku besta Súsla mín. Það eru ekki til nógu falleg orð til að lýsa þér og þeim áhrifum sem þú hefur haft á mig. Og þegar lítil Susie Rut fæðist, vona ég að hún verði sem líkust þér því ég ætla mér að halda loforðið okk- ar. Mig langar til að enda á ljóði sem þú skrifaðir aftan á bréf til mín fyrir mörgum árum síðan. Þegar mér leið illa í veikindunum þínum las ég þetta ljóð yfir aftur og aftur – þú áttir alltaf réttu orðin fyrir mig. Hvíldu í friði elsku systir, en mundu umfram allt að blaka. Bárur þér fleygja um bölsins haf brotið hvert skip sem þér lífið gaf. Uns eiturbylgjan við auðnarland að endingu grefur þitt líf í sand. Við áttum drauma og ást og trú en eitthvað brást og þú reikar nú. Um villustræti og voðans borg það er verra en dauði og þyngra en sorg. Þeir hirða þig stundum og hringja í mig og heimta að ég komi að sækja þig. Þú ert örvita af kvölum og allt þitt þor þín orka og líf fer í þessi spor. Þú grætur oft en ég get svo fátt ég gaf þér allt en það var samt of smátt. Eitrið þig bindur í báða skó og blóð þitt hrópar fær aldrei nóg. Á sjúkrahús fórstu og er send varst heim þeir sögðu þig fríska við trúðum þeim. Þu hlóst og söngst en þú hlærð ei meir það hryggir ei neitt eins og von sem deyr. Og öll mín tár til einskis þau í tómið renna. Mín ör og sár til einskis svíða þau og brenna. En verst er þó að vita ei hverju er um að kenna. (Jónas Friðrik.) Þín systir, Diljá Mist Einarsdóttir. Elsku Susie Rut, frænka mín, hef- ur kvatt eftir stutt en erfið veikindi. Á þessum tíma finnst manni lífið óend- anlega ósanngjarnt og mörgum spurningum er ósvarað og ekki víst að nein svör fáist við þeim. Ekki er langt síðan framtíðin blasti björt við þessari fallegu og glæsilegu frænku minni. Susie Rut hafði lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum Hraðbraut og var ætlun hennar að hefja nám í læknisfræði næstkomandi haust. Meðan á námi í Hraðbraut stóð starfaði hún við röntgendeild LSH og fann að það átti vel við sig að sinna og aðstoða þá sem veikir voru. Susie Rut var afburðagreind og vel lesin ung kona, fjörug og kraftmikil. Það reynd- ist henni ekki erfitt að stunda námið af dugnaði jafnframt vinnu, auk þess sem hún átti það til að taka miklar skorpur í líkamsræktinni. Á tímabili hittumst við stundum af tilviljun í Baðhúsinu og tókst henni nokkrum sinnum að draga mig með í hjólatíma. Auðvitað náði ég ekkert að halda í við frænku mína, slíkur var krafturinn og ákafinn í henni. Susie Rut var falleg á sál og líkama og gædd miklum persónutöfrum. Hún var einstaklega hjartahlý og allt- af fannst manni jafn gott að hitta hana, því hún tók á móti manni með hlýju og góðu faðmlagi. Það var líka gaman að tala við hana því hún var svo skemmtilega skoðanaföst og kunni listina að spyrja skemmtilegra spurninga. Hún vildi öllum í kringum um sig svo vel og var hamingja þeirra sem hún elskaði henni ofarlega í huga. Susie Rut hafði líka þann góða hæfileika að kunna að hlusta. Það er því ekkert skrítið að hún Susie mín væri jafn vinamörg og hún var. Það reynist okkur ástvinum Susie Rutar erfitt að sætta okkur við þá staðreynd að við munum aldrei hitta hana framar; fyrirhugað frænkukvöld sem Susie Rut hafði beðið okkur syst- ur um að standa fyrir verður því mið- ur haldið án hennar. Við munum ekki heyra aftur hlátrasköll hennar í fjöl- skylduboðunum, né að fá að taka þátt í skemmtilegum rökræðum við hana. Það er huggun harmi gegn að við eig- um góðar minningar í hjarta okkar um hana. Vertu eins og blóm, sem breiðir blöð sín móti himni og sól. Vertu hönd, sem haltan leiðir, hæli þeim, sem vantar skjól. Vertu ljós þeim villtu og hrjáðu, vinur þeirra er flestir smá. Allt með björtum augum sjáðu, auðnan við þér brosir þá. (M.S.) Með þessum orðum kveð ég frænku mína, Susie Rut Einarsdótt- ur, sem markaði djúp spor í sál þeirra sem hana þekktu, þrátt fyrir stutta ævi. Öllum aðstandendum Susie Rutar votta ég mína dýpstu samúð. Far í friði, elsku frænka, Ingibjörg Erlendsdóttir. Mín yndislega frænka Susie Rut hefur kvatt þessa jarðvist langt fyrir aldur fram. Hjarta mitt er brostið, sorgin og söknuðurinn eru yfirþyrm- andi og nánast óyfirstíganleg. Ég veit að lífið heldur áfram og við munum læra að lifa með sorg og söknuð í hjarta, en lífið verður aldrei eins. Tár- in sem renna niður vanga mína, þegar þetta er skrifað, eru tár yfirþyrmandi sorgar og söknuðar, en líka gleðitár yfir öllum fallegu minningunum sem ég á um frænku mína, Susie Rut. Minningum sem eru uppfullar af gleði og væntumþykju, hún auðgaði líf mitt og fyrir það er ég þakklát. Susie Rut var einstök manneskja. Hún snerti hjörtu margra enda var hún einstaklega hlý og ljúf. Hún var með fallegt bros sem náði til augn- anna og ótrúlega smitandi hlátur, enda glaðlynd stúlka. Hún var vina- mörg og dáð af vinum sínum og ætt- ingjum fyrir dugnað og kraft. Fyrir henni voru allir jafningjar og tók hún öllum opnum örmum. Susie Rut tók ávallt á móti mér með hlýju og inni- legu faðmlagi, sem sagði meira en nokkur orð. Ég mun halda áfram að faðma hana að mér, faðma og rækta minningu hennar í huga mér. „Einstakur“ er orð sem notað er, þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og þeirra skarð sem verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Susie Rut var skarpgreind og vel lesin, ég dáðist að henni fyrir að klára Menntaskólann Hraðbraut í fyrra ásamt því að vinna á röntgendeild LSH, rækta líkama og sál, og gefa sér tíma með vinum og vandamönnum. Ég naut allra samverustunda okkar, sem ég á tímum sem þessum vildi óska að hefðu verið fleiri. Þrátt fyrir 12 ára aldursmun áttum við auðvelt með að ræða um lífið og tilveruna, stjórnmál, stráka, hjónaband og barneignir. Hún átti sér drauma og falleg framtíðarplön sem hún deildi með mér, en hana langaði meðal ann- ars að nema læknisfræði í Danmörku. Hún spurði áhugasöm um mína drauma og mín framtíðarplön. Susie Rut hafði mikinn áhuga á fólki og hagsmunum þess, hún sá ávallt það góða og fallega í fólki. Susie Rut tók virkan þátt í forvarnarstafi fyrir ungt fólk og starfi Sjálfstæðisflokksins. Fjölskyldan var henni mikils virði og oftar en einu sinni talaði hún um að við ættum að halda frænkuboð. Þegar ég hitti Susie Rut á sjúkrahúsinu fyrir skömmu tók hún af mér loforð um að halda eitt slíkt boð í Hafnarfirðinum strax og hún væri búin að jafna sig eftir veikindin. Elsku hjartans Susie mín, ég skal standa við loforðið þó síð- ar verði; ég veit að þú verður með okkur í anda. Elsku Einar, Regína, Diljá Mist, Páll Fannar og Sindri Snær; hugur minn er hjá ykkur og megi Guð færa ykkur styrk og stuðning á erfiðum tímum og megi ljós heimsins umlykja ykkur. Megi fögur minning elskulegrar frænku minnar lifa að eilífu í hugum okkar. Hafðu þökk fyrir allt og hvíldu í friði. Halldóra Erlendsdóttir. Í dag kveðjum við einstaka unga stúlku, bróðurdóttur mína Susie Rut. Ég man svo vel þegar ég hélt á henni í fyrsta skipti, svo fallegri og fínni, frumburði foreldra sinna. Hún var strax mjög fljót til og kom mjög fljótt í ljós hversu vel gefin hún var. Móðir mín sagði eitt sinn við mig, svona sér- stök börn þarf að passa vel því þau eru svo viðkvæm og brothætt enda hafa foreldrarnir vakað alveg einstak- lega vel yfir öllum fjórum gullmolun- um sínum. Upp í hugann koma margar skemmtilegar minningar sem við get- um yljað okkur við þegar frá líður. Hún hringdi til dæmis oft til okkar eftir próf til að vita hvort jafngamall frændi hennar hefði fengið jafn marg- ar tíur og hún. Þegar ég og Susie Rut rifjuðum þetta upp fyrir stuttu hlóg- um við mikið. Í sama skipti sagði hún að ég gæti ekki ímyndað mér hvað þau frændsystkinin hún og John hefðu verið að prakkarast niðri hjá ömmu og afa í Akró, þau voru alltaf svo samrýndir krakkar. Ég hef setið og skoðað gamlar myndir frá því hún gisti oft hjá okkur þegar hún var krakki og ég get heyrt hlátur hennar því hún var alltaf svo glöð og kát. Eitt sinn þegar ég spurði um hana var hún 12 ára gömul og á kafi að lesa Kóraninn, hún varð að vera vel inni í öllum málum og var mjög ung farin að rökræða við full- orðið fólk um trúmál, stjórnmál og margt fleira og höfðu margir mjög gaman af. Unglingsárin reyndust á tímabil mjög erfið eins og oft er með svona afburðafólk, en hún náði sér vel upp úr því og kláraði stúdentsprófið á tveimur árum frá Hraðbraut og hugði á frekara nám enda voru henni allir vegir færir. Hún var alveg einstaklega góð og hlý ung stúlka og eru ekki allir á hennar aldri sem þora að sýna svo mikla hlýju og tala svona fallega við alla, bæði börn og fullorðna. Hún var alveg sérstakur engill sem ég hef beð- ið fyrir á hverju kvöldi í mörg ár og ruglast ég nú í bæn minni því nú hefur guð tekið hana frá okkur og er sorg okkar allra alveg óbærileg. Síðastliðinn laugardag þegar ég sat hjá henni sofandi, trúði ég ekki öðru en hún mundi vakna aftur og allt yrði í lagi, ég trúði að bænin væri nógu sterk og henni yrði bjargað. Fyrir stuttu sátum við tvær og ræddum mikið um brúðkaup sem í vændum er í fjölskyldunni og þurfti ég að lýsa öllu nákvæmlega fyrir henni, hún var orð- in svo spennt að mæta og var stað- ráðin í að vera orðin góð svo hún gæti verið með okkur þennan hátíðisdag sem í vændum er, en hún verður þarna með okkur þó að við sjáum hana ekki. Nú sem oftar eru þær sam- ferða sorgin og gleðin. Þeir tímar sem í vændum eru verða mjög erfiðir fyrir foreldra, systkini, ömmu og afa og alla fjölskylduna, því söknuðurinn er alveg óbærilegur. Ég skil ekki tilganginn með þessu en ég veit að Hilmar bróðir hefur tekið hana í faðm sér og amma og afi hugsa vel um engilinn okkar. Sofðu rótt, elsku hjartans engillinn minn, og guð geymi þig. Guðrún frænka. Bjartir sumardagar, heiðríkja, fuglasöngur og gróðurangan. Allt minnir þetta á fegurð lífsins og það yndi sem það vekur meðal okkar. En allt er í heiminum hverfult. Áminning um að lífið hafi einnig hendur kaldar verður til þess að minna okkur á hversu vanmáttug við erum að ráða og stjórna framgangi lífsins. Með sorg í hjarta leitum við skýringa á þeirri ráðgátu sem lífið er og spyrjum okkur sjálf og almættið margra krefj- andi og flókinna spurninga. Svörin eru ekki alltaf augljós og afgerandi en með trúfestu og við yl fagurra minn- inga tekst okkur að öðlast nokkra hugarró. Það var haustið 1996 sem yndisleg stúlka bættist í hóp okkar í Ártúns- skóla. Þetta var Susie Rut Einars- dóttir. Susie Rut átti bjarta og góða daga í samstilltum og góðum hópi nemenda í 6. HG. Margar ljúfar minningar eru tengdar Susie og bekknum frá þeim tveimur árum sem hún var í skólanum. Nú þegar við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að Susie Rut hefur verið hrifin frá okkur í dagrenningu lífs síns þá er erfitt að sætta sig við það. Efinn um réttlæti gerir vart við sig og okkur er efst í huga einlæg en beiskjublandin spurning: Af hverju? Af hverju? Susie Rut var mikil tilfinningavera. Hún var mjög listræn og spilaði af færni á píanó auk þess sem söngur og leiklist gæddu líf hennar og okkar allra gleði. Hún var sterkur náms- maður og fyrstu skref skólagöngu hennar gáfu fyrirheit um farsælt framhald. En fyrst og fremst var Su- sie Rut einlæg og góð stúlka sem hafði mörgu jákvæðu að miðla. Við sem kynntumst henni fundum í henni fegurstu tóna hörpu lífsins sem nú hafa þagnað allt of fljótt. Elsku Susie Rut. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst þér. Hlýjar og já- kvæðar minningar um þig efla með okkur þá trú að Guð almáttugur muni í ríki sínu umvefja þig kærleika sínum og umhyggju og sefa sorg þeirra sem sárt sakna þín. Við vottum foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum Susie Rutar okkar dýpstu samúð. Þeirra er miss- irinn mestur. Við biðjum algóðan Guð að hugga þá og styrkja. Ellert Borgar og Helga Guðfinna. ,,Hvar hafa dagar lífs míns lit sín- um glatað?“ skrifaði Susie einu sinni á heimasíðuna mína í gríni. Við höfðum þá í nokkrar vikur skemmt okkur við að rifja upp og finna ástarljóð og þylja fyrir hvor aðra á dramatískan hátt, smá í gríni og smá í alvöru. Síðustu daga hefur áðurnefnd setning úr ljóð- inu ómað í huga mér því svona líður mér eftir að Susie fór. Susie var ein af mínum bestu vin- konum, kryddið í lífi mínu og annarra með greind sinni, skarpskyggni, húm- or og einstöku auga fyrir viðlíkingum. Viðlíkingar hennar fá fólk til að sjá hlutina í réttu ljósi og duga vel til hug- hreystinga. Ég kynntist Susie fyrir tveimur árum. Við fundum fljótt hvernig hin tikkar og höfum krufið málin tímunum saman. Susie var allt- af til í áhugaverð málþing og í henni fann ég góðan félaga. Ég sá hana blómstra, verða sífellt fallegri og meira sjarmerandi. Þroskast og vita sífellt betur hvað hún stóð fyrir. Þeg- ar ég hugsa um Susie kemur margt upp í hugann og sterk lýsingarorð því hún var mikill karakter. Blíða, fegurð, hvatvísi, lífsgleði, sjarmi, ástríða, ákveðni, kappsemi, góð tengsl við fjöl- skyldu sína og skemmtilegur fatastíll einkenndu hana. Hún tók allt með trompi og gerði allt með trukki. Var afburðanemandi, góður starfskraftur, hugsjónakona, víðlesin, minnug á til- vitnanir, lúmskt listræn og góður penni. Bjó yfir miklum sannfæring- arkrafti og góðri rökhugsun. Það var fallegt við Susie hvað hún var heil í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún bjó yfir ríkri samkennd og leit sjaldan niður á fólk og kunni ógrynni af sögum. Hún kenndi mér margt og á leiðinni að kveðja hana í hinsta sinn hugsaði ég ekki um annað en hversu heppin ég var að kynnast henni. Vik- una áður en Susie fór ímyndaði ég mér framtíð hennar. Ég sá fyrir mér árangur í námi og starfi og fjölskyldu- konuna Susie. Ég hef nefnilega ætíð Susie Rut Einarsdóttir Legsteinar og fylgihlutir MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is • Mikið úrval • Yfir 40 ára reynsla • Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.